Þjóðviljinn - 31.12.1982, Qupperneq 5
Föstudagur 3-1. desemhcr 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
lngi Tryggvason,
form. Stéttar-
sambands bœnda:
Tekið á
ináluni af
fyrirhyggju
og festu
- Bændur eiga ennþá mikiö
„undir sói og regni“ þótt tæknin
hafi gert þá óháðari veðurfarinu en
áður var, sagði Ingi Tryggvason,
formaður Stéttarsambands bænda
í stuttu spjalli við blaðið í gær.
- Og á þessu ári, sem nú er að
kveðja, má segja að árferðið hafi
verið í meðallagi en þó fremur kalt.
Heyfengur var sæmilegur að vöxt-
um og nýtingu. Sala búvara á
innanlandsmarkaði gekk vel á ár-
inu. Kindakjötssalan var talsvert
meiri en áður og einnig sala á mjólk
og ostum. Uppskera á garðávöxt-
um var í meðallagi. Mjólkurfram-
leiðslan var nokkuð við hæfi en má
ekki aukast eigi fullt verð að fást.
Dilkar reyndust í léttara lagi í
haust, sauðfé hefur fækkað en
kindakjötsframleiðslan er enn of
mikil til þess að innanlandsmark-
aðurinn torgi henni.
Horfu um útflutning eru hins-
vegar ekki bjartar því framboð á
kindakjöti er ntikið. Afkonta
sauðfjárbænda er því fyrst og
fremst háð því hvernig innanlands-
ntarkaðurinn verður á næstu árum.
Og þá er það kaupgeta almenn-
ings, sem skiptir höfuð máli.
Lítið er ennþá vitað urn afkomu
bænda almennt á árinu en þó er
ljóst, að skuldir hafa aukist hjá
þeim, sem orðið hafa að standa í
framkvæmdum.
Bændastéttin á vissulega við ým-
is vandamál að etja en hún hefur
snúist við þeint af þeirri fyrirhyggju
og festu að til eftirbreytni er.
-mhg
Páll Sigurjónsson
formaður Vinnuveitenda-
sambands íslands:
Abyrga
samninga
„Það er ekki hægt að segja að
bjart sé framundan, því miður“,
sagði Páll Sigurjónsson formaður
SPÁÐ í ÁRIÐ
Vinnuveitendasambands íslands
þegar hann var spurður álits.
„Mér virðist ástandið vera mjög
alvarlegt um þesar mundir, en ég
hef hins vegar trú á að okkur takist
að vinna okkur út úr erfiðleikunum
ef við tökum á í sameiningu. í því
sambandi vil ég sérstaklega minna
á að nú er mikilegt að bæði atvinn-
urekendur og verkalýðshreyfingin
geri ábyrga kjarasamninga á næsta
ári. Annars er hætta á að illa fari“,
sagði Páll Sigurjónsson að síðustu.
-v.
Páll Theódórsson
eðlisfrœðingur:
Erum
á eftir
„Ég spái því, að þið blaðantenn
farið að skrifa á eigin tölvur bæði á
vinnustað og heima á næsta ári, og
ættuð raunar að vera lönau bvri-
aðir á því“, sagði Páll Theódórsson
eðlisfræðingur.
„Hvað viðkemur örtölvubylting-
unni svokallaðri, þá verður áfram-
hald á, og hún fer vaxandi. Örtölv-
an mun grípa víðar inní, og það fer
að styttast í vélmenni eða að
minnsts kosti fyrsta vísi að þeim.
Vegna þróunar efnahagsmála
setur maður sig í vissar kreppustell-
ingar, ein einmitt þess vegna er stór
ástæða til að hlúa að rafeinda-
iðnaðinum í landinu. Við erurn
orðnir á eftir. Það bíða okkar mikl-
ir möguleikar og við hefðum átt að
taka þessi ntál föstum tökum fyrir
1-2 árum. Nú getum við ekki beðið
lengur. Við þurfum að geta unnið
að þessari þróun hérna heima og
stýrt henni eftir okkar þörfum, en
ekki vera þiggjendur og kaupend-
ur, heldur ekki síður eigin fram-
leiðendur", sagði Páll Theódórs-
son. -lg.
Starfsfólk Flugleiða
óskar öllum
landsmönnum, nær
og fjær, gleðilegs árs með
bestu þökkum fyrir samstarfíð.
Sérstakar þakkir til þeirra,
sem hafa lagt félaginu lið
á einn eða annan
hátt á liðnu ári.
I þeirri trú að
Flugleiðir megi njóta
áframhaldandi trausts
landsmanna í ferðum þeirra
hérlendis sem erlendis,
munum við kappkosta
að veita viðskiptavinum okkar
sem hesta þjónustu
fyrir viðráðanlegt verð.
FLUGLEIDIR
Gott fólkhjá traustu félagi