Þjóðviljinn - 16.01.1987, Page 2
Hrefna Magnúsdóttir
textíi listakona
Eyðni. Þetta virðist vera svo gjör-
eyðandi sjúkdómur og það er því
rökrétt að nota það orð.
Söngvakeppnin
r—SPURNINGIN
Hvaða íslenska orð
finnst þér að eigi að nota
yfir sjúkdóminn sem hef-
ur verið kallaður AIDS á
ensku?
n-
FRÉTTIR
Tíu
lög
valin
Höfundarfá 150
þúsund í úrvinnslu-
styrk. Lögin kynntí
febrúar
Verða Gamlar glóðir arftaki
Gleðibankans? Eða Lífsdansinn?
Ég leyni minni ást? Dómnefnd
hefur nú valið tíu lög úr 59 að-
sendum til að fara í innan-
landsúrslit í söngvakeppni sjón-
varpsstöðva, og fá aðstandendur
hvers lags 150 þúsund króna styrk
til að fullvinna efni sitt.
f frétt frá Sjónvarpinu segir að
tilhögun nú sé með öðru sniði en í
fyrra, höfði frekar til fagmanna
en áhugamanna, og hafi því færri
tillögur borist. Lögin verða kynnt
í sjónvarpi í febrúar, úrslit innan-
lands verða 9. mars, en sjálf
keppnin í Brussel 9. maí.
Lögin sem fara í úrslit eru: Lífs-
dansinn (Geirmundur Valtýsson/
Hjálmar Jónsson), Ég leyni minni
ást (Jóhann G. Jóhannsson), í
blíðu og stríðu (Jóhann Helga-
son), Mín þrá (Jóhann G. Jó-
hannsson), Lífið er lag (Gunn-
laugur Briem, Friðrik Karlsson,
Birgir Bragason), Hægt og hljótt
(Valgeir Guðjónsson), Sofðu
vært (Ólafur Haukur Símonar-
son), Hanastél (Gunnar
Þórðarson/Ólafur Haukur
Símonarson), Gamlar glóðir
(Þorgeir Daníel Hjaltason, Ið-
unn Steinsdóttir) og Aldrei ég
gieymi (Axel Einarsson/Jóhann
G. Jóhannsson).
í dómnefnd voru Jakob
Magnússon, Magnús Eiríksson,
Magnús Kjartansson, Hrafn
Pálsson og Ásmundur Jónsson.
íúnar Garðarsson
bóndi
Leikfélagið Baldur
Ég hef ekki myndað mér nokkra
skoðun á því.
Áslaug Friðriksdóttir
vinnur við afgreiðslu
Alnæmi er jákvætt orð, en eyðni
er ágætt líka, það lætur betur í
munni.
Helgi Felixson
starfsmaður Útideildar m.m.
Eyðni er hreinskilið og gott orð,
það er ekki verið að fela neitt með
því. Það er best að segja sann-
leikann og nota það. Það væri
feluleikur að nota jákvæð orð og
Ijós hræðslunnar skín í gegnum
slíkt.
Ingólfur Arnarsson
starfar við fiskirækt
Alnæmi er besta orðið.
Fjársjóður Franklíns greifa fundiim?
Fjallar um leit að hamingju segir höfundurinn, Hafliði
Magnússon
Um þessar mundir sýnir leikfé-
lagið Baldur á Bfldudal nýjan ís-
lenskan söngleik eftir heima-
mann; fjársjóð Franklíns greifa
eftir Hafliða Magnússon.
Hafliði Magnússon sagði í gær
er við spurðum hann um þetta
nýja verk hans að söngleikurinn
Fjársjóður Franklíns greifa væri
gamansöngleikur sem fjallaði um
leit fólks að hamingjunni og mis-
munandi aðferðir manna við
þann verknað og misjafnan skiln-
ing manna á hugtakinu.
„Atburðarás söngleiksins er í
höfuðdráttum sú, að fyrir u.þ.b.
