Þjóðviljinn - 06.11.1982, Side 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6. - 7. nóvember 1982
Helgin 6. - 7. nóvember 1982 1 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
Viljirðu hitta fróðan og
skemmtilegan mann á
Patreksfirði, þá skaltu líta við
hjá Guðmundi Sigurðssyni,
fyrrum bóndaen nú
verkamanni, og skilaðu til
hans kveðju frá mér, sagði
Kjartan Ólafsson ritstjóri
þegar ákveðið var að
undirritaður færi íefnisöflun
þangað vestur. Ég hitti
Guðmund niður við höfn, þar
sem hann var að vinna,
skilaði kveðjunni og spurði
hvortég mætti heimsækja
hann um kvöldið og eiga við
hann svolítið blaðaviðtal.
Hann tók kveðjunni vel og
bauð mig velkominn heim til
sín um kvöldið. Ég þáði
boðið og við sátum yfir kaffi
að íslenskum sið og ræddum
um flest milli himins og
jarðar, án þess að það allt
komi fram i þessu viðtali.
... mikið vantar á að
bœndurséu sjálfs sín
húsbœndur...
..menn eiga ekkiaðbúa
svo lengi að þeirfari að
skemma jörðina....
...er ekki sagt að drukkið
sé ígegnum suma menn,
geturþá ekki líka verið að
ort sé ígegnum þá...
aumingjar
...ég hefekki um dagana
fundið meiri andlegan
aumingja en þessa menn
sem sitja áAlþingi...
Guðmundur er meðalmaður á
hæð, knálegur, en fas hans allt ber
merki þess rólyndis og þeirrar yfir-
vegunar, sem svo sjaldgæft er orðið
að fyrirhitta hjáfólki nútímans. Al-
ger andstaðá þeirrar streitu
ogþess hraða sem ríkjandi
er í þjóðfélaginu. Hann talar
hægt en afskaplega skýrt, og ^ ^
allar hans lífsskoðanir eru T
fastmótaðar, hann færir sín S S
rök fyrir þeim öllum.
Það kom strax í Ijós að Guð-
mundur er áhugamaður um pó-
litík. Hann er sósíalisti, einn af
þeim sem hin harða lífsbarátta fyrri
tíma gerði að róttækum nranni.
Þetta
eru
- Ef þú ætlar að birta eitthvað úr
þessu rabbi okkar þá máttu skila
því, að ég er óánægður með vinnu-
brögð Alþýðubandalagsins. Flokk-
urinn hefur gengið inní ríkisstjórn,
aftur og aftur, án þess svo mikið
sem hrófla við hernámsmálinu.
Þessu á ég erfitt með að una, og
veistu það, að ég óttast það að mál-
um sé nú þannig komið að Sjálf-
stæðisflokkurinn fái hreinan
meirihluta á Alþingi.
- Áttu þá við að pólitíkin í
landinu sé komin á svo lágt stig að
þetta geti gerst?
- Einmitt, ég óttast það. En
hvernig ætti annað að vera? Ég hef
ekki um dagana fundið meiri and-
lega aumingja en þessa menn sem
sitja á Alþingi. Nú er orðið sama
hvaða mál kemur upp á þingi;
menn rífast útaf öllu, segja hver
annan Ijúga, láta hreint eins og
óvitar. Svo koma þessir garmar og
kvarta undan því, að við, almenn-
ingur í landinu, berum ekki nóga
virðingu fyrir þeim og Alþingi.
Nei, ég tek undir með karlinum á
Barðaströnd sem sagði einhverju
sinni: „Þetta eru allt aumingjar til
sálarin- ar".
- Ætlar þú kannski að láta það
vera að kjósa næst?
• - Nei, ég kýs Alþýðubandalag-
ið, ekki af því að mér finnst flokk-
urinn góður, heldur af því að hann
er þrátt fyrir allt sá skásti sem
maður á völ á. í pólitík er það ekki
einstaklingurinn, sem gildir, held-
ur flokkurinn í heild.
Ákvað að láta
mér líka vel
- Ef við snúum okkur aðeins að
öðru. Nú crt þú búinn að vera
til sálarinnar
bóndi á Barðaströnd í áratugi, en
ert nýkominn hingað á mölina,
hvernig líka þér skiptin?
