Þjóðviljinn - 31.12.1982, Síða 19
Föstudagur 31. dcsember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
una fyrir sjálfu lífinu á hættustund - eða
með öðrum orðum baráttuna gegn am-
erískum herstöðvum? Við afsökum oft
aðgerðarleysi með því að hver og einn
okkar sé einskis megnugur. En ef allir
hugsuðu þannig, þá yrði heldur engin
barátta og við gæfumst upp við að lifa.
Ég mun nú ljúka þessum orðum með þá
von í huga að hver og einn ykkar geri sér
ljósa þá ábyrgð sem á honum hvílir, og
láti ekki sinn hlut eftir liggja. Skyldi hafa
verið lögð þyngri skylda á herðar nokk-
urri kynslóð en þeirrar sem nú er að
leggja út í lífið? Megi hún rísa undir
henni. Það er nú okkar eina lífsvon".
Undir þessi orð verður tekið hér og heitið
á íslenskt æskufólk að rísa nú upp til sam-
fylkingar þvert á alla flokka gegn þeirri ægi-
legu ógn sem kjarnorkuvopnakapphlaupið
skapar mannkyninu. Ekki síst er þetta
nauðsynlegt einmitt nú þegar við stöndum
frammi fyrir þeirri staðreynd að aðeins einn
stjórnmálaflokkur á íslandi hefur haldið
fast við kröfur sínar um sjálfstæða utanrík-
isstefnu; aðrir flokkar hafa ýmist algerlega
yfirgefið þá kröfu eða hafnað henni. Fram-
sóknarflokkurinn hefur nú hafnað þeirri
stefnu sjálfstæðishugsjónar og þjóðfrelsis
sem hann virti áður í orði kveðnu. Þegar
Ólafur Jóhannesson myndaði vinstri stjórn-
ina 1971 var það markmið ríkisstjórnarinn-
ar að víkja bandaríska hernum úr landi á
kjörtímabilinu. Þegar Ólafur Jóhannesson
býður sig frani fyrir Framsóknarflokkinn
1983 hefur hann í orði og í verki hafnað
þessari kröfu og gengið feti framar: Kröfur
um stöðvun á framleiðslu kjarnorkuvopna
og nifteindasprengja ná ekki eyrum foryst-
umanna Framsóknar hvað þá hugmyndin
um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd.
Þannig háttar því til nú fyrir þessar kosn-
ingar að stuðnings er ekíci að vænta frá
Framsóknarflokknum fremur en stjórnar-
andstöðuflokkunum við mótun sjálfstæðrar
stefnu í utanríkismálum. Er það vissulega
íhugunarefni í viðbót við þær hugsanir sem
brotthlaupið úr álviðræðunefnd hefur vak-
ið upp.
Ekki tel ég líklegt að kjósendur Fram-
sóknarflokksins meti rnikils þessa stefnu-
breytingu Framsóknarflokksins þegar
brýnast er af öllu að við fylkjum liði í sam-
taka sveit gegn vígbúnaði og hernaðar-
brölti, gegn herstöðvum og hernaðarband-
alögum. Það er rétt sem stundum er sagt að
okkur hefur lítt miðað í þá átt að koma
hernum úr landi. Við látum það ekki hafa
þau áhrif að við gefumst upp. Alþýðu-
bandalagið mun ævinlega hafa kröfuna um
brottför hersins í fyrirrúmi, en Alþýðu-
bandalagið þarf aukinn styrk af sjálfu sér
eða af bandamönnum til þess að koma þess-
um kröfum sínum fram. Nú er mest um vert
að beita sér fyrir því að mynda samtök þjóð-
anna gegn brjálæði kjarnorkuvopnakapp-
hlaupsins. Þeir sem hafa snefil að
ábyrgðartilfinningu lifandi í brjósti sínu
eiga nú að skipa sér í sveit þeirra sem berj-
ast fyrir friði og afvopnun - þeir sem um-
gangast staðreyndir hernaðarofstækisins af
kæruleysi eru vísvitandi að benda komandi
kynslóðum á gröfina sem liina einu færu
leið.
