Þjóðviljinn - 10.09.1983, Blaðsíða 3
Helgin 10. —11. september 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Andreas Bielau, miðherji Jena og austur-þýska landsliðsins.
Hinn austur-
þýski Zoff
Andstæðingar Eyjamanna í
UEFA-bikarnum er eitt þekkt-
asta knattspyrnufélag Aust-
ur-Þjóðverja, Carl-Zeiss Jena.
Félagið hafnaði í þriðja sæti 1.
deildar sl. vor, fékk 34 stig úr 26
Ieikjum, jafnmörg og Vorwárts
Frankfurt sem varð númer tvö,
en 12 stigum á eftir meisturn-
um, Dynamo Berlin, sem voru í
algerum sérflokki.
Jena hefur leikið í einhverju
Evrópumótanna nær árlega síðan
1965 og oft náð langt. Aldrei þó
lengra en 1981 þegar Jena lék til
úrslita í Evrópukeppni bikarhafa
en tapaði 2-1 fyrir Dinamo Tiblisi
frá Sovétríkjunum. Á leið sinni
þangað sló Jena þekkt Iið út úr
keppninni, AS Roma frá Ítalíu,
vann þá 4-0 heima eftir að hafa
tapað 3-0 í Róm, Valencia frá
Spáni, Newport frá Wales og Ben-
fica frá Portúgal.
Þrátt fyrir að hafa verið í fremstu
röð knattspyrnuliða í Austur-
Þýskalandi í rúm 25 ár hefur
meistaratitillinn aðeins unnist
þrisvar, síðast 1970. Annað og
þriðja sætið hefur oftast orðið hlut-
skipti félagsins. Bikarinn vann
Jena síðast 1980.
Með Jena leika nokkrir þekktir
knattspyrnumenn og við íslending-
ar munum sjálfsagt best eftir varn-
armanninum marksækna, Rúdiger
Schnuphase. Einn annar er núver-
andi landsliðsmaður, hinn 25 ára
gamli framherji Andreas Bielau.
Margir muna ábyggilega eftir mið-
vallarspilaranum Lothar Kurbjuw-
eit sem nú er kominn á 33. aldurs-
ár. Aldursforseti liðsins er einnig
vel kunnur út fyrir landamæri
Austur-Þýskalands, markvörður-
inn Hans-Ulrich Grapenthin.
Hann er nýorðinn 40 ára, einskon-
ar Zoff Austur-Þýskalands, og hef-
ur tvívegis verið kjörinn knatt-
spyrnumaður ársins í heimalandi
sínu.
Carl-Zeiss Jena hefur aðeins
einu sinni fallið út úr Evrópu-
keppni í fyrstu umferð og síðan eru
liðin 20 ár. í undanúrslit Evrópu-
keppni bikarhafa komst félagið
árið 1962 og síðan í úrslit sömu
keppni 1981 eins og áður er frá
greint.
Eyjamenn mæta Carl-Zeiss Jena
á Kópavogsvellinum á þriðju-
dagskvöldið. Góðar aðstæður til að
sýna skemmtilega knattspyrnu og
árangur ÍBV í Evrópumótunum
undanfarin ár gefur ástæðu til að
ætla að leikurinn verði jafn og tví-
sýnn. Frammistaða ÍBV gegn lið-
um frá Póllandi og Tékkóslóvakíu
síðustu árin hefur verið eftirtektar-
verð. Par ber hæst jafnteflið gegn
Banik Ostrava á Kópavogsvelli
haustið 1980 og þá mörðu Tekk-
arnir 1-0 sigur í síðari leiknum.
Eyjamenn leika fjarri sinni heima-
byggð og eiga skilinn góðan stuðn-
ing knattspyrnuáhugamanna af
höfuðborgarsvæðinu. _yg
SUZUKI
kr. 95.000,-
útborgun
í tilefni þess að viö afhendum þúsundasta
Suzuki-bílinn þessa dagana, seljum viö nokkra
Suzuki Alto árgerö 1983 meö 95.000,- króna útborgun.
Verö kr. 185.000,-
Útborgun 95.000,-
Missiö ekki af upplögöu tækifæri til aö eignast nýjan bíl á góöum kjörum.
Suzuki Alto — Sterkur — Sparneytinn
Eyðsla: minna en 5 I. pr. 100 km.
Mótherjar Skagamanna og Eyjamanna í Evrópumótunum kynntir:
Utanbæjarliðið rauf einokunina!
