Þjóðviljinn - 16.01.1987, Qupperneq 8
GLÆTAN
sýnir leikritið um
KAJ MUNK
í HALLGRÍMSKIRKJU
4. sýning sunnudaginn 18. janúar kl. 16.00,
uppselt.
5. sýning mánudaginn 19. janúar kl. 20.30.
6. sýning sunnudaginn 25. janúar kl. 16.00,
uppselt.
7. sýning mánudaginn 26. janúar kl. 20.30.
Miöapantanir allan sólarhringinn í síma
14455, miöasala opin: sunnudaga frá kl.
13.00 og mánudaga frá kl. 16.00 og á laugar-
dögum frá kl. 13.00-18.00 fyrst um sinn.
LEIKHÚSIÐ í KIRKJUNNI
Þegar minnst var á útvarp
framhaldsskóla, rifjaðist upp
fyrir okkur að einhver tilrauna-
starfsemi var með slíkt hjá
svæðisútvarpinu á Akureyri í
fyrra. Við náðum tali af Finni
Gunnlaugssyni, öðlingi hjá
svæðisútvarpinu, en hann
hafði umsjón meðtilraunum
þessum:
„Þannig var aö svæðisútvarpið
var mjög gagnrýnt, einkum af
ungu fólki sem fannst lítið af efni
útvarpsins höfða til sín. Þótti
þeim þetta sérlega súrt í brotið
vegna þess að við rufum dagskrá
Rásar 2 klukkan fimm og þannig
misstu þau af síðasta klukkutím-
anum án þess að fá neitt í staðinn.
Við tókum því á það ráð að
leita til framhaldsskólanna hér
um að vera hver með hálftíma
þátt einu sinni í viku. Mennta-
skólinn, myndlistarskólinn, tón-
listarskólinn og verkmennta-
skólinn tóku vel í þetta og við
byrjuðum seinni hluta haustsins
1985 með þessa þætti.“
Og hvernig mæltist þetta fyrir?
„Ekki nógu vel. Gallinn var sá
að þættirnir snérust of mikið um
innri mál hvers skóla og það
höfðaði ekki sérlega mikið til
hlustenda í Mývatnssveit svo
dæmi sé tekið.
En hjá foreldrum mæltist þetta
mjög vel fyrir. Með því að hlusta
á jþættina fengu þau innsýn í það
sem börnin þeirra voru að gera í
skólanum, en vissu kannski ekki
of mikið um það fyrir.“
Hlustaði fullorðið fólk mikið á
þetta?
„Já. Það er nú einu sinni þann-
ig, að á þætti um og eftir unglinga
hlustar mjög mikið af eldra fólki.
Slíkir þættir geta líka brúað kyn-
slóðabilið með því að tala við for-
eldra gegnum útvarpið, um hluti
sem eru ekki ræddir á heimilun-
um. Og það er jú velflest, því á
milli unglinga og foreldra er búið
að byggja vegg. En með því að
hlusta á þætti krakkanna eykst
skilningur foreldranna á þeim,
svo fremi þættirnir séu vel úr
garði gerðir.“
Og höfðu menn áhuga á því að
gera góða þætti?
„Það verður að segjast einsog
er að það fór töluvert mikið fyrir
sjálfsánægju og einstaklingshyg-
gju hjá mörgum. Vildu verða
fjölmiðlastjörnur, en gekk upp
og ofan. Og persónulega finnst
mér þau hafa lagt þeim mun
minni áherslu á að læra á miði-
linn.
En þetta voru líka svo margir
krakkar að það fór mikill tími í að
læra byrjunaratriðin.“
Þessir þættir hafa ekki verið
aftur nú í vetur?
„Nei. Við breyttum útvarpinu
mjög þann 1. október og réðum
þá meðal annars átta krakka til
að vera með klukkutíma langan
þátt einu sinni í viku.“
Afhverju hættuð þið að vera
með skólana í þessu?
„í fyrsta lagi var það til-
breyting. Síðan bar dálítið á því í
fyrravetur að fólkið sem byrjaði í
þessu hætti að hafa tíma og það
var enginn ábyrgur fyrir því að
það yrði þáttur, þátturinn væri í
fullri lengd o.s.frv.
