Þjóðviljinn - 16.01.1987, Page 3
FRETHR
Númer
Kennítalan á skattinum
Aríð 1987 aðlögunartími fyrír kennitölurnar.
Nafnnúmerin áfram gild út árið
Gamla nafnnúmerakerfið verð-
ur lagt niður í áföngum á
næstunni og upp tekið svokallað
kennitölukerfí eins og tíðkast í
Danmörku og Svíþjóð og er árið í
ár einskonar aðlögunartími fyrir
nýja siðinn.
Kominn var tími til að endur-
skoða gamla kerfið að áliti Hag-
stofumanna, enda var það löngu
sprungið og nokkuð orðið um að
menn hafi sama nafnnúmer.
Kennitölukerfið er þannig
samansett að fyrst kemur tveggja
stafa tala sem stendur fyrir mán-
aðardag afmælisdags, síðan
önnur fyrir númer mánaðar og
síðan hin þriðja, sem eru tveir
seinni tölustafirnir í fæðingarári
viðkomandi og svo að síðustu
fjögurra stafa tala. Dæmi: 24 07
46 2923.
Hagstofan hefur fyrir nokkru
lokið undirbúningi sínum fyrir
þessa breytingu og er ekkert sem
Guðmundur Óli Scheving, Anna Kristjánsdóttir og Helgi Birgir Schiöth, á skrif-
stofu BJ í gær, en þau skipa efstu sæti framboðslistans í Reykjavík. Ljósm. Sig.
BJ 4ra ára
Afram á
braut Vilmundar
Listi BJ íReykjavík kynntur ígœr. Deilan um
eignir BJ í höndumfógeta
hamlar því af hennar hálfu að
breytingin verði og þegar skatta-
framtalseyðublaðið birtist innan
tíðar þá mun gefa að líta hin nýju
númer.
Launaskattsframtöl og sölu-
skattsframtöl verða þó áfram
með gamla laginu út þetta ár og
einnig eru ýmsar ríkisstofnanir
skemmra á veg komnar en Hag-
stofan í undirbúningi fyrir hið
nýja kennitölukerfi og t.d. verð-
ur breytingum á tekjubókhald-
skerfi ríkissjóðs ekki lokið fyrr en
á seinni hluta ársins og því verða
öll gögn frá ríkissjóði, innheimtu-
mönnum ríkissjóðs og launadeild
fjármálaráðuneytisins með
gömlu nafnnúmerunum.
Árið 1987 verður því nokkurs
konar aðlögunartími fyrir hið
nýja kennitölukerfi og verða
bæði kerfin notuð samhliða en
vonandi lætur fólk það ekki rugla
sig í ríminu enda vart ástæða til.
-sá.
„Þetta verður erfið barátta,
það er Ijóst. Það er ekki nema von
að almenningur telji að kosningar
séu skrípaleikur þegar alþingi
tekur ekki einu sinni afstöðu þó
heill þingflokkur fjúki. Það bitn-
ar auðvitað á okkur og hefur ver-
ið það eina sem heyrst hefur frá
BJ lengi. Það á eftir að breytast,“
sagði Anna Kristjánsdóttir,
bankastarfsmaður, sem skipar
fyrsta sætið á framboðslista BJ í
Reykjavík.
I gær, 15. janúar voru liðin 4 ár
frá því Vilmundur heitinn Gylfa-
son stofnaði Bandalag jafnaðar-
manna og fékk 4 menn kjörna í
kosningunum 4 mánuðum síðar.
Af því tilefni kynntu BJ-menn
kosningastefnuskrá sína og fram-
boðslista í Reykjavík í gær, en
áður hafði listi BJ í Reykjanesi
verið kynntur, Þrjú efstu sætin í
Reykjavík skipa: Anna Krist-
jánsdóttir, Helgi Birgir Schiöth
og Guðmundur Óli Scheving.
Þorsteinn Hákonarson, Örn S.
Jónsson og Alfreð Guðmundsson
skipa þrjú efstu sætin í Reykja-
nesi og kom fram hjá þessum
hópi í gær að enn er stefnt að því
að bjóða fram í öllum kjördæm-
um.
En það gerðist fleira á afmælis-
degi BJ. í gærmorgun fór lög-
maður á þess vegum með kröfu
um innsetningargjörð til fógeta
og vænta BJ-menn þess að
deilum þeirra um fé og aðrar
eignir BJ við fyrrverandi þing-
menn flokksins ljúki með því að
þingmennirnir bregðist við til-
mælum fógeta og afhendi honum
bókhaldsgögn og sjóði sem þeir
hafa undir höndum .
„BJ lifir enn þó þingmennirnir
hafi hlaupist undan merkjum,"
sögðu frambjóðendurnir í gær.
„Vinnslukjarninn sem að baki
þeim stóð starfar enn og mun ó-
trauður halda áfram á þeirri
braut sem Vilmundur Gylfason
markaði".
-ÁI
Keflavík
Sjúkrahússtjóri hættur
Eins og komið hefur fram, hef-
ur framkvæmdastjóri Sjúkra-
húss Keflavíkur, Eyjólfur Ey-
steinsson sagt upp störfum nú ný-
verið og hefur stjórn sjúkrahúss-
ins samþykkt uppsögn hans.
Hafa menn leitt getum að því
hvað liggi að baki uppsögn þess-
ari og eftir því sem næst verður
komist virðist vera um að ræða
mismunandi skoðanir núverandi
stjórnar sjúkrahússins og fram-
kvæmdastjórans fyrrverandi á
rekstri sjúkrahússins.
Fyrri stjórnir sjúkrahússins
höfðu markað ákveðna stefnu og
var megininntak hennar aukin
þjónusta við íbúa Suðurnesja, en
núverandi sjúkrahússtjórn virðist
ekkert vilja með gerðir og mark-
mið fyrrverandi bæjarstjórnar að
gera.
Þar sem ekki hafa fundist leiðir
til að leysa þennan ágreining á-
kvað Eyjólfur að segja upp starfi
sínu. _sá
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ í REYKJAVÍK
FELAGSFUNDUR
á HÓTEL SÖGU
laugardaginn 17. janúar ki. 14:00
Fundarefni: Framboðslisti vegna komandi alþingiskosninga
Fundarstjóri: Þráinn Bertelsson
Tillaga kjörnefndar: Hrafn Magnússon
formaður kjörnefndar
Ávörp frambjóðenda
Þráinn
Hrafn
Snorri
Guðmundur Ólafsson
leikari
les Ijóð
eftir
Snorra Hjartarson
skáld
FÉLAGAR
fjölmennum og sýnum samstöðu í upphafi kosningabaráttu
Guðmundur