Þjóðviljinn - 31.12.1982, Síða 32
DWÐVIUINN
Föstudagur 31. desember 1982
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessunt sínum: Ritstjórn 81382,81482 og81527. umbrot 81285, I jósmyndir81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsimi afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í atgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
einfalt mál aö ræða þar. Þeir sem
Þjóðviljinn ræddi við í gær, töldu
þó að málið væri svo vel á veg kom-
ið að þeir bjuggust við að nýtt fisk-
verð myndi sjá dagsins ljós í dag,
gamlársdag.
- S.dór
Olíuniðurgreiðslan
vefst fyrir mönnum
Vonir standa til að
fiskverðið verði
ákveðið í dag
Ekki var nýtt fiskverð ákveðið í
gær, eins og búist hafði verið við.
Hugmyndir Steingrfms Hermanns-
sonar sjávarútvegsráðherra hafa
verið til umræðu undanfarna daga
hjá hagsmunaaðilum í sjávarútvegi
og í rfkisstjórn.
Það er einkum olíuniður-
greiðslan til fiskiskipa sem stendur
í mönnum, enda raunar ekki um
Alþýðubandalagið:
Forval í
Reykjavík
Fyrri umferð forvals,
vegna fyrirhugaðra
alþingiskosninga, fer
framhjá Alþýðu-*
bandalaginu I
Reykjavík helgina
14.-16 janúar n.k.
Síðari umferðin
verður svo helgina
28.-28 janúar.
í fyrri umferð rita félagsmenn
nöfn fimm manna á sérstakan
kjörseðil og skiptir röð manna á
seðlinum ekki máli við úrvinnsiu
og undirbúning síðari umferðar.
Heimilt er að tilnefna utanfélags-
menn og þá sem eru búsettir utan
Reykjavíkur í fyrri umferð.
Kjörnir alþingismenn eru ekki
kjörgengir í fyrri umferðinni.
Tilnefningu til síðari umferðar
hljóta 12 efstu úr fyrri umferð
ásamt þeim alþingismönnum sem
gefa kost á sér. í síðari umferð
ritar kjósandi tölurnar 1-6 fram-
an við nöfn á kjörseðli eins og
hann óskar að mönnum verði
raðað á framboðslistann.
Rétt til þátttöku hafa þeir fé-
lagsmenn ABR sem hafa greitt
árgjald 1981, svo og nýir félags-
menn, enda greiði þeir a.m.k. 1/2
árgjald (250 kr.) til félagsins. Eru
félagsmenn sem skulda árgjöld
hvattir til að greiða þau fyrir
miðjan janúar til að auðvelda
gerð kjörskrár.
Verður BÚR lokað?
Grelnlleg hótun
Gunnar Ólafsson...
Gunnar
/
Olafsson
forstjóri
RALA
Gunnar Ólafsson hefur nú verið
settur forstjóri Rannsóknarstofn-
unar landbúnaðarins (RALA) frá
15. janúar n.k. að telja.
Dr. Björn Sigurbjörnsson, for-
stjóri RALA, hefur fengið launa-
laust leyfi frá störfum næstu þrjú ár
og mun verða erlendis. Gunnar
Olafsson hefur áður gegnt for-
stjórastarfinu í fjarveru dr. Björns
Sigurbjörnssonar.
- mhg
„í þessu felst greinilega
hótun afhálfu
Sjálfstæðisflokksins um að
leggja Bæjarútgerðina niður
eins og stefnt virðist að í
Hafnarfirði,“ sagði Sigurjón
Pétursson, fulltrúi AB í
útgerðarráði í gær. Á
miðvikudag samþykktu fjórir
fulltrúar íhaldsins í ráðinu
tillögu þar sem segir m.a.:
„Ijóst er að áframhaldandi
hallarekstur togara BÚR
neyðir borgaryfirvöld til að
•eggja togurum sínum...
I bókun minnihlutans í út-
gerðarráði, segir að þar sem í til-
lögunni er „hótað rekstrar-
stöðvun togaranna og þar með
stórfelldum uppsögnum bæði sjó-
manna og verkafólks, þá greiðum
Árið sem nú er að líða er minnsta
slysaár frá því árið 1973, að því er
kemur fram í frctt frá Slysavarna-
félagi íslands. Alls létust 63 af slys-
förum hér á landi á árinu og þar af 4
Islendingar erlendis.
segir
Sigurjón
Pétursson
um
samþykkt
útgerðarráðs
við atkvæði gegn henni. Slíkar
aðgerðir þarf að skoða gaumgæfi-
lega áður en til þeirra er gripið og
meta þá unr leið heildaráhrif
þeirra á borgarsamfélagið."
„í samþykkt Sjálfstæðisflokks-
I fyrra létust 85 íslendingar af
slysförum, árið 1980 létust 87, árið
1979 létust 92, árið 1978 létust 98,
árið 1977 létust 89, árið 1976 létust
76, árið 1975 létust 85, árið 1974
létust 97 og árið 1973 létust 121.
ms er horft framhjá því að BÚR
veitir mörg hundruð manns
atvinnu og veitir þannig tekjum
inn í borgarsamfélagið, sem aftur
skilar sér til borgarinnar í út-
svörum og öðrum sköttum," sagði
Sigurjón. „í henni er aðeins horft
til rekstrar togaranna, og því hót-
að að mannskapnum verði sagt
upp ef einhver halli verði. Togar-
arnir hafa í gegnum árin verið
reknir með einhverjum halla, svo
þessi tillaga er alveg út f hött,“
sagði hann.
„Það er ljóst að gegn þessu verð-
ur ekki aðeins minnihlutinn í
borgarstjórn að snúast, heldur öll
verkalýðshreyfingin og borgar-
búar allir,“ sagði Sigurjón. „Það
eitt dugir til þess að koma í veg
fyrir að hér verði stofnað til stór-
fellds atvinnuleysis."
í sjóslysum eða drukknunum
1982 létust 15, í umferðarslysum
28, í flugslysum 6 og í öðrum slys-
um 18.
- S.dór
Staða Þjóð-
leikhússtjóra:
Fjórir
sóttu um
Fjórir sóttu um stöðu þjóð-
leikhússtjóra, en umsóknarfrestur
rann út 29. þ.m. Þeir sem sóttu um
voru: Kristín Magnús, Gísli Al-
freðsson, Erlingur Gíslason og
Þórhallur Sigurðsson.
í viðtali við blaðið í gær sagði
menntamálaráðherra, Ingvar Gísl-
áson, að bréf hefði verið sent til
Þjóðleikhúsráðs þar sem óskað
væri umsagnar þess. Kvaðst hann
vonast til að unnt yrði að ganga frá
ráðningu nýs þjóðleikhússtjóra sem
ailra fyrst. Staðan er veitt frá 1.
janúar 1983, en nýr leikhússtjóri
tekur formlega við næsta haust.
-AI
Árið ’82 minnsta slysaár í 10 ár
Þó létust 63 íslendingar á árinu