Stutt þinghald,
þingrof og kosningar
Þingið kernur nú saman fljótlega eftir ár-
amótin og það stendur ekki lengi og má
ekki standa lengi vegna þeirrar sjálflieldu
sem þar er. Þar þarf að Ijúka afgreiðslu allra
nauðsynlegustu mála - þar á meðal kjör-
dæmamálsins - en síðan ber að rjúfa þing og
efna til kosninga hið fyrsta.
Nú er unnið ötullega að lausn kjördæm-
amálsins og engin ástæða til annars en að
gera ráð fyrir því að niðurstaða fáist fyrir
þann tíma sem ætlaður er til þess að alþingi
komi saman á nýjan leik. Jafnframt á-
kvörðun um þingrof verður að ákveða kjör-
dag fljótlega og jafnframt hvenær þingiö
kemur saman á ný eftir kosningar til þess að
unnt verði að afgreiða þau mál sem nú fást
ekki afgreidd vegna ábyrgðarlausrar af-
stöðu stjórnarandstöðuflokkanna.
Aldrei hafa vinstriöf lin
verið sterkari en í
kosningunum 1978 —
þá sameinuðust
vinstri menn um
Alþýðubandalagið
Þessarfyrirsagnireruekkiúr V-^'
Morgunblaðinu síðustu dagana, þær eru
frá vorinu 1974 þegar Morgunblaðið bcitti
sér af ítrustu ósvífni gegn vinstristjórninni.
Sagan endurtekur sig - það er þessi sami
áróður sem við þurfum að búa okkur undir
að mæta í vetur.
Árásirnar á Hjörleif
Þá má gera ráð fyrir því að álmálið konii
til kasta þingsins. Þar er allt fast. Alusuisse
neitar að koma til móts við sanngirnisóskir
íslendinga - áfram verjum við miljónum
króna í niðurgreiðslur á raforku handa
auðhringnum. Álmálið hefur orðið alvar-
legasta ágreiningsmálið í núverandi ríkis-
stjórnarsamstarfi og ekki er enn séð fyrir
endann á því máli. Alþýðubandalagið vill
leysa málið með raforkuverðshækkun og
þar hefur Hjörleifur Guttormsson skapað
þjóðinni góðan sóknargrundvöll. Hjörleifi
hefur verið brugðið um það að hann vilji
ekki semja við auðhringinn og kom sú ásök-
un þaðan sem síst skyldi. Engan ráðherra er
unnt að bera alvarlegri ásökunum en hér er
um að ræða og er Guðmundur G. Þórarins-
son vissulega minni maður fyrir og ber að
vísa ásökunum þessum harðlega á bug. AI-
þýðubandalagið hefur lagt sig fram um það
að skapa samningssstöðu vegna þess að það
er þjóðinni nauðsynlegt að fá fram hærra
raforkuverð og að sjálfsögðu fara flokksleg
sjónarmið Alþýðubandalagsins í þann
sama farveg.
Það hefur vissulega verið reynt á liðnum
áratugum að gera því skóna að Alþýðu-
bandalagið, íslenskir sósíalistar, hefðu aðra
hagsmuni en þjóðin. Sem betur fer hafa þær
raddir hljóðnað á liðnum árum, en ásakanir
Guðmundar G. Þórarinssonar eru af þess-
um gamla toga. Vissulega er tilraun hans
til þess að klína landráðastimpli á AI-
þýðubandalagið dæmd til að mistakast - en
allt að einu er rétt að mótmæla árásunum
harðlega.
Stéttabarátta -
þjóðarbarátta
íslenskra sósíalista
Barátta íslenskra sósíalista hefur frá upp-
hafi verið tvíþætt og er henni lýst þannig hjá
Sverri Kristjánssyni.
„... stéttabarátta þeirra, sem sköpudu
flokkinn og hann er tengdur sterkustum
böndum og þjóðarbarátta fámennrar
þjóðar, sem stefnt hefur verið í brádan
voða afþjóðernislausri og siðspilltri yfir-
stétt og stjórnmálamönnum sem ýmist
eru ramulausirsauðir eða óprúttnir pólit-
ískir sölumenn. Pessa tvíþœttu baráttu
verður flokkur vor að heyja með óbil-
andi kjarki enn um mörg ókomin ár".
