Þjóðviljinn - 31.12.1982, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN
Þjóðviljinn
óskar öllum
landsmönnum
árs
og friðar!
desember 1982
föstudagur
47. árgangur
292. tölublað
268 ný
pláss
tekin
í notkun
á árinu
Övænt tíðindi
í Framsóknarflokknum:
Guðmundur G.
ekki í framboði
Afleiðing innanflokksátaka
í gærkvöldi gekk kjörnefnd í prófkjöri Framsóknarmanna í
Reykjavík 9. jan n.k. endanlega frá framboðum. Það vekur mikla
athygli að Guðmundur G. Þórarinsson alþm. gefur ekki kost á sér
en sú ákvörðun kemur í kjölfarið á miklum innanflokksátökum í
Framsóknarflokknum í Reykjavík.
Þeir sem taka þátt í prófkjörinu lektor, Kristín Eggertsdóttir
eru Árni Benediktsson framkvstj., starfsm. MFA, Ólafur Jóhannes-
Ásta R. Jóhannesdóttir þjóðfélags- son utanríkisráðherra, Steinunn
fræðingur, Björn Líndal Finnbogadóttir ljósmóðirog Viggó
deildarstj., Bolli Héðinsson hagfr., Jörgensson.
Dollý Nilsen, Haraldur Ólafsson
Guðmundur G. Þórarinsson
Leiðinlegt
áramóta-
veður
„Ég spái heldur leiðinlegu veðri
um áramótin og allt fram á 3ja í
nýári,“ sagði Trausti Jónsson
veðurfræðingur í samtali í gær.
Útsynningur og éljagangur mun
herja á suður- og vesturlandi, en
spáð er skaplegra veðri fyrir norð-
an og austan, strekkingsvindi en
bjartara.
Vaxandi sunnanátt var í nótt sem
leið og í dag á hann að snúast yfir í
s-vestanátt. „Það verður mikill'. ó-
þverri í éljunum, en skaplegt á
milli,“ sagði Trausti.
Rétt er að vekja athygli manna á
því sem búa við suður- og vestur-
ströndina, að stórstreymt er í dag,
og búast má við miklum sjávar-
gangi.
- Ig-
Morgun-
blaðið
breytir
plús
í mínus!
Þjóðhagsstofnun telur
kaupmátt ráðstöfunar-
tekna vaxa um 18,5% frá
1976 til 1983. Morgunblað-
ið segir kaupmáttinn rýrna
um sömu upphæð á þvi ár-
abili!
Sjá SÍÖU 3.
Á þessu ári voru tekin í notk-
un 268 ný pláss í dvalar- og
hjúkrunarheimilum fyrir aldr-
aða í landinu. Pláss á heimilum
aldraðra voru í ársbyrjun um
2000, þannig að fjölgunin hefur
orðið um 12% á árinu. Áform
um ný pláss á dvalar- og hjúkr-
unarheimilum á næsta ári eru
svipuð og í ár.
í grein eftir Ingibjörgu Magnús-
dóttur deildarstjóra í Sveita-
stjórnarmálujn kemur ma fram að
á næstu tíu árum á undan sl. ári
voru tekin í notkun 500 ný pláss. Á
þessu sést að verið er að gera veru-
legt átak í þágu aldraðra, enda
hækkar nú hlutfallstala þeirra í
þjóðarheildinni ört.
Ár aldraðra er á enda runnið, og
af því tilefni kannar Þjóðviljinn í
dag hver árangurinn af átaki í þágu
aldraðra hefur orðið.
Þessi mynd var tekin í Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi í gær, en það glæsilega heimili var
tekið í notkun árinu.
Fjármálaráðuneytið endurákvarðar framleiðslugjald ÍSALS 1976
„Skattailmeignm,,
hjá rfldnu lækkuð
í fréttatilkynningu sem Þjóðviljanum barst í gær frá fjár-
málaráðuneytinu segir að það hafi, í samræmi við endur-
.skoðun fyrirtækisins Coopers og Lybrand á verðlagi á raf-
skautum og súráli til ísal fyrir árin 1975 til 1979, endurá-
kvarðað framleiðslugjald ísal fyrir árið 1976 og hækkað það
sem nemur 498.309 bandaríkjadali eða um 80 milj. ísl.
króna. Segir ennfremur að þessi upphæð hafi verið færð til
lækkunar á „skattainneign“ fyrirtækisins hjá ríkissjóði frá
og með 1. janúar 1977.
Ástæða þess að þetta er gert nú er fyrst og fremst sú, að
þar sem lausn hefur ekki fengist á deilu ríkisins og ísal vegna
málsins, verður að taka árið 1976 sérstaklega til þess að
koma í veg fyrir að gjaldandinn geti borið fyrir sig almenna
reglu íslenskra skattalaga um sex ára fyrningarfrest á skatt-
kröfum.
- S.dór.