Krakkar sem eru í þessum
þætti sem nú er, „Um að gera“
vinna hann líka mjög vel. Þau
vinna í hóp og eru samhent.
Ræða málin fram og aftur, efni og
efnistök, en eru ekki að reyna að
vera stjörnur.
Þó ég hafi enga hlustenda-
könnun um þann þátt, hef ég það
á tilfinningunni, og hún byggir á
reynslu, að á þennan þátt sé afar
mikið hlustað.“
DREGIÐ
í AÐRA
UMFERÐ í GÆR
í gær var dregiö í aöra umferð
Mælsku- og rökræðukeppni
framhaldsskólanna á íslandi.
Á fimmtudag og föstudag
leiða þá saman lið sín eftir-
taldirskólar:
Fjölbrautarskólinn á Suður-
nesjum og Fjölbrautarskólinn á
Sauðárkróki.
Verður keppnin á Suðurne-
sjum og leggja heimamenn til að
hætt verði að takmarka landvist-
arleyfi útlendinga.
Þeir suðurnesjamenn „sig-
ruðu“ flensborgara á tvö eitt regl-
unni umdeildu. Það er, tveir
dómarar dæmdu þeim sigur, en
einn flensborg og þeir vinna þó
flensborgarar hafi verið hærri að
stigum.
Sauðkræklingar fengu í fyrstu
umferð ósk sína loks uppfyllta:
sluppu við M.R. í fyrstu umferð
og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu
Samvinnuskólann á Bifröst.
Menntaskólinn við Sund og
Menntaskólinn í Reykjavík.
Aumingja M.S.-ingarnir. í
fyrsta sinn í sögu sinni komast
þeir í aðra umferð og fá þá M.R.
Leggja til að kynferðisafbrota-
menn verði vanaðir. f ljósi miður
góðrar keppni þeirra við M.K. í
fyrstu umferð, er hæpið að ætla
þeim sigur á þraut-seigum M.R.-
ingum. M.R.-ingarnir líka svo til
óþreyttir eftir Armúlafarsann.
Menntaskólinn á ísafirði og
Fjölbrautarskólinn í Garðabæ.
Tvö metnaðarfull lið utan af
landi keppa á ísafirði og leggja
heimamenn til að íslenska verði
töluð inná allt erlent sjónvarps-
efni.
ísfirðingar hafa enn tekið
stefnu á Háskólabíó, en í fyrra
voru þeir slegnir út í undanúr-
slitum af slöku liði M.H. f vetur
slógu þeir svo Menntskælinga á
Akureyri út og var Ásgeir Þór
Jónsson, kjölfesta liðsins til
margra ára, maðurinn bak við
þann sigur.
Lið Garðbæinga var mjög róm-
að eftir fyrstu umferð, jafnvel
taldir með sterkasta liðið. Það
hendir þó vonandi ekki að senda
b-liðið á ísafjörð...
Verslunarskóli íslands og
Menntaskólinn við Hamrahlíð.
Versló gerði jafntefli við
M.R.-inga í vináttukeppni þeirra
í haust og má margs vænta af
þessu unga liði. í fyrstu umferð
sló það Fjölbrautarskólann úr
Breiðholti út, en þar var Börkur
hinn seigi (en svo er hann jafnan
nefndur eftir þá viðureign) í aðal-
hlutverki. Varð ræðumaður
kvöldsins, þó kjálkabrotinn væri.
Það verður spennandi að sjá
Börk með heila kjálka, keppa við
M.H.
Hamrahlíðin vann nauman
sigur á Kvennaskólanum í fyrstu
umferð með óreynt lið. Þeir ku
stilla upp mjög breyttu liði í þessa
umferð og verður gaman að sjá
hvort þeir hafa breidd í þessar
innáskiptingar, eða hvort hér er
um ofmetnað að ræða.
M.H. á að leggja til að Sea
Shepard samtök verði stofnuð á
íslandi, en það gæti breyst, þareð
veslingar hafa talað um hval-
veiðar einu sinni í vetur.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
li Atvinna
Sjúkraliðar og aðstoðarfólk
óskast til starfa. Upplýsingar gefur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 91-29133 frá kl. 8-16.
Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar.
Vildu vera fjölmiðlastjömur