Þjóðviljinn - 06.11.1982, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 06.11.1982, Blaðsíða 13
Helgin 6. - 7. nóvember 1982 ÞJóÐVILJINN — S1ÐA13 Áslaug Brynjólfsdóttir hefur nú fyrir nokkru tekið við embætti fræðslustjóra í Reykjavík. Ekki gekk það alveg hljóðlaust fyrir sig fremur en stundum áður með embættaveitingará íslandi. Umsækjendurum starfið voru þrír, því miðurfyrirsuma:Áslaug Brynjólfsdóttir, Bessý Jóhannsdóttirog Sigurjón Fjeldsted. „Emraðin 1 að leggja mig alla fram” Áslaug Brynjólfdóttir, frseðslu stjóri Fulltrúar minnihlutaflokkanna í Fræðsluráði mæltu með Aslaugu í embættið. Líklegt þótti að ein- hverjir fulltrúar meirihlutans í Fræðsluráði myndu mæla með Bessý, aðrir með Sigurjóni. Gerð- ist þá eitt af tvennu: Annað hvort fengi annað þeirra 1 atkv., en hitt þrjú eða bæði hlytu 2 atkv. Það voru óheppileg úrslit sem með ein- hverjum hætti varð að girða fyrir. Því greip meirihlutinn til þess lúalega ráðs, að láta eins og Bessý væri ekki til, og aðeins kosið um þau Áslaugu og Sigurjón. Með því móti reyndist unnt að tryggja Sig- urjóni öll fjögur atkv. meirihlut- ans, en Áslaug fékk minnihlutaat- kvæðin þrjú. Endanleg niðurstaða varð svo sú, að menntamálaráð- herra skipaði Áslaugu í embættið. En hver er svo hinn nýskipaði fræðslustjóri, hvert er verksvið hans og hvernig segir honum hugur um starfið? Um þetta átti blaða- maður tal við Áslaugu Brynjólfs- dóttur, fræðslustjóra. Uppruni og nám - Ég er fædd að Krossanesi við Akureyri, segir Áslaug. Eru for- eldrar mínir Brynjólfur Sigtryggs- son, bóndi og kennari þar og kona hans Guðrún Rósinkransdóttir frá Æðey, vestfirðingur, eins og föðurnafnið bendir.til. Við vorum 7 systkinin, og er ég þeirra næst- yngst. Foreldrar mínir voru fremur fátækir, en lögðu hinsvegar á það mikið kapp að koma okkur systkin- um til mennta og klifu til þess þrí- tugan hamarinn. Tvær systur mínar luku gagnfræðaprófi og fóru svo í húsmæðraskóla, en við hin fimm lukum stúdentsprófi. Foreldrar okkar fylgdust mjög vel með námi okkar systkinanna og aðstoðuðu okkur eftir megni, bæði fjárhags- lega og á annan hátt. Stúdentsprófi lauk ég frá' Menntaskólanum á Akureyri 1952 og fór þá beina leið í heimspeki- deild Háskólans. Löngun mín stóð raunar fremur til þess að fara í Kennaraskólann, en ég þurfti að vinna með náminu og það var auðveldara í Háskólanum. Ári síðar fór ég svo til Þýska- lands og stundaði þar tungumála- nám. í Þýskalandi var ég alls í 3 ár, en sú dvöl skiptist raunar í tvö tímabil því í millitíðinni var ég einkaritari hjá Haraldi Guðmunds- syni, þáverandi forstjóra Trygg- ingastofnunar ríkisins, þeim ágæta manni. Upp úr þessu dvaldist ég svo í Bandaríkjunum í tvö ár, en er heim kom tók ég að mér að sjá um bóksölu stúdenta. Það fannst mér mjög áhugavert starf. Þá kenndi ég og stærðfræði við 3. bekk Voga- skóla. Enn var farið utan og í þetta skipti til E1 Salvador, þar sem ég dvaldi í eitt ár. Þá var ég komin með fjölskyldu, 4 börn frá 5-14 ára. Ég gat ekki sent þau þarna í skóla og varð því að kenna þeim sjálf. Krakkarnir tóku svo sín próf hér heima þegar þau komu um vorið. Og þá rættist nú loks sá draumur minn að komast í Kennaraskólann. Við hann nam ég í tvö ár og lauk kennaraprófi 1971. Haustið 1972 tók ég svo að kenna við Fossvogsskólann og varð yfirkennari þar 1973 og síðan