Þjóðviljinn - 31.12.1982, Qupperneq 25
Arnór Guðjohnsen skorar gegn Englendingum.
Júní________________
Skin og
skúrir
Frábær árangur í knattspyrn-
unni, jafntefli, 1:1, við Englend-
inga á Laugardalsvellinum. Arnór
Guðjohnsen skorar markið.
Skellur á Sikiley í Evrópukeppni
landsliða í knattspyrnu; ísland tap-
ar 2:1 fyrir Möltu.
Ungverjar setja markamet í úr-
slitum heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu á Spáni er þeir sigra E1
Salvador 10:1. Alsír vinnur Vestur-
Þýskaland og Norður-írar koma
nijög á óvart.
Landsliðið í knattspyrnu. undir
21 árs. gerir jafntefli, 1:1. við Dani
á Laugardalsvelli.
Júlí
ítalir fagna hinum óvænta sigri sínum í heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu.
Heimsbikar til Ítalíu
Landsliðið í handknattleik deilir
neðsta sætinu á alþjóðlegu móti í
Júgóslavíu með Svisslendingum.
Italir eru heimsmeistarar í knatt-
spyrnu! Þeir sigra Vestur-
Þjóðverja 3:1 í úrslitaleik. Pólverj-
ar eru þriðju og Frakkar fjórðu.
ísland tapar naumlega fyrir
Finnum í Helsinki, 3:2, í landsleik í
knattspyrnu.
Ingi Þór Jónsson, Akranesi, og
Guðrún Fema Ágústsdóttir. Ægi,
vinna flestar greinar á íslandsmót-
inu í sundi.
Á Reykjavíkurmótinu í frjáls-
um íþróttum tapar ísland fyrir
Wales í landskeppni karla og
kvennaliðið er neðst í Norðurland"
abikarkeppni.
Ágúst
Stuðningsmenn Skagamanna fagna bikarsigrinum.
Skagamenn bikarmeistarar
ísland vinnur Færeyjar tvívegis
ytra í knattspyrnu, 4:1, og 4:0.
Landsliðið í frjálsum íþróttum
hafnar í öðru sæti Kalottkeppninn-
ar í Svíþjóð.
George Best. norður-írski knatt-
spyrnusnillingurinn, leikur með.
Val og KA gegn Manchester Un-
ited.
Breiðablik tryggir sér sigur í 1.
deild kvenna í knattspvrnu.
Sigurður Pétursson, GR, og Sól-
veig Þorsteinsdóttir, GR, eru ís-
landsmeistarar í golfi.
ÍR sigrar í 1. deild bikarkeppni
FRÍ með yfirburðum.
Jóhannes Eðvaldsson, fyrrum
fyrirliði landsliðsins í knattspyrnu,
gengur til liðs við skoska úrvals-
deildarliðið Motherweli.
Kvennalandsliðið í knattspyrnu
nær óvæntu jafntefli, 2:2, í Noregi í
Evrópukeppni landsliða.
Akurnesingar sigra Keflavík 2:1
í úrslitaleik bikarkeppninnar í
knattspyrnu.
Landsliðið í knattspyrnu undir
21 árs gerir jafntefli við Holland,
1:1, í Evrópukeppni í Keflavík.
Föstudagur 31. desember 1982 ÞJÓÐVÍLJINN — SÍÐA 25
September
Stig tekin af
Hollendingum
A-landsliðið í knattspyrnu tekur
stig af Hollendingum í Evrópu-
keppni landsliða, 1:1 eru úrslitin í
leik þjóðanna á Laugardalsvell-
inuin.
Breiðablik er bikarmeistari
kvenna í knattspyrnu.
Oddur Sigurðsson kemst í milli-
riðil á Evrópumeistaramótinu i
frjálsum íþróttum í Aþenu.
ísland tapar 0:1 fyrir Austur-
Þjóðverjum í landsleik í knatt-
spyrnu á Laugardalsvelli.
Knattspyrnustúlkurnar fá skell,
0:6. í Kópavogi gegn Svíum í Evr-
ópukeppninni.
