Þjóðviljinn - 06.11.1982, Page 31
■ Helgin 6.-7. nóvember 1982 þjóÐVILJINN — StÐA 31
Verkalýðs-
og sjómannafélag
Bolungarvíkur:
Ákvörðun á
rækjuverði
mótmælt
Stjórn verkalýðs- og sjómanna-
félags Bolungarvíkur hefur mót-
mælt harðlega síðustu verðá-
kvörðun á rækju og segir að með I
henni hafi harkalega verið ráðist að
kjörum rækjusjómanna og þau
verulega skert. Síðan segir í til-'
kynningu Verkalýðs- og sjómann-
afélagsins í Bolungarvík:
,.Þá mótmælir stjórnin harðlega
þeirri ákvörðun sjávarut-
vegsráðuneytisins að kvótaskipt-
ing milli vinnslustöðva skuli enn
einu sinni ákveðin með þeim hætti
að Bolvíkingar eru áfram settir hjá
varðandi aflamagn á rækju, saman-
borið við aðra staði við Isafjarðar-
djúp.”
Verkamannabústaðir í byggingu eða undirbúningi:
Samningar í Straumsvík:
AUt að 17%
launahækkun
Samningurinn gildir frá
1. september 1982 til 30. sept. 1983
Samkomulag var undirritað í
deilu starfsmanna á álverinu í
Straumsvík og fyrirtækisins, í húsi
ríkissáttasemjara laust eftir kl.
9.00 í gærmorgun. Var samkomu-
lagið undirritað með fyrirvara um
samþykki félagsfunda þeirra 10
verkalýðsfélaga sem að því standa.
Allir starfsmenn í Straumsvík fá
samkvæmt samkomulaginu 6.5%
grunnkaupshækkun frá 1. sept-
ember sl., 2.4% hækkun 1. janúar
1983 og 2.5% hækkun 1. mars á
næsta ári.
Akvæði um starfsaldurshækkan-
ir breytast þannig að 1. mars n. k. fá
þeir sem náð hafa 5 ára starfsaldri
1272% launahækkun en liöfðu haft
12% áður. Eftir 7 ára starf hækkar
þessi tala í 15%, en var 14% áður,
og síðan bætist ný starfsaldurs-
hækkun við eftir lo ára starf. Þá ná
menn samtals 17% starfsaldurs-
hækkun ofan á byrjunarlaun. Er
því um 3% viðbótarhækkun að
ræða samkvæmt nýja samkomu-
laginu þegar menn ná 10 ára starfs-
aldri.
Lítið sem ekkert var hreyft við
sérkröfum einstakra hópa en
gerðar bókanir um viðræður ein-
stakra liða eftir ákveðinn tíma. Þó
er í þessu samkomulagi ákvæði um
að á stórhelgidögum skuli einnig
vaktavinnumenn fá.120% álag ofan
Alverið í Straumsvík:
Ljósm. gel.
12-17% hækkun launa á sainningstímabilinu. -
á dagvinnutaxta, en áður höfðu
þeir einungis haft venjulegt vakta-
álag á stórhátíðum.
Samkomulag þetta þýðir í reynd
um það bil 12-17% hækkun að
meðaltali fyrir starfsmenn álvers-
ins, en þar er samið fyrir nánast alla
starfsmenn í einu. Samkomulagið
verður kynnt á télagsfundum á
mánudag og greidd atkvæði um
það. Verkíalli hefur því verið aflýst
á Straumsvík með fyrirvara um
samþykki félaganna.
Samtals 1190 íbúðir
Gífurleg aukning hefur orðið á
félagslegri byggingu íbúða með til-
komu laga um Húsnæðisstofnun
frá 1980. Þegar hafa verið sam-
þykkt lán fyrir 574 íbúðum, sem
fjarmagnaðar eru af Byggingasjóði
verkamanna, auk þess hefur verið
heimilaður undirbúningur 160
íbúða, og fyrir Húsnæðisstofnun
liggja beiðnir um aðrar 456 íbúðir
til viðbótar. Allar horfur eru á að
innan mjög fárra ára verði lokið
við byggingu allra þcssara 1190
íbúða. Til samanburðar má geta
/
A öllum síðasta
áratug
voru byggðar
817 íbúðir
þess, að á öllum síðasta áratug voru
byggðar 817 íbúðir í þessu kerfi!