Þessi orð'Sverris Kristjánssonar eiga enn
vel við, og einnig þessi:
„Peir sem kunnugir eru sögu styrjalda
vita, að varnarbaráttan er ekki síður
mikilvœg en sjálf sóknin. Og á sama hátt ■
og sigursœlar þjóðir snúa vörn í sókn svo
mun og fara um sigursœlar stéttir og
sigurscelaflokka. Sóknin er að sjálfsögðu
glœsilegri og tilkomumeiri, en vörnin
krefst oft og tíðum meiri leikni og stjórn-
kœnsku, reynir meira á vit og þol þeirra
sem verjast á undanhaldi".
Þessi orð Sverris Kristjánssonar frá 1963
eru einkar viðeigandi nú. Við höfum átt í
varnarbaráttu bæði sem flokkur og af háffu
verkalýðshreyfingarinnar sem flokkurinn
er hluti af. Þjóðin hefur einnig átt í sínu
varnarstríði gegn kreppu og gegn atvinnu-
leysi. Úrslitin í þessu varnarstríði ráðast
ekki fyrr en að leikslokum, en einnig þá
mun þjóðin öll, verkalýðshreyfingin og
flokkur íslenskra sósíalista eiga samleið.
Þau úrslit munu ráðast í næstu alþingis-
kosningum. Þá verður tekist á um hvort
áhrifa Alþýðubandalagsins mun áfram
gæta á landsstjórnina eða hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn ræður úrslitum íslenskra stjórn-
mála í samráði við ameríkanann með til-
styrk alþjóðlegra auðhringa. Til þess að
tryggja að góður árangur kosninganna birt-
ist landsmönnum í batnandi lífskjörum og
sókn til félagslegra framfara getur þurft að
leita nýrra leiða til íslenskrar samstöðu um
brýnustu úrlausnarverkefnin. í þeirri orra-
hríð skiptir öllu að eiga sterkt Alþýðuband-
alag - hvort sem er í stjórn eða stjórnar-
andstöðu. Af þessum ástæðum hefur Al-
þýðubandalagið leitað nýrra leiða til sam-
starfs og mun kynna hugmyndir sínar í þeim
efnum nú fljótlega eftir áramótin. Ef fólkið
vill ekki koma til flokkanna verða þeir að
koma til fólksins með raunhæfar hugmynd-
ir um úrbætur á framkvæmd flokksstarfs út
á við og inn á við.
Minnst á
fordœmi Magnúsar
í upphafi þessarar greinar var minnt á
ofurefli íhaldsins í áróðursafli tveggja dag-
blaða. Áður hef ég oft bent á, að stærö'
Morgunblaðsins er einstök í Vestur-
Evrópu, þarf að fara austur eftir álfunni til
þess að finna samjöfnuð um aðra eins út-
breiðslu. Iðulega birtir Morgunblaðið frétt-
ir og greinar í trausti þess að landsmenn sjái
ekki önnur blöð og hafi þar af leiðandi ekk-
Möguleikar íslendinga
til batnandi þjóölífs
eru meiri en f lestra
annarra þjóða
ert til samanburðar eins og í þeim löndum
þar sem ritskoðun er ströngust á þessum
hluta jarðarkringlunnar. Þannig hafa menn
stundum líkt Morgunblaðinu við blaðið
„Pravda". Sú samliking hittir í mark og lifir
lengi sem sannmæli. Þannig er því raunar
farið unt fleira sem Magnús Kjartansson
hafði með í pistlum sínum „Frá degi til
dags" fyrir 10-20 árurn. Það var ánægjulegt
að fá að rifja upp gömul kynni við þessa
pistla í útgáfu Máls og menningar nú um
hátíðarnar. Það var líka frólegt að sjá að
Morgunblaðið kveinkar sér enn þann dag í
dag sárlega undan skrifum Magnúsar.
Sumir töldu að þessir pistlar væru svo bundr
ir stund og stað að ekki þýddi að gefa þá ú
á bók mörgum árum seinna. Þetta var með-
al annars sjónarmið Magnúsar, en var mis-
skilningur sent betur fer. Eftir að hafa horft
á þessa pistla í bók, sem Vésteinn Lúðvíks-
son hefur tekið saman, sést vel að pistlarnir
hljóta að lit'a. Þeir eru til tnarks um skaphita
og stílsniild ásamt skarpri pólitískri vitund
sem beindist ekki síst að því að marka ís-
lenskum sósíalistum sérstöðu nteð því að
benda á stefnu og starf andstæðinganna.
