Þjóðviljinn - 06.11.1982, Side 15
Helgin 6. - 7. nóvember 1982 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 15
veruleikans, heldur er hún hluti af
veruleikanum í heild sinni. Þegar
vel tekst getur bókmenntaverk
höföað til skilnings á fleiri en einu
plani, og ég held að það sé skýring-
in á vinsældum bóka minna. Það er
tii dæmis eitt lestrarsvið fyrir
menntamenn og annað fyrir leigu-
bílstjóra.
Sjálfur segist Garcia meta leigu-
bílstjórann meira sem lesanda
en menntamanninn.
Að skrifa
Garcia segir að vinnumáti hans
við skriftir sé mismunandi eftir
viðfangsefninu. - Sumar bækur
< mínar eru ritaðar innan strangs
ramma, svo viðfangsefnið hlaupi
ekki frá mér. Það gildir t.d. urn
„Liðsforingjanum berst aldrei
bréf“, „Skýrsla unt boðaðan
dauða“ og „Haust patríarkans“, en
hins vegar er „Hundrað ára ein-
semd“ og sú bók sem ég er nú að
skrifa lausbeisluð verk sent krefjast
annars ritháttar.
- Þegar ég sest niður til að skrifa
bók hef ég ávallt fleiri en eina hug-
mynd í kollinum. Sumar bækurnar
eiga sér iangan meðgöngutíma. Ég
fékk hugmyndina að „Haust patrí-
arkans“ í lok 6. áratugarins. Ég
byrjaði á henni þá, en hætti síðan
til þess að skrifa„Hundraðáraein-
sémd“. Það var fyrst löngu seinna
sem ég snéri mér að þessu verki.
Hugmyndirnar gerjast með mér
þar til loksins að ein vinnur kapp-
hlaupið, án þess þó að það feli í sér
að hinar séu gleymdar.
Hann segist ekki byrja að skrifa
bækur sínar fyrr en hann hafi samið
þær í huganum svo vel, að honum
finnist hann hafi lesið þær. Á með-
an sagan og sögupersónurnar eru
að verða til í huga hans segist hann
lesa sér til um allt er viðkemur
söguefninu.
- Þegar ég loksins sest niður við
að skrifa, þá vinn ég reglubundið
frá klukkan 9 til hálf þrjú. Þannig
skrifaði ég „Hundrað ára einsemd"
á 18 mánuðum eftir margra ára
undirbúningsvinnu. Ég gæti reglu-
semi í mataræði, æfi hnefaleika til
að halda mér í þjálfun og reyni að
halda mér ávallt í sama skapinu,
sem oftast tekst, konu minni til
undrunar og stundum til leiðinda.
Ég skrifa á rafmagnsritvél, og ef ég
geri villu skrifa ég alla síðuna upp á
nýtt. Venjulega tekst mér að skrifa
eina síðu á dag. Það er erfitt. Þegar
ég skrifaði „Haust paríarkans"
skrifaði ég oft ekki meira en 3-4
línur á dag.
- Eftir að ég hef lesið síðustu
próförk bókar fyrir prentun les ég
hana aldrei aftur. Ég reyndi einu
sinni að lesa „Hundrað ára ein-
semd", en ég varð að leggja hana
frá ntér, því ég var alltaf að hugsa
um, hvernig ég hefði skrifað hana
nú, og það var ntér ofraun.
Hefðartau
og guayabera
Garcia Marquez er boðið til
Nóbel-veislunnar í Stokkhólmi
hinn 10. desember n.k. Það er með
fínni veislum, og blaðamaður spyr
hvernig rithöfundurinn ætli sér að
koma til fara, hvort hann ntuni
mæta í kjól og hvítu.