Ibúðir þessar eru fjármagnaðar
af Byggingasjóði verkamanna eins
og áður sagði og lánar sjóðurinn
allt að 90% byggingarkostnaðar.
Kvaðst Ólafur Jónsson formaður
stjórnar Húsnæðisstofnunar reikna
með að beiðnir sveitarfélaga um
byggingu 456 íbúða yrðu af-
greiddar í vetur þannig að hægt
yrði að hefja byggingu einhverra
þeirra strax næsta sumar.
Flestar byggingar eru nú í
smíðum í Reykjavík eða 259, en
þar af er 77 íbúðum lokið. Auk
þess hafa verið lagðar inn beiðnir
um að hefja byggingu 197 íbúða. Á
Akureyri eru 72 íbúðir í smíðum.
heimilaður hefur verið undirbún-
ingur 18 íbúða og sótt hefur verið
urn srníði 40 íbúða til viðbótar. í
Kópavogi eru nú í smíðum 36
íbúðir og til viðbótar hefur verið
veitt heimild til að hefja byggingu
42 íbúða. í Hafnarfirði er lokið
byggingu 9 íbúða, 16 íbúðir eru þar
í smíðum og sótt hefur verið um
byggingu 22 íbúða til viðbótar. Þá
hafa ísfirðingar sótt um byggingu
20 íbúða og Hvergerðingar hafa
sótt um sama fjöida.
114 framantaldra 1190 íbúða eru
leiguíbúðir sveitarfélaga. -v.
Grunnvöru-
afsláttur nær
6 miljónir kr.
Gruiinvörutilboðunum lýkur
þann 20. nóv. n.k., en tilboðssalan
byrjaði í apríl á síðasta ári.
Sambandsfréttir greina frá því,
að á árinu 1982 muni heildarafslátt-
urinn til neytenda af grunnvörun-
um nema rétt tæpum 6 milj. kr.
Vörumagnið, sem afgreitt hefur
verið á árinu samkvæmt grunnvör-
utilboðinu, er samtals 2.715 tonn
og kassafjöldi um 196 þús. Svarar
það til þess að því nær einn kassi af
grunnvörum hafi farið til hvers ein-
asta landsmanns. -mhg
Fasteignamatið á höfuðborgarsvæðinu:
78% hækkun á íbúðum
65% á atvinnuhúsnœði og úti á landi
Nemendur Menntáskólans í Reykjavík reru á Tjörninni í Reykjavík síð-
degis í gær þrátt fyrir brælu. Tilgangur þeirra var að vekja athygli á
happdrætti íslensku Ólympíunefndarinnar. Ljósm eik.
Álver í Reykjavík?
Yfirnefnd fasteignamats hefur
ákveðið nýtt fasteignamat sem
tekur gildi 1. desember n.k. Á höf-
uðborgarsvæðinu öllu (Bessastaða-
hreppur og Mosfellshreppur
meðtaldir) hækkar mat á íbúðar-
húsnæði um 78% en mat á atvinnu-
húsnæði og öðru húsnæði um 65%.
Fasteignir utan höfuðborgar-
svæðisins, íbúðarhús, atvinnuhús
og jarðir hækka um 65% frá mat-
inu 1. desember 1981.
Samkvæmt lögum á fasteigna-
mat að nema gangverði á eigninni,
en sem kunnugt er liafa íbúðir í
fjölbýlishúsum í Reykjavík hækk-
Borgarstjórn hefur samþykkt að
fela skipulagsnefnd og Borgar-
skipulagi að finna svæði innan
borgarmarkanna þar sem koma má
fyrir með góðu móti gömlum
íbúðarhæfum húsum sem víkja
þurfa úr sínu upprunalega um-
hverfi. Tillagan hlaut 21 samhljóða
atkvæði.
Það var Hulda Valtýsdóttir, for-
maður umhverfismálaráðs sem
mælti fyrir tillögunni, en á undan-
, förnum árum hefur viðhorfið gagn-
að um 88% á 12 mánaða tímabili.
Stefán Ingólfsson deildarverk-
fræðingur hjá Fasteignamati ríkis-
ins sagði í gær, að nýja fasteigna-
matið væri í raun 15% undir gang-
verði í þessu tilliti. Hins vegar væri
fasteignamatið nú komið langt yfir
raunverulegan byggingarkostnað
og hefði yfirnefnd talið 78% hækk-
unina eðlilega.