Sumir pistlanna eru hreinar bókmenntir
sem munu lifa um langa framtíð meðan sá
maður finnst í þessu landi sem hefur unun
af því að horfa á vel gerða setningu og að
hat'a hana yfir at'tur og aftur og aftur.
Orð Magnúsar beit svo fast á Morgun-
blaðsrisann að hann er enn í sárum. Rit-
stjóri Morgunblaðsins grenjaði hástöfum
undan stríðni Austra í grein sem birtist í
Morgunblaðinu nú fyrir áramótin. Þannig
sýndi Magnús Kjartansson okkur öllunt að
sterkur málflutningur getur haft sterkari
hljóm en samanlagður óhroðinrt í Morgun-
blaðinu sem nú er, að eigin sögn, gefið út í
átta tonnum á dag. Þannig má útgáfan á
Austra-pistlum Magnúsar Kjartanssonar
verða okkur brýning á sama liátt og í Spörtu
forðutn: Ef sverð þitt er stutt þá gakktu feti
t'ramar - þeim mun minni sem efni okkar
eru, þeim mun þéttar þurfunt við að standa
saman. Þá er von á góðuni árangri enda
þótt atl andstæðingsins kunni að virðast
mikið.
Ljós í skammdegi
Árið 1982 hefur ekki eingöngu verið ár
pólitískra örðugleika, langt frá því. Mitt í
öllum vandamálunum eru mörg mál sem
náðst hefur víðtæk samstaða um og ánægju-
legt hefur verið að vinna að. Efst eru mér
þar í huga málefni aldraðra. Þar hefur verið
mikil og rík samstaða með mönnum úr öll-
um ílokkum. Lögin um aldraða sem taka
gildi á morgun, 1. janúar 1983, eru enn eitt
dæmið um það hvernig félagsleg þjónusta
hefur verið styrkt frá því sem var, enn eitt
dærnið um að íslendingar eru að vinna upp
margra áratuga vanrækslu í félagslegri
þjónustu. Á mörgum sviðum félagslegrar
þjónustu voru íslendingar kontnir árum
aftur úr grannþjóðum okkar. Þrátt fyrir
kreppu liöinna ára hefur okkur tekist að
vinna það forskot grannþjóðanna að
nokkru leyti upp og sumsstaðar höfum við
náð að minnsta kosti jafnlangt og þær. Sú
santstaða sem tekist hefur á ári aldraðra
lýsir upp skammdegið, en hún opnar einnig
sýn til annarra verkefna þar sem unnt er að
ná samstöðu ef við leggjum okkur frarn um
að laða fram einingu, en höfnum þeirn öfl-
um sem ala á sundrung. N*ú liggja fyrir til-
lögur um þaö hvernig hugsanlegt er að
vinna sig út úr kreppunni og atvinnu-
leysinu, hvernig unnt er að snúa vörn í
sókn. í vorkosningunum 1983 þurfum að
kjósa gegn kreppu og kvíða og hefja hátt á
ioft merki raunsæis, félagslegra viðhorfa og
bjartsýni. íslendingar hafa áður .ékist á við
miklu stærri vandamál en þau sem nú eru
fram undan.
Ef okkur tekst að róa í gegnum brim-
garðinn bíður okkar góð höfn, því mögu-
leikar íslensku þjóðarinnar til blómlegs og
batnandi þjóðlífs eru meiri en flestra ann-
arra þjóða, ef við föruin með gát og fyrir-
hyggju að auðlindum okkar, hefjum rækt-
un til vegs en höfnum rányrkju.
Ég flyt landsmönnum öllum fyrir
hönd Alþýðubandalugsins þakkir fyrir
samfylgdina á liðnu ári. Ég óska flokks-
félögum mínum og stuðningsmönnum
Alþýðubandalagsins sigursœldar á kom-
andi ári, gleðilegrar kosningabaráttu
og góðs árangurs í öllu starfi. Vonandi
getum við um nœstu áramót litið yfir
farinn veg og glaðst yfir góðum árangri
og bjartari sýn þjóðarinnar allrar en nú
kann að verafyrirsjónum ískammdegi.
Nú hœkkar sól á lofti á ný.
Gleðilegt nýtt ár!
Svavar Gestsson