Þjóðviljinn - 06.11.1982, Qupperneq 30
30 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgíri 6: -7. nóvehibet 1982
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
Neskaupstað
Fundur um stjórnmála-
viðhorfin
Alþýðubandalagið í Neskaupstað boðar til fundar
um stjórnmálaviðhorfin og flokksráðsfund Al-
þýðubandalagsins föstudaginn 5. nóv. og hefst kl.
20.30
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra mætir á Hjörleifur
fundinn. - Stjórnin.
Kjördæmisráð í Norðurlandi eystra
Aðalfundur kjördæmisráðs í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldinn
á Akureyri í Lárusarhúsi sunnudaginn 7. nóvember n.k. oghefst kl. 10:00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundartörf, en auk þess verður kjörin uppstil-
lingarnefnd til að sjá um forval. - Stjórn kjördæmisráðs.
Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Seltjarnarnesi verður haldinn í Félags-
heimilinu þriðjudaginn 9. nóvember kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg
aðalfundarstörf.
Alþingismaðurinn Helgi Seljan kemur á fundinn og ræðir um stöðuna í
íslenskum stjórnmálum. - Stjórnin.
Kjördæmisráð í Vesturlandskjördæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Vesturlandskjördæmi
verður haldinn í Hótel Borgarnesi sunnudaginn 7. nóvember og hefst kl.
14:00.
Dagskrá: 1) Skýrsla stjórnar, 2) reikningar kjördæmisráðs, 3) staða í
stjornmálunum (Skúli Alexandersson, 4) undirbúningur forvals (Ingi
Hans Jónsson), 5) kosniing nefnda, 6) önnur mál, 7) kjör stjornar og
fundarslit.
Kjörnum fulltrúum skal bent á að taka með sér kjörbréf og greiðslu
árgjalds til kjördæmisráðs. - Stjórn kjördæmisráðs.
Alþýðubandaiagið í Kjósarsýslu
Aðalfundur vexður haldinn í Hlégarði sunnudaginn 7. nóvember kl. 14:00 í
fundarherbergi nirði.
Dagskrá: Inntaka r.ýrra félaga. - Venjuleg aðalfundarstörf. - Kosning í
flokksráð, kjördæmisráð oghreppsmálaráð.-Umræðaum úrslit kosning-
anna og önnur mál. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði -
opinn fundur
Álverið og Alusuisse
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
boðar til opins fundar þriðjudaginn
9. nóvember í Góðtemplarahúsinu
og hefst kl. 20:30.
Dagskrá:
1) Tilnefning fulltrúa AbH í Upp-
stillingarnefnd fyrir alþingis-
kosningar.
2) Tilnefning fulltrúa AbH í stjórn
Kjördæmisráðs.
3) Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra ræðir málefni
Álversins í Straumsvík og
stöðuna gagnvart Alusuisse og
svarar fyrirspurnum fundar-
manna.
4) Önnur mál.
a- - ' í mBm.
Hjörleifur Rannveig
Fundarstjóri verður Rannveig
Traustadóttir bæjarfulltrúi AbH.
Fundurinn er öllum opinn. Kaffi á
könnunni. Hafnfirðingar fjöl-
mennið. - Stjórn AbH.
Alþýðubandalagið Sauðárkróki
Fundur í bæjarmálaráði verður haldinn í Villa Nova ntánudag 8 ■ nó-
vember kl. 20:30.
Dagskrá:
1) Bæjarmál.
2) Önnur mál.
Allt stuðningsfólk G-listans velkomið. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík boðar til félagsfundar um at-
vinnulýðræði miðvikudaginn 10. nóvember kl. 20:30 í Hreyfilshúsinu við
Grensásveg.
Á fundinum verða einmg kjörnir fulltrúar félagsins á flokK.sráðsfund og
kjörnefnd vegna alþingiskosninga.
Tillaga kjörnefndar um fulltrúa á flokksráðsfund og tillaga stjórnar um
kjörnefnd vegna alþingiskosninga liggja frammi á skrifstofu félagsins frá
og með mánudeginum 8. nóvember. Nánar auglýst síðar. Stiórn ABR.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins -
í Suðurlandskjördæmi.
Fundúr kjördæmisráðs verður haldinn í Vestmannaeyjum dagana 13. og
14. nóvember. Dagskrá: 1) Á að viðhafa forval? 2) Kosning uppstilling-
arnefndar. 3) Kynntar niðurstöður starfsnefnda flokksfélaga. 4) Önnur
mál. - Stjórnin. v
Alþýðubandalagið í Borgarnesi
og nærsveitum - félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn sunnudaginn 14. nóvemberkl. 14.00. Fund-
urinn verður í Hótel Borgarnesi. Fundarefni: 1) Inntaka nýrra félaga,
2) Kjör fulltrúa á flokksráðsfund, 3) Málefni flokksráðsfundar,
4) Undirbúningur forvals, 5) Frá stjórnarnefnd, 6) Áætlun um vetrar-
starf. - Stjórnin.
