Þjóðviljinn - 31.12.1982, Qupperneq 7
Föstudagur 31. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Miklar sviptingar voru hjá hinu hálfís-
lenska flugfélagi Cargolux- í Luxemborg
vegna bágrar afkomu og uppsagna. Var
m.a. fullyrt að breska leyniþjónustan hefði
eyðilagt viðskipti félagsins við aðila í Hong .
Kong vegna þess að uppvíst varð að Cargo-
lux hefði flutt vopn fyrir Argentínu meðan
Falklandseyjastríðið stóð yfir. Þessir ís-
lendingar!
Olíuœði á Húsavík
Orkustofnun ákvað í sumar að bora eftir
olíu í Flatey á Skjálfanda. Greip strax um
sig mikill skjálfti á Húsavík, og sagði bæjar-
stjórinn að þar gengju menn með olíu í
augum og sumir væru jafnvel farnir að sjást
með Texas-hatta.
Gullœði
á Skeiðarársandi
Og ekki greip um sig minni skjálfti austur
á Skeiðarársandi þegar gullleitarmenn, sem
þar eru búnir að vera að baksa í mörg herr-
ans ár, töldu sig vera búna að finna svo-
kallað „gullskip“, Het Wapen Van Amster-
dam, frá fyrri öldum, er strandaði þar á leið
frá Austurlöndum. Sagnfræðingar töldu að
vísu mjög hæpið að gull væri í skipinu en
gullleitarmenn létu það sem vind um eyru
þjóta.
í Dölunum
bara leir
Dalamenn vonuðust hvorki eftir gulli né
olíu, heldur létu sér nægja vonir eftir leir,
sem hægt væri að byggja úr og smíða. Voru
tilraunir í fullum gangi í sumar og góðar
vonir.
Móðir mín
í kví kví
Áfangi náðist í útvarpsmálum þegar rík-
isútvarpið kom upp staðarútvarpi á Akur-
eyri, og í lok ársins þótti tilraunin hafa tek-
ist bara vel. Þó vakti það undrun margra að
einkennislag RUVÁK er útburðarvæl,
nefnilega Móðir mín í kví kví.
Gjaldþrota
auðhringur
Ekki blæs byrlega fyrir blessuðum
auðhringunum sem áttu að bjarga okkur
hérna um árið. Svo virðist að þeir séu allir
gjaldþrota ef trúa má hjali þeirra. Manville-
Jón Baldvin Hannibalsson varð
efstur í prófkjöri krata í
Reykjavík
hringurinn sem á stóran hlut í Kísiliðjunni
við Mývatn lét í ágúst lýsa sig gjaldþrota.
Reyndar sögðu skæðar tungur að þetta væri
bara „trikk" til þess að komast hjá því að
borga verkamönnum sem fengið höfðu
krabbamein hjá þeim, skaðabætur. Það er
nefnilegi það.
Tvo ur
leikhúsheiminum
í september fór Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, í mikla för í Vesturveg
ásamt fríðu föruneyti til að opna sýninguna
Scandinavia Today. Reagan forseti bauð
Vigdísi í Hvíta húsið og urðu þar fagnaðar-
fundir - enda báðir forsetarnir úr leikhús-
heiminum.
Lýðrœðið í reynd
Davíð Oddsson og félagar stjórnuðu
borginni, „Borg Davíðs“, eins og gárung-
arnir kölluðu hana, eftir sínu höfði út árið,
og útilokuðu minnihlutann frá nefndum og
ráðum eins og best þeir gátu, forðuðust að
leita umsagna o.s.frv. Þess vegna urðu þeir
ævareiðir þegar menntamálaráðherra
skipaði Áslaugu Brynjólfsdóttur fræðslu-
stjóra Reykjavíkur því að það embætti ætl-
uðu þeir flokksgæðingnum Sigurjóni Fjeld-
sted. Er Áslaug var skipuð lýstu þeir því yfir
að skipulagi fræðsluskrifstofunnar yrði
gjörbreytt. Þetta er víst það sem þeir kalla
lýðræði í reynd.
