Þjóðviljinn - 31.12.1982, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. desember 1982
SPÁÐ í ÁRIÐ
Njörður P. Njarðvík
formaður
Rithöfundasambands
Islands:
Höldum
bókinni
fram
- Rithöfundar hafa leitað til
þeirra aðila sem eru tengdir bók-
inni með einhverjum hætti til að
ræða æskilega þróun og til að halda
fram bókinni, sagði Njörður P.
Njarðvík formaður Rithöfunda-
sambands íslands er Þjv. spurði
hann um áramótaviðhorf:
- Á síðasta ári hafa ýmsar
breytingar orðið á bókamarkaðin-
um. Titlum hefur fjölgað, en bók-
sala hefur dregist saman, að því er
ætlað er. Það selst minna af hverj-
um titli. Þá gerði sú tilhneiging vart
við sig að vöruhús tóku upp sölu á
bókum (Hagkaupsmálið), en ekk-
ert hefur heyrst af því máli að
undanförnu.
Þá hafa bókaklúbbar verið settir
á laggirnar, en þeir hafa leitt til
þess víða í nágrannalöndum okkar,
að færri bókatitlar.eru gefnir út og
stærri upplög. Rithöfundar hafa
haft af því áhyggjur að hinni sér-
hæfðu bókaverslun sé stefnt í
hættu. Það er m.a. vegna þessarar
þróunar að rithöfundasambandið
hefur tekið þátt í því að setja á
laggirnar viðræðunefnd við útgef-
endur, félag gagnrýnenda, bók-
sala, bókagerðarmenn og bóka-
safnsfræðinga til að ræða um fram-
tíð bókarinnar, þróun í þessum
málum á næstunni og hvernig þess-
ir aðilar geti brugðist við.
Við fylgjumst vel með þróuninni
og ætlum að gera okkar til að halda
fram bókinni á næsta ári einsog
ævinlega.
-óg
Sveinn Einarsson,
Pjóðleikhússtjóri:
Margt
spennandi
í leiklist-
inni
„Mér líst ljómandi vel á næsta ár
í leiklistinni. Við vitum að vísu að
það „eru erfiðir tímar, það er
atvinnuþref" eins og Halldór sagði,
en við vonum að það hafi ekki of
mikil áhrif á listirnar. Það hefur
ákaflega margt spennandi verið að
gerast í leiklistinni á'þessu ári sem
er að líða, og það gefur góð fyrir-
heif um næsta ár. Þar á ég einkum
við tvo þætti: í fyrsta lagi er mikil
ólga og gerjun í íslenskri leikritun
og í öðru lagi hefur leiklist okkar
náð út fyrir landsteinana á þann
hátt sem áður var næsta óþekkt.
íslensk leiklist hefur vakið mjög
mikla athygli erlendis að undan-
förnu.
Ef hin efnalegu verðmæti
skreppa saman, sem ekki er óeðli-
legt þegar menn hafa lifað um efni
fram, verðá hin andlegu verðmæti
þeim mun dýrmætari. Verði fólk
að neita sér um efnalega hluti,
verður þörfin fyrir listflutning
brýnni en nokkru sinni. Við vonum
því að erfiðleikar í atvinnulífi og
efnahagsmálum þjóðarinnar lami
ekki listalífið.
Um áramót
Halldór Björn
Runólfssori
listfrœðingur:
Línur
skýrast
Ég sé ekki betur en það sé mikil
ástæða til bjartsýni í myndlistar-
málum á árinu 1983, sagði Halldór
Björn Runólfsson, listfræðingur og
myndtistargagnrýnandi Þjóðvilj-
ans. Á síðasta ári bættist mikið af
ungu fólki í hópinn með spánýjar
hugmyndir: Þetta er orðinn stærri
frontur og meiri fjölbreytni en
áður.
í viðbót við tilraunastarfsemina
sem var í gangi á 8. áratugnum er
málverkið aftur að líta dagsins ljós
undir vissum áhrifum, ekki aðeins
Gamlársdagur opið til kl. 14
Nýársdagur opið frá kl. 18
Á nýársdag bjóðum
við,
auk hins fjölbreytta
matseðils hússins,
sérstaka hátíðarrétti.
