Þjóðviljinn - 06.11.1982, Síða 22
22 StÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 6. - 7. nóvember 1982
kvikmyndrir
Ung kona
á uppleið
er fyrsta langa, leikna myndin sem
Gill Armstrong stjórnar, én áður
hafði hún gert nokkrar stuttar
myndir sem vakið höfðu athygli í
Ástralíu. Kvikmyndatökumaður-
inn er hinsvegar karlkyns, Don
McAlpine, þekktur fyrir iistræn
vinnubrögð í t.d. Morant liðþjálfa
sem var sýnd hér ekki alls fyrir
löngu. Framadraumar var framiag
Ástralíu á Canneskvikmyndahá-
tíðinni 1979 og hefur hvarvetna
hlotið ldfsamlega dónta.
Fátœkir
og ríkir
Sybylle er elsta barn hjóna sem
hokra með ómegð á örreytiskoti í
ástralskri sveit, þar sem þurrkar
hafa geisað og baslið er gegndar-
laust og bætir ekki úr að heimilis-
faðirinn er drykkfelldur. Móðir Sy-
bylle er „aT góðu fólki“ og hefur
tekið heldur betur niður fyrir sig.
Ingibjörg
Haraldsdóttir
skrifar
Framadraumar
(My Brilliant Career)
Ástralía, 1979
Handrit: Eleanor Witcombe,
eftir sögu Miles Franklin
Stjórn: Gill Armstrong
Kvikmyndun: Don McAlpine
Aðalhlutverk: Judy Uavis,
Sam Neill.
Sýningarstaður: Regnboginn.
Framadraumar uppfyllir flest
skilyrði til að vera kölluð kvenna-
ntynd. Hún er byggö á sjálfsævi-
sögu konu, kona skrifar handritiö
og kona stjórnar myndinni. Þetta
Stúlkan er ákveðin í að feta ekki í
fótspor móður sinnar, hún ætlar að
verða eitthvað, einsog sagt er.
Einsog gefur að skilja er ekki
hlaupið að því að verða eitthvað
þegar maður býr við slík kjör, allra
síst þegar haft er í huga að sagan
gerist um síðustu aldamót.
Móðuramma Sybylle býr í fínu
sloti og býður stúlícunni að koma til
sín. Hún 'ætlar að gera hana að
dömu og gifta hana vel. Sybylle
kann þvi vel að losna úr skítnum og
baslinu, en hún vill ekki ganga inn í
það hlutverk sem amman ætlar ,
henni. Ekki einusinni þegar hún
kynníst ungum, ríkum land-
eiganda, sem hún verður bálskotin
í, og sem vill gera hana að land-
eigandafrú. Stelpan vill nefnilega
verða eitthvað sjálf, hún vill verða
.heil manneskja en ekki partur af
einhverjum öðrum.
Móti
straumnum
Hér er semsé komin saga af konu
í leit að sjálfri sér, konu sem hafnar
hefðbundnu mynstri samtímans og
gengur ótrauð á móti straumi. Með
því að hafna örygginu sem ríkur
eiginmaður gæti veitt henni er hún
ekki aðeins að tryggja sjálfri sér ó-
trygga framtíð og skilningsleysi sam-
tímans, heldur er hún einnig að
neita sjálfri sér um ástina, sem hún
þó þarfnast og þráir. Það er fyrst og
fremst þetta, sem gerir Frama-
Þvottavélin ALDA
jnær og jiurrkar vel
Vörumarkaðurinn hf.
RAFTÆKJADEILD - SÍMI 86117
Koddaslagur á stórbýlinu: Judy Davis og Sam Neili í „Framadraumum“.
drauma að kvennamynd, góðri
kvennamynd vel að merkja.
Judy Davis er spennandi leik-
kona og verður gaman að fylgjast
með ferli hennar; hér er hún í sínu
fyrsta meiriháttar hlutverki og ger-
ir því góð skil. Sybylle er í túlkun
hennar mátulega þrjósk og stolt,
sannfærð um að hún eigi annað er-
indi í heiminn en að þjóna karl-
mönnum og hrúga niður börnum.
Það er í henni púki, sem birtist oft í
mjög skemmtilegum myndurn,
einkum þegar henni leiðist yfir-
drepsskapur fína fólksins.