- Mér líka þau vel. Ég hætti ekki
búskap snögglega. Ég gerði það að
vel yfirlögðu ráði, ég var búinn að
hugleiða þetta með mér í ein þrjú
ár, þegar ég lét verða af því að
hætta búskap. Þá um leið ákvað ég
iíka að láta mér líka skiptin vel og
þess vegna sakna ég ekki sveitar-
innar. Ég get líka bætt því við að
hér á Patreksfirði er ágætt fólk, og
ég var heppinn að því leyti að ég
fékk strax fasta vinnu hér hjá
Ríkisskip, þannig að ég hef ekki
yfir neinu að kvarta.
- Margir bændur telja það einn
mesta kost þess að vera bóndi, að
vera sjálfs sín húsbóndi, hvað
fínnst þér?
- Vissulega er það nokkurs
virði, en á móti getur maður spurt,
hvaða bóndi er það þegar allt kem-
ur til alls? Ég veit ekki betur en
margskonar takmarkanir séu settar
á framleiðslu bænda. Lánamál og
fleira setja mönnum skorður,
þannig að mikið vantar á að bænd-
ur séu sjálfs sín húsbændur, þegar
málið er krufið til mergjar.
- Ertu Barðstrendingur?
- Nei, ég er fæddur í Arnarfirði
og átti þar heima til 11 ára aldurs,
en þá flutti ég á Barðaströndina.
Síðar varð ég bóndi þar, bjó á Litlu
Hlíð og Brekkuvöllum frá 1947,
þar til fyrir 3 árum.
- Mig langar aðeins að skjóta
hér inn spurningu: Hvers vegna
hættir þú búskap?
- Ég var búinn að búa of lengi.
Mín skoðun er sú að menn eigi ekki
að búa svo lengi að þeir fari að
skemma jarðirnar.
- Hvað áttu við?
- Þegar menn eru orðnir gamlir,
þá geta þeir ekki sinnt jörðinni eins
vel og nauðsynlegt er, svo að þær
beri ekki skaða af, þá er mál að
hætta. Þetta á nú við um fleira
raunar, að menn skynji sinn vitjun-
artíma.
Fargaði
dýrunum sjálfur
- Sérðu kannski eftir því að hafa
verið bóndi?
- Nei, það er fjarri lagi. Ég hefði
ekki viljað missa af því að vera
bóndi, mér líkaði það starf afskap-
lega vel. En ég hygg að ég hafi hætt
búskap á réttum tíma. Börnin voru
orðin uppkontin og flest farin að
heiman og ég orðinn gamall.
- Hvað ertu gamall?
- Ég hef það fyrir sið þegar ég er
spurður að þessu að láta menn
giska og það skalt þú gera líka. (Ég
gerði það og mér skeikaði um 10
ár). Nei, ég er orðinn 66 ára. En
heilsunnar vegna hefði ég sjálfsagt
getað búið eitthvað lengur, ég hef
ekki nema tvisvar um ævina þurft
að leita til læknis.
- Ég hef heyrt bændur, sem hætt
hafa búskap, segja það sárasta sé
að farga bústofninum, ertu sam-
mála því?
- Það get ég ekki sagt. Eftir að
ég hafði tekið ákvörðunina um að
bregða búskap, þá ákvað ég líka að
farga mínum dýrum sjáifur og ég
stóð við það. Ég byrjaði á hundin-
um mínum.
Líf
eftir dauðann
- Tvisvar til læknis segir þú...?
- Já, lækna þessa heims, en ég
hef fengið hjálp að handan. Þar eru
læknar sem starfa áfram að því að
hjálpa fólki hérna megin.
- Ertu mjög trúaður maður?
- Já, ég er það. Ég trúi á fram-
haldslíf, og ég trúi á Guð. Ég trúi
ekki á Guð í þeirri mynd að uppá
himnum sitji gantall og gráskeggj-
aður maður. sem skapaði heiminn
á 6 dögum og hvíldi sig á þeim 7. Ég
trúi á Guð í okkur sjálfum. Eins
trúi ég því, að til séu himnaríki og
helvíti, en þó ekki sem afmarkaða
staði, þar sem við erum mitt á milli.
- Nú er það svo að margir sósíal-
istar eru efasemdarmenn í þessum
efnum, hefur þú aldrei verio það?
