Þjóðviljinn - 10.09.1983, Blaðsíða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin lO.-ll. september 1983______________________________________________
¥
Strangtrúarhyggj an í Islam
að grundvalla samfélögin á trúnni,
eins og íslamskir sósíalistar gera
eða segjast vilja gera, heldur líta
þeir svo á, að Islam og samfélagið
eigi að vera eitt og hið sama, ein
órofa heild. Við þetta eiga þeir
þegar þeir tala um „íslamskt ríki“
af því tagi, sem stofnað hefur verið
í íran. í slíku samfélagi er ætlast til
að trúin sé allt í öllu. Er hér farið
eftir fornum hefðum í íslam.
Strangtrúarmenn líta svo á, að Guð
(Allah) sé hinn eini og sanni
drottnari og löggjafi; lögin hefur
hann gefið í Kóraninum eða látið
Múhameð og eftirmenn hans koma
þeim á framfæri. Jafnvel minnsta
frávik frá þeim lögum er grófasta
guðlast. Þar eð Allah hefur boðið
að þjófar skuli handhöggnir í viss-
um tilfellum, verður því að gera
svo, og vestrænar mannúðarhug-
myndir skipta í því santbandi engu
máli; að halda þeim fram í slíkum
tilvikum er meira að segja hið sama
og að draga alvisku Allah í efa. Þar
Alexander Haig, í fremstu
röð meðal bandarískra
stjórnmálamanna og hers-
höfðingja síðustu árin,
komst nýlega svo að orði í
sjónvarpsviðtali að þess
kynni að verða skammt að
bíða, að múhameðsk strang-
trúarstefna eða bókstafstrú
(fúndamentalismi) yrði Vest-
urlöndum skæðari andstæð-
ingur en sjálfur „heims-
kommúnisminn“. Og Sovét-
ríkin hafa, vegna fjölmenns
múhameðsks minnihluta
innan landamæra sinna og
stríðsins í Afganistan, sem
orðið hefur her þeirra til
mesta álitshnekkis, er hann
hefur beðið til þessa, ekki
minni ástæðu til að gjalda
varhug við téðum and-
stæðingi.
Strangtrúarmenn íslams (eða
skyldar hreyfingar) hafa þegar
völdin að miklu eða öllu leyti í
nokkrum ríkjum, og í öðrum ís-
lömskum ríkjum hafa vaxandi áhrif
þeirra orðið til þess, að stjórnvöld
hafa ekki þorað annað en að láta
undan kröfum þeirra í ýmsu. Af-
staða þeirra til þess, sem hæst ber á
Vesturlöndum og í Sovétríkjunum,
einkennist af andúð og fjandskap;
lýðræði Vesturlanda og kommún-
ismi Sovétríkjanna eru að þeirra
mati álíka svívirðilegt guðleysi og
það sama á við um álit þeirra á
flestu í félags-, dóms- og
siðferðismálum þessara heims-
hluta. Er þar um að ræða fráhvarf
frá þeirri stefnu, sem áður var að
meira eða minni leyti ríkjandi í
mörgum íslamslöndum og gekk út
á það að tileinka sér að vissu marki
vestrænar og evrópskar hug-
myndir.
Þegar Múhameðstrúarmenn átt-
uðu sig á, að samfélög þeirra voru
stöðnuð orðin og kraltlítil miðað
við samfélög Evrópu og Vestur-
landa, urðu viðbrögð þeirra með
ýmsu móti. Sumir litu svo á, að
stöðnunin og afturförin væru'
trúnni að kenna og vildu ýta henni
meira eða minna leyti út í horn eða
gera hana að einkamáli fjölskyldna
og einstaklinga. „Veraldarhyggju-
menn" (sekúlaristar) þessir vildu
sem sé fara að fordæmi Vestur-
landa, þar sem trúin var mjög á
undanhaldi. Aðrir vildu þar að
auki innleiða þjóðernishyggju að
evrópskri fyrirmynd og fá þannig
nýja og „óþreytta" hugsjón, sem
þeir töldu að hleypt gæti nýju lífi í
íslömsk samfélög. Enn má nefna
„íslamska sósíalísta", nokkuð
sundurleítan söfnuð, sem oft er erf-
itt að henda reiður á. Þeir líta svo á,
að sósíalisminn sé í stórum dráttum
í fullu samræmi við Kóraninn og
það fordæmi (Súnna), sem Mú-
hameð og lærisveinar hans gáfu
með gerðum sínum í stjórn- og fé-
lagsmálum. Veraldarhvggjumeiin
og þjóðernissintiar áttu það sam-
merkt. að þeir töldu það skvnsam-
legast, íslam til framdrattar, að
Konur í Iran ganga til kosninga: sérstæð afstaða til lýðræðis.
taka sér Vesturlönd til fyrirmyndar
í vissum meginatriðum. Islömsku
sósíalistarnir eru þeim sammála að
miklu leyti, en sumir þó að minnsta
kosti öllu hollari trúnni.
Mjög á öndverðum meiði við
þessa aðila eru siðvenjusinnar eða
íhaldsmenn, sem vilja halda fast
við íslamslög í einu og öllu og
andæfa flestum eða öllum
breytingum, og strangtrúarmenn,
sem ekki eru andvígir breytingum
og framförum á mörgum sviðum,
það er þeir telja að enginn vandi sé
að aðlaga lögum íslams, sem séu að
sjálfsögðu algild og óháð dutt-
lungum nýrra tíma og nýjunga. Á
Vesturlöndum eru múhameðskir
strangtrúarsinnar (Komeini og
hans menn til dæmis) oft kallaðir
erkiíhaid og afturhald, en út frá
forsendum íslamskra samfélaga
stenst það ekki.
