Þjóðviljinn - 06.11.1982, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN
béhmenntir
Opnunin á Scandinavia Today í
Kennedymiöstööinni í
Washington var stór stund,
sagöi Ragnar Björnsson, sem
varsöngstjóri Fóstbræðraí
Bandaríkjaferðnúfyrir
skemmstu. Kórinn söng við
þessa opnun og í Minneapolis
og fór síöan í vel heppnað
söngferðalag um Bandaríkin.
Fall er
fararheill
Fall er fararheill: söngstjórinn
var reyndar nærri drukknaður í
upphafi ferðarinnar í sundlaug á
Hilton-hóteli í Washington, hann
hafði kafað og týndi áttum og vissi
ekki lengur hvað sneri upp og hvað
niður. Má vera að hér hafi virkað
römm álög; sagan segir að Hilton-
hótelhringinn hafi stofnað feðgar
tveir úr Skagafirði, sem létu ekkert
uppi um uppruna sinni Vegna þess
að faðirinn hafi verið fátækur piltur
á Hjaltastöðum (?) og átt son sinn
með ríkri heimasætu sem hann
ekki fékk að giftast.
En allt fór það vel. Rösklega 40
söngmenn voru í ferðinni með kon-
ur sínar margir, og undirleikari var
Jónas Ingimundarson.
- Söngferðalagið, sagði Ragnar,
var farið um miðvesturríkin og í átt
til New York. Fóstbræður hafa það
sér til ágætis - og erfiðleika - að
þeir hugsa meira um að syngja vel
en hinar praktísku hliðar á málum.
Til dæmis fóru þeir fullseint af stað
með að undirbúa þetta ferðalg. Og
þótt áhugi reyndist mikill eftir að
tónbönd voru send vestur til kynn-
ingar, þá voru stærri staðirnir búnir
að taka sínar músíkákvarðanir.
Við sungum aðallega á minni stöð-
um. Og þótt mér sé málið skylt, þá
vil ég segja þetta: Kórinn er svo
góður að hann hefði átt skilið að
syngja í miklu stærri borgum. Ég
vona hans vegna að af því verði, ef
Fóstbræður fara aftur vestur.
Áttatíu
páfagaukar
Móttakendur voru tónlistarfélög
eða skólar. Tónleikarnir voru yfir-
leitt vel sóttir og móttökur ágætar.
Stundum var sungið í íþrótta-
sölum, sem taka mörg þúsund
inanns.en voru kannski ekki ákjós-
anlegustu húsakynni til að syngja
í. Við gistum í Minneapolis og víð-
ar á einkaheimilum, og sú tilhögun
tókst furðu vel. Auðvitað er það
misjafnt hvernig fólki líkaði - það
eru til dæmis ekki allir vanir því að
Viðtal vid
' Ragnar
\ Björnsson,
^söngstjóra
Fóstbrædra í
I Bandarfkjaför
r 1 n 11
9 » * H t
Fóstbræður sitja við opnun Scandinavia Today í Minneapolis.
Allir geta eitthvað
spilað á röddina...
sofa innan um áttatíu páfagauka
eins og einn okkar lenti í.
Dagskráin var oftast á þá leið, að
við byrjuðum á íslenskum þjóð-
lögum í mismunandi stíl. Síðan
kom norrænn þáttur og síðast fyrir
hlé íslensk nútímatónlist. Eftir hlé
gerðumst við alþjóðlegir og
reyndum þá að sýna ýmsar stílteg-
undir, allt frá miðöldum og til okk-
ar daga. Fóstbræður gátu og brugð-
ið fyrir sér þeirri kvartettahefð,
upprunninni í Bandaríkjunum,
sem kennd er við rakarastofur...
Karlakórahefð
- Hvernig stendur á því, Ragnar,
að karlakórahefðin er svona sterk á
íslandi?
- Ég held að söngur hljóti að
vera ofarlega á palli á meðan tón-
list er flutt yfir höfuð. Röddin er
það hljóðfæri sem allir geta farið
með að einhverju marki, ekki satt?