- Nei, enda hlýtur hver og einn
sem aðgætif það, að sjá hve margt
er skylt með kristindómi og komm-
únisma, eða réttara sagt kenning-
um þessara stefna. Og sjáðu til,
engar tvær stefnur í heiminum hafa
orðið fyrir eins miklum árásum og
ekki hefur verið barist harðara
gegn öðrum stefnum en þessum
tveimur. Samt sem áður hafa engar
stefnur breiðst eins mikið út í
heiminum og þessar tvær.
- Nú er það svo að þeir sem trúa
á framhaldslíf eru ekki allir á eitt
sáttir hvernig þetta framhaldslíf
er?
- Rétt er það, enda geta menn
ekki sannað, og þeir sem draga
framhaldslíf í efa, geta heldur ekk-
ert afsannað.Það eina,sem við vit-
um er, að öll munum við eitt sinn
deyja. Ég held því fram og þykist
vita það, að allar okkar þrár og
allar okkar langanir muni fylgja
okkur yfir í annað líf. Því tel ég að
hverskonar nautnalíf eða líferni
sem vont má kalla, fari með okkur
yfir. Dauðinn er bara svefn; svo
vaknarmaðuríöðru umhverfi. Það
Myndir og texti:
Sigurdór Sigurdórsson
eina sem maður þekkir þar eru
verkin manns, langanir og þrár.
Varð sósíalisti
á fermingardag-
inn
- Hvenær varðstu sósíalisti,
Guðmundur?
- Ég hef sagt að það hafi verið á
fermingardaginn minn. Við vorum
7 sem fermdumst saman, og þá tók
ég í fyrsta sinn alvarlega eftir mis-
réttinu. Ég sá þá svo glöggt mis-
muninn á okkur krökkunum. Sum
fengu miklar og veglegar ferming-
argjafir; aðrir fengu ekki neitt.
Eftir þetta hugleiddi ég mikið þetta
misrétti og af hvaða rótum það væri
runnið. Vinur minn Guðmundur
Vigfúson, sem allir sósíalistar
þekkja, átti heima á næsta bæ við
mig; hann hafði einnig mikil áhrif á
mínar pólitísku skoðanir. Mér þyk-
ir Guðmundurhafahætt of snemma
í pólitíkinni, en svona er það í
pólitík sem öðru; sumir hætta of
snemma, en aðrir of seint.
- Var margt um sósíalista á
Barðaströnd í þá daga?
- Nei, ekki var það nú, ætli við
nafni höfum ekki verið þeir einu;
nei, annars, sennilega hafa þeir nú
verið fleiri. En það man ég vel, að
við nafnarnir áttum ekki uppá há-
borðið hjá oddvita og hreppstjóra
sveitarinnar, reyndar alþingis-
manni líka, Hákoni í Haga, sem
var íhaldsmaður. í þá daga réðu
pólitískar skoðanir vinavali hjá
mörgum. Slíkt hef ég aldrei skilið.
Ég tel að ef menn eru komnir svo
langt niður að láta pólitískar skoð-
anir ráða vinavali, þá ættu þeir að
hætta í pólitík. Mín lífsskoðun í
þessu efni er að lifa í sátt við alla
orðinn eitthvað heylítill og hörkur
voru miklar; þá varð þessi vísa til,
að morgni dags.
Mörg nú gerisl mannraunin,
minnkar heyjaforði.
Eins og sjálfur andskolinn
eigi leik á borði.
Svo fékk ég eftirþanka og hugs-
aði að skömm væri að því að yrkja
svona í morgunsárið og orti þá aðra
vísu sem bragarbót.
Ég er að bíða betri tíða,
brátl mun liða veturinn.
Sumurblíða og sólin fríða
senn mun prýðu dulinn minn.
- Ottastu um framtíð vísunnar?
- Nei, ég geri það nú ekki og
held raunar að hún sé heldur að
rétta við eftir nokkra lægð hjá
þjóðinni. En hugsaðu þér hvað ís-
lenskt þjóðlíf missir mikið ef vísna-
gerð deyr út hjá þjóðinni. Ég hef
lengi verið þeirrar skoðunar, að
kennarar í grunnskólum landsins
ættu að kanna það meðal barna og
unglinga, hvort ekki leyndist með-
al þeirra hagmælska og rækta hana
þá upp. Ef þetta væri gert, ætti vís-
an að geta náð fyrra sessi rneðal
þjóðarinnar.
Margt gott
í atómkveðskap
- Áttu vísurnar og Ijóðin þín í
handriti?
- Nei, svo djúpt er ég nú ekki
sokkinn að fara að skrifa þetta nið-
ur, og ætia ekki að gera það.
