Þjóðviljinn - 31.12.1982, Side 11
Föstudagur 31. descmber 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
íran — írak
Á medan Kohmeini trúarleiötogi í íran lét
ganga á milli bols og höfuös á stjórnarandstæð-
ingum innanlands, sendi hann hermenn sína í
„heilagt stríö" gegn írökum og hét því að gefast
ekki upp fyrr en Saddam Hussein forseti íraks
hefði látið af völdum. Báðar ríkisstjórnirnar virtu
kröfu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um vopn-
ahlé að vettugi og samtök arabaríkja virtust líka
ómegnug að miðla málum. íranir endurheimtu á
árinu landsvæði þau sem írakar höfðu áður her-
tekið af íran og náðu einnig á sitt vald nokkru
landssvæði innan landamæra íraks. Myndin sýnir
hermenn Kohmeinis innblásna hugsjón ’ kénni-
mannsins.
Kólumbíanski rithöfund-
urinn Gabriel Garcia
Marquez hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels 1982. í|
ræðu sinni á Nóbel-
hátíðinni gerði hann hið
pólitíska ástand í Róm-
önsku Ameríku að umtals-i
efni. Hann ásakaði Banda-
ríkin og Evrópu fyrir skiln-
ingsleysi á sögu álfunnar
og félagslegum aðstæðum
sem þar ríkja. Hann ásak-
aði margar ríkisstjórnir álf-
unnar fyrir brot á mann-
réttindum og gagnrýndi þá
sem héldu því fram að á-
stand í Mið-Ameríku væri
sök Sovétríkjanna og
Kúbu. Þótt ræða skáldsins
hafi falið í sér gagnrýni á
ummæli sænsku akademí-
unnar um verk hans, fékk
hún engu að síður góðar
undirtektir í Stókkhólmi.
Falklandseyjar
Styrjöldin um Falklandseyjar,
sem Argentínumenn og
S-Ameríkurikin kalla Malvinas-
eyjar, var af mörgum kallað hið
fáránlega stríð, þar sem á-
vinningurinn þótti ekki í sam-
ræmi við tilkostnað.
Herforingjastjórnin í Argent-
ínu, sem var alræmd fyrir harð-
stjórn sína og grimmdarverk,
keypti sér tímabundnar vinsældir
nreðal þjóðarinnar með því að
hersetja eyjarnar, en átti er yfir
lauk ekki annarra úrkosta völ en
að lúta afarkostum Breta.
Styrjöldin vakti mikla
tilfinnmgaöldu bæði á Bretlands-
eyjum og í Argentínu, og
S-Ameríkuríkin litu á flotasend-
ingu Breta til Malvinaseyja sem
leifar gamallar nýlendustefnu.
Bandaríkin sem studdu Breta
hálfum huga bökuðu sér reiði
margra vinveittra hægri-stjórna í
S-Ameríku, og ösigurinn leiddi
til falls Galtieris forseta Argent-
ínu. Margaret Thatcher keypti
sér hins vegar miklar vinsældir
með stríði þessu, og veitti ekki af,
því að 13% atvinnuleysi hafði
bakað henni óvinsældir fyrir
stríðið. Allsherjarvcrkfall í Árg-
entínu í desember markaði að
margra dómi upphafið að falli
valdastjórnar hersins í landinu.
Á þingi kínverska Kommúnistaflokksins var Hu Jaobang kosinn aðalrit>
ari. Sú breyting varð á stefnu kínversku stjórnarinnar á árinu, að hún
linaðist í andstöðu sinni við Sovétríkin og tók upp gagnrýnni stefnu
gagnvart Bandaríkjunum. Inn á við boðaði hún aukið frelsi til einkafram-
taks, og var m.a. komið á frjálsum markaði á landbúnaðarafurðum.
Mesta manntal sögunnar fór fram í Kína á árinu og reyndust landsmenn
vera um 1030 miljónir. Myndir er frá frjálsum útimarkaði í Kína.
Hneykslismál ársins var uppljóstrun um aðild
búlgörsku leyniþjónustunnar að morðtil-
ræðinu við páfann og tengsl hennar við tyrk-
neskan vopnasölu- og eiturlyfjahring og við
Rauðu herdeildirnar á Italíu, en þetta varð uppvíst af framburði til-
ræðismannsins Ali Agca, eins foringja Rauðu herdeildanna og ítalsks
verkalýðsleiðtoga sem játað hefur á sig njósnir fyrir búlgörsku leyniþjón-
ustuna. Myndin sýnir búlgarskan starfsmann Balkan-air í Róm sem grun-
aður er um aðild að tilræðinu og sýnir stærri rnyndin andlit er líkist hans í
þvögunni á Péturstorginu þegar morðtilræðið var framið.
