Þjóðviljinn - 15.01.1983, Blaðsíða 30
30 SIÐA
ÞJÓÐVILJINN Helgin 15. - 16. janúar Í983
Talsvert atvinnuleysi á
Seyðisfirði að undanfömu:
Ræst úr
íbili
segir Jónas Hallgrímsson bæjarstjóri
„Sem betur fer hefur nú heldur ræst úr í atvinnumálum hér á
Seyðisfirði því togararnir Gullver og Gullberg eru farnir til veiða
og má því búast við að flestir hér á staðnum verði komnir til vinnu
eftir viku til 10 daga“, sagði Jónas Hallgrímsson bæjarstjóri á
Seyðisfirði í samtali i gær.
Að sögn Jónasar dróst atvinna
nokkuð saman á Seyðisfirði undir
jól en þá hættu togararnir veiðum.
Otto Wathne hefur ekki enn farið
til veiða vegna brælu, en ekki hefur
gefið á sjó síðan um jól. Sama er
auðvitað að segja um smærri báta.
Var því velflestum starfsmönnum
frystihúsanna Norðursíldar og
Fiskvinnslunnar sagt upp störfum,
einkanlega kvenfólki en karlmenn
fengu vinnu við málningu og annað
viðhald í húsunum.
Skreiðarsala
Á þessu ári eiga að fara fram
kosningar í Nigeríu og eru menn að
vona að eitthvað greiðist úr
skreiðarsölumálum þess vegna, þar
sem vitað er að Bíaframenn eru
mjög óánægðir með að fá ekki
skreið, en atkvæði þeirra vega
þungt í kosningunum.
Þjóðviljinn hafði í gær samband
við Samlag skreiðarframleiðenda
og fékk þær upplýsingar að eins og
málin stæðu í dag, væri ekkert sem
benti til þess að sala á skreið til
„Þegar mest var náði tala manna
á atvinnuieysisskrá allt að hundr-
aði en í dag eru 60-70 manns á
skrá. Ég reikna með að þegar
togararnir koma að landi fái flestir
vinnu en fullri atvinnu náum við
því miður ekki hér strax, m.a.
vegna þess að loðnubræðslurnar
hafa ekkert starfað í vetur en þar
unnu áður þetta 60-70 manns þeg-
ar bræðsla stóð sem hæst“, sagði
Jónas Hallgrímsson bæjarstjóri að
lokum.
- v.
og pólitík
Nígeríu væri að liðkast. Aftur á
móti hefðu skreiðarseljendur heyrt
þetta með kosningarnar og hefðu
vissu fyrir því að skreiðarsölumál
gætu blandast inní kosningabar-
áttuna.
Nú er verið að lesta 20 þúsund
pakka af skreið á vegurn SÍS og
Skreiðarsamlagsins og einn aðiii í
viðbót er að senda út skreið um
þessar mundir, en í öllum tilfellum
er um að ræða söluleyfi frá fyrra
ári.
- S.dór
Umferð bönnuð um Dyrhólsey næsta sumar:
Eyjan friðuð frá
1. maí — 25. júní
samkvæmt ákvörðun Náttúruverndarráðs
Náttúruverndarráð hefur sam-
þykkt að banna alla umferð um
Dyrhólaey næsta sumar, eða tíma-
bilið frá 1. maí til 25. júní. Slíkt
bann var í gildi sl. sumar og þótti
gefast vel. Megintilgangur banns-
ins er að sögn Náttúruverndarráðs
að vernda fuglalíf í eynni en ferð-
amannastraumur til Dyrhólaeyjar
hefur á síðustu árum stóraukist
með þeim afleiðingum að fuglalífi
hefur mjög hrakað.
Sumarið 1981 komst nánast ekk-
ert af æðarkolluungum á legg og
aðeins 80 æðarkollur reyndu varp
það vor. Þar sem sýnt þótti hvert
stefndi, samþykkti Náttúruvernd-
arráð sl. vor að banna alla um-
ferð um eyna um varptímann og
varð það til þess að 260 æðarkollur
verptu sl. vor og að meðaltali kom-
ust upp um 4 ungar úr hverju
hreiðri. Hvort sem ástæðan er
friðuninni að þakka er þetta svo
umtalsverður árangur að Náttúru-
verndarráð ákvað að beita heimild
í lögum sem bannar alla umferð um
eyna yfir varptímann.
Þess er hins vegar að geta, segir í
frétt frá Náttúruverndarráði, að
eftir 25. júní í sumar er öllum heim-
ilt að skoða fuglalífið í Dyrhólaey,
sem í skjóli fyrrnefndra aðgerða
ætti að verða fjölskrúðugra en ella.
- v.