Á myndinni sjást m.a. Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson.
Skákin í Sviss:
Konurnar unnu, en karlasveitin
fór flatt fyrir Tjöllunum
í föstudagsumferðinni á Ólympíuskákmótinu í Sviss
tapaði íslenska karlasveitin fyrir Englendingum, hlaut 1
vinning, en enskir3. Helgi og Jóhann gerðu jafntefli, en
Ingi R. og Margeir töpuðu sínum skákum. Sovétmenn
eru í fyrsta sæti í karlaflokki með ll'h v., en íslendingar
eru í 16. sæti með \A'h v.
Kvennasveitinni gekk öllu betur
gegn Brasilíumönnum, unnu 2-1.
Sigurlaug og Guðlaug gerðu jafn-
tefli, en Ólöf vann sína skák,og er
sveitin í 12. sæti með 10V: v. Sovét-
menn hafa einnig forystuna í
kvennaflokknum með 15 v.
Fiskiþingið hefst á mánudag
41. Fiskiþing hefst mánudaginn
8. nóvember n.k. kl. 14.00 í húsi
Fiskifélagsins, Höfn við íngólfs-
stræti. Már Elísson fiskimálastjóri
setur þingið og að því loknu mun
sjávarútvegsráðherra Steingrímur
Hermannsson ávarpa þingfulltrúa.
Þingfulltrúar eru 33, þ.e. 22 frá
deildum og fjórðungssamböndum
Fiskifélagsins og 11 frá sérsamb-
öndum sjávarútvegsins, svo sem
útvegsmanna, sjómanna og fisk-
framleiðenda.
Höfuðmál Fiskiþings verða
þessi: Stjórnun fiskveiða og niður-
stöður kvótanefndar. Gæði fiskafla
og afurða. Verðjöfnunarsjóður
sjávarútvegsins. Rekstrarvandi
sjávarútvegsfyrirtækja. Öryggis-
mál sjófarenda og starfsemi Sigl-
ingamálastofnuríar.
Stefnt er að því að þinginu ljúki
föstudaginn 12. nóvember.
F j ölmiðlaráðstefnan
í Ölfusborgum
Rútuferðir — barnagæsla — kvöldvaka
Fjölmiðlaráðstefnan í Ölfus-
borgum byrjar í dag klukkan eitt og
stendur fram á sunnudag. í kvöld
verður kvöldvaka á ráðstefnunni,
þar sem kunnir listamenn verða
meðal flytjenda. Meðal þeirra eru
þær Bergþóra Árnadóttir og Elísa-
bet Þorgeirsdóttir. Ráðstcfnunni er
eins og kunnugt er skipt í þrjá
megin-málaflokka; tækni framtíð-
arinnar, upplýsingaþjóðfélagið og
útvarpslögin. Valinkunnir menn úr
lýmsum áttum eru málshefjendur á
ráðstefnunni sem er ölluin opin.
Fólki gefst kostur á því að mæta
til leiks á ráðstefnuna, nær því dett-
ur í hug. Frá Revkjavík eru ferðir
austur fyrir fjall á laugardag og
sunnudag kl. 9.00, 13.00,'15.00 og
kl. 18.00, báða dagana frá Umferð-
armiðstöðinni. Hægt er að ná sant-
bandi ef því er að skipta við
ráðstefnuna ísíma 4260, t.d. ef fólk
vill láta sækja sig til Hveragerðis.
Barnagæsla verður á staðnum.
Aðstandendur ráðstefnunnar hafa
lagt mikla áherslu á afslappað and-
rúmsloft, gert ráð fyrir rúmum
tíma til útivistar og bróðurlegra
Bergþóra
Elísabet
samræðna, auk þess sem fólk getur
gert hvaðeina sem það lystir.
-óg
ALÞYOUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Seltjarnarnesi - Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins
Seltjarnarnesi verður haldinn í fé,-
lagsheimilinu þriðjudaginn 9. nóv-
ember kl. 20.30. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf og kosn-
ing í flokksráð. Helgi Seljan al-
þingismaður kemur á fundinn og
ræðir stöðuna í íslenskum stjórn-
málum. - Stjórnin.
Helgi Seljan
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ í REYKJAVÍK
FUNDARÖÐ UM VERKALÝÐSMÁL
Samskipti verkalýðshreyfingarinnar og Alþýðubandalagsins
er yfirskrift lokafundarins í fundaröð Alþýðubandalagsins í Reykjavík um verkalýðsmál.
Fundurinn verður haldinn
þriðjudaginn 9. nóvember kl. 20:30 i Sóknarsalnum
Freyjugötu 27.
Frummælendur:
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ
og
Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um verkalýðsmál.
Stjórn ABR
Ásmundur
Svavar