- Ég er ekki rnikið gefinn fyrir
þeita hirðsiðatau, og vildi helst
rmeta í guayabera, (en það er eins
konar skyrtujakki með blúndum
og bróderíi sent notaður er af háum
sem lágum við hátíðleg tækifæri í
löndunum við Karíbahafið). -
- Ég vildi þó ekki að litið væri á
það sem eitthvert sérviskuuppá-
tæki frægs rithöfundar.heldur að
það væri meint í alvöru. Þegar
klæðnaður Indverja og Afríkubúa
er viðurkenndur sem hæfandi,
vegna þess að um þjóðbúninga er
að ræða, þá ætti guayaberainn að
vera viðurkenndur á sama hátt. En
ég hef ekki ákveðið mig ennþá.
Mér skilst að það sé hundakuldi
þarna norðurfrá, en ég hef rnálið til
alvarlegrar yfirvegunar, - sagði
skáldið og teygði brosandi úr sér í
húsgarði sínum í Mexíkóborg, þar
sem viðtal þetta var tekið fyrir um
það bil hálfum mánuði.
ólg. endursagði
Páll Hildiþórs:
Ú tvarpið
og þjóðin
Þegar Ríkisútvarpið var stofnað
árið 1930 urðu þáttaskil í menning-
armálum þjóðarinnar. Þau tíma-
mót er þá urðu, hafa orðið afdrifa-
ríkari en nokkurn óraði fyrir.
Hugsið ykkur, lesendur góðir,
hvernig ástandið var þá í landi voru
á því herrans ári 1930. Þjóðin í hel-
greipum heimskreppunnar, og
ekkert annað framundan en fram-
kvæmdarleysi, fátækt og hokur.
En þá gerðist það að íhaldsöflin í
landi voru biðu ósigur í kosningun-
um 1927 og við tók stjórn verka-
manna og bænda, og stóð að þeirri
þróun í efnahags- og menningar-
málum er hafa orðið hornsteinar
að ýmsum þjóðþrifamálum fram á
þennan dag. Þessi stjórn tók ekki
einungis við slæmu árferði heldur
slæmri stjórn, en sanit tókst henni
að verða einhver merkasta frarn-
farastjórn er verið hefur í landi
voru við þær slæmu aðstæður sem
áður er lýst.
Ég ætla ekki að tíunda allt er
þessi framfarastjórn kom til leiðar,
en eitt mál ætla ég að taka út úr og
ræða, en það er um tilkomu Ríkis-
útvarpsins, en með tilkomu þess á-
lít ég að orðið hafi þáttaskil í ísl.
menningarmálum.
Jónas Jónsson frá Hriflu var
menntamálaráðherra í þessari
stjórn, og það var hann er átti
mestan þáttinn í að gera útvarps-
rekstur á íslandi að veruleika.
Jónas frá Hriflu var mjög um-
deildur maður á sínum tíma, og
sennilegt er að enginn stjórnmál-
amaður hafi verið eins hataður af
andstæðingum sínum og hann, en
hann var víðsýnn umbótamaður og
stórtækur og vildi lyfta landi sínu úr
þeirri lægð er það var í á þessum
tíma. Það var draumurinn um nýtt
og betra ísland er vakti fyrir þess-
um eldhuga.
Fólkið í landinu fagnaði útvarp-
inu, það fór ekki á rnilli mála. Ég
man það í æsku minni er þetta
undratæki kom á heimili mitt, að
gömul kona sat á rúmi sínu með
prjóna sína og réri fram í gráðið.
Þetta átti ég eftir að lifa að hann
Helgi minn Hjörvar væri hér hjá
mér í stofunni. Þetta sagði þessi
gamla heiðurskona um leið og hún
tók upp silfurdósir og fékk sér fín-
lega í nefið að gefnu tilefni.
En hverfum nú aftur til nútíðar.
Hvar eru þessi útvarpsmál á vegi
stödd nú árið 1982 eða rúmri hálfri
öld síðar? Nú virðist nefnilega vera
komin fram í dagsljósið hreyfing er
nefnir sig frjálst útvarp, og vill af-
nema einkarétt útvarpsins og vaða
svo inn í menningarhelgi þjóðar-
innar og læsa peningaklónt sínum í
þá stofnun er á að standa vörð um
sóma vorn og heiður.