Erlendis, í Mið-Evrópu og ég
held í Bandaríkjunum líka, eru
karlakórar að mjög verulegu leyti
klúbbar. Hér er þessi félagsskapur
líka sterkur sem slíkur og vafálaust
mikils virði þátttakendum í hon-
um. En þó hafa mál hjá okkur þró-
ast miklu meir við hliðina á þessari
skandinavísku kóramenningu, sem
stefnir fyrst og síðast að því að
flytja góða tónlist. Sumir karlakór-
arnir á Norðurlöndum, Orfeusar-
drengir í Svíþjóð og Kátir músík-
antar í Finnlandi til dæmis að taka
eru mikils metnir sern tónlistar-
appíröt, þetta eru heimsfrægir kór-
ar sem hafa flutt allskonar tónlist
framúrskarandi vel. Það skiptir
ekki öllu máli hvernig hljóðfærið er
saman sett, heldur fyrst og fremst
hvernig það nýtist...
Við minntumst á vinsældir Vig-
dísar og ágætt listafólk frá öðrum
Norðurlöndum sem var með í för
og á þær furður, að leikvangur
fylltist af fólki í Minneapolis vegna
norrænu kynningarinnar.
Mannfólkið
og fúgan
- Fjarlægðir voru miklar á þess-
um leikvangi, sagði Ragnar. Pað
hlýtur því að hafa verið erfitt að
njóta danska ballettsins þar, og í
raun og veru gat tónlistarflutningur
ekki notið sín þar heldur - og ekki
voru menn að horfa á amerískan
fótbolta. Hvers vegna komu 65
þúsundir manna? Hafði svona mik-
il þjóðerniskennd gripið fólk af
norrænum ættum að það vildi fyrir
alla muni koma margt saman á einn
stað? Kannski á smáþjóðar maður
erfitt með að skilja þetta. Banda-
ríkin eru, að því er varðar þjóð-
ernislegan margbreytileika, furðu-
heimur og í því efni svipuð mót-
hverfu sinni, Sovétríkjunum. Þjóð-
ir margar með ólíkan arf undir ein-
um hatti...
Ég var í morgun að æfa Bach-
fúgu og mér fannst að sambúð
manna í þessari veröld væri von-
laus nema þeir komi sér upp sam-
býli eins og því sem er að finna í
fúgu. Aðalstefin eru tvö eða þrjú
kannski, en svo koma aðrir hlutir
inn í fúguna, sem eru ekki síður
nauðsynlegir en þessi aðalstef, þótt
þeir geti sýnst smáir hver um sig og
skera kannski úr um það hvort fúg-
an verður áheyrileg. Ef að þessi
einkastef ætluðu að hlaupast burt
frá heildinni myndu þau týnast,
þau kæmust ekki langt á eigin fót-
um. Og ef þau færu, væru aðalstef-
in litlaus og líflaus...
Skajjaleiknokkiiriiin.
OKKAR MAÐUR
eftir Jónas Arnason
Leikstjóri:
Sigrún Valbergsdóttir.
Leikmynd: Bjarni I>. Bjarnason
og Guðjón I>. Kristjánsson.
Dansar: Kristinn Reimarsson.
Lýsing: Hlynur Eggertsson.
ríkja. Sjálfur er hann sakleysingi
hinn mesti og óskrifað blað - en
hann hefur orðið þekktur fyrir
framgöngu á allt öðru sviði og er
þægilegur til að hnoða og móta og
búa úr honum mynd af leiðtoga
sem síðan er hægt að selja með
þróaðri auglýsinga-og fjölmiðl-
forðast dauðu punktana, heldur
uppi ntargskonar fjöri sent gerist
æ æsilegra. Helst verður gaman-
leikrit hans gagnrýnt fyrir van-
nýtta möguleika, ef svo mætti að
orði kveða. Þá er átt við það, að
til dæmis í prýðilega útfærðu upp-
hafsatriði (frambjóðandinn svar-
Að selja forseta
Skagaflokkurinn var heimsótt-
ur á sjöttu sýningu á nýjum gam-
anleík eftir Jónas Árnason, og
gesti var sagt að þegar hefði að-
sóknarmet verið slegið þar upp
frá.
