Þjóðviljinn - 10.03.1984, Page 26

Þjóðviljinn - 10.03.1984, Page 26
26SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 10. - 11. mars 1984 Opið hús Akureyri Opið hús verður haldið í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18 sunnudaginn 11. mars nk. kl. 15.00. Veitingar og skemmtiatriði. Mætið vel. - Stjórn Alþýðubandalagsins Akureyri. Alþýðubandatagið í Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur Fundur verður haldinn nk. mánudag 12. mars í bæjarmálaráði ABH í Skálanum Strandgötu 41, kl. 20.30. Fundarefni: Ályktunartillögur við afgreiðslu fjárhagsáætlunar og önnur mál. - Félagar fjölmennið. - Stjórnin. ABR Taflkvöld Alþýðubandalagið í Reykjavík efnir til taflkvölds þriðjudaginn 13. mars kl. 20.00 í Flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105. Áformað er að tefla 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Umhugsunartími verður 15 mínútur á hverja skák fyrir hvorn keppanda. Þátttakendur taki með sér tafl og klukku.__________________________________Nefndin Alþýðubandalagið Garðabæ Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn sunnudaginn 11. mars kl. 10.30 að Heiðarlundi 19. Félagar hvattir til að mæta. Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins i Ragnar Óttarr Ottó Verkalýðsmálanefnd ÆFAB: Opinn fundur Verkalýðsmálanefnd ÆFAB heldur opinn fund mánudag I2. mars kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Dagskrá: 1. Unga fólkið og kjarabaráttan. Framsögum.: Kormákur Högnasort. 2. Undirskriftasöfnun kynnt. Framsögum.: Ragnar A. Þórsson. 3. Starf verkalýðsmálanefndar á næstu mánuðum. Framsögum.: Óttarr M. Jóhannsson. Fundarstjóri Ottó Másson. Heitt á könnunni og með því. Fjölmennið. - Verkalýðsmálanefnd ÆFAB. Kormákur. Áhugafólk um uppeldismál Bente Storm fóstra og verknámsleiðbeinandi frá Dan- mörku heldur fyrirlestur í Norræna húsinu mánudag- inn 13. mars n.k. kl. 17. Fyrirlesturinn fjallar um uppeldisstörf á dagvistar- stofnunum í Danmörku. Öllum heimil þátttaka. Fóstruskóli íslands Fóstrufélag íslands Laus staða Staða ritara í félagsmálaráðuneytinu er laus til um- sóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf skulu hafa borist félagsmálaráðuneytinu fyrir 26. mars nk. Félagsmálaráðuneytið, 8. mars 1984. Tilboö óskast i eftirfarandi fyrir Hitaveitu Reykjavikur. 1. Smíöi pípuundirstöðu. Tilboöin verða opnuö á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3 Reykjavik, þriðjudaginn 20. mars 1984 kl. 11 f.h. 2. Smiði dæluhluta í dælustöð við Stekkjarbakka. Tilboðin veröa opnuð á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3 Reykjavík, miðvikudaginn 21. mars 1984 kl. 11 f.h. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3 Reykjavik gegn 1.500.- kr. skilatryggingu fyrir hvert verk fyrir sig. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Andóf gegn eitur- efnum Undanfarið hefur JC Hafnar- fjörður gengist fyrir herferð til að vekja athygii á skaðsemi fikniefn- anotkunar, og því, að mcira virðist vera af þessum efnum í umferð um þessar mundir en undanfarin ár. Liöur í þessari herferö var útgáfa bæklings, sem innihélt viðtöl viö unglinga, viðtal við Æskulýðsfull- trúa Hafnarfjarðar og grein eftir lækni. Bæklingnum var dreift í hvert hús í bænum. Ennfremur voru útbúnir límmið- ar, sem á voru ýmiss konar slagorð gegn fíkniefnanotkun, svo sem „Margur verður af vímu viðundur" og fleira í þeim dúr. Hápunktur herferðarinnar voru síðan hljómleikar sem haldnir voru í veitingahusinu TESS að Trönu- hrauni í Hafnarfirði í sl. mánuði. Þar komu fram hljómsveitirnar Herramenn, Omicron Grafík, Gammarnir og Frakkarnir. Inn á milli var skotið stuttum fræðsluer- indum. Urn 300 manns sóttu þessa hljómleika, sem þóttu takast í alla staði vel. Hugmynda- samkeppni um aukna hagsýni í opinberum rekstri Ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga vilja auka hagsýni í opinberum rekstri. Markmiðið er að bæta þjónustu hins opinbera við borgarana en lækka kostnað við hana. Málið varðar alla landsmenn. Þess vegna hefur verið ákveðið að efnatil hugmynda- samkeppni, þar sem öllum er heimil þátttaka og veita þrenn verðlaun fyrir áhugaverðustu tillögurnar sem nefndinni berast. Verðlaunin verða að fjárhæð 10.000 kr., 7.500 kr. og 5000 kr. SkilafresturertiH. júní nk. Hagræðingartillögurnar skal senda: Samstarfsnefnd um hagræðingu í opinberum rekstri pósthólf 10015130 Reykjavík eða í Fjármálaráðuneytið, Fjárlaga- og hagsýslustofnun Arnarhvoli 101 Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.