„Sigurvegara-mótið ” i Wijk Aan Zee:
Friðrik vann Speelman
Friðrik Ólafsson teflir nú í sjötta sinn á skákmótinu „í víkinni við
sjóinn“- Wijk Aan Zee. Hann hefur sigrað þarna tvisvar og ekki cr
ástæða til að ætla annað en að hann standi sig vcl nú. Sigurskák hans
við Speelman birtist hér.
Friðrik Ólafsson byrjaði
taflmennsku sína á Sigurveg-
ara - skákmótinu“ í Wijk
Aan Zee í Hollandi glæsilega.
Hann vann í 1. umferð einn
sterkasta stórmeistara Eng-
lendinga Jonathan Speelman í
geysispennandi skák. Friðrik
virtist fá heldur lakari stöðu út
úr byrjuninni og lenti í ofaná-
lag í tímahraki en tókst að
snúa á Englendinginn undir
lok setunnar og vinna öruggan
sigur.
Dregið var um töfluröð á skák-
mótinu á fimmtudagskvöldið og
varð niðurstaðan þessi. Hol-
lendingurinn Jan Timmann helt-
ist úr lestinni á síðustu stundu.
Hann varð veikur og tekur Pól-
verjinn Kuligowski þátt í mótinu í
hans staö. 1. Hort Tékkóslóvakíu
2. Ribli Ungverjalandi 3, Hulak
Júgóslavíu4. Speelman Englandi
5. Ree Hollandi 6. Kuligowski
Póllandi 7. Browne Bandaríkjun-
um 8. Sheeren Hollandi 9.
Anderson Svíþjóð 10. Van der
Wiel Hollandi 11. Friðrik Ólafs-
son 12. Seirawan Bandaríkjunum
13. Kortsnoj Sviss 14. Nunn Eng-
landi.
Mótið er í 12. styrkleikaflokki
og féll niður um einn flokk við
það að Timman hætti við þátt-
töku. Meðalstig eru 2543 stig.
Stigahæsti maður mótsins er Sví-
inn Ulf Anderson með 2535 stig.
Friðrik hefur hrapað nokkuð í
Elo-listanum að undanförnu og
er með 2495 stig.
Úrslit gærdagsins
Auk sigurs Friðriks urðu úrslit
sem hér segir: Ribli vann Kort-
snoj, Ree vann Van der Wiel og
jafntefli gerðu Hort og Nunn.
Aðrar skákir fóru í bið.
í 2. umferð sem tefld verður á
morgun mætir Friðrik Hollend-
ingnum Hans Ree og hefur hvítt.
Sigurskák Friðriks:
Skák Friðriks og Speelman var
afar athyglisverð. Sþeelman þessi
þykir afar öruggur skákmaður og
telst það til tíðinda tapi hann
skák. Hann virtist eiga góða
stöðu en leikur hans g3-g4 var
beggja handa vopn. Friðrik not-
færði sér þær línur sem opnuðust
að kóngi hans og vann sannfær-
andi. Tímahrak Friðriks undir
lokin er eina skýring á því að Spe-
elman hélt áfram hinni vonlausu
baráttu.
En hér kemur skákin:
Hvítt: J. Speelman (England)
Svart: Friðrik Ólafsson
Pólsk byrjun
1. RO Rf6
2. d4 e6
3. g3 b5
4. Bg2 Bb7
5. Bg5 c5
6. Bxf6 Dxf6
7. c3 cxd4
8. cxd4 Bb44-
9. Rc3 ?-?
10. 0-0 a6
11. Hcl Dd8
12. e3 Db6
13. Re5 Bxg2
14. Kxg2d6
15. Rd3 Bxc3
16. Hxc3 Rc6
17. Df3 Re7
18. Hfcl h6
19. Rb4 a5
20. Rc6 Rd5
21. H3c2 f5
22. Khl Hae8
23. g4 b4
24. gxf5 Hxf5
25. Dg3 Db5!
26. Dxd6? Dd3
27. Dg3 De4+
28. DO
abcdefgh
- Staðan eftir 28. leik hvíts.
28. ..Hxe5!
29. Dxc4 Hxe4
30. Hgl Hf8
31. Hg2 a4
32. Hg3a3
33. b3 Hf7
34. Kg2 Hh4
35. Hc4 Hc7
36. f4 Kf7
37. HO Hxc4
- Hvítur gafst upp.
Friðrik teflir eins og áður sagði
við Ree á morgun, en auk þess
tefla saman Hort og Ribli, Kort-
snoj og Hulak, Seirawan og Spe-
elman, Van der Wiel og Kuligow-
ski, Anderson og Browne, Sheer-
en og Nunn.
Á sunnudaginn teflir Friðrik
við Kuligowski og hefur svart.
- hól.