Þjóðviljinn - 16.01.1987, Blaðsíða 1
Vegna viðtalsins við „Hallgrím" sem
Þjóðviljinn birti í gær hefur Operan nú
boðið honum á sýningu á Aidu.
Fátœktin
„Hallgrímui"
í Óperuna
íslenska Óperan býður
öryrkjanum sem
Þjóðviljinn rœddi við í
gœr á sýningu áAidu.
Vegna viðtals sem Þjóðviljinn
birti í gær við 65 ára gamlan
öryrkja sem getur ekki látið það
eftir sér að sækja óperusýningar
af sínum litlu efnum, hefur Óper-
an boðið manninum tvo miða að
sýningu á Aidu.
„Ég er mjög þakklátur og hefði
gaman af að fara“ sagði boðsgest-
urinn í samtali við Þjóðviljann,
„ég hugsa að ég fái son minn með
mér á sýninguna."
Öryrki þessi skýrði frá því í við-
tali við Þjóðviljann í gær að hann
yrði að lifa á örorkubótum sem
eru undir lágmarkslaunum. „Ég
reyni að lifa spart og fer aldrei í
bíó“ sagði hann meðal annars í
viðtalinu við Þjóðviljann. „Mig
langar oft í Óperuna en það þýðir
ekki að láta sér detta það í hug.“
Hann hefur nú fengið ósk sína
uppfyllta vegna þessa góða boðs
íslensku Óperunnar. vd.
Fátœkt
5 heimili
á tveimur
árum
„Ég hefði aldrei trúað því að ég
ætti eftir að ganga í gegnum það
sem ég hef gengið eftir að ég
skildi. Það sem kemur mér þó
mest á óvart í þeirri reynslu er
það hversu illa ég hef farið út úr
viðskiptum mínum við þær stofn-
anir sem hafa þann tilgang að
hjálpa fólkí,“ segir Karen Guð-
mundsdóttir, einstæð móðir með
tvö börn sem hefur þurft að flytja
5 sinnum á tveimur árum. í við-
tali hér í blaðinu greinir Karen frá
reynslu sinni af Félagi einstæðra
foreldra og Félagsmálastofnun,
en hún ber þessum stofnunum
ekki fagra söguna. -K.Ól.
Sjá bls. 5
| FÁTffiKT j)
Sjómannasamningarnir
Skárra en kjaradómur
Óskar Vigfússon: Ágœtt miðað við aðstæður. Magnús Kjartansson: Gáfum allt ofmikið eftir
Eftir hádegið í gær undirrituðu
samningsaðilar í deilum sjó-
manna og útvegsmanna sam-
komulag það sem náðist í deilunni
klukkan 8 í gærmorgun. Þá höfðu
samningsaðilar setið við samn-
ingaborðið í samfellt 21 klukku-
stund, en mest af þeim tíma fór í
að ná samkomulagi um kostnað-
arhlutdeild sem er eftir
samkomulagið 75% en var áður
71%. Þá var samið um það að
kostnaðarhlutdeildin verði tengd
olíuverði svo og um starfsaldurs-
hækkanir og ýmis réttindamál
sjómanna.
Krafa sjómanna hafði, áður en
slitnaði uppúr viðræðum á sunn-
dag, verið 79% og tilboð úvegs-
manna 73%. Sjómenn hafa því
verulega slegið af kröfum sínum.
„Miðað við þær aðstæður sem
fyrir hendi voru eru þetta ágætir
samningar og með því að binda
oh'uverð og skiptaprósentu höf-
um við tryggt okkur réttmæta
hlutdeild í ágóðanum," sagði
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambandsins um samning-
ana. Ekki voru þó allir á eitt sáttir
um ágæti samninganna: „Við gáf-
um allt of mikið eftir,“ sagði
Magnús Kjartansson fulltrúi
Öldunnar í samninganefnd Far-
manna og fiskimanna og Sveinn
Kristinsson hjá Sjómannafélagi
Eyjafjarðar sagðist kvíða því að
koma heim með pakkann. Sjó-
menn voru þó flestir sammála um
það að hefði frumvarp ríkis-
stjórnarinnar náð í gegn að ganga
hefðu sjómenn komið ver útúr
kjaradeilunni en ella.
Utvegsmenn virtust ánægðari
almennt en sjómenn með þessa
samninga. „Ég vil ekki trúa öðru
en að við höfum verið að gera rétt
með þessum samningum," sagði
Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ og Einar Guðfinnsson full-
trúi úvegsmanna á Vestfjörðum
sagði: „Við erum ánægðir og ég
held að allir sem að samningun-
um stóðu séu það.“
Að sögn Kristjáns Ragnars-
sonar kosta samningarnir útvegs-
menn á milli 250-300 miljónir, en
hver prósenta í kostnaðarhlut-
deild er talin vera á milli 50-60
miljónir. Að sögn Hólmgeirs
Jónssonar hagfræðings
Sjómannasambandsins er út-
gerðin, eftir þessa samninga,
skilin eftir með 3% gróða miðað
við 6% ávöxtun.
