Þjóðviljinn - 15.01.1983, Qupperneq 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 15. - 16. janúar 1983
bridse
Margt á döfinni
Frá Bridgesam-
bandi Islands
Á fundi 11. janúar ákvaö stjórn
Bridgesambandsins að fjöldi þátt-
tökusveita frá hverju svæði í
undankeppni fslandsmótsins í
sveitakeppni yrði reiknaður út í
beinu hlutfalli við árgjaldsgreiðslur
félaga svæðanna frá 1. janúar til 1.
júní 1982. Alls taka 24 sveitir þátt í
undankeppni fslandsmótsins,
þaraf er 8 sætum úthlutað miðað
við úrslit síðasta árs, en hinum 16
sveitunum er úthlutað með hlut-
fallsreikningi. Þátttökuréttur
svæðanna á íslandsmóti 1983 er þá
þessi:
Svæði Sveitir
Reykjavík.............6 + 5= 11
Reykjanes.............2 = 2
Vesturland............1 + 1= 2
Vestfirðir........... 1 = 1
Norðurl. v............2 = 2
Norðurl. ey...........1 + 1= 2
Austurland............1 = 1
Suðurland.............2 = 2
íslands-
meistararf. árs...... 1 = 1
Samtals: 24
íslandsmótið í sveitakeppni
verður haldið dagana 18. - 20.
mars, undankeppnin, og 31. mars -
3. apríl, úrslit.
íslandsmótið í tvímenning verð-
ur haldið 28. apríl - 1. maí og þar er
öllum félögum Bridgesambandsins
heimil þátttaka.
Dagana 4. - 6. febrúar verða
haldin fslandsmót kvenna og spil-
ara 25 ára og yngri í sveitakeppni.
Öllum sem uppfylla þessi skilyrði
er heimil þátttaka í mótunum.
Þátttökufrestur er til 31. janúar og
fyrirliðar eru beðnir að skrá sveitir
sínar hjá Bridgesambandinu í síma
18350 eða í síma 24371 (Guðmund-
ur Hermannsson). Keppnisgjald
verður haft í lágmarki. Bridgesam-
bandið mun reyna að mynda sveitir
ef einhver pör óska þess.
Á fundinum lágu fyrir umsóknir
frá 4 bridgefélögum um inngöngu í
Bridgesambandið: Bridgefélagi
Blönduóss, Hveragerðis, Hvol-
svallarogÞorlákshafnar. Umsókn-
irnar voru allar samþykktar.
Einnig var ákveðið að breyta
bronsstigaskráningu félaganna. í
stað bronsstigablokkanna munu
félögin nú senda skýrslu til Bridge-
sambandsins tvisvar á ári með
nöfnum og stigafjölda þeirra spil-
ara sem hafa unnið til bronsstiga
hjá félaginu.
Spennandi
Reykjavíkurmót
Eitt skemmtilegasta Reykjavík-
urmót í sveitakeppni er háð þessa
Umsjón
Ólafur
Lárusson
dagana. Eftir 9 umferðir, geta 11 -
12 sveitir náð í 4 liða-úrslit. Staðan
er þessi:
1. sveit Jóns Hjaltasonar 114 stig.
2. sveit Ólafs Lárussonar 105 stig.
3. sveit Sævars Þorbjörnssonar 105
stig.
4. sveit Aðalsteins Jörgensen 103
stig.
5. sveit Karls Sigurhjartarsonar
100 stig.
6. sveit Gests Jónssonar 98 stig.
7. sveit Braga Haukssonar 98 stig.
8. sveit Sigtryggs Sigurðssonar 96
stig
9. sveit Egils Guðjohnsen 96 stig.
10. og 11. umferð verða spilaðar
nk. miðvikudag í Domus, og eigast
við þá m.a. þessar sveitir: Jón Hj. -
Sigtryggur, Sævar - Aðalsteinn,
Bragi - Þórarinn, Ólafur - Jón Þ.,
Sævar - Bragi.
11 sveitir ávinna sér rétt til þátt-
töku á íslandsmóti.
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Keppnisdagskrá félagsins til vors
hefur verið ákveðin og verður byrj-
að 26. jan. með aðaltvímennings-
keppninni, sem verður með baro-
metersniði eins og undanfarin ár.
Gert er ráð fyrir, að keppnin standi
í 6 kvöld. Að henni lokinni verður
Board a match keppni í þrjú kvöld.
Fjögur síðustu kvöldin verður butl-
er keppni. Fyrst verður undan-
keppni í þrjú kvöld, en fjórða
kvöldið verður spilað til úrslita og
samhliða þeirri keppni verður ein-
menningskeppni félagsins.
Þeir sem ætla að vera með í aðal-
tvímenningskeppninni, en hafa
ekki ennþá skráð sig, eru minntir á
að gera það í síðasta lagi sunnudag-
inn 23. jan. hjá formanni s. 72876
eða öðrum stjórnarmanni. Skrán-
ingarlisti liggur einnig frammi á
Reykjavíkurmótinu í sveitak-
eppni.
Svör við getraun
Hér á eftir eru svör við
getraun á bls. 3.