öld síðan ferst enskt skip og að-
eins einn maður kemst lífs á land
með fjársjóð mikinn og góðan í
farteski sínu. Hann rekur upp á
land á eyðiströnd og grefur þar
fjársjóð sinn hinn góða og gerir
svo kort af svæðinu til að gera sér
léttara að finna sjóðinn síðar.
Honum lukkast það þó ekki, því
hann verður úti á leið til byggða.
Víkur nú sögu til nútímans og er
upp risin byggð þar sem skip-
brotsgreifa áður bar á land og
finnst nú kortið og hefst nú æðis-
gengin leit fjölda manns að fjár-
sjóðnum og gerast ýmis ævintýri
henni tengd. Leikurinn var frum-
sýndur þann 29. nóvember sl. og
hafa verið 3 sýningar á Bíldudal
fyrir fullu húsi, en auk þess ein á
Patreksfirði og ein að Birkimel
og nú stendur til að leggja upp í
leikför norður um Vestfirði og
síðan hugsanlega til Reykjavíkur
með vorinu.Leikstjóri er Oddur
Björnsson, og höfundur laga
ásamt Hafliða er Ómar Óskars-
son, fyrrum gítarleikari með
Pelikan og fleiri stórpopphljóm-
sveitum. Fjöldi fólks starfar að
sýningunni - Ieikarar, söngvarar,
hljóðfæraleikarar o.s.frv.
Leikfélagið Baldur á Bíldudal
hefur starfað kröftuglega síð-
astliðin 20 ár og hefur á þeim tíma
ekki ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur og þegar gluggað
er í gegn um verkefnaskrána þá
gefur að líta mörg stórvirki
leikbókmenntanna, bæði innlend
og erlend, t.d. Tobacco Road,
Mýs og menn, Maður og kona,
svo einhver séu nefnd af handa-
hófi. -sá
Höfundur söngleiksins nýja, Hafliði Magnússon.
Markaðsöflun
Framleiðnisjóður neitar
Samtök sauðfjárbænda sóttu um fjárframlag til markaðsmála. Starri í Garði
krefur sjóðstjórnarmenn sagna
og eys miljónum á miljónir ofan í stjórn Framleiðnisjóðs sitja
til að kaupa upp framleiðslurétt m.a. Ingi Tryggvason formaður
bújarða, til að leggja þær í eyði Stéttarsambands bænda og Jónas
Samtök sauðfjárbænda sóttu á
sl. hausti um fjárveitingu úr
Framleiðnisjóði til þess að vinna
að markaðsmálum fyrir
sauðfjárafurðir, 10 milj. kr. á
ári, næstu fimm árin. Stjórn
Framleiðnisjóðs afgreiddi þessa
umsókn snarlega fyrir áramót
með aigerri neitun.
Framleiðnisjóður virðist hafa
yfir geysimiklu fjármagni að ráða
sem slíkar, til byggingar reiðhall-
ar í Reykjavík, o.fl. í þeim dúr.
En þegar samtök bænda sjálfra,
sem tilraun vilja gera til markaðs-
uppbyggingar, sem gæti orðið
lykillinn að lausn vandans í land-
búnaðinum, sækja um fjárfram-
lög úr Framleiðnisjóði, þá
þeim neitað.
er
Jónsson, búnaðarmálastjóri.
Stóðu þeir að þessari neitun? Því
verða þeir skilyrðislaust að svara.
Hér er á ferðinni stórt
hneykslismál, sem ekki má liggja
í láginni, og því kem ég þessari
frétt á framfæri í Þjóðviljanum.
14. janúar, 1987.
Starri í Garði.
Þú gast vel hringt og sagt mér hvað
væri að frétta, Steingrímur. Þú veist að '
Matti Matt hefur aldrei samband við mig að
fyrra bragði.
Ég frétti fyrir tilviljun af þessu
sjómannaverkfalli þegar ég hitti
sendiherrann yfir glasi, og hann
sagði bara að þið virtust vera að
redda þessu þannig
að ég hafði engar
áhyggjur.
Já,
^ Þorsteinn
en...
’ó Jeflerson Commumcations, Inc 1985
Distributed by Tribune Medja Services, Inc.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Föstudagur 16. janúar 1987