að undanteknu því, að á meðan Kári Arnórsson, skólastjóri var í leyfi 1974-1975, gegndi ég skólastjóra- starfinu. Og nú er þetta víst orðið meira en nóg um sjálfa mig. Hér má raunar ýmsu bæta við, þótt Áslaug nefni það ekki. Hún hefur sótt fjölmörg námskeið í kennslu- og stjórnunarfræðum, bæði hér heima og erlendis, hlotið styrk frá Reykjavíkurborg til þess að kynna sér opna skóla í Englandi og tvisvar styrki frá Evrópuráðinu til þess að sækja námskeið um nýj- ungar í kennslumálum. Tvisvar hefur hún farið til Bandaríkjanna til þess að kynna sér þar mismun- andi skólakerfi, sem og á Norður- löndunum. Hún hefur setið í stjórnum Kennarafélags Reykja- víkur og Félags yfirkennara og skólastjóra, stjórn Ríkisútgáfu námsbóka (nú Námsgagnastofn- un) og í stjórn Fræðslumyndasafns ríkisins, stjórn Menningarsjóðs og Menntamálaráði. Ég býst ekki við að Áslaug kunni mér neinar þakkir fyrir þessa upptalningu, en það verður þá bara að hafa það. Hlutverkfrœðslustjóra - f hverju er svo starf fræðslu- stjóra einkum fólgið, Áslaug? - Fræðslustjóri er fulltrúi menntamálaráðuneytisins og hlut- aðeigandi sveitarfélaga um fræðslumál í umdæminu. Hann er framkvæmdastjóri fræðsluráðs. Meginverkefni hans eru: Að fylgjast með því að gildandi fyrirmælum um fræðslumál sé fylgt í grunnskólum umdæmisins, bæði hvað varðar kennslu- og stjórnun- armál, og í öðrum skólum, sem sameiginlega eru kostaðir af ríki og sveitarfélögum. Að hafa umsjón með gerð ár- legra rekstraráætlana fyrir grunn- skóla umdæmisins, endurskoða þær og senda menntamálaráðu- neytinu. Hann hefur í umboði mennta- málaráðuneytisins og sveitar- stjórna, umdæmisins umsjón með rekstri og eignum þeirra skóla, sem grunnskólalögin taka til. Dagleg umsjón er þó undanskilin. Hann hefur með höndum al- menna námsstjórn í grunnskólum umdæmisins og fylgist með árangri nemenda í samráði við skólarann- sóknadeild menntamálaráðu- neytisins og kynnir sér starfsskil- yrði skóla, en þar er átt við aðstöðu til kennslu og náms og aðbúnað nemenda. Hann úrskurðar ágreiningsefni, sem upp kunna að koma milli skólastjóra og kennaraliðs og skólastjóra og kennarafunda. Hann gerir. í sambandi við meint brot kennara eða skólastjóra í starfi, þær ráðstafanir. er hann tel- ur þörf. Hann hefur umsjón með ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu í grunnskóla. Hann kannar, í samvinnu við ' skólastjóra, og skólalækni og sál- fræðideild hvort í fræðsluumdæm- inu séu nemendur, sem ekki eiga samleið með öðrum nemendum sakir sjóndepru, blindu. heyrnar- galla, málhelti, málleysi, tornæm- is, vanvitaháttar eða annars, er tor- veldi eðlilegan námsferil þeirra, og hlutast til um að þeir fái kennslu við sitt hæfi. Nauðsyn almennrar umrœðu Hér hef ég þá í stórum dráttum skýrt frá verkefnum fræðslustjóra eins og það er greint í grunnskóla- lögunum. í allt þetta hlýtur auðvit- að að fara mikill tími, svo minna tóm gefst til að sinna hinum kenn- slufræðilega þætti en skyldi. Ég held, að nauðsynlegt sé að fram fari meiri almenn umræða um skólamálin og skólastarfið verði skoðað í víðara samhengi en nú er kannski gert. Starfshættir skólanna þurfa að taka mið af breyttum þjóðfélagsháttum og vera í sam- ræmi við þá. í skólanum þyrfti að fara fram meira uppeldisstarf. Við íslendingar höfum sérstöðu um svo margt og því þurfum við að