Áður en sýning hófst heyrði sá
sami gestur konu fyrir aftan sig
segja: „Það er alveg sama hvað
hann Jónas setur saman. Þótt
manni kannski finnist þaðþunnt,
er það stórsniðugt samt". Kann-
ski er í þessum orðum falin sjálf
formúlan fyrir ærslaleik sem
þjónar sínum tilgangi: einhvers-
konar dans eftirósýnilegri línu og
geta menn dottið út af fyrr en
varir, en léttir góður og hlátrar
fylgja þeim sem yfir kemst, þótt
oft sé teflt í tvísýnu.
Okkar maður er P.B, Páll
Benjamín, einskonar forsetaefni
við aðrar aðstæður nokkuð en nú
atækni. Síðan er spunnin heil-
mikil flækja kringunt það snjall-
ræði kosningastjóra, að láta ræna
eiginkonu frambjóðandans á síð-
ustu stundu, til að liann megi
Árni Bergmann
skrifar um
leikhús
sýna göfugmennsku nokkra við
að leysa hana út. Allt fer það þó í
þrefalt skötulíki'eins og vera ber
- mannræningjar flækjast liver
fyriröðrum, fara kvennavillt með
ýmsum herfilegum látum nieð
þeim afleiðingum að persónum
fækkar smám saman eins og í
kvæðinu um tíu litla negrastráka.
Jónas kann vel á þetta form.
ar spurningunt í sjónvarpssal) er
farsaþemað notað allrækilega til
að vísa skemmtilega til ýmissa
séríslenskra aðstæðna. Því er
reyndar haldið áfrant, ekki síst í
söngtextum, þar sem vel þekkt
hagmælska Jónasar á góða
spretti. En seinni partinn rýrna
mjög hinar íslensku tilvísanir og
sjálf hin „alþjóðlega” leikflétta
ærslaleiksins tekur völdin, lítt
bundin stund og stað.
Sigrún Valbergsdóttir er leik-
stjóri. og verður ekki betur séð
en hún hafi náð upp góðuni
starfsanda: leikendur og áhorf-
endur skemmtu sér vel, og þar
með er áhugamannastarf af þessu
tagi þegar allvel sett. Best voru
fjölmiðlaatriðin útfærð. Leik-
myndin þjónaði vel því megin-
hlutverki að nýta mjög grunnt
svið og greiða fyrir ótal inn-
Sigurhátíð sæl og blíð í frjálsu sjónvarpi.
komum.
Það er alltaf erfitt að fjalla um
frannnistöðu einstakra manna í
áhugaleikflokki: erfitt að koma
sér niður á það við hvað skal
miða; og síðan vita allir, að sjald-
an blæs svo byriega að valinn
maður geti verið í hverju rúnti.
Heildarsvipurinn var á þá leið hjá
Skagamönnum, að sviðsöryggi
þeirra gat bilað öðru hvoru.
framsögnin datt stundum í óvissu
- en aldrei féllu þeir í vandræða-
skap, miklu heldur hrifu þeir sal-
inn með sér með leikfjöri og frísk-
leika. Mest mæddi á PB, sem
Sveinn Kristinsson lék. og kosn-
ingastjóra hans, vesturíslenskum
gaur, sem Valgeir Skagljörð
leikur. Sveinn var hinn hressileg-
asti og prýðilega forkláraður
frambjóðandi, bestur í fjölmiðla-
atriðunum og í kvennafreisting-
um sem dynja margar á veslings
PB. Valgeir kom sér upp drjúgu
taktasafni, sem dugði lionuin vel
og var manna óþvingaðastur á
sviðinu. Eiginkonan (Ingunn
ívarsdóttir), siðverndarkonan
(Guðfinna Rúnarsdóttir), ræðu-
skrifarinn drykkfelldi (Auður
Sigurðardóttir), og ræstingakon-
an á kosningastassjóninni (Hrönn
Eggertsdóttir), áttu allar góöa
farsaspretti svo sem andi leiksins
bauð. Tríóið sem spilaði undir
sýndi eftirbreytniverða hugul-
seini: það hleypti textunum vel í
gegn. Hljómburður er reyndar
vohdur í leikhúsi Skagamanna,
en ekki ber sá duglegi leikflokk-
ur, sem að verki stóð, ábyrgð á
því.
-áb.