Þjóðviljinn - 31.12.1982, Qupperneq 24
24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. desember 1982
Bjarni Friðriksson hefur lagt Svíann Johann Lopez og tryggt sér
Norðurlandameistaratitil í 95 kg flokki í júdó.
Janúar____________________
Jón Páll
kjörinn
sá besti
Fyrstu viðburðirnir á íþrótta-
sviðinu árið 1982 eru þrír lands-
leikir í körfuknattleik hér heima
við Portúgal. ísland vinnur tvo
leiki en tapar einum.
Jón Páll Sigmarsson kraftlyftinga-
maður úr KR er kjörinn íþrótta-
maður ársins 1981 af íþróttafrétta-
mönnum.
ísland tapar þrívegis með
tveggja marka mun fyrir Austur-
Þjóðverjum í handknattleik hér
heima.
íþróttasamband íslaiids heldur
uppá 70 ára afmæli sitt þann 28.
janúar.
Lena Köppen. badmintonkonan
fræga frá Danmörku, er kjörin í-
þróttamaður Norðurlanda.
Jón Páll Sigmarsson - íþrótta-
maður ársins 1981.
Apríl
Badminton-
landsliðið
vann alla í
Evrópu-
keppni!
Broddi Kristjánsson er þrefaldur
íslandsmeistari íbadminton. Aörir
meistarar eru Þórdís Edwald, Guð-
mundur Adolfsson, Kristín Magn-
úsdóttir og Kristín Kristjánsdóttir.
Landsliðið í körfuknattleik
mætir Englendingum þvívegis hér
heima; tapar tveimur fyrstu
leikjunum en vinnur þann þriðja.
Þróttur tapar fyrir Dukla Prag
frá Tékkóslóvakíu í undanúrslitum
Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik, 17:21 og 19:23.
Bjarni Friðriksson nær Norður-
landameistaratitli í 95 kg flokki í
júdó.
Nanna Leifsdóttir frá Akureyri
vinnur þrefalt á landsmótinu á
skíðum.
Landsliðið í badminton vinnur
alla sína leiki í Evrópukeppninni í
V-Pýskalandi og kemst upp um
riðil.
Asta Urbancic, Erninum, er
þrefaldur íslandsmeistari í
borðtennis.
KR vinnur FH 19:17 í úrslitaleik
bikarkeppninnar í handknattleik.
Jón Páll Sigmarsson, KR, setur
tvö Evrópiimet í kraftlyftingum í
sjónvarpssal.
ísland hafnar í fjórða sæti C-
riðils í Evrópukeppni í körfuknatt-
leik.
Febrúar
Keflvikingar vekja inikla athygli í körfuboltanum og eru komnir í úrvals-
deildina.
Fimm töp á heimavelli!
Svissneska stúlkan Erika I less er
þrefaldur heimsmeistari í alpa-
greinum skíðaíþrótta. Aðrir meist-
arar eru Steve Mahre, USA, Inge-
mar Stenmark, Svíþjóð, og Harti
Weirather. Austurríki.
Landsliöiö í handknattleik
leikur fimm landsleiki á einni viku
hér heima og tapar öllum; þremui
gegn Sovétmönnum og tveimur
gegn Svíum.
1S er fallið úr úrvalsdeildinni i
körfuknattleik. Keflvíkingar hafa
tryggt sér sæti þeirra og slegið Val
útúr bikarkeppninni að auki.
íslensku keppendurnir standa
sig með ágætum á heimsmeistar-
amótinu í norrænum greinum
skíðaíþrótta í Noregi; einkum hinn
19 ára gamli ísfiröingur, Einar
Ólafsson. Norömenn eru sigursæl-
astir. hljóta sjö gull á mótinu.
Mars_________________
Víkingar meistarar
j • r r •• \
þrioja ariö i roð
Sovétmenn eru heimsmeistarar í
handknattleik eftir sigur, 30-27. á
Júgóslövum í úrslitaleik. Pólverjar
eru þriðju, Danirfjórðu, Rúmenar
fimmtu og Austur-Þjóðverjar
sjöttu.
Þróttur er íslandsmeistari í 1.
deild karla í blaki en ÍS í 1. deild
kvenna.
Njarðvík trvggir sér íslands-
meistaratitilinn í körfuknattleik.
Breiðablik nær meistaratitlinum
í innanhússknattspvrnu. vinnur
„spútniklið" Siglfirðinga 6—4 í úr-
slitaleik.
Liverpool sigrar Totténham 3-1
í úrslitaleik ensku deildabikar-
keppninnar og við fylgjumst með
viðureigninni í beinni sjónvarps-
útsendingu.
Landsliðið í knattspyrnu sækir
HM-fara Kuwait heirn og nær þar
markalausu jafntefli.
Víkingur er íslandsmeistari í I.
deild karla í handknattleik en LIK
pg KA falla í 2. deild. Stjarnan og
ÍR taka sæti þeirra. FH sigrar í 1.
deild kvenna.
Þróttur kemst í undanúrslit í
Evrópukeppni bikarhafa í hand-
Maí
Lárus var
hetja
Waterschei
Teitur Þórðarson á stóran þátt í
að lið hans, Lens, bjargar sér frá
falli úr 1. deild frönsku knattspyrn-
unnar. Hann skoraði aö meðaltali í
öðrum hverjum leik í vetur.
Ásgeir Sigurvinsson skiptir um
félag í vestur-þýsku knattspyrn-
unni; fer frá Bayern Múnchen til
Stuttgart.
Barcelona frá Spáni er Evróp-
umeistari bikarhafa í knattspyrnu
og Gautaborg frá Svíþjóð vinnur
UEFA-bikarinn mjög óvænt.
Liverpool hreppir enska
meistaratitilinn í knattspyrnu.
Lárus Guðmundsson skorar tví-
vegis í úrslitaleik belgísku bikar-
keppninnar í knattspyrnu og Wat-
erschei hlýtur bikarinn.' Lárus
skoraði þrjú í undanúrslitunum.
Aston Villa sigrar í Evrópu-
keppni meistaraliða í knattspyrnu.
vinnur Bayern Múnchen 1:0 í úr-
slitaleik.
Tottenham er enskur bikar-
meistari í knattspyrnu.
Stúlkurnar úr Breiðabiiki sigra á
alþjóðlegu knattspyi numóti í Dan-
mörku.
Mörk Lárusar tryggðu
Watershei belgíska bikarinn.
íslandsmeistarar Víkings í handknattleik eftir sigurinn á FH
í lokaleiknum.
knattleik meö tveintur sigrum á
Pallamano Tacca frá Ítalíu.
KR er íslands- og bikarmeistari í
körfuknattleik kvenna.
Fram vinnur KR 68:66 í úrslita-
leik bikarkeppninnar í körfuknatt-
leik.
Phil Mahre frá Bandaríkjununi
tryggir sér sigur í heimsbikar-
keppninni á skíðum.
Kristín Gísladóttir, Gerpiu, og
Davíð Ingason, Ármanni. eru sig-
ursælust á íslandsmeistaramótinu í
fimleikum.
Frarn er bikarmeistari kvenna í
handknattleik.