móta okkar eigin skólamálastefnu en ekki apa allt eftir - jafnvel misheppnuðum - tilraunum ann- arra þjóða. En auðvitað þurfum við þar fýrir að fylgjast vel með því, sem annarsstaðar gerist í þessum efnum. Við gætum áreiðanlega siglt fram hjá ýmsum skerjum ef við hugleiddum málin í tæka tíð. Heimilin og skólinn þurfa í sarn- einingu að sinna betur ræktun til- finningalífs barna, því að á unga aldri er lagður grunnurinn að sjálfsmynd einstaklingsins og helstu þáttum í myndun viðhorfa hans til lífsins. Börn þurfa mikið á að halda hrósi og hvatningu, en þurfa jafnframt að finna til eigin ábyrgðar og að til þeirra sé borið traust. Ég álít æskilegt, að nemendum í efstu békkjum grunnskólans sé gefinn kostur á „hægferð" í námi, því þótt ekki sé talað um fall, þá er það svo í raun, því að margir kom- ast ekki í framhaldsnám vegna lágrar einkunnar. Börn þroskast missnemma á öllum sviðum og því óeðlilegt að gera sömu kröfur til allra og miða þá alfarið við aldur. Sé miðað við eitthvert meðaltal, þá er farið of hratt fyrir suma en of hægt fyrir aðra. Þetta skapar þreytu, leiða og vonleysi. Það þarf að gefa þeim nemendum, sem dug- legir eru og með sérhæfileika, kost á að njóta þeirra og rækta þá, en jafnframt að taka tillit til hinna, sem seinfærari eru. Verklega námið Nauðsynlegt er að meta verk- legu kennsluna meir en nú er gert og ieggja ríkari áherslu á verklegar greinar. Talað er um að á næstu árum þurfum við aö útvega 20-30 þúsund manns störf við iðnað. Undirbúningur að því þarf að hefj- ast þegar í grunnskóiunum. Fyrir þessu þarf skólinn að gera sér grein, og þessum þörfurn verður hanna að mæta. Hverskonar tækni fleygir óðfluga fram, og skólinn verður að fylgjast með tækninýj- ungum, hann þarf að kenna aðfara með tölvur, taka vídeóið í þjónustu kennslunnar, o.s.frv. Skólinn á í harðri samkeppni, og hann má ekki vera leiðinlegastur allra. Og skólinn má ekki vanrækja að fræða unglingana sem best um skaðsemi fíkniefna, hann verður að taka upp harða baráttu gegn neyslu þeirra, og má ekki seinna vera. Samstarf heim- ila og skóla í þessu sem öðru þarf samstarf miili heimila og skóla aö aukast mjög, og raunar þarf skólinn að leggja áhersiu á mikilvægi þess, að foreldrar sinni börnunum sem best, því þau hafa betri aðstöðu til þess að kynnast þeim og áhuga- sviðum þeirra en kennarinn, sem er gjarnan með 25-30 börn í bekk. Enda þótt vinnuálag sé núkið, þá hafa foreldrar þó meiri tíma og ekki síst betri aðstöðu til þess að sinna börnunum sem einstak- lingum en kennarinn. Og allar kennslufræðilegar rannsóknir hafa leitt í ljós að nám er einstaklings- bundið og persónulegt. Mér hefur stundum orðið hugs- að um hvort ekki væri þörf á því að koma upp hér í Reykjavík einskon- ar fjöiskyldumenningarmiðstöð þar sem foreldrar gætu komið saman með börnum sínum og kennurum, rætt við þá og kynnt sér hvað er gert fyrir börnin í skóla- num. Eða þá að gefnar væru út handbækur þar sem bent væri á hvernig foreldrar gætu best orðið börnunum að liði sem kennarar. mhg ræöir viö Áslaugu Brynjólfsdóttur, frœöslustjóra Bíð átekta - Nú hefur einhversstaðar skotið upp þeirri skrítnu hugmynd, að skyndileg nauðsyn krefjist þess að færðar verði frá fræðslustjóra- embættinu einar 700 stöður og að. eftir verði þá aðeins rúmar 30. - Já, fyrst þú minnist á þetta vil ég leiðrétta