Þjóðviljinn - 10.09.1983, Síða 26
26 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 10.—11. september 1985
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Kjördæmisráðstefna Ab á Vestfjörðum
verður haldinn að Birkimel í V-Barðastrandarsýslu dagana 10. og 11.
september. Gestur fundarins verður Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins. ' t
Dagskrá:
Laugardagur:
Sunnudagur:
Ráðstefnan hefst kl. 13.00. Skýrsla formanns. Forval og
forvalsreglur. Framtíð byggðar á Vestfjörðum - lífskjör -
atvinnuskilyrði. Stjórnmálaviðhorfið og fleira. Framsögu-
maður Svavar Gestsson.
Nefndarstörf hefjast kl. 9.00. Kl. 13.00: Skipulag flokksins.
Framsögumaður Svavar Gestsson. Afgreiðsla ályktana.
Kosning stjórnar og uppstillinganefndar. Áaetlað er að
ráðstefnunni Ijúki kl. 17.00.
Stjórn kjördæmisráðs
Alþýðubandalagið Breiðdal
og nágrenni
Aðalfundur Alþýðubandalags Breiðdals og nágrennis verður haldinn föstudag-
inn 9. september í kaffistofu frystihússins. Helgi Seljan alþ.m. mætir á fundinn.
- Stjórnin.
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Aðalfundur félagsins verður haldinn
mánudaginn 12. seþtember kl. 20.30
í húsi Slysavarnadeildarinnar Gróar
að Bláskógum 3, Egilsstöðum.
Venjuleg dagskrá aðalfundar,
þingmennirnir Helgi Seljan og
Hjörleifur Guttormsson ávarþa
fundinnogfjallaum
stjórnmálaviðhorfiö, almennar
umræður. Félagarfjölmenniðog
takið með ykkur nýja félaga. -
Stjórnin.
Helgi
Hjörleifur
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Almennur félagsfundur
Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur almennan
félagsfund miðvikudaginn
14. september kl. 20.30 í Þinghóli.
Dagskrá:
1) Kosning uppstillingarnefndar vegna
aðalfundar félagsins.
2. Astand og horfur í kjaramálum launafólks.
Framsögumaður Asmúndur
Stefánsson forseti ASI.
3) Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
- Stjórn ABK
Ásmundur
Stefánsson.
Æskufýðsfylking Alþyóubandalagsins
Opinn fundur
Verkalýðsmálanefnd ÆFAB boðar til opins fundar að Hverfisgötu 105,
fimmtudaginn 15. september kl. 8.30.
Fundarefni: Undirbúningur fyrir aðalfund verkalýðsmálaráðs Alþýðu-
bandalagsins.
Æskulýðsfylking Alþýðubandaiagsins
U .IVcUWariZeuU
FORSKÓLI SJÚKRALIÐA
Skráning nemenda fer fram í Miðbæjarskóla þriðju-
daginn 13. og miðvikudaginn 14. sept. kl. 17-19.
Innritun í aðrar prófadeildir fer fram 19. og 20. sept. og
í almenna flokka 21. og 22. sept.
NÁMSFLOKKAR REYKJAVÍKUR
Hús til sölu
Tilboð óskast í húseignina Völvufell 11, sem
nýtt hefur verið sem kennsluhúsnæði. Stærð
hússins er 233 m2 á einni hæð. Brunabóta-
mat hússins er kr. 4.955.580.- Húsið verður
til sýnis 10. og 11. sept. n.k. milli kl. 4-6.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á staðnum og
á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík.
Kauptilboð þurfa að hafa borist skrifstofu vor-
ri fyrir kl. 11 miðvikudaginn 14. sept. 1983.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844.
Góð rœkju- og hörpudisksveiði í ágúst
Léleg þorskveiði
hjá togaraflota
Þorskafli togaraflotans í ágúst
var ekki nema 16.134 lestir sam-
kvæmt bráðabirðgatölum Fiskifé-
lagsins en var á sama tíma í fyrra
25.326 lestir. Þorskafli bátaflotans
var hins vegar mjög svipaður í
mánuðinum og í fyrra eða rúmar
8000 lestir.
Heildarþorskaflinn í ágúst var
24.314 lestir en 33.741 lest í ágúst í
fyrra. Það sem af er árinu hafa
komið á land nærri 240 þúsund lest-
ir af þorski en var komið yfir 300
þúsund tonn á sama tíma í fyrra.
Munar mestu um hversu
bátavertíðin í vetur var léleg en þar
munaði um 50 þúsund tonnum af
þorski miðað við vertíðina þar á
undan.
Annar botnfiskafli frá ára-
mótum er aðeins meiri en á sama
tíma í fyrra eða rúmar 220 þúsund
lestir miðað við 216 þúsund lestir.
Verulega góð rækjuveiði var í
síðasta mánuði og var alls landað
rúmum 1300 lestum af rækju en að-
eins 490 lestum í ágúst í fyrra. Það
sem af er árinu hafa verið veiddar
rúmar 8600 lestir af rækju en sem
er um 2000 lestum meira en á sama
tíma í fyrra. Sömu tíðindi er að
segja um hörpudiskinn. Góð veiði
var í síðasta mánuði og hefur nú
verið landað nærri 6000 lestum af
hörpudisk það sem af er árinu en
rúmum 4100 í fyrra.
Mestum afla var landað í
Reykjavík í síðasta mánuði tæpum
6000 lestum og næstmest í
Vestmannaeyjum 3.060 lestum.
Erlendis var landað tæplega 3000
lestum af fiski af íslandsmiðum.
-4g-
Ólafsbók
í smíðum
! í lok næsta mánaðar er væntan-
| legt afmælisrit til heiðurs Ólafi Jó-
; hannessyni fyrrverandi ráðherra
j enhannvarðsjötugurfyrráárinu.
; 1 bókinni verður fjöldi greina
J eftir samstarfsmenn Ólafs bæði úr
! lögfræði og stjórnmálastarfi og
j fjalia margar greinanna um Ólaf
j sjálfan og störf hans, en aðrar um
j lögfræði og samtíðarsögu er tengj-
i ast fræða- og stjórnmálastörfum
j Ólafs.
j Að sögn útgefenda mun margt
; sem fram kemur í ritinu hafa ótví-
i rætt sagnfræðilegt og lögfræðilegt
j gildi. Má nefna m.a. að Magnús
I Torfi Ólafsson blaðafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar og fyrrv. ráðherra
skrifar grein í ritið þar sem fjallað
er m.a. um aðdragandann að þing-
rofi Ólafs vorið 1974.
Alls eru í bókinni ritgerðir eftir
20 samferðarmenn Ólafs, auk þess
sem ýtarlegt viðtal verður við Ólaf
um lífsstarf hans og einnig viðtöl
Þeir ritstýra Ólafsbók, talið frá v.: Leó E. Löve, Þór Vilhjálmsson,
Steingrímur Jónsson og Halldór E. Sigurðsson. Mynd - eik.
við ýmsá samstarfsmenn hans úr
embættiskerfinu.
Það er ísafoldarprentsmiðja sem
gefur ritið út og er almenningi gef-
inn kostur á að gerast áskrifendur
að bókinni og fá þar með nafn sitt
skráð á heillaóskaskrá sem prentuð
verður fremst í henni. Bókin verð-
ur um 320 bls. að stærð og mun
kosta til áskrifenda 690 kr.
í ritnefnd afmælisritsins eiga sæti
þeir Þór Vilhjálmsson, Björn
Sveinbjörnsson, Halldór E. Sig-
urðsson, Leó E. Löve og
Steingrímur Jónsson.
-Ig-
Alsamningarnir
Um hvað samdi Nordal?
Samið eftir að Guðmundur G. og Gunnar
Schram fóru frá Zúrich, segir Tíminn
Álviðræðunum lauk um hádegis-
bilið á miðvikudaginn samkvæmt
frásögn Tímans cn Jóhannes Nor-
dal sagði í kvöldfréttum útvarpsins
að hann væri enn að semja.
Dagblaðið Tíminn gerir þetta að
vonum að umtalsefni og spyr um
hvað Nordal hafi verið að semja,
eftir að Gunnar Schram, Guð-
mundur G. Þórarinsson og dr.
Múller hurfu af vettvangi.
Segir Tíminn að hafi verið um
framhald samninga að ræða, þá
hafi þeir ekki verið um orkuverðið,
því frá því hafi verið gengið að öðr-
um nefndarmönnum viðstöddum.
Þjóðviljinn reyndi árangurslaust
að ná í Jóhannes Nordal í gær til að
forvitnast um samningana eftir að
Guðmundur G. Þórarinsson og
Gunnar G. Schram voru farnir frá
Sviss. _óg
,Álpappírinn frá Zurich‘
Stjórnin breytir
ekki stafkrók!
Ríkisstjórnin fœr að skoða álsamninginn
segir Ragnar Halldórsson
samninga. Þannig hafa engar frek-
ari nákvæmar staðfestar upplýsing-
ar verið birtar af opinberri hálfu
þó svo aðalatriði samningsins hafi
síast út til almennings.
Samkvæmt túlkun Ragnars Hall-
dórssonar er samningurinn hins
vegar þannig að ríkisstjórnin getur
ekki breytt stafkrók í honum, hvað
sem þar kann að finnast til viðbótar
við það sem fram hefur komið í
fjölmiðlum.
-og
Ragnar Halldórsson forstjóri
ísal segir að ríkisstjórnin fái
„samkomulagið“ um álmálið að-
eins til skoðunar í Tímanum í gær.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra segir „báðir aðilar,
bæði ríkisstjórnin og stjórn Alu-
suisse þurfa að leggja blessun sína
yfir þetta bráðabirgðasamkomu-
lag“.
Álforstjórinn segir við Tímann
að ekki sé hægt að tjá sig um inni-
hald samningsins fyrr en stjórnirn-
ar, íslands og Alusuisse hafi fengið
að sjá samkomulagið. Því verði
hins vegar ekki breytt þar sem við-
ræðunefndirnar hafi haft umboð til
Áskrifendur athugið!
Flóamarkaður Þjóðviljans verður framvegis
tvisvar í viku á þriðjudögum og
fimmtudögum. Notfærið ykkur þessa
ókeypis þjónustu okkar.
Ath. Mánaðaráskrift blaðsins er kr. 230.- og
gæti borgað sig að gerast áskrifandi þó ekki
væri nema fyrir eina auglýsingu.