Þjóðviljinn - 31.12.1982, Side 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. desember 1982
Áramót 1982—1983
Ekki verður sagt að bjartsýnin
einkenni íhugun mannanna um
þessi áramót. Hagvaxtartíminn
mikli er liðinn. Fyrirhyggju ber að
hefja til vegs, en sóun auðlinda
verður að heyra fortíðinni til. Liðið
ár sýndi okkur mörg erfíð og flókin
vandamál, en einnig gerðust sem
endranær margir ánægjulegir at-
burðir. Til dæmis þokaðist margt
áfram varðandi félagslega þjónustu
hér á landi, þrátt fyrir vaxandi
efnahagsvanda. Enn eru mikil
vandamál framundan. Þau eru til
þess að takast á við þau - þá reynir á
manndóm, kjark og djörfung. Því
erfiðari sem vandinn er þeim mun;
skýrar sindrar á mannkostina þar
sem þá er að finna.
í þessari áramótagrein verður
litið yfir farinn veg og staldrað víða
við þó að of mörgu sé sleppt úr af því'
sem á hugann leitar við þessij
tímamót.
í upphafi
kosningabaráttunnar
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, skýrði frá því í sjónvarpi á dög-
unum, að ástæðan fyrir óvinsældum sínum
innan Sjálfstæðisflokksins væri rógur og níð
andstæðinganna. Sjaldan hafa áhrif Þjóð-
Svavar
Gestsson
formaður
Alþýðu-
bandalagsins
skrifar
Á árinu sameinumst viö
um aö snúa vöm 1 sókn
viljans verið metin jafn mikils og í þetta
skipti og á blaðið Geir Hallgrímssyni skuld
að gjalda fyrir hrósið. Staðreyndin er sú, að
áhrif Þjóðviljans og annarra andstæðinga-
blaða Sjálfstæðisflokksins á innviði þessa,
flokks og kjósendur eru vafalaust veruleg-1
hitt verður að draga í efa að þau ráði úrslit-
um um gengi Geirs Hallgrímssonar. Þar
hlýtur að koma fleira til. Því er á þetta
minnst hér, að nú í upphafi kosningabarátt-
unnar-sem má segja að byrji einmitt nú um
áramótin - er nauðsynlegt að hugleiða á-
róðursstöðu flokkanna og aðstandenda
þeirra. Þá kemur þetta í Ijós: Morgunblaðiði
er gefið út í 40.000 eintökum árdegis, Dag-
blaðið og Vísir í 35.000 eintökum síðdegis.
Samtals koma þessi blöð út í 75.000 ein-
tökum á dag. Hins vegar eru Tíminn og
Þjóðviljinn líklega samanlagt með um
25.000 - 28.000 eintök á dag. A móti hverju
eintaki af Þjóðviljanum og Tímanum (sem-
túlka ólík sjónarmið, en útsíður Tímans eru
um þessar mundir yfirleitt í stjórnarand-
stöðu) eru þrjú eintök af Morgunblaðini
og Dagblaðinu, sem bæði eru í raun mál-
gögn Sjálfstæðisflokksins.
, Geir Hallgrímsson er formaður stjórnar
Árvakurs og hefur þannig meiri áróðurs-i
völd en nokkur annar stjórnmálamaður ð\
íslandi - hann á hlutabréf í ritvélum Styrmis
og Matthíasar og öðrum leigupennum Ár-j
vakurs. Þeir skrifa daglega nafnlaus^
níðpistla um andstæðinga Sjálfstæðis-
flokksins inn á milli þess sem þeir framreiða
dísætar áróðurslummurnar um hinn ástsæla
A- og B-deild
stjórnartíðinda
flokkseigendafélags-
ins, Morgunblaðið
og Dv
leiðtoga sinn Geir Hallgrímsson. Hann er
góði maðurinn, sem jafnan sigrar þá aumu
skúrka Steingrím og Svavar, að ekki sé
minnst á skálkinn Gunnar Thoroddsen,
sem sveikst aftan að góða manninum á
þorranum 1980. j
Áróðursmáttur íhaldsins í þessum
tveimur blöðum, sem eru einskonar A- og
B-deild stjórnartíðinda „flokkseigendafél-
agsins“, sem Albert kallar svo, er alvarlegt
umhugsunarefni nú í upphafi kosningabar-
áttunnar. Reynslan sýnir okkur líka að
þessum áróðursskriðdrekum er beitt af ýtr-
asta miskunnarleysi og ósvífni og ekkert
tækifæri látið ónotað til þess að níða æruna
af andstæðingunum ef ekki vill betur til.