Víkingar halda meistaratitlinum
í knattspyrnunni. Fram og KA falla
Október
Létt
hjá
Víkingum
Víkingar fara létt með Vest-
manna frá Færeyjum í Evrópu-
keppni meistaraliða í handknatt-
leik. 35:19 og 27:23. en FH tapai
fyrir Zaporozhje frá Sovétríkjun-
um í IHF-bikarnum. 25:30 02
19:29.
Landsliðið í knattspyrnu tapar
2:0 fyrir írum í Dublin í Evrópu-
keppninni.
TBR kemst í 8-liða úrslit í Evr-
ópukeppni félagsliða í badminton
og i sömu ferð vinnur landsliðið
góðan sigur á Belgum.
Bæði A-landsliðið og piltarnir
undir 21 árs tapa með sömu marka-
Víkingar stóðu sig með sóma gegn Real Sociedad
í 2. deild en Þróttur Reykjavík og
Þór Akureyri taka sæti þeirra í 1.
deild.
Islensku liðin eru öll slegin útúr
Evrópumótunum í knattspyrnu.
Víkingar0:l og 2:3 gegn Real Soci-
edadfráSpáni, ÍBV0:1 og0:3gegn
Lech Poznan frá Póllandi og Fram
0:3 og 0:4 gegn Dundalk frá fr-
landi.
Kristján Arason skorar fyrir FIl gegn sovéska liðinu Zaoporzhje í Laugar-
dalshöll.
tölu, 1:0, í Evrópukeppni landsliða Ragnar Margeirsson úr Keflavík
í knattspyrnu gegn Spánverjum gengur til liðs við belgíska knatt-
ytra. " spyrnuliðið CS Brugge.
Nóvember
Desember
Pétur Guðmundsson hefur snúið
heim og gerts leikmaður með ÍR í
úrvalsdeildinni í körfuknattelik.
Pétur er
kominn heim!
Piltalandsliðið í handknattleik
hafnar í 3, sæti á Norðurlandamót-
inu sem fram fer 'í Laugardalshöll.
Danir vinna mótið.
Þróttur tapar tvívegis fyrir
norsku meisturunum í Trömsö í
Evrópukeppni í blaki.
Pétur Guðmundsson lands-
liðsmaður í körfuknattleik kemur
heim frá Bandaríkjunum og geng-
ur til liðs við ÍR.
Tvö töp gegn Vestur-
Þjóðverjum í handknattleik hér
heima, 15:17 og 19:21 en tveir sigr-
ar á Frökkum, 23:22 og 26:22.
Akurnesingar eru bikarmeistar-
ar í sundi.
Bjarni Guðmundsson skorar í fyrri leiknum gegn Dönum.
Sigur og tap
gegn Dönum
Víkingar og KR-ingar eru
slegnir út úr Evrópukeppnunum í
handknattleik. Víkingartapa 15-23
fyrir Dukla Prag ytra en vinna 19-
18 hér heima. KR leikur báða
leikina við Zeljeznicar Nis frá Júg-
óslavíu hér heima; sigra fyrst 25-20
en tapa síðan 21-28.
Landsliðið í handknattleik hafn-
ar í næstneðsta sæti á alþjóðlegu
móti í Austur-Þýskalandi. Sigrar b-
lið gestgjafanna en tapar fyrir a-
liðinu, Svíum, Rúmenum og Ung-
verjum.
Körfuknattleikslandslið 21 árs
og yngri fer til Bandaríkjanna og
tapar þrívegis naumlega fyrir þar-
lendum háskólaliðum.
Og árinu lauk eins og því síðasta,
með landsleikjum í handknattleik
við Dani hér heima. ísland vann
fyrri leikinn 22-21 en Danmörk
þann síðari 26-22.
íþróttafréttaritari Þjóðviljans
óskar lesendum blaðsins nær og
fjær gleðilegs nýs árs og þakkar
fyrir það liðna. Lifið heil.
-VS