Leikkonan fer Jétt með að vekja
samúð áhorfandans og áhuga á
persónunni Sybylle. Það er auðvelt
að setja sig í spor hennar, þrátt
fyrir fjarlægð í tíma og rúmi. Kann-
ski hefur ekki svo margt gerst á
þessum 80 árum, og kannski er Á-
stralía ekki svo langt í burtu, þegar
allt kemur til alls.
Vorkunn en
ekki samkennd
Engu að síður þótti mér nokkuð
skorta á trúverðugleika myndar-
innar þegar kont að þjóðfélagslýs-
ingunni, eða öllu heldur lýsingu á
fátæka sveitafólkinu, sem Sybylle
er partur af. Aðstandendur mynd-
arinnar virtust fóta sig betur á lökk-
uðum gólfum fína fólksins en í
skítnum hjá fátæklingunumj og
þarf kannski engan að undra. Mér
finnst samt óþarfi að hafa slíkan
óperettubrag á fátæklingunum -
skíturinn var ekki ekta.
í myndinni kemur fram að Sy-
bylle er að skrifa bók um fólk sitt,
og við vitum að myndin er einmitt
byggð^á þeirri bók, sem kom út í
raun og veru rétt eftir aldamptin.
Það sem ráðið verður af myndinni
um viðhorf Sybylle til fátæka fólks-
ins er sennilega skýringin á þessari
lítt trúverðugu þjóðfélagslýsingu.
Rithöfundurinn upprennandi vor-
kennir fátæklingunum, en finnur
ekki til samkenndar með þeim í
basli þeirra fyrir hinu daglega
brauði. Hún er að skrifa sig frá
þessu fólki. En hún á heldur ekki
heima innanum ríka fólkið, þótt
þaðan sé hún upprunnin að hálfu
leyti. Hún er stéttleysingi, einstak-
lingur sem á hvergi heima nema í
draumum sínum, og þangað er hún
að flýja, þangað er hún að skrifa
sig. Hún er ekki að skrifa gagn-
rýna, þjóðfélagslega skáldsögu,
heldur sögu um einstakling sem
æskir „einhvers skírra, einhvers
blárra“, einsog segir í kvæðinu. Og
um það er myndin.
Út í óvissuna
Lokaatriði myndarinnar gerist í
dögun: Sybylle lýkur við síðustu
setningu bókarinnar (hún endar
reyndar á orðinu ,,amen“) og geng-
ur út á veginn með handritið í fang-
inu, innpakkað og skrifað utan á
það til bókaútgefanda í Skotlandi.
Hún stingur pakkanum í póstkass
ann - ætli mjólkurbílstjórinn sæki
hann ekki. Satt að segja varð ég
fegin þegar þær upplýsingar birtust
eins og eftirmáli á tjaldinu, að
bókin hefði verið gefin út í Skot-
landi. Það hefði verið hræðilegt, ef
pakkinn hefði týnst eða enginn vilj-
að gefa bókina út. Þetta atriði er
vissulega óraunsæislegt, en situr
einkennilega í manni eftir á. Kann-
ski er þetta einmitt svona í raun og
veru: listamaðurinn sendir verk sitt
frá sér út í óvissuna, verk sent hann
hefur lagt allt í sölurnar fyrir. Verk
sem er einsog barnið hans og á fyrir
höndum að réttlæta allar fórnirnar,
sem því voru færðar.
Maður þarf ekki að vera sáttur
við þær borgaralegu hugmyndir um
listamenn sem gegnsýra þessa
kvikmynd til að njóta hennar
heilshugar. Framadraumar er ljúf
og skemmtileg mynd og stendur al-
veg fyrir sínu. Hún á skilið að fá
góða aðsókn, miklu betri en raunin
var kvöldið sem ég fór að sj-á hana.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir
íþróttakennari
Hressingarleikfimi -
Seltjarnarnesi
i ’it*i i iöaciu i i ii cööii iyai ic?ir\nnii Kvenna
hefjast mánudaginn 8. nóvember 1982.
Kennslustaður: íþróttahús Seltjarnarnesl.
Fjölbreyttar æfingar - músik - slökun.
Innritun og upplýsingar
I síma 33290 kl. 9.00- 14.00.
I dag og á morgun.