Fasteignamat er sá grundvöllur
sem asteignaskattar sveitarfélag-
anna byggja á. Þeir nema um %
hlutum svokallaðra fasteigna-
gjalda, en í gjöldunum eru einnig
vatnsskattur og brunatengd gjöld.
Samkvæmt yfirlýsingum borgar-
vart gömlum húsum gjörbreyst og
eru þau nú vart rifin í borginni
nema þau séu gjörsamlega ónýt.
Mikil ásókn hefur verið í lóðir
undir slík hús, og benti borgar-
minjavörður nýlega á í umsögn til
umhverfismálaráðs að Bráðræðis-
holtið væri að fyllast og finna þyrfti
nýtt svæði af því tagi. í tengslum
við tillögu Huldu var umfjöllun um
flutning eða niðurrif á Lindargötu
37 frestað og vísað til borgarráðs.
-ÁI
stjórans í Reykjavík verður álagn-
ingarstuðull á íbúðarhúsnæði nú
lækkaður úr 0,5% í 0,421% af fast-
eignamati, en álagningin á atvinnu-
húsnæði verður óbreytt.
Ef tekið er dæmi af venjulegu
íbúðarhúsi á eignarlóð í gamla
bænum, sem í fyrra var metið á 592
þúsund krónur samtals (hús og
lóð), þá námu 0,5% fasteigna-
skattar af því kr. 2.960.-. Fast-
eignagjöldin öll námu 4.700 krón-
um árið 1982.
Samkvæmt nýja matinu verður
fasteignamat þessa sama húss
1.054 þúsund krónur pr. 1. desem-
ber n.k. 0,421% fasteignaskattur
verður þá 4.437 krónur. Ef önnur
fasteignagjöld hækka í samræmi
við byggingarvísitölu eða um 65%,
þá nema heildargjöldin af húsinu
7.308 krónum áárinu 1983. Heildat
hækkunin milli ára á álögðum
gjöldum verður þá 55%.
Með óbreyttum álagningarstuðli
fasteignaskatta, 0.5%, hefðu
heildargjöld á næsta ári af þessu
sama húsi orðið 8.141,- króna, og
hækkunin milli ára hefði nurnið
73,2%. Ákvörðun Sjálfstæðis-
flokksins um lækkun fasteigna-
skatta í Reykjavík sparar skv.
þessu 833 krónur fyrir húseiganda
sem á ríflega einnar milljón króna
íbúðarhúsnæði skv. fasteignamat-
inu nýja.
Þess ber að gæta að hér er
reiknað með að önnur fasteignat-
engd gjöld hækki jafn mikið og
byggingarvísitala milli ára, en ekki
hefur verið tekin nein ákvörðun
um hversu mikið þau koma til með
að hækka.
ÁI
Atvinnumálanefnd Reykjavíkur-
borgar hefur lýst áhuga á því að
„kannaðir verði til þrautar mögu-
leikar á að álver eða annar orku-
frekur iðnaður rísi í Geldingancsi
að uppfylltum öllum cðlilcgum for-
sendum um hagkvæmni, öryggi og
mengunarvarnir.“ Tilefni þessarar
samþykktar er að Gcldinganes cr
einn af sex stöðum á landinu sem
staðarvalsnefnd telur koma til
greina að reisa á álver og leitaði
nefndin eftir áliti borgarinnar.
I bókun Guðmundur Þ. Jóns-
sonar með atkvæði hans í nefndinni
segir m.a.: „Ég tek undir það
sjónarmið að Reykjavíkurborg lýsi
yfir almennum áhuga á því að reisa
hér öflug framleiðslufyrirtæki og
treysti með því undirstöður atvinn-
ultfsins í borginni. Hvað varðar
hugsanlega staðsetningu álvers í
Geldinganesi legg ég áherslu á að
niðurstöður rannsókna vegna
mengunar á lífríkinu umhverfis
Geldinganes og í fyrirhugaðri
íbúðarbyggð norðan Grafarvogs
liggi fyrir áður en endanleg á-
kvörðun er tekin. En til mengunar-
varna og hollustuverndar verður
að gera ítrustu kröfur."
í umræðum í borgarstjórn um
málið kom m.a. fram að málið væri
á byrjunarstigi og með samþykkt
nefndarinnar væri engu slegið öðru
föstu en því, að rannsóknir héldu
áfram.
-Á1
Fundið verði svæði
fyrir flutningshús