Afghanistan
Kosningar í El Salvador
breyttu engu um ástand mála þar:
Einhver grimmdarlegasta
borgarastyrjöld sent sögur fara af
var háð þar nær linnulaust allt ár-
ið, og unnu þjóðfrelsisöflin um-
talsverða sigra í október og
nóvembermánuði. Dauðasveitir
stjórnvalda héldu áfram upp-
teknum hætti og tala fallinna og
týndra í þessari styrjöld skiptir nú
tugum þúsunda, auk þess sem um
250 þúsundir manna hafa flúið
þetta litla og hrjáða miðameríku-
ríki. Stjórn Reagans hélt áfram
hernaðarstuðningi sínum við
harðstjórnina í E1 Salvador og
jók mjög á hernaðarumsvif sín í
Honduras, auk þess sem hún tók
einnig upp að nýju hernaðar-
aðstoð við ógnarstjórn hersins í
Guatemala. Myndin sýnir fórnar-
iömb hersins í E1 Salvador.
Árið 1982 var þriðja árið frá inn-
rás Sovétríkjanna í Afghanistan
og sá ekki fyrir endann á þeirri
deilu. Pótt andspyrnan gegn
hersetunni og stjórn Karmals
væri klofin og virtist vart eiga
möguleika á hernaðarlegum sigri
yfir innrásarliðinu eða vera í
stakk búin til að sameinast um
nýja stjórn, þá virtist herseta So-
vétmanna og stjórnarhættir
Karmalstjórnarinnar enn von-
lausari um að eeta náð fram beim
þjóðarsáttum er dygðu til friðar.
Sovétmenn höfðu hrakið um 2,7
miljónir flóttamanna úr landi yfir
til Pakistan og hundruð þúsunda
voru orðin landflótta innan lands
af völdum stríðsins. Stríðið í Afg-
hanistan hafði kostað So.vétríkin
mikinn álitshnekki meðal óháðra
ríkja þriðja heimsins. Myndin
sýnir sovéskan skriðdreka fyrir
framan forsetahöllina í Kabúl.
Styrjaldir voru háðar í fleiri an og borgarastyrjöldina í El
heimshlutum og nægir þar að Salvador. Allar sýndu þessar
nefna íjokkrar sem hæst bar: styrjaldir hver með sínum hætti
innrás ísraels í Líbanon, styrj- þverrandi áhrifamátt Sam-
öld Argentínu og Bretlands um einuðu þjóðanna til varðveislu
Falklandseyjar, styrjöld íraks friðar í heiminum.
og íran, styrjöldina í Afghanist-
El
Salvador
Líbanon
Innrás ísraels í Líbanon, sem
Menachem Begin gaf nafnið
„Friður í Galíleu“, átti eftir að
gjörbreyta almenningsálitinu í
heiminum, Palestínumönnum í
hag og ísraelsstjórn í óhag. Með
linnulausum loftárásum á vest-
urhluta Beirút, þar sem Palest-
ínumenn og vinstri sinnaðir
Múhameðstrúarmenn bjuggu,
lögðu þeir borgina í rúst. Þeir
eyðilögðu einnig ílóttamanna-
búðir Palestínumanna í suður-
hluta landsins. Hið sovéska
lóftvarnarkerfi, sem Sýrlending-
ar og Paiestinumenn höfðu yfir
að ráða reyndist gagnlaust gegn
hinum fullkomnu bandarísku
vopnum, sem ísraelsstjórn réð
yfir.
Eftir að ísraelsmenn höfðu lagt
undir sig Beirút hleyptu þeir
kristnum falangistum inn í
flóttamannabúðir Palestínu-
manna og létu þá óhindrað
fremja fjöldamorð á 500-3000
óbreyttum flóttamönnum sem
þar höfðust við eftir að hermenn
Palestínumanna höfðu verið
fluttir á brott. Þrátt fyrir kröfu
Öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna unt brottflutning ísraelska
hersins frá Líbanon, var ekkert
fararsnið á ísraelsmönnum í árs-
lok. Myndin sýnir hermann frá
PLO yfirgefa Bcirút.