1. Borgin hló er eftir
Matthías Johannesen
2. Ég ber að dyrum er
eftir Jón úr Vör
3. Eitt kvöld í júní er eftir
Einar Braga
4. Glugginn snýr I norður
er eftir Stefán Hörð
Grímsson
5. Hlutabréf í sólarlaginu
er eftir Dag Sigurðarsson
6. Kvæðabók er eftir
Hannes Pétursson
7. Kvæði er eftir Þórar-
inn Eldjárn
8. Laufíð á trjánum er
eftir Vilborgu Dagbjarts-
dóttur
9. Sífellur eru eftir
Steinunni Sigurðardóttur
10. Ung ljóð er eftir Nínu
Björk Arnadóttur
íslenskir spilarar, sem hyggja á
þátttöku í bridgehátíðinni, eru
minntir á að skrá sig í síðasta lagi
sunnudaginn 16. jan.. Tekið er við
þátttökutilkynningum í síma 72876
(Sigmundur) og síma 24371 (Guð-
mundur). Þátttaka í tvímenningum
takmarkast við 44 pör, en þátttaka
í sveitakeppninni er ótakmörkuð.
Frá Bridgedeild
Breiðfirðinga
Að ólokinni einni umferð í aðal-
sveitakeppni Bridgedeildarinnar,
hefur sveit Hans Nielsen þegar
tryggt sér yfirburðasigur.
Staðan er þessi:
sveit Hans Nielsen 294 stig,
sveit Óskars Þ. Þráinssonar 245
stig,
sveit Ingibjargar Halldórsd. 238
stig,
sveit Kristínar Þórðard. 223 stig,
sveit Steingríms Jónassonar 214
stig,
sveit Sigurjóns Helgasonar 209
stig,
sveit Elís R. Helgasonar 209 stig,
sveit Magnúsar Halldórssonar 208
stig.
Næsta keppni er Barometer og
stendur skráning nú yfir.
Frá Bridgefélagi
Siglufjarðar
stig
1. Ásgrímur Sigurbj. -
Jón Sigurbj. 576
2. Anton Sigurbj. -
Bogi Sigurbj. 546
3. Valtýr Jónasson -
Viðar Jónsson 529
4. Guðmundur Árnason -
Níels Friðbj. 499
5. Hafliði Hafliðas. -
Örnífur Ásmundss. 474
Nýja árið hófst svo með hinni
árlegu bæjarkeppni á milli Norður-
bæjar og Suðurbæjar. Hvor aðili
sendi fram 5 sveitir, og eftir harða
en skemmtilega keppni stóðu
Suðurbæingar með bikarinn í
höndunum. Suðurbær hlaut 57 stig
gegn 43 stigum Norðurbæjar.
Næst á dagskránni er aðal-
sveitakeppni félagsins.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 11. jan. var spil-
aður eins kvölds tvímenningur.
Spilað var í tveim 10 para riðlum.
Úrslit urðu sem hér segir:
A.
Magnús - Baldur 137
Högni - Steingrímur 123
Ragnar - Bjarni 116
B.
Karolína - Hildur 130
Kristján - Georg 125
Bergsveinn - Ragnar 120
Aðalsveitakeppni félagsins hefst
þriðjudaginn 18. jan. Félagar eru
hvattir til að skrá sig. Aðstoðað
verður við að mynda sveitir. Skrán-
ing og upplýsingar í síma 40605,
Kynning á erlendum
gestum
Á miðvikudaginn verður kynn-
ing á erlendu gestunum sem taka
þátt í Bridgehátíð 1983, hérálandi,
í bridgeþætti Þjóðviljans.
var oft margt um manninn. Fólkið
vinsælt og vinmargt, þar að auki
búsett í þjóðbraut. Glatt var á
hjalla sem vonlegt var. Lífið svo að
segja allt framundan, hægara að
hlynna að heilsulítilli móður og
atvinnumöguleikar dágóðir. Fyrst
stundaði Valdimar almenna vinnu
eftir því sem til féll, en hóf síðan
nám hjá Hallgrími Finnssyni
veggfóðrarameistara og þá iðn
stundaði hann til æviloka. Hann
var vandvirkur iðnaðarmaður, lag-
hentur og útsjónarsamur - bar
virðingu fyrir verkum sínum.
Valdimar giftist Ebbu Þor-
geirsdóttur, dugmikilli konu ættaðri
vestan af Breiðafirði, og var heim-
ili þeirra alltaf í Reykjavík. Þau
eignuðust 9 börn sem eru þessi:
Marteinn, sveitarstjóri í Búðar-
dal, giftur Maríu Eyþórsdóttur
húsmóður. Þau eiga 3 dætur.
Valdimar Jónsson
veggfóðrarameistari
Fæddur 13.5. 1921
— Dáinn 5.1. 1983
Foreldrar Valdimars bjuggu að
Fossi í Hrútafirði og hétu Sigríður
Björnsdóttir og Jón Marteinsson.
