Þjóðviljinn - 06.11.1982, Side 25
Helgin 6. - 7. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 25
Minning:
Matreiðslumenn —
Matreiðslumenn
Stjórnunarnámskeið I
verður haldið mánudaginn 15. nóv., þriðju-
daginn 16. nóv., og miðvikudaginn 17. nóv.
frá kl. 15:30-18:30.
Leiðbeinandi: Höskuldur Frímannsson.
NÁMSKEIÐ í NÆRINGARFRÆÐI
OG SJÚKRAFÆÐI I
verður haldið mánudaginn 22. nóv., þriðju-
daginn 23. nóv., og miðvikudaginn 24. nóv.
frá kl. 16-19.
Leiðbeinandi: Kristinn Haraldsson.
Þessi námskeið verða haldin að Óðinsgötu
7.
Upplýsingar í síma 19785.
Trúnaðarmannanámskeið
verður haldið mánudaginn 22. nóv. til og með
fimmtudeginum 25. nóv. frá kl. 9-17.
Leiðbeinandi: Lárus Guðjónsson.
Upplýsingar í síma 19785.
Stjórn F.M.
Magnússon
Skúfslæk. Eiríkur var þriðji í
röðinni af fimm systkinum; eldri en
hann eru Sigríður, húsmóðir í
Reykjavík, og Skúli, járnsmiður á
Selfossi, elstur þeirra systkina.
Yngri eru Halla, húsmóðir í Syðri-
Gróf og Grétar, vinnuvélstjóri á
Selfossi.
Eiríkur tók við búi af föður sín-
um fyrir tæpum tuttugu árum, að
móður sinni látinni, og hefur
stundað þar búskap óslitið síðan,
en áður hafði hann fengist við sitt
af hverju, m.a. unnið við
viðgerðarstörf. Eiríkur var laginn
smiður og hagur bæði á tré og járn
og kom það sér oft vel í bú-
skapnum, sem og reynsla hans af
vélum og vélaviðgerðum. Búskap-
urinn stóð traustum fótum hjá Ei-
ríki og lýsti bæði dugnaði og út-
sjónarsemi í hvívetna, auk þess
sem heimilið lýsti af þeiri öryggis-
kennd sem skaphöfn hans mótaði,
en hann átti í ríkum mæli þá þrjá
eiginleika sem eftirsóknarverðir
mega teljast hverjum manni:
góðvild, reglusemi og skapfestu.
Kynni okkar Eiríks hófust fyrir
fimm árum þegar við hjónin réðum
okkur til kennslustarfa hér í sveit.
Hann var formaður skólanefndar
og hreppsnefndarmaður, allt þar til
í sumar að hann baðst undan
endurkjöri vegna veikinda sinna.
Það var mikil gæfa fyrir okkur að
Eiríkur skyldi gegna þessu starfi á
þeim tíma sem við réðum okkur að
skólanum og þá ekki síður fyrir
börnin í sveitinni. Eiríkur og þau
sem með honum störfuðu í skóla-
nefnd sýndu starfi skólans mjög
mikinn áhuga og vildu að hann
hefði öll skilyrði til að veita mennt-
un sem jafnaðist á við það sem best
þekkist í þéttbýli. En eins og allir
vita er víða talsverður aðstöðu-
munur að þessu leyti.
Breytingar á námsefni og kenn-
sluháttum, samfara breytingum á
skólakerfinu, hafa leitt til þess að
margir grunnskólar í fámennum
sveitum hafa dregist mjög at'tur úr,
og hafa ekki haft sama kennsluefni
á boðstólum og skólar í þéttbýli
eða haft ráð á að búa sig út með dýr
kennslutæki. Það skiptir því miklu
að skólanefndir sýni þessum mál-
um skilning og taki fljótt við sér
þegar slíkar breytingar ganga yfir.
Fyrsta haustið sem við störf-
uöum hér var t.d. keyptur nýr
rr.yndvarpi fyrir skólann, tæki sem
þykir sjálfsagt í öllum nútíma-
skólum, en kostar drjúgan skild-
ing. Ég spurði Eirík hvort honum
þætti þetta ekki dýrt tæki. Hann
svaraði því til að það færi eftir því
hvernig á það væri litið. Sjálfum
þætti honum það alls ekki dýrt:
„Þetta kostar sömu upphæð og ég
fer með í mjöl handa kúnuni á einni
viku.“
Þannig var Eiríkur. Raunsær, já-
kvæður og gamansamur ef því var
að skipta. Það er mikill missir að
slíkum mönnum. Hér væri vissu-
lega ástæða til að segja tleira af
starfi Eiríks að félagsmálum, en
rúmsins vegna verður það ekki gert
nú. Þó langar mig að geta þess að
áður en sjónvarpið barst út um
sveitir landsins var víða mikil
leiklistarstarfsemi og var svo einnig
í Flóanum. Þar þótti Eiríkur heldur
en ekki liðtækur á sviði og minnast
margir sveitungar okkar þess enn
og brosa í kampinn þegar þeir sjá
hann fyrir sér í Ævintýri á göngu-
för. Þar kom sumsé í Ijós að þessi
alvarlegi maður gat brugðið ærlega
áleikefþvívaraðskipta. Þann leik
vildi ég gjarnan hafa séð.
