Þjóðviljinn - 31.12.1982, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. desember 1982
Ástand heimsmála á árinu sem er að líða einkenndist af versnandi sambúð
stórveldanna og auknu vígbúnaðarkapphlaupi.
Reagan vildi beita Sovétríkin og bandamenn þeirra efnahagslegum
þvingunum. Setti liann viðskiptabann á öll þau fyrirtæki á Vesturlöndum
er legðu fram aðstoð við byggingu gasleiðslunnar miklu frá Síberíu til
V-Evrópu. Þá beitti hann Pólverja einnig viðskiptaþvingunum. Banninu
á gasleiðsluviðskiptin var þó aflétt í september eftir að það hafði nærri
valdið klofningi innan NATO. Gasleiðslusamningurinn er stærsti
viðskiptasamningur sem V-Evrópuríki hafa gert við Sovétríkin. Mynd-
in sýnir hvar verið er að leggja gasieiðsluna unt Úralfjöllin.
Fráfall Bresjnefs og kosning Júrí
Andropovs í stöðu aðalritara sov-
éska kommúnistaflokksins teljast
til stórtíðinda ársins 1982. Bresjnef
fékk þau eftirmæli að hann hefði
gert Sovétríkin að hernaðarlegu
stórveldi á valdatíma sínum. Valda-
tími hans einkenndist af stöðug-
leika innanlands og bættri sambúð
við Vesturlönd, þótt heldur hafi
sigið á ógæfuhliðina í þeim efnunr
síðustu 2 árin. Flonum hafði mis-
tekist að koma skipulagi á sovésk-
an landbúnað og innrásin í Tékkó-
slóvakíu og í Afghanistan og af-
skiptin af málefnum Póllands voru
talin svörtustu blettirnir á stjórn-
artíð hans.
Júrí Andropov, fyrrverandi yfir-
maður leyniþjónustunnar KGB, er
sagður vel upplýstur og slunginn
stjórnmálamaður skólaður í glím-
unni við sovéska andófsmenn,
auk þess sem hann var sendi-
’82
Á meðan yfir 600 miljörðum dollara var varið.til hernaðarútgjalda í heiminum á liðnu ári liðu miljónir
manna hungur í Afríku, Asíu, Róm önsku Ameríku og víðar. Furrkar hafa ma. valdið hungursneyð í Tanzaníu
og Uganda á þessu ári og talið er að í Afríku einni líði nú um þessar mundir yfir 70 miljónir ntanna hungur.
Myndin er frá Uganda.
herra í Búdapest þegar 1956. A myndinni er Andropov
Rauði herinn gerði þar innrás efst t.v., en Bresjnef neðst t.h.
Annáll erlendra tíðinda
Efnahagskreppan í heintinum sagði til sín á árinu 1982 með meiri þunga en
nokkru sinni síðan í efnahagskreppunni miklu fyrir-50 árum. Einkenni
hennar voru fyrst og fremst vaxandi atvinnuleysi, halli í utanríkisvið-
skiptum, háir vextir og hátt gengi dollarans og kreppa á hinunt alþjóðlega
lánsfjármarkaði.
Skuldasöfnun varð gífurleg, sérstaklega hjá þeim ríkjum þriðja
heimsins, sem höfðu lagt í fjárfestingu til iðnvæðingar. Atvinnuleysi var
yfirleitt 8 - 10 af hundraði í löndum Efnahagsbandalagsins og í Bandaríkj-
unum var það um 10,5%. í Bretlandi nálgaðist atvinnuleysið 13%. Efna-
hagssérfræðingar stóðu ráðþrota gagnvart þessum vanda og fáir þorðu að
spá umtalsverðum bata á árinu 1983. Myndin sýnir breska atvinnuleys-
ingja mótmæla efnahagsstefnu Margarethar Thatcher. I
Fierlögin, sem sett voru í Póllandi 13. desember 1981, voru í gildi allt árið
1982. Óháðu verkalýðssamtökin Solidarnosc voru bönnuð, og leiðtogi
þeirra, Lech Walesa, mátti sæta frelsissviptingu í 11 mánuði. Honum var
sleppt úr haldi í nóvember, og á ársafmæli herlaganna tilkynnti Jaruzelski
hershöfðingi að fangabúðum sem herinn hafði komið á fót yrði lokað og að;
flestir þeir sem sætu inni vegna herlaganna yrðu aftur frjálsir um ára-
mótin. Andspyrnan gegn herstjórninni beið ósigur í nóvemberbyrjun
þegar boðað allsherjarverkfall fór út um þúfur. 1 heild einkenndist árið
1982 í Póllandi af vaxandi efnahagsörðugleikum og vonleysi meðal fólksins
á meðan herstjórnin herti tökin á þjóðinni. Eftir frelsun úr 11 mánaða
prísund hersins sagði Lech Walesa: „Hvað get ég sagt ykkur sem foringi
þessa mikla verkalýðssambands, sem formlega er ekki til? Það lifir innra
með okkur, jafnvel innra með þeim sem snéru við því bakinu."
Þrátt fyrir efnahagskreppuna var
ekkert mál sem greip hugi fólks
jafn mikið á liðnu ári og hið herta
vígbúnaðarkapphlaup stórveld-
anna. Ákvörðun Nato og Reagan-
stjórnarinnar um stórhert vígbún-
aðarkapphlaup hefur vakið skelf-
ingu í V-Evrópu og Bandaríkjun-
um og friðarhreyfingar á báðum
meginlöndunum eru nú sterkari og
áhrifameiri en nokkru sinnum fyrr.
Reagan beið ósigur á Banda-
ríkjaþingi er hann vildi fá fé til að
setja upp nýjar MX-eldflaugar og
margir stjórnmálaflokkar í V-
Evrópu, sem áður studdu ögrunar-
stefnu Reagans í vígbúnaðarmál-
um hafa nú snúið við blaðinu. Þar
skiptir kannski mestu máli stefnu-
breyting vestur-þýskra jafnaðar-
manna sem ganga nú til kosninga
undir kjörorðinu: gegn Evrópu-
eldflaugum Reagans. Myndin er
frá fjölmennustu kröfugöngu sem
haldin hefur verið í V-Þýskalandi:
300 þúsund manns fóru um götur
Bonn á liðnu sumri og mótmæltu
Evrópueldflaugum Reagans.