Samningarnir voru bomir
undir félagsfundi í gær og á
nokkrum stöðum í dag. Ef samn-
ingarnir verða samþykktir verður
verkfalli aflýst samstundis.
—K.Ól.
HP-könnun
AB og Kvennó vinna á
Kratasóknin dvín. Alþýðubandalagið nálægt tveimur
mönnum á Reykjanesi
Inýbirtri skoðanakönnun Skáís í
Helgarpóstinum sækja Alþýðu-
bandalagið og Kvennalisti á mið-
að við fyrri kannanir blaðsins.
Kratasóknin dvínar og Sjálfstæð-
isflokkur stendur í stað með rúm-
an þriðjung svara þeirra sem af-
stöðu tóku.
Þriðjungur spurðra neitar að
svara, segist óákveðinn, ætlar að
skila auðu eða sitja heima. Af
þejm sem afstöðu tóku sögðust
24,2% styðja Alþýðuflokk (28,6 í
síðustu HP-könnun, 11,7 í kosn-
ingunum ’83), 15,7% styðja
Frámsókn (16,2-18,5), 0,4%
styðja BJ (0,2-7,3), 35% styðja
Sjálfstæðisflokk (34,7-38,7),
15,7% styðja Alþýðubandalag
(13,6-17,3), 8,8% styðja
Kyennalista (6,4-5,5), 0,2%
styðja Flokk mannsins.
ÍHelgarpóstinum reiknast til að
faaru kosningar eins fengju kratar
15 þingmenn, Framsókn 10,
íhaldið 23, Allaballi 10 og
Kvennó 5.
Könnun Helgarpóstsins er
skipt í þrennt, Reykjavík,
Réykjanes og landsbyggðin, og
kemur í ljós að kratar tapa frá
si'öustu HP-könnun um 6% í
Reykjavík og á Reykjanesi, um
2% á landsbyggðinni. Framsókn
og Sjálfstæðisflokkur standa alls-
staðar í stað. Kvennalisti tapar
2% í Reykjavík, vinnur 2% á
Reykjanesi og á landsbyggðinni.
Alþýðubandalagið vinnur 2% í
Reykjavík, stendur í stað á lands-
byggðinni og vinnur 5% á
Reykjanesi frá síðustu HP-
könnun, úr 8 í 13% og er mjög
nálægt tveimur mönnum þar
samkvæmt þessum tölum.
f könnuninni var einnig spurt
um afstöðu til ríkisstjórnarinnar
og sögðust 40% hlynntir, 36%
andvígir, aðrir óákveðnir eða
neituðu að svara.
Könnunin er símakönnun og
hringt í 800 manns.
- m
Sjómenn gera klárt eftir að skrifað var undir samninga í
gær, en verkfalli verður samstundis aflétt samþykki sjó-
menn samningana. (Á innfelldri mynd eru Kristján Ragn-
arsson formaður LÍU og Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambandsins). Mynd E.ÓI.
Undirskriftatafir
Vestfirsk
fýla eða
vélstjóraþóf
Um tveggja tíma töf varð á því
að samningar sjómanna væru
samþykktir í „Karphúsinu“ í gær
og fengu fréttamenn og ýmsir
aðrir þá skýringu að vélstjórar
krefðust leiðréttingar á einhverj-
um atriðum rétt áður en undir-
skriftin átti að fara fram.
Þjóðviljinn hefur hins vegar
fyrir því heimildir að önnur
ástæða fyrir þessari töf hafi verið
sú að Bolvíkingar hafi ekki viljað
samþykkja vegna þess að fulltrúi
þeirra í samninganefnd
Vestfirðinga hafi ekki verið boð-
aður á fundinn í síðustu lotu
samningaviðræðnanna. Útvegs-
menn svöruðu þessari hótun með
því að neita að skrifa undir fyrr en
allir aðilar væru með og fólst
lausn mála í því að réttir aðilar á
Bolungarvík voru beðnir afsöku-
nar á mistökunum. Þess má geta
að formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Bolungavíkur er
Karvel Pálmason, en Pétur Sig-
urðsson formaður ASV er einn af
helstu stuðningsmönnum Sig-
hvats Björgvinssonar. -K.Ól.
Ferðalög
Út vil ek
Það sóttu 400 manns um að
komast á námskeið í farseðlaút-
gáfu og fargjaldaútreikningi hjá
einni ferðaskrifstofunni fyrir
nokkru.
Flugleiðir eru að hefja ferðir til
Massachussets í Bandaríkjunum.
f mars nk. verður hafin útgáfa á
nýjum vegabréfum hér á landi,
m.a. vegna kvartana erlendis frá
um falsanir í íslenskum vegabréf-
um.
f blaðauka Þjóðviljans í dag
um ferðalög erlendis er sagt nán-
ar frá þessu. Einnig er viðtal við
Einar Gíslason starfsmann
RALA að Keldnaholti um ferða-
lög hans til Mexíkó og Egypta-
lands.
Sjá nánar „Út vil ek“
bls. 9-16.
Föstudagur 16. janúar 1987 11. tölublað 52. árgangur