Þjóðviljinn - 16.01.1987, Síða 10
UT VIL EK
Lundúnir
Brixton markaðurinn
Ólgandi litagleði og lífskraftur Vestur-lndía í miðri Lundúnaborg
Sá fjöldi fólks sem „skrepp-
ur“ í helgarferðir til Lundúna
fer sífellt vaxandi. Það sem oft-
ast er nefnt sem aðdráttaraflið
í Lundúnum eru verslanir,
leikhús, kvikmyndahús, söng-
leikir og svo framvegis. En það
er auðvitað fleira sem vekur at-
hygli í heimsborginni. Eitt af
því eru útimarkaðirnir. Og einn
þeirra er markaðurinn í Brix-
ton.
Brixton markaðurinn er einn
líflegasti markaðurinn í Lundún-
um. Hann er staðsettur á Electic
Avenue í suðvesturhluta borgar-
innar og í næsta nágrenni. Þessi
markaður er þekktur fyrir hina
sérstöku karnival stemmningu
sem þar er að finna, reggí-calypso
tónlistina og sérkennilega kar-
aktera. Andi Vestur-Indía ræður
þar ríkjum sem best má finna af
litríkum klæðum, lífsgleðinni og
reggímúsikinni sem er fastur lið-
ur í innkaupunum.
Brixton markaðurinn er al-
mennur markaður en sérhæfður í
ávöxtum og grænmeti, húsbún-
aði, notuðum fötum að ógleymdu
ýmsu ljúfmeti ættuðu frá Karíba-
hafslöndunum. Þar má nefna
ávexti á borð við yam, okra,
Open Every
SATUBDAY& SUNDAY
From 9.00am-5.00pm
Markaðslífið í Lundúnum er ekki síðra en víðast annars staðar og sá í Brixton telst einn sá líflegasti.
brauðávexti, mjölbanana, cust- paw. Þó ekki sé ætlunin að versla um og skoða mannlífið í ein-
ard epli, mangó ávexti og paw- er ógleymanlegt að ganga þarna hverju skemmtilegasta og lífleg-
asta hverfi Lundúnaborgar.
Markaðurinn komst á laggirn-
ar seint á 19. öld. Hann var fyrst á
Atlantic Road en nálægðin við
umferðarþungann og óhag-
kvæmnin fyrir íbúa götunnar,
gerði það að verkum að hann var
færður til Electric Avenue. Þar
liggur markaðurinn undir fjöl-
mörgum járnbrautabrúm og
teygir sig síðan eftir Electric
Avenue að nokkru leyti undir
glerþaki. Hina fjölbreytilegu
ávexti úr Karíbahafslöndunum
og litrík klæði er fyrst og fremst
að finna í þeim enda markaðins
sem liggur við járnbrautabrýrn-
ar. Hinn spennti andi Vestur-
Indíamenningarinnar kemur
þeim gestum kannski á óvart sem
vita ekki við hverju þeir eiga að
búast við en kaupmenn taka gest-
um af mikilli hlýju. Fyrir þrjátíu
árum síðan var áformað að loka
markaðnum. Þá kom hins vegar í
ljós að mikill fjöldi ferðamanna
sótti í markaðinn auk íbúa hvaða-
næva að úr Lundúnum.
Markaðurinn er opinn frá
mánudögum til laugardaga en að-
eins á morgnana á miðviku-
dögum.
-IH
DULUÐ AUSTURLANDA.
Kynnist Filippseyjum af eigin raun.
PARADÍS Á JÖRÐU. NÝR HEIMUR.
Ótrúlega fjölbreytt mannlíf.
3 VIKUR. Brottför 6. febrúar.
Heimkoma 25. febrúar.
Á heimleiðinni verður dvalið í anddyri Asíu
HONG ftONG dagana 19.—23. febrúar.
ÍÍf
Ferðaskritstofan
avandí
Vesturgötu 5, Reykjavik,
s. 17445.
VINARBORG — HABORG TONLISTARINNAR
Njótið tónlistar og annarra fagurra lista á listahátíð Vínarborgar.
WIENER FESTVOCHEN
Brottför 28. maí. 2 vikur.
Dvalið á góðu hóteli, morgunverður innifalinni.
Skoðunarferðir um Vinarborg og einnig farið til Búdaþest.
Ljúft baðstrandarlíf á Dónárbökkum.
41
Ferðaskritstofan
avandi
Vesturgötu 5, Reykjavik,
S. 17445.
Frá skíðabrekkium í Austurríki. I þeim frægustu, Zermatt, er nú komin lögga
til að hefta áflogum við skíðalyfturnar.
Sviss
Lögga á skíöum
í Zermatt í Sviss hafa þrjátíu menn meö iögregluvald
nýlega hafið störf á skíðum í brekkunum til að koma í
veg fyrir átök meðal óþolinmóðra skíðaunnenda. í
Ijósi reynslunnar
Þeim sem hafa hugsað sér að
fara í skíðaferð til Zermatt í
Sviss væri líkast til best að fara
að öllum reglum sem settar
eru þar því annars eiga þeir á
hættu að lenda í höndum
„skíðalögreglunnar".
Nú í upphafi ársins hófu þrjátíu
lögregluþjónar á skíðum störf í
Zermatt, einum vinsælasta skíð-
astaðnum í Sviss. Þeir munu hafa
leyfi til að leysa upp átök í bið-
röðum við skíðalyftur eða milli
skíðamanna sem rekast á hvor
annan í brekkunum! Slíkt mun
vera nokkuð algengt, ekki er að
minnsta kosti óttast að verkefna-
skortur muni hrjá þessa „skíða