Víðaslærstefnum þeim, sem hér
hafa verið taldar upp, saman á
ýmsan hátt. Til dæmis má með
vissri einföldum kalla Kaddafi og
hans fólk í Líbíu íslamska sósíalista
og strangtrúarmenn í senn. I Af-
ganistan má ætla að oft sé erfitt að
greina á milli beinnar íhaldssemi og
strangtrúarhyggju.
Dagur
Þorleifsson
skrifar
Refsingar í Saudi-Arabíu: Islam og samfélagið séu eitt og hið sama.
„Heiöni“ og „harð-
stjórn“ íranskeisara
Ástæðurnar til þess, hve mjög
strangtrúarhyggjunni hefur vaxið
fiskur um hrygg síðustu árin, eru
margar. Ein sú helsta er að Líbía
og þó einkum Saúdi-Arabía hafa
eflst mjög í krafti olíunnar; Vahab-
ítarnir, sem ráða ríkjum í síðar-
nefnda landinu, standa nálægt
strangtrúarhyggjunni, þótt ekki sé
rétt að segja að þetta tvennt sé að
öllu leyti eitt og hið sama. í öðru
lagi hefur strangtrúarmönnum
sumsstaðar tekist að koma ár sinni
vel fyrir borð með því að notfæra
sér óvinsældir valdhafa, sem höll-
uðust að vestrænum og evrópskum
fyrirmyndum í stjórn- og efnahags-
málum. Þetta gerðist í Pakistan,
þar sem íslamskur sósíalismi
Bhuttos hafði fengið upp á móti sér
múhameðska kierka og fræðimenn
og sömuleiðis millistéttirnar, trú-
aðar mjög samkvæmt hefð, og í ír-
an, þar sem kapítalismi keisarans,
samfara vestrænum stíl stjórnar
hans og miklum ítökum Bandaríkj-
anna, var orðinn mjög óvinsæll.
Strangtrúarmenn telja ekki nóg
sem Allah er löggjafinn eini og hef-
ur einn rétt til að setja lög, hefur
maðurinn engan rétt til slíks. Þegar
íranskeisari riðaði til falls, var al-
gengt að heyra talsmenn Komeinis
fordæma hann fyrir „kúgun" og
„harðstjórn". En þeir lögðu nokk-
uð annan skilning í þau orð en al-
gengast er að gera á Vestur-
löndum. Með því áttu þeir við, að
keisarinn hefði tekið sér vald til
lagasetningar, það vald, sem þeir
telja að Allah einum heyri til.
Hann hafði því að þeirra mati reynt
að gera sjálfan sig að guði, sem er
auðvitað hinn versti glæpur sam-
kvæmt múhameðskum rétttrúnaði
og kallað sjirk, sem útleggja mætti
„heiðni" eða „fjölgyði". Sam-
kvæmt þessari reglu eru þjóðkjörin
löggjafarþing að vestrænni fyrir-
mynd engu síður svívirðilegir harð-
stjórar og guðsafneitarar en ein-
ræðisherrar á borð við íranskeis-
ara, þar eð einnig þau setja lög og
taka þannig fram fyrir hendurnar á
Allah.
Nýtúlkun íslamslaga
Siðvenjusinnar og strangtrúar-
menn eru sammála um að Allah sé
hinn eini rétti löggjafi, en viðvíkj-
andi lögunum greinir þá á í einu
mikilvægu atriði. Þeir síðarnefndu
telja að vísu, að hlýða beri skil-
yrðislaust þeim boðum Kóransins
og Súnna, sem taka af öll tvímæli,
en séu lagaboðin að einhverju leyti
óljós eða tvíræð, er það hlutverk
valdhafa (trúarleiðtoga, þingá) að
túlka þau og ákveða, hvernig
heppilegast sé að beita þeim hverju
sinni. Jafnframt þessu er það
grundvallaratriði í augum strang-
trúarmanna að lög íslams nái yfir
öll svið samfélags og mannlífs. Það
getur að sjálfsögðu verið erfitt í
framkvæmd, þar eð nútíma-
heimurinn, mótaður fyrst og
fremst af vestrænum áhrifum, er
harla ólíkur heimi Múhameðs og
eftirmanna hans, kalífanna og ím-
amanna. En frá sjónarhóli strang-
trúarmanna er óhugsandi að Allah
hafi ekki séð allt það fyrir, en hann
gaf mönnunum lögin, og það er því
hlutverk mannanna að finna í Kór-
aninum og Súnna eftir þörfum
fyrirmæli, er náð geti yfir hvaðeina
sem upp kemur í nútímasamfélagi,
hvort heldur er í stjórnmálum,
efnahagsmálum, fjölskyldu- og
siðferðismálum, félagsmálum og
öðru. Þetta er kaklað idjtihad og
þýtt „nýtúlkun" (en þýðir í raun
réttri „áreynsla"). Ekki eru þó allir
strangtrúarmenn nákvæmlega
sammála um þetta atriði, til dæmis
virðast strangtrúarmeni) f Pakistan
tilbúnir að túlka íslamslög öllu
frjálslegar en Komeini og hans
menn.
Smátt skammtað lýðræði
- takmarkað trúfrelsi
Varla þarf að taka það fram að
strangtrúarmenn hafa illan bifur á
„veraldarhyggjumönnum" innan
Islams. Þar er að finna eina af skýr-
ingunum á fjandskapnum milli
írans og íraks, en Baþflokkurinn,
Skæruliðar í Afganistan: hið svívirðilega guðleysi getur verið sovéskt eða vest-
rænt...