Þjóðviljinn - 15.01.1983, Blaðsíða 32
DJOÐVIUINN
Helgin 15. - 16. janúar 1983
Atvinnuleysi mun
meira
í Reykjavík
en undanfarin ár:
432
á skrá
í gær
15-20 bætast
í hópinn daglega
„Því miður hafa verið að
koma hingað menn undanfarna
daga sem aldrei hafa sést hérna
áður og það er greinilegt að hið
almenna atvinnulcysi hér í
Reykjavík er talsvert meira en
það hefur verið í janúarmánuði
undanfarin 4- 6 ár ef undan er
skilinn janúarmánuður í fyrra
en þá réru ekki togararnir
meðan beðið var eftir fisk-
verði“, sagði Gunnar Helgason
hjá Ráðningarskrifstofu
Reykjavíkurborgar í samtali í
gær.
„Á þeasum tíma hafa verið
220 - 260 atvinnulausir í
Reykjavík undanfarin ár og tal-
an hefur yfirleitt haldið áfram
að vaxa fram í miðjan febrúar
en þá fer að draga úr. Það er
athyglisvert við þetta núna að
vinna virðist vera mjög stopul í
byggingariðnaði og hjá verk-
tökum, en ennþá er góð atvinna
í fiskvinnslunni enda þótt hrá-
efnaskortur geti sett strik í þann
reikning innan skamms“, sagði
Gunnar ennfremur.
Hér skulu nefndar þær
starfsgreinar þar sem atvinnu-
leysi er mest í höfuðborginni
núna. Innan sviga eru tölur frá
því í janúar í fyrra:
Vörubifreiðastjórar 55 (25),
múrarar 30 (4), sjómenn 30
(10), trésmiðir 23 (1), verka-
menn 108 (148), iðnverkakonur
12 (34), verslunarkonur 36 (22)
og verkakonur 18 (321).
Hámarksatvinnuleysisbætur
eru nú 379.36 krónur á dag en
lágmarksbætur sem greiddar
eru út eru 94.84 kr á dag: Fyrir
hvert barn eru svo greiddar
15.17 kr á dag.
Forval í Norður-
landskjördæmi
eystra
Lýkur
ídag
Fyrri umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra lýkur nú um helgina.
A Akureyri verður kosið í dag kl.
14 til 18 í Lárusarhúsi. Á Húsavík
verður cinnig kosið í dag kl. 10 til
12 og 13 til 16 í Snælandi. Annars-
staðar í kjördæminu er fyrri um-
ferð forvalsins lokið.
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9—20 mánudag til föstudags. Utan þess
tíma er haegt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum
símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir
81257. Laugardaga kl. 9—12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma
81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt
öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Gæti haft afgerandi áhrif
segir Arnmundur Bachmann formaður kjörnefndar
„Ég hlýt að hvetja alla félaga til verður í efstu sæti listans,“ sagði
þess að neyta atkvæðisréttar síns í Arnmundur Bachman formaður
fyrri umferð forvalsins, því að nið- kjörnefndar ABR, en forvalið í
urstaðan getur haft afgerandi áhrif Reykjavík hófst kl. 4 í gær.
á seinni untfcrðina, þegar raðað „Ég vil einnig beina því til sam-
herja okkar aö ganga í flokksfé-
lagið forvalsdagana, en gegn því að
greiða hálft árgjald öðlast menn
rétt til þátttöku.“
Forvalinu verður framhaldið í
dag frá kl. 10 til 19 og á morgun,
sunnudag, frá kl. 10 til 14. Kosið er
að Grettisgötu 3. Síðari umferð fer
fram 28. til 30. janúar.
-ekh
\
Fyrri umferð forvals ABR hófst í gær og stendur atkvæðagreiðsla yfir í dag og á morgun að Grettisgötu 3. Ljósm. Atli.
Forval Alþýðubandalagsins í Reykjavík:
Aðhald með innflutningi einingahúsa í bígerð:
Fagna allri takmörkun
segir Grétar Þorsteinsson
formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur
„Ég fagna því auðvitað ef
stjórnvöld ætla að beita
sér að einhverju marki
gegn hinum ótæpilega
innflutningi tilbúinna
einingahúsa til Islands
ekki síst vegna þess einmitt
að sterk rök benda til þess
að mikið af þessari
útlendu framleiðslu stand-
ist ekki kröfur í íslenskri
byggingareglugerð“,
sagði Grétar Þorsteinsson
formaður Trésmiðafélags
Reykjavíkur í gær.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í
gær er nú starfandi nefnd á vegum
félagsmálaráðuneytisins, en hún
var skipuð rétt fyrir jól, sem er ætl-
að það verkefni að kanna innflutn-
ing á einingahúsum og húshlutum
auk þess að athuga framleiðsluna
hér innan lands og ef til vill útbúa
staðla. Þá hefur Brunamálastofnun
í bréfi í nóvember s.l. lagt vara við
því að sum innfluttu húsanna upp-
fylli ekki kröfur hérlendis um eld-
varnir og varðandi frágang raflagna
hefur ýmsu þótt ábótavant.
Trésmiðir atvinnulausir
„Það sem að okkur trésmiðum
snýr í þessu dæmi með innflutning-
inn er auðvitað m.a. atvinnan og
það er enginn vafi á því að hinn
gífurlegi innflutningur síðustu miss-
era kemur niður á okkar grein
enda eru nú allmargir trésmiðir
atvinnulausir hér í Reykjavík um
þessar mundir. Hitt er svo annað
mál að enda þótt ég fagni hvers
konar aðgerðum sem gætu leitt til
einhverrar takmörkunar á inn-
flutningi húsa og innréttinga, legg
ég áherslu á að til bjargar þessum
iðngreinum þarf að grípa til mjög
róttækra ráðstafana - ráðstafana
sem ekki hefur verið gripið til enn-
þá. Samdráttur í byggingariðnaði
nú stafar fyrst og fremst af fjár-
magnsleysi og þar verða stjórnvöld
að grípa í taumana ef ekki á illa að
fara“, sagði Grétar Þorsteinsson að
síðustu.
-v.
FORVAL ALÞYÐUBANDALAGSINS
í REYKJAVÍK
FYRRI UMFERÐ 14.-16. JANÚAR 1983
Fyrri umferð forvals Alþýðubandalagsins í Reykjavík fer fram 14.-16. janúar. Kosning fer fram að Grettisgötu 3 og verður kjörfundur opinn sem hér segir: Föstudaginn 14. janúar ki. 16 - 21 Laugardaginn 15. janúar kl. 10 19 Sunnudaginn 16. janúar kl. 10-14 Síðari umferð forvalsins fer fram 28. - 30. janúar. Fréttabréf ásamt forvalsreglum hefur verið sent til félagsmanna. Hafi einhver ekki fengið sendar forvals- reglurnar er hann beðinn að hafa samband við skrif- stofu félagsins.
RÉTT TIL ÞÁTTTÖKU: Réft til þátttöku í forvalinu hafa allir félagsmenn Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík sem ekki skulda meira en eitt gjaldfallið árgjald og þeir nýir félagar, sem ganga í félagið í síðasta lagi á kjördag, enda greiði þeir a.m.k. '/z árgjald til félagsins við inngöngu.
ATH. Fréttabréf og forvalsreglur liggja frammi á skrifstofu ABR.
Kjörnefnd ABR