Aberdeen, mótherjar Skaga-
manna í Evrópukeppni bikar-
hafa, er á góðri leið með að
skipa sér á bekk meðal fremstu
knattspyrnuliða Evrópu. Fé-
lagið frá fiskiborginni frægu á
Skotlandsströnd er handhati
Evrópubikarsins, sigraði Ben-
fica frá Portúgal í úrslitaleik
keppninnar í fyrravor eins og
flestum er eflaust í fersku
minni.
Á síðasta keppnistímabili var
Aberdeen í 'eldlínunni á fjórum
vígstöðvum. Félagið háði harða
baráttu við Celtic og Dundee Unit-
ed um meistartitilinn og átti sigur-
möguleika þegar gengið var til
lokaumferðar. Liðið náði langt í
deildabikarnum, sigraði í Evrópu-
keppni bikarhafa og vann loks
Rangers í úrslitaleik skosku bikar-
keppninnar.
Aberdeen þykir leika létta og
skemmtilega knattspyrnu, meira í
stíl við meginlandslið en þau
bresku. Margir leikmanna hafa á
síðustu misserum skapað sér frægð
og almenna viðurkenningu, enginn
þó eins og hinn frábæri Gordon
Strachan sem blómstraði með
skoska landsliðinu í heims-
meistarakeppninni í fyrra.
Fleiri má nefna. Hinn 19 ára
gamli Eric Black er eitt mesta efni
sem fram hefur komið í Skotlandi,
fljótur og marksækinn og sló í gegn
síðasta vetur. Útherjinn Peter
Weir er með afbrigðum leikinn og
kominn í skoska landsliðið. Þar eru
einnig varnarmennirnir Willie
Miller og Alex McLeish og mark-
vörðurinn Jim Leighton. Miðvall-
arspilarinn Mark McGhee þótti
lengi efnilegur en hefur loksins náð
að sýna sitt rétta andlit eftir að
Aberdeen keypti hann frá New-
castle fyrir nokkrum árum. Valinn
maður í hverju rúmi.
Aberdeen hefur lengi staðið í
skugga risanna í skosku knatts-
pyrnunni, Rangers og Celtic. Fé-
lagið hafði lengi verið talið lík-
legast „utanbæjarliða" til að rjúfa
einokun þeirra á skoska meistara-
titlinum og það tókst árið 1980 en
þá höfðu Rangers og Celtic haldið
honum í fimmtán ár. Aberdeen
hefur síðan ekki tekist að endur-
taka þennan leik þrátt fyrir góðar
tilraunir en á nýbyrjuðu keppnis-
tímabili er félagið talið mjög sigur-
stranglegt á öllum vígstöðvum
heima fyrir.
Aberdeen er í mjög góðu formi
um þessar mundir, hefur unnið
stóra sigra í deild og deildabikar að
undanförnu og rúllaði 1. deildar-
liðinu Raith Rovers t.d. algerlega
upp í deildabikarnum, vann 9-0
heimaog 12-0samanlagt. St. John-
stone var afgreitt 5-0 í úrvalsdeild-
inni um síðustu lielgi svo það verð-
ur við ramman reip að draga fyrir
Skagamenn. En þeir eru einnig í
mjög góðri æfingu, hafa verið ósig-
randi í heila tvo mánuði og ef
eitthvert íslenskt félag á möguleika
á að standast snillingum Aberdeen
snúning, þá er það nýkrýndir
íslands- og bikarmeistarar Ákur-
nesinga næsta miðvikudagskvöld.
Við megum búast við góðum leik á
Laugardalsvellinum. -VS
Eric Black skorar með skalla gegn Celtic í fyrravetur. Hann sló í gegn í j
þessum leik, ungur og óþekktur gerði hann þrjú mörk á sjálfum heimavelii i
Celtic, Parkhead. i
Aukatekjur
Aukið tekjur ykkar um allt
að dkr. 2000 á viku með
léttri heima- og tómstund-
avinnu.
Hugmyndabæklingur með
100 tillögum á Iskr. 200
sendur án burðargjalds ef
borgað er fyrirfram, en ann-
ars með póstkröfu + burðar-
gjaldi. Fullur skilaréttur
innan 8 daga.
Daugaard Trading
Claus Cortsensgade 1,
DK 8700 Horsens
Danmark.
TIU
10 herrafataverslanir
á höfuðborgarsvæðinu.
TIL DAGLEGRA NOTA