Þjóðviljinn - 06.11.1982, Blaðsíða 32

Þjóðviljinn - 06.11.1982, Blaðsíða 32
Helgin 30.-31. október 1982 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9—20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9—12 er hægt áð ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 nafn vikunnar Jóhannes Nordal Jóhannes Nordal Seðla- bankastjóri er nafn vikunnar að þessu sinni. Nafn hans tengist þeim umræðum og vangaveltum, sem borið liafa hvað hæst í vikunni, um vaxtahækkun Seðlabankans. Þessi ákvöröun Seölabanka- stjórnar hefur vakið upp spurn- ingar um vald Seðlabankans í þjóðfélaginu þar sem pólitískt vald ríkisstjórnar viröist mega sín minna en veldi bankans, einnig í pólitískum ákvöröunum. Enda hefur ekki staðið á mótmælunum. Ráðherrar í ríkisstjórninni hafa lýst sig andvíga ákvöröun Seöla- bankans og innan peningakerfis- ins hafa einnig heyrst andmæli gegn ákvöröuninni. Þannig talaði formaöur bankaráðs Utvegs- bankans um valdarán Seölabank- ans af þessu tilefni. Álbert Guð- mundsson benti um leið á að viðskiptabankarnir hefðu lengi verið undir ofurveldi Seðlabank- ans en það væri hins vegar nýtt af nálinni að bankinn tæki völdin af ríkisstjórn landsins. Þingflokkur Framsóknar- llokksins var meðal þeirra sem sendu frá sér harðorð mótmæli vegna þessarar ákvörðunar. I þeim þingflokki eru formaður bankaráðs Seðlabankans, 1 lall- dór Ásgrímsson og Tómas Árna- son bankamálaráðherra. Innan bankakerfisins erágrein- ingur eins og hér er bent á. Báðir armar bankaveldisins kvarta undan bágri fjárhagsstöðu bank- anna. En almenningur sér nú ekki nein merki þeirrar kreppu í bank- akerfinu. Útibú bankanna spretta eins og gorkúlur um allar jarðir og sjálfur Seðlabankinn er að byggja stórhýsi að ógurlegu umfangi. Allar þessar framkvæfndir benda til þess að bankakerfið muni ekki um einn hundraðshluta eða svo. Þá hafa málsmetandi hag- fræðingar lýst sig andvíga þessari ákvörðun Seðlabankans og telja vextina allt of háa. Jóhannes Nor- dal segir hins vegar að vextir séu afleiðing mikillar verðbólgu, basta. Sjálfstæðisílokkurinn er með undantekningum sammála á- kvörðun bankastjórnar Seðla- bankans - og oft þykja’ leyndir þræðir liggja á milli Valhallar og bankastjórans. Máske af því að hagsmunir eru þeir sömu? Pólitík snýst um fjármagn og réttindi. Vaxtahækkun Seðla- banlcans sýnir það og sannar, að peningum fylgja völd. í krafti þess valds getur Seðlabankinn tekið afdrifaríkar ákvarðanir. Og tekið sér pólitískt vald. Jóhannes Nordal er því ekki bara tækni- legur ráðgjafi og yfirmaður bank- amála, hann er áhrifa- og valda- mikill pólitíkus. Það er því engin tilviljun, að maðurinn er formað- ur stjórnar Landsvirkjunar, einn forsvarsmaður erlendrar stóriðju í landinu og meira og fleira. Jóhannes Nordal hefir um ára- tugi verið ókrýndur konungur krónunnar. Á þeim tíma hefur hún farið rýrnandi... -óg Það er alveg Ijóst að hversu vel sem skipið veiðir og h versu vel scm allur rekstur þess gengur, þá er útilokað að fiska fyrir fjármagnskostnaði og láta skipið standa undir sér, sagði Jón Magnússon, útgerðarmaður og skipstjóri frá Patreksfirði, sem í fyrradag tók við nýju fiskiskipi sem smíðað var í Stykkishólmi og hlaut nafnið Patrekur BA. Skipstjóri á þessu nýjasta fiskiskipi flotans verður Magnús Jónsson, og 1. vél- stjóri Jónatan Stefánsson. Jón Magnússon sagði að skipið væri 172 lestir að stærð. Skrokkur þess var smíðaður í Svíþjóð, en að öllu leyti var það byggt í Stykkis- hólmi. Pað er útbúið til línu, neta og trollveiða og er að allri gerð hið fullkomnasta. 1 því eru frystiklefar - Ljósm. gel. Leggjum af stað uppá guð og lukku Nýjasta fiskiskip fiotans Patrekur BA Feðgarnir Jón Magnússon útgerðarmaður t.h. og Magnús Jónsson skipstjóri sagöi Jón Magnússon frá Patreksfirði, eigandi bátsins og útbúnaður til djúprækjuveiða, sem Jón sagðist vera mjög spennt- ur fyrir yfir sumarmánuðina og mögulegt er að frysta rækjuna strax og hún kemur um borð, sem er nauðsynlegt til að hún haldi sem best lit, en ef svo er, fæst hæsta verð fyrir hana. Skipið kostar fullbúið 34 miljón- ir króna, en ef með er talinn sá gengismunur sem orðið hefur síðan smíði þess hófst sagði Jón að verðið færi nærri 50 miljónum króna. Sjáðu til, að á meðan Islendingar lifa af því að veiða fisk og selja, þá eralvegijóst að gera verðurút. Pað er Iíka Ijóst að endurnýja verður skipakostinn. Við lögðum elsta skipi flotans fyrir þetta nýja. Og fyrst að þetta er svona, þá verður með einhverjum ráðum að halda útgerðinni gangandi, það er mjög einfalt mál, sagði Jón Magnússon. Magnús Jónsson, skipstjóri, hef- ur fram til þessa verið stýrimaður og afleysingaskipstjóri hjá Jóni föður sínum, og er þetta nýja skip það fýrsta sem hann tekur við. Hann sagðist auðvitað vera svolítið kvíðinn, enda lífsspursmál fyrir út- gerðina að hann og áhöfn hans stæðu sig vel. Mér hefur gengið sæmilega þegar ég hef leyst af sem skipstjóri og vona að svo verði áfram, sagði Magnús. Jónatan Stefánsson vélstjóri var hrifinn af skipinu og sýndi okkur ýmsar nýjungar sem í því er, svo sem tvo rafala, sem tengdir eru aðalvél skipsins og munu koma til nteð að spara ntikla olíu. Jónatan hefur fylgst með smíði skipsins frá síðustu áramótum og hældi hann skipasmiðum í Stykkishólmi á hvert reipi og sagði þá afburða fag- menn, og bæri skipið allt þess glöggt vitni. - S.dór Jónatan Stefánsson vélstjóri við rafalanna tvo seni tengdir eru aðalvél skipsins, en það er algjör nýjung hér

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.