Konur og friðurinn
Friðarmál voru til umræðu allt árið og í
október sendi hópur kvenna frá sér ávarp
þar sem krafist var afvopnunar. Hópurinn
nefndi sig Friðarhóp kvenna og þar mátti
sjá hlið við hlið konur eins og Bessí Jó-
hannsdóttur,Álfheiði Ingadóttur, Auði Eir
Vilhjálmsdóttur og Gerði Steinþórsdóttur
- hönd í hönd, einhuga og sammála.
Albert og Eggert
stökkva fyrir borð
Þegar þing kom saman í október var
greinilega farið að hrikta í innviðum ríkis-
stjórnarinnar og um svipað leiti lýstu þeir
Albert Guðmundsson og Eggert Haukdal
því yfir að þeir myndu ekki styðja bráða-
birgðalög um efnahagsaðgerðir. Ríkis-
stjórnin stritaðist þó við að sitja áfram,
enda engin önnur ríkisstjórn í augsýn.
Umboðslausi
bankastjórinn
Ekkert póstrán var framið í Sandgerði í
Vilmundur Gylfason stofnaði
Bandalag jaf naðarmanna og
klauf sig frá krötum
ár fremur en í fyrra, en hins vegar var banka-
stjóri ráðinn að Búnaðarbankanum í
Grundarfirði vegna falskra vottorða. Þykir
mál þetta allt hið dularfyllsta, en tæpast
flokkast það þó undir bankarán.
Sovéska sjónvarpið
á Islandi
Það kom nokkru róti á hugi manna þegar
það uppgötvaðist að hægt var að ná sovésk-
um sjónarpssendingum frá gervitungli,
ekki bara einni rás heldur þremur. Flykktist
múgur manns í Hljómbæ sem hafði komið
upp móttökuloftneti - en Moggi varð orð-
laus.
Friðrik féll
íslendingum féll allur ketill í eld þegar
Friðrik Ólafsson náði ekki endurkjöri sem
forseti FIDE, enda vart hægt að hugsa sér
meira prúðmenni en Friðrik. En það er víst
ekki prúðmennskan sem gildir í svona kjöri
- bar öllum saman um eftir á. .
Vimmi springur
á limminu
Vilmundur Gylfason lýsti úrsögn sinni úr
Alþýðuflokknum öllum til mikillar furðu
og sagðist ætla að stofna Bandalag jafn-
aðarmanna og efla einn mann til mikilla
áhrifa á íslandi. Hann sagði þó að hann
sjálfur skipti engu í þessu sambandi - en
trúðu fáir enda hefur - þegar þetta er skrif-
að - ekki tekist að hafa uppi á fleirum í
Bandalagi jafnaðarmanna.
Sigrar og ósigrar
Prófkjör og flokksþing fóru að setja svip
á mannlífið þegar líða tók á árið. Geir Hall-
grímsson féll með pompi og pragt í próf-
kjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík niður í
7. sæti og var næstum því búinn að segja af
sér. Jón Baldvin hreppti efsta sætið hjá kröt-
um, og Pálmi sigraði Eykon glæsilega fyrir
norðan. Á flokksráðsfundi Alþýðubanda-
lagsins tóku konur og börn yfir, eins og einn
úr forystuliðinu sagði.
Guðmundur okkar
Þórarinsson
Og það er best að klykkja út með hinu
fyrirferðarmikla álmáli. Eftir að Alusuisse
hafði orðið uppvíst að stórkostlegum skatt-
svikum og svindli rauf einn þingmaður sam-
stöðu íslendinga í málinu og tók upp ein-
stefnu og setti allt í háaloft og hló þá margur
púkinn. Þetta var enginn annar en Guð-
mundur okkar Þórarinsson, og sparaði
Hjörleifur honum ekki stóru orðin. Árið
endaði því eins og það hófst - með bram-
bolti og bríaríi.
-GFr