Kaffihlaðborð síð-
degis
alla sunnudaga.
NÝÁRSDAGUR
Kvöldverður:
Kjölseyði „Royal"
-O-
Hvítvínssoðin fyllt smálúða
mlhumarsósu.
eða
Ali-önd m/Bigarade-sósu.
bökuðum eplum og brúnuðum
kartöflum.
-O-
Grand Marnier-fromage.
Við á Lækjarbrekku sendum landsmönnum bestu nýárskveðjur og
þökkum gestum okkar ánægjuleg samskipti á árinu, sem er að líða.
i tu’/íka
(J Bankastræti 2
Borðapantanir s. 14430
Veislupantanir s. 10622
frá Ameríku og Hollandi, heldur
einnig frá Þýskalandi og Ítalíu.
Þessi fjölbreytni hefur rifið niður
vissa dogma sem voru í listinni,
sagði Halldór, og fyrir dyrum eru
tvær stórar samsýningar á verkum
ungs fólk, þar sem búast má við að
línur skýrist.
Það er vissulega sjónarsviptir að
gömlum kempum eins og Ásmundi
og Sigurjóni, en það er engin á-
stæða til að halda að ekki komi
maður í manns stað. Ég hef þá trú
að á árinu 1983 muni þetta unga
myndlistarfólk staðfesta sig og
sjálfstæði sitt gagnvart öðrum
löndum, - endurspegla það besta
sem þar er fyrir svo og það besta í
íslenskri myndlist.
Karólína Eiríksdóttir,
tónskáld:
Bjartsýn á
tónlistar-
lífíð
„Ég hef ekki mikla spásagnar-
gáfu, en ég get þó sagt að ég er mjög
bjartsýn hvað varðar tónlistarlífið.
Hér er mikið að gerast og engin
ástæða til að ætla, að á því verði
eitthvert lát.“
Við spurðum Karólínu hvort
hún væri hrædd um að tónlistin
myndi gjalda fyrir hugsanlegan
samdrátt í atvinnulífinu:
„Það er auðvitað mögulegt, en
margir halda því þó fram, að listir
blómstri við erfiðar aðstæður. Þeir
sem fást við listsköpun hér á landi
vinna yfirleitt við mjög erfiðar að-
stæður. Ég hef Iitla trú á að tíma-
bundinn samdráttur í atvinnulífi
þjóðarinnar hafi þarna mikið að
segja; það þyrfti þá að líta til lengri
tíma, til að sjá áhrif. En ég er mjög
bjartsýn og sé enga ástæðu til ann-
ars. Fólk mun halda sínu striki við
listsköpun, þótt eitthvað harðni á
dalnurn".
Hörður Vilhjálmsson
fjármálastjóri
Ríkisútvarpsins:
Mikið
fram-
kvæmdaár
„Næsta ár getur orðið mikið
framkvæmdaár í sögu útvarps og
sjónvarps“, sagði Hörður Vil-
hjálmsson fjármálstjóri Ríkisút-
varpsins.
„Stefnt er að því að halda uppi
útsendingum sjónvarps í júlí. Önn-
ur rás útvarpsins verður væntan-
lega tekin í notkun seint á næsta
ári. Haldið verður áfram uppbygg-
ingu aðstöðunnar á Akureyri og
síðast en ekki síst verður unnið af
fullum krafti við útvarpshúsið í
Kringlumýri. Uppsteypu á að Ijúka
í júlí n.k. og verið er að ganga frá
útboði fyrir fullnaðar frágang að
utan á næsta ári.
Hinu er ekki að neita, að það eru
allþungar horfur framundan; verð-
lagsþróun hefur verið ógnvænleg.
Við þurfum að beita aðhaldi til að
þessi þróun nái að breytast. En við
stefnum ótrauðir að þessum áföng-
um í trausti þess að það sé vilji
almennings að Ríkisútvarpið auki
og bæti þjónustu sína eftir því sem
kostur er“, sagði Hörður. -lg.