Nú þegar Eiríkur er genginn er
hugur okkar hjónanna fullur þakk-
lætis fyrir það hvernig hann
reyndist okkur alla tíð, bæöi í starfi
okkar og persónulegum kynnum.
Ástu og börnunum og Magnúsi afa
þeirra á Skúfslæk sendum við okk-
ar dýpstu samúðarkveðjur.
Rúnar Armann Arthursson.
Nýja leðurdeildin býður
nú upp á margar gerðir af
hornsófum og leðursófasettum.
Munið okkar hagstæðu
greiðsluskilmála
JIB
Jón Loftsson hf.
Á > 11Á g >
’
/rkf á'aa
_T _J QelíJi.
áfiStiiuíiiiíj®
Hringbraut 121:
HÚSGAGNADEILD.
Lögmaður
Starf bæjarlögmanns hjá Hafnarfjaröarbæ er
lausttil umsóknar. Launakjöreru samkvæmt
samningi viö Starfsmannafélag Hafnafj-
aröar.
Umsóknir um starfiö sendist undirrituöum,
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Um-
sóknarfrestur er til 25. nóvember n.k.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Frá Fjöíbrautaskól fll
anum við Ármúla *■*
Innritun á vorönn 1983 lýkur 19. nóvember.
Skólameistari
Eiríkur
Skúfslæk
Fæddur 22.12 1931 —
Dáinn 1.11. 1982
Á þeim velmegunartímum sem
íslenska þjóðin býr nú við getur .
hver Islendingur gert sér vonir um
að lifa til hárrar elli, því tölfræði-
legar athuganir hafa sýnt að hvergi
í heiminum er meðalaldur fólks
hærri. En það er eitt hvað tölfræðin
segir að við getum vænst og annað
hvaða hlutskipti forlögin hafa ætl-
að okkar. Sjúkdómar og slys gera-
ekki boð á undan sér og setja iðu-
lega strik í þann reikning sem að
öðrum kosti sýndi enn hærra^
meðaltal. Ótímabær dauði fólks
sem enn er í blóma lífsins og gæti
átt mörgu ólokið á sinni starfsævi
er jafnan harmsefni allri þjóðinni.
Þess vegna leggjum við svo mikið
kapp á að reyna að fyrirbyggja
sjúkdóma sem ógna lífi fólks,
fækka slysum og lækna þá sem
sjúkir eru. Og miklu höfum við .
áorkað þótt enn sé mikið óunnið.
Aðeins tveimur sólarhringum
eftir að þjóðin hafði tekið á saman
og gefið rausnarlega til nýrrar
leitarstöðvar Krabbameinsfélags
íslands, um síðustu helgi, lést
sveitungi okkar og vinur, Eiríkur
Magnússon, bóndi á Skúfslæk,
Villingaholtshreppi, úr þeim erfiða
sjúkdómi, krabbameini, aðeins
fimmtugur að aldri.
Sjúkdómssaga Eiríks er ekki
löng. Nú, aðeins um ári eftir að
hann kennir fyrst sjúkdómsins, er
hann allur. Éftir að hann hafði
gengist undir erfiða skurðaðgerð á
liðnu vori duldist engum sem hann
þekktu hver alvara væri á ferðum,
þótt í lengstu lög væri haldið í von-
ina um að hann fengi aftur bata.
Okkur er sagt að ein besta hjálp-
in í baráttu við illvíga sjúkdóma séu
bjartsýni, von og trú. En þar er
hægara um að tala en í að komast,
enda duga þau meðul sjaldnast ein
sér, þótt miklu skipti til að gera
mönnum erfiðar raunir léttbærari.
En þessu til viðbótar hafði Eiríkur
á að skipa öflugum bandamanni í
baráttunni við sjúkdóminn, sem er
eiginkona hans, Ásta Ólafsdóttir
frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum.
Og sá mikli styrkur sem hún veitti
manni sínum í erfiðri sjúkdómsbar-
áttu er fágætur og ómetanlegur.
Þau Eiríkur og Ásta hafa átt
saman tuttugu ár í hjónabandi og
búið rausnarbúi á Skúfslæk þann
tíma. Heimili þeirra er annálað
myndarheimili, sem best hefur sést
á því að til þeirra hefur tíðum verið
leitað þegar á hefur legið að korna
barni í fóstur til lengri eða skemmri
tíma. Og þau hafa líka jafnan haft
pláss fyrir fleiri börn en sín eigin
þótt húsrými væri ekki nema í
meðallagi.
Börn þeirra Eiríks og Ástu eru
fjögur talsins, þrír mannvænlegir
piltar'ogein efnileg stúlka. Synirnir
eru: Magnús, 18 ára, Árni, 16 ára
og Ólafur, 14 ára, allir í skóla á
Selfossi. Systir þeirra, Halla, er
aðeins fimm ára gömui.
Eiríkur Magnússon fæddist 22.
desember 1931, son.ur hjónanna
Ingibjargar Gfeladójtur (d. 1963)
og Magnúsar Eiríkssonar, bónda á
Lúðrasveitin
Svanur
Kökubasar og flóa-
markaöur sunnudag 7.
nóvember kl. 14.oo
Borgartúni 1.