Frammi fyrir þessum áróðurslega ruddaskap
sem þessi blöð tíðka, ber okkur að meta
möguleikana og muna að þrátt fyrir mikinn
mun má m.a. treysta því ífyrstalagi, að það
eru viðurkennd sannindi á íslandi að sá
maður sé bestur drengur og skeleggastur
stjórnmálaleiðtogi sem mest er ataður auri
á sfðum Morgunblaðsins. í öðru lagi hefur
magnið eitt dugað íhaldinu skammt á stund-
um eins og dæmin sanna. Þess vegna er ekki
annað að gera en búa sig undir orrustuna
sem standa mun í allan vetur og kannski
fram á sumar ef tvennar kosningar verða á
þessu ári, sem í hönd fer, ef stjórnarskrár-
breyting verður afgreidd á alþingi því sem
nú situr. ,
Breytingar
á árinu 1982
Hvernig er staðan í upphafi kosningabar-
áttunnar? Hvað hefur gerst á liðnu ári sem
skýrir þá mynd sem framundan er?
Það sem mestu breytir um stöðuna frá
síðustu áramótum er þetta:
1.
Efnahagsleg staða þjóðarbúsins er verri en
þá varð séð fyrir. Kemur þetta bæði fram í
versnandi stöðu á mörkuðum okkar er-
lendis, óhagstæðari viðskiptastöðu og
minni framleiðslu í landinu sjálfu. Kreppan
hefur með öðrum orðum knúið dyra hér á
landi, en henni hefur enn ekki verið hleypt
inn í landið.
2.
Frá síðustu áramótum hefur núverandi
ríkisstjórn misst meirihluta sinn í neðri
deild alþingis, enda þótt stjórnin hafi
meirihluta í sameinuðu þingi til að verjast
vantrausti.
3.
Frá síðustu áramótum hafa farið fram
sveitarstjórnarkosningar, þar sem íhaldið
vann stórfelldan kosningasigur.
í ljósi þessara þriggja meginstaðreynda
verður að skoða stöðu íslenskra stjórnmála
um þessi áramót, 1982 og 1983.
Kreppan kveður
dyra - úrrœði
Alþýðubandalagsins
Nú liggur fyrir að þjóðin hefur orðið fyrir
alvarlegra efnahagsáfalli en nokkru sinni
frá stríðslokum, fari svo fram árið 1983 sem
Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir. Til þess að
Aðalbreytingarnar í
ár: Verri
efnahagsstaða,
ríkisstjórnin missir
meirihluta í annarri
þingdeildinni,
kosningasigur
íhaldsins
draga úr erlendri skuldasöfnun hefur launa-
fólk þegar lagt fram sinn hlut með þeim_
efnahagsráðstöfunum sem ríkisstjórnin á-
kvað síðastliðið sumar. En hér þarf fleira
að koma til.
Alþýðubandalagið er eini flokkurinn
sem hefur bent á raunhæfar leiðir út úr
þessum vanda. Það var gert með samþykkt-
um flokksráðsfundar Alþýðubandalagsins
nú í síðasta mánuði. Það er athyglisvert að
aðrir flokkar hafa ekki mótað skýra stefnu í
þessu efni. Ástæðan er augsýnilega sú að
þeir þora ekki að segja fólki eins og er.
Ihaldið hefur reynt að snúa út úr tillögum
Alþýðubandalagsins í þessu efni, en útúr-
snúningar breyta hér engu. Það er höfuð-
' skylda stjórnmálaflokks að benda á leiðir.
Það höfum við gert og við leggjum áherslu á
þessar ráðstafanir til skemmri tíma:
| Með betra skipulagi fiskveiða og
fiskvinnslu má stórauka framleiðslu-
verðmæti sjávarútvegsins. í tímarit-
inu Ægi var greint frá því að auka
mætti verðmætamyndun í vinnslunni
um 200 milj. kr. með betri meðferð
og meiri áherslu á vöruvöndun en nú
er um að ræða. Kunnugir telja að
þessi tala sé alltof lág, og hana megi
margfalda ef tekið er tillit til þeirra
möguleika sem felast í því ef settar
verða reglur um meðferð aflans um
borð og um veiðarnar sjálfar. Hér er
því um að ræða háar upphæðir fyrir
þjóðarbúið sem nema jafnvel
þriðjungi þess áfalls sem þjóðarbúið
hefur orðið fyrir.
Með sérstöku átaki til eflingar inn-
lends iðnaðar og með takmörkun
innflutnings má vafalaust spara stór-
felldar fjárhæðir gjaldeyris og ná
þannig öðrum þriðjungi þess áfalls
sem þjóðarbúið hefur orðið fyrir
vegna aflasamdráttar og mark-
aðserfiðleika. Alþýðubandalagið
hefur í sínum tillögum gert ráð fyrir
beinunr eða óbeinum takmörkunum