misskilning sem þetta virðist hafa valdið, því margir hafa spurt mig hvort fræðsluskrifstofan væri þetta ógnar bákn. Hér starfa á milli 30 og 40 manns. Sjálf veit ég ekki hvaða stöður er verið að ræða þarna um: sumir hafa nefnt það fólk, sem vinnur að ræstingum og viðhaldi. Hitt held ég að e.t.v. mætti benda á, að samkvæmt lögum hafa menntamálaráðuneytið og fræðslustjóri yfirstjórn skólastjóra kennara og allrar sálfræði- og ráðgjafarþjónustu. og þetta starfs- lið er ekki í þessari 700-800 manna tölu, sem rætt hefur verið um að færa frá embættinu Ég sé í sjálfu sér ekkert athuga- vert við það að borgarstjórinn æski eftir viðræðum við menntamála- ráðuneytið um stöðu fræðsluskrif- stofunnar. Hins vegar sé ég ekki ástæðu til að tjá mig um þessi mál, heldur sjá til hvað út úr þessum viðræðum kemur. í þeim verður eðlilega stuðst við lög um grunn- skóla, og mér er ekki ljóst, að hvaða leyti hefur ekki verið farið eftir þeim og þá hversvegna. Ég vil aðeins benda á, að það er ekki hægt að bera fræðslustjóra- entbættið hér í Reykjavík saman við hin. í grunnskólalögunum stendur: „I Reykjavík fer Fræðsluráð með hlutverk skólanefndar". Þarna hefur Reykjavík sérstöðu þar sem annarsstaðar eru skóla- nefndir í sérhverju skólahverfi og á vegum sveitarfélaga. Þannig eru allsstaðar margar skólanefndir í hverju fræðsluumdæmi. En svo eru fræðsluráð i hverju fræðsluum- dæmi, en þau eru alls 8 á landinu og þar með náttúrlega Reykjavík. Fræðslustjóri er svo framkvæmda- stjóri fræðsluráðs og jafnframt for- stöðumaður fræðsluskrifstofu. Mun gera mitt besta - Nú ert þú fyrsta konan, sem skipar þetta starf, og fræðslustjórar munu allir vera karlmenn. Hvernig er þér innanbrjósts þegar þú ert nú allt í einu orðin fræðslustjóri? - Mér er Ijóst, að ég hef nú tekið við ábyrgðarmiklu starfi, en ég er staðráðin í að leggja mig fram um að leysa það eins vel af hendi og ég hef þekkingu og vit til, og hjá mér mun skólinn og skólastarfið og allt, sem ég tel best til úrlausnar í þeim efnum, ætíð sitja í fyrirrúmi. Þetta langar mig til að taka fram, ekki af neinni jafnréttishugsjón, þó að ég viðurkenni vissulega mismun kynj- anna. En reynsluheimur okkar kvenna er annar en karla. Við kon- ur höfum, öttullega að ég vona, unnið ýmis hin smærri verk, sem þó eru undirstaða stærri verkanna. Mér finnst að konur séu yfirleitt nær vandamálum hins almenna manns í samfélaginu og að þær geti nálgast viðfangsefnið frá öðrum sjónarhóli en karlmaðurinn; við- horf þeirra geta verið önnur, og þær leggja gjarnan annarskonar áherslur á hlutina en karlmenn gera. Ég tel að það geti verið gott fyrir samfélagið að tekið sé tillit til viðhorfa kvenna og þá einmitt ekki hvað síst í uppeldis- og kennslu- málum. Ég á sjálf fjögur börn, sem nú hafa gengið í gegnurn öll skóla- stigin frá leikskóla og upp í há- skóla, og það yngsta er nú raunar í efsta bekk menntaskóla. Ég hef margt lært á því að fylgjast með námi og starfi barnanna, og ég, held, að það sé nokkdð gott vega- nesti til þess að taka við þessu starfi. Ég er ákaflega ánægð með sam- starfsfólk mitt hér. Það hefur tekið mér af sér sérstakri alúð og elsku-, semi. Slíkar viðtökur eru mikils virði hverjum þeim, sem tekur við nýju starfi, sagði Áslaug Brynjólfs- dóttir að endingu. - mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.