- Hefurðu gaman af atómljóð-
um?
- Þau eru misjöfn eins og hefð-
bundnu Ijóðin, og ég hef gaman af
sumurn þeirra. Ég sé því ekkert til
fyrirstöðu að ljóðformið breytist
eins og annað í þessum heimi. Ef
Ijóðformið má ekki breytast, þá
ætti skáldsagan ekki heldur að
breytast og allir að skrifa eins og
Guðmundur Hagalín gerði. Ég tek
það fram að ég hef gaman af ýmsu
sem hann hefur skrifað. Atómljóð-
in munu alltaf verða jafn misjöfn
að gæðum og allur annar skáld-
skapur.
Nú berst rabb okkar Guðmund-
ar aftur að pólitíkinni og Guð-
mundur skýtur því itini að alþing-
ismenn okkar séu meira aö segja
orðnir svo illa farnir að þeir séu
hættir að kasta fram vísu. Stefán
Jónsson sé eiginlega eini hagyrð-
ingurinn á Alþingi; kannski Helgi
Seljan lfka.
- Ég nefndi það áðan, segir
Guðmundur, að ég væri óánægður
með framkomu Alþýðubandalags-
ins í herstöðvamálinu, og ég játa að
ég óttast það í fullri alvöru að Sjálf-
stæðisflokkurinn stefni að því að
gera ísland að bandarískri nýlendu
um aldur og ævi. Þess vegna þykir
mér slæmt að enginn stjórnmála-
flokkur skuli standa einn og
óskiptur gegn þessu og hernáminu.
Ég hef stundum velt því fyrir mér
hvernig ég hefði brugðist við ef
komið hefðu erlendir gestir að
Brekkuvöllum og sagt við mig;
Þennan part af jörðinni eigum við
og ætlurn að hafa fyrir okkur. Ég er
ansi hræddur um að því hefði ekki
verið tekið þegjandi eða athafna-
laust. Og svona í lokin, vegna þess
að enginn þorir neitt að gera í þess-
um andstyggðar málum, ætla ég að
láta fylgja hér vísuhelming, og
menn geta þá hvort heldur er
prjónað framan við eða botnað.
A helgum allir halda sig
á Helguvíkur miðum
- S.dór.
menn, en láta aldrei troða á sér eða
sínum skoðunum.
Vísnagerð
- Svo er mér sagt að þú sért hag-
mæltur?
- Það er ekki rétt, ég er ekki
hagyrðingur, en ég get sett saman
rétt gerða vísu; á því tvennu er mik-
ill munur.
- Viltu leyfa mér að heyra vísu
eftir þig?
- Ég skal gera það, en hvað ætti
það að vera, við skulum sjá: Ég
setti þessa vísu saman á þingmála-
fundi fyrir margt löngu:
Mikið held ég maðurinn
mœtti verða feginn,
ef orðum fylgdi ábyrgðin
aðeins hérna megin.
Og á þessum sama þingmála-
fundi fór einn ræðumaður langt
frantúr sínum ræðutíma, en loks
þagnaði hann, og þá varð þessi til:
lJar kom að 'ann þagnaði,
þögninni ég fagnaði;
hœpnum spáir hagnaði
heimskurostinn magnaði.
Svo skal ég leyfa þér að heyra
skammarvísu sem ég orti einu
sinni:
/ almennri kurteisi af öðrum hann ber,
að ásýnd sem hver annar maður.
En þiðfáið nú bráðum að finnu hvað er
fánýtl og væmið hans smjaður.
Einu sinni kom ég inní kaupfé-
lagið, en þar var þá enginn inni
nema þrír afgreiðslumenn, sem
sátu og töluðu saman. Þeir virtust
ekkert ætla að sinna mér, svo að
mér varð að orði:
Hér situr hin þriflega þrenning
í þögulli lotning, ég spyr:
Er öll okkar íslenska menning
utan við kaupfélagsdyr?
- Ertu fljótur að yrkja?
- Ekki svona vísur, en ég hef
stundum sett saman kvæði og þá
tapa ég oft úr, vegna þess að ég er
ekki nógu fljótur að skrifa. En það
er ekki ég sem yrki.
- Heldur hver?
- Er ekki sagt að drukkið sé í
gegnum suma menn; getur þá ekki
líka verið að ort sé í gegnum menn?
En nóg um það. Einu sinni var ég