Þau hjónin líkt og flestir af þeirra
kynslóð börðust við óblíð kjör
sinnar samtíðar, við kreppu, sjúk-
dóma og óvæginn aldaranda. Með
afburða dugnaði og þrautseigju
stóðu þau samt meðan stætt var.
Þeim varð 11 barna auðið, 3 dóu í
æsku, sonurinn Pétur lést í blóma
lífsins árið 1953 og nú hefur Vald-
imar kvatt okkur.
Valdimar var áttunda barn for-
eldra sinna og hin óblíðu kjör sem
ég hef getið um urðu til þess að
hann var látinn í fóstur að Hrúta-
tungu í sömu sveit, til þeirra Guð-
rúnar Jónsdóttur og Tómasar Þor-
steinssonar sem þar bjuggu ásamt
börnum sínum. Hann var miklu
yngri en börn hjónanna og má með
sanni segja að hann hafi orðið eftir-
lætið á bænum. Af þessu gamla
Hrútatungufólki lifir aðeins Ólöf
Tomasdóttir, sem háöldruð dvelur
á elliheimilinu á Hvammstanga.
Umhyggja hennar og tryggð við
Valdimar hélst á meðan nokkrir
kraftar leyfðu.
Þrátt fyrir það góða atlæti sem
Valdimar hafði í fóstrinu var langt
frá því að böndin slitnuðu við for-
eldrahúsin enda stutt bæjarleið
fyrir léttstíga fætur til fundar við
föður, móður og systkini. Þar af
leiðandi átti hann með þeim sam-
eiginlegar minningar sem oft voru
rifjaðar upp á góðum stundum,
minningar um snjóhús og silungs-
veiðar, minningar um æsku og sól-
skin.
Árin liðu. Árið 1942 hélt Vald-
imar til Reykjavíkur líkt og svo
margir ungir menn, þar sem sveitir
lands voru flestar í sárum vegna
sauðfjársjúkdóma og því ekki
margra kosta völ. Um þetta leyti
var svo komið að foreldrar hans og
systkini höfðu flust til borgarinnar í
leit að betri tækifærum. Þá var það
að fjölskyldan sameinaðist aftur
hér sunnan heiðar og myndaði heim-
ili, fyrst að Hverfisgötu 88. Þarna
Hugrún, tannsmiður, Kvíarhóli
Ölfusi, gift Gunnari Baldurssyni,
kennara. Þau eiga 3 dætur.
Sigríður, iðjuþjálfi, Osló, gift
Róar Wik, skipamiðlara. Þau eiga
2 drengi.
Þorgeir, veggfóðrari, Reykja-
vík, giftur Sigurbjörgu Norðfjörð,
húsmóður. Þau eiga 2 dætur.
Björgvin, veggfóörari, Reyka-
vík, giftur Elínu Ásgrímsdóttur,
fóstru. Þau eiga einn son.
Anna, hjúkrunarkona, Ólafs-
vík, gift Guðmundi Svavarssyni
sjómanni. Þau eiga einn son.
Jón, vélstjóri, Suðureyri við
Súgandafjörð, giftur Ragnheiði
Guðmundsdóttur, bankastarfs-
manni.
Yngstu börnin, Hafdís og Börk-
ur, eru ennþá við nám.
Þetta er stór og fallegur hópur,
sem hefur tileinkað sér kosti for-
eldra sinna, kjark og dugnað, blíð-
lyndi og þægilegt viðmót.
Eftir að þau Ebba slitu samvist-
um bjó Valdinrar fyrst einn en hóf
síðan sambýli með Önnu Laxdal að
Hólmgarði 3 hér í borg. Anna hafði
misst mann sinn og komið upp
börnum sínum. Þetta er vel gerð og
greind kona sem nú á við þung
veikindi að stríða. Innan veggja
sjúkrahúss fékk hún þessi sviplegu
tíðindi, tíðindi sem allir eiga von á
en enginn er viðbúinn að fá. Ég vil
senda Önnu innilegar samúðar-
kveðjur og ósk um góðan bata. Ég
las eitt sinn greinarkorn eftir Hall-
dór Laxness þar sem hann lét þá
skoðun í ljós að eftirmæli væri frek-
ar bautasteinn þess senr skrifar en
þess sem skrifað er um. Það væri
afstaða þess sem skrifar er kærni
skýrast í ljós. - Þá það. - Ekki
minnkar minn vegur þótt afstaða
mín til Valdimars mágs míns komi í
ljós. Ég man mest og best þetta
þægilega viðmót. Ég man glæsilega
klæddan mann á hátíðastundum,
skemmtilegan ferðafélaga og ákaf-
an veiðimann. Ég man umhyggju-
saman tengdabróður.
Ég sendi börnum Valdimars,
tengdabörnum, barnabörnum og
systkinum mínar bestu samúðar-
kveðjur.
Hanna Haraldsdóttir.
Celló-
tónleikar
Gunnar Kvaran cellóleikari
heldur tónleika í Bústaðakirkju
sunnudginn 16. jan. kl. 20.30. á
efnisskránni eru verk eftir J. S.
Bach og Hans Werner. Aðgöng-
miðar verða seldir við innganginn.
Gunnar Kvaran