Það þarf ekki að fara í neinar
grafgötur um það hverjir það eru
sem vilja afnema einkarétt út-
varpsins, það eru gróðaöflin í
þjóðfélaginu rétt einu sinni enn.
Geta þessir gróðadólgar ekki séð
menningarmálin í friði eða hvað?
Af hverju fara þeir ekki fram á að
fá Þjóðleikhúsið í sinn hlut og reka
það sem braskfyrirtæki? Nei, þess-
ir braskarar ættu sem mest að
sneiða fram hjá menningarmálum í
þessu landi, það færi þeim best.
Útvarpið er þjóðartenging. Það
hefur í hálfa öld verið skemmtun
og öryggi fólksins, ekki hvað síst út
um hinar strjálu byggðir Iandsins,
en það á að bæta það að sjálfsögðu,
gera það nútímalegra og fjöl-
breyttara, fá a.m.k. aðra rás, þróa
upp landshlutaútvörp eins og ný-
lega er byrjað á, en umfram allt
undir hatti ríkisútvarpsins.
Nú hefur verið sett nefnd á lagg-
irnar til að rannsaka allan útvarps-
rekstur og gera bætt skipulag í
þessum málum. Þessi nefnd hefur
■... —DŒ-tajf-J* —
jR-a-fj-h o —BOÐ
Eldavél og vifta
á aöeins kr. 8.762 í hvítu
og kr. 9.746 í lit.
Höfum einnig gott úrval af
ZANUSSI heimilistækjum
auk fjölda smærri tækja.
Sendum í póstkröfu —
Austurveri — Háaleitisbraut
68. sími: 84445—86035..
klofnað og vill meirihlutinn, að
verulega sé slakað á einkarekstri
útvarpsins, en aftur á móti vill
minnihlutinn sem er skipaður aí
formanni útvarpsráðs og útvarps-
stjóranum að sem minnst sé hvófl
að við þeim grundvelli er. ríkisút
varpið var byggt a í upphafi. Þess
,um ágætismönnum, þeim Vil-
hjálmi og Andrési, er það fyllilega
ljóst að útvarpið er einn af horn-
steinum ísl. menningar eins og eld-
huginn frá Hriflu hugsaði sér það í
upphafi, er það kom eins og Ijós-
geisli inn í líf þjóðarinnar.
Nýlega flutti Helgi Pétursson
fréttamaður ágætt erindi í útvarpið
um þessi mál og fletti rækilega ofan
af heimsku og fljótíærni þeirra
manna er vijja frjálst útvarp í
landinu. Ég vil ráðleggja öllum að
lesa þessa grein Helga sem er eitt
það besta er ég hef heyrt unt þessi
mál.
Ég hefi ekkert minnst á sjón-
varpið í þessari grein, en auðvitað
gildir það sama með það og útvarp-
ið. Þessir fjölmiðlar verða ekki að-
skildir, og eru jafnt í hættu fyrir
þessum bröskurum.
Þess vegna segi ég, rnál er að
linni. Ég skora á-iyfirvöldin að
standa vörð um Ríkisútvarpið svo
að þetta óskabarn þjóðarinnar
lendi ekki í tröllahöndum.
Útvarpið er þjóðartenging. Það hefur í hálfa öld verið skemmtun ogöryggi
fólksins ekki hvað síst út unt hinar strjálu byggðir landsins.
Hvað ungur
nemur-
gamall föt=,o.
temur.
yuj^FEHOAfi
Þroskahjálp
á Vesturlandi
heldur aöalfund sinn í Hótel Borgarnesi
laugardaginn 13. nóv. kl. 15
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
Greinargerö um störf svæöisstjórnar þroska-
heftra.
Önnur mál.
Stjórnin
Húsasmiðir!
Okkur vantar mann meö réttindi húsasmiða
til tímabundinna starfa viö húsaskoöun.
Laun samkv. launakerfi ríkisins.
Upplýsingar í síma: 84211
Fasteignamat ríkisins.