Þjóðviljinn - 10.03.1984, Page 3

Þjóðviljinn - 10.03.1984, Page 3
Helgin 10. - 11. mars' 1984 'ÞJÓÐVFLíjlNN - SÍÐA 3 Frá fréttaritara Þjóðviljans i Lundún- um. Blóðkrabbi í börnum í næsta ná- grenni við kjarnorkuver í Bretlandi hefur að undanförnu beint kast- jjósinu að mögulegum tengslum milli geislavirkrar mengunar og vaxandi tíðni nokkurra tegunda krabbameins í íbúum í námunda við verin. í ljós hefur komið að geislavirk mengun frá kjarnorku- verunum er meiri en áður var talið. Opinberir aðilar hafa freistað þess að draga út hættunni en orðið upp- vísir að því að fara með villandi upplýsingar. I Windscale á strönd Kumbríu er kjarnorkuver sem vinnur úr geisla- virkum úrgangi sem fellur til við framleiðslu kjarnavopna og frá öðrum verum. Windscale er að því leyti frábrugðið venjulegum kjarn- orkuverum að úrgangur sem þar fellur til að lokum er losaður beint í sjóinn, þrátt fyrir harðvítug mót- mæli nágrannaþjóða. Alltof há geislun Um þrjátíu mismunandi geisla- virk efni eru losuð frá Windscale í hafið. Meðal þeirra eru efni á borð við amcrískum og plútoníum, en til marks um skaðleika þess síðar- nefnda má nefna, að vtsinda- mönnum í Karlsruhe í Þýskalandi tókst ekki að einangra svo smáan skammt af efninu að hann ekki ylli krabbameini í hundum og rottum, sem tilraunir voru gerðar á. Svo mikil er mengunin orðin í nágrenni við verið að bæði amerík- um og plútoníum má mæla í lofti, grænmeti sem framleitt er á ökrun- um, fiskinum utan við ströndina og meira að segja í mjólkinni úr kún- um. Alþjóðastofnanir hafa sett regl- ur um hversu mikið magn geislunar hver einstaklingur má fá í sig yfir æviskeiðið án þess að verða meint af. Margir hafa gagnrýnt þessi op- inberu hámörk, talið þau alltof há. Eigi að síður hefur sá íbúahópur, sem fyrir mestri geislun hefur orð- ið, fengið á síðastliðnum átta árum meira magn geislunar en nemur æviskammtinum. Pess má geta að við stofnun Windscale kjarnorkuversins var því lofað af breskum stjórnvöldum að magn geislavirks úrgangs sem losað var í hafið myndi ekki aukast frá fyrsta árs losuninni. Magnið hefur nú hundraðfaldast. Mengunarinnar vart við ísland Þessar upplýsingar ollu nokkru uppnámi meðal íbúa í nágrenni Windscale, því sum hinna geisla- virku úrgangsefna frá verinu setj- ast í setið á botni sjávarins undan Kumbríu. Setið berst svo uppá ströndina og safnast þar fyrir, sér- staklega við lón. Börn að leik í fjö- runni eða sólbaðendur eru því í nokkurri hættu. Þetta hafa nú stjórnvöld viðurkennt einsog sést af því að sérfræðingar þeirra hafa uppá síðkastið ráðlagt fólki að halda sig fjarri ströndinni. Sömu sérfræðingar hafa enn- Geislavirk mengun veldur krabbameini Tíðni krabbameins eykst Opinberir aðilar halda því frant að geislamengun frá Windscale hafi ekki aukið tíðni krabba. Ný- legar tölur frá Kumbríu sýna liins vegar að í vesturhluta Kumbríu hefur krabbamein í körlum vaxið frá því að vera tíu prósent undir landsmeðaltali árið 1969 til að vera 17 prósent yfir því árið 1980. Sömu sögu er að segja unt konur. í fólki yfir 45 ára aldri hefur krabbamein í meltingargangi skotist uppí að vera tvöfalt hærra en landsmeðaltal. Eftir því sent nær dregur Winds- cale eykst tíðni krabbanteins, og í Seascale, næsta þorpi við sjálft ver- ið, er tíðni blóðkrabba f börnum undir tíu ára aldri tífalt hærra en á landsmælikvarða. Yfirvöld hafa svarað með því að segja að ekkert sé hægt að byggja á einum slíkum hnappi blóðkrabba í börnum, því hnappdreifing meinsins væri þekkt fyrirbæri. Til stuðnings nefndu þau þrjú önnur dænti unt óeðlilega háa tíðni blóð- krabba í smáum þorpum. Til að vekja athygli á geislavirkri inengun frá kjarnorkuverinu í Windscale, þá losuðu nágrannar versins geislavirka lcðju frá strönd um Kumbríu framan við Downing Street 10, aðsetur Margrétar Thatcher, forsætisráðherra Breta. En þar voru stjórnvöld óheppin nteð rök: tvö þessara þorpa eru nefnilega í námunda við önnur kjarnorkuver. Ossur Skarphéðinsson. frentur kontist á þá skoðun að Kumbría sé ekki heppilegur staður til að ala upp börn, sem hefur að vonum ekki veitt foreldrum mikla huggun. Eitt af-þeim efnunt sern losuð eru frá Windscale er Sesíum-137. Ný- birtar skýrslur herma að þess hafi fundist merki við Grænland og norður af íslandi. Sesíum-137 er tekið upp af fiski, og gegnunt fisk- neyslu gefur Sesíum-137 gervallri bresku þjóðinni smáan, en þó mælanlegan geislunarskammt. Að órannsökuðu máli virðist fráleitt nema tímaspursmál hvenær Græn- lendingar og íslendingar verða því undirorpnir líka. Geislaryk í íbúðarhúsum Opinberir aðilar sem eiga að gæta þess að geislamengun frá Windscale fari ekki úr böndum hafa verið gagnrýndir fyrir að kanna ekki hversu mikil geislam- engun safnast fyrir í híbýlum fólks í námundavið verið. Náttúruvernd- arsamtök á borð við Grænfriðunga tóku því höndum saman við íbúa á svæðinu og fengu óháða sérfræð- inga frá Bretlandi og Bandaríkjun- um til að mæla geislavirkni í ryki sem safnað var í ósköp venjulegar ryksugur í húsunum. Geislavirkni fannst í sýnum frá öllum húsunum. Hinir opinberu sérfræðingar reyndu að draga úr mikilvægi geislaryksins með því að reikna út að til að skaðast að ráði þyrftu menn að éta sem svaraði tíu kílóum á ári af rykinu. Þessu var svarað með því að benda á, að það væri ekki magnið sem fólk fengi ofaní maga sem skipti máli, heldur það sem andað væri ofaní lungu. Ekki mun þurfa nema örfá grömm af ryki sem er jafngeislavirkt og strandryk sums- staðar af Kumbríu til að valda meini, andi fullorðnir því að sér. Þegar þess er gætt að börn taka yfirleitt upp um hundrað sinnum meir en fullorðnir, þá sést hvílík hætta er á ferðum. Fílsterkur f rarrvtíðarbíll! Uno þessi galvaniseraöi meö 6 ára ryövarnarábyrgö Ekki sœtta þig viö annaö en þaö besta. í FLA.T UNO íinnur þú ílesta þá kosti sem góóan bíl mega prýða. Kostirnir eru raunar svo margir að þeim verða ekki gerð nein tœmandi skil í stuttu máli en hér veröa taldir nokkrir þeir helstu: HVERGI .. BETRIIUOR Rými Gottpláss fyrir ökumann og íarþega jaínvel betra en gerist í stœrri og miklu dýrari bílum, 4.3 lítrar/lOO km. Aksturseiginleikar, UNO er írábœr í akstri, íisléttur í stýri, vióbragðsíljótur, kraítmikill og í óíœrð- inni heíur hann staðiö sig írábœrlega vel, svo vel að við höíum geíið honum naínið SKAFLAKLJÚFURINN, FIAT UNO er sérstaklega sparneytinn, og má neína aö í sparakstursprófi sem íram íór á Ítalíu á s.l. sumri var meðal- eyðsla hjá UNO ES 3.9 lítrar á hundraði. Á 90 km. meðalhraða eyðir UNO ES 4.3 lítrum og UNO 45 Super 5 lítrum á hundraði. 1929 EGILL VILHJÁLMSSON HF. Smiðjuvegi 4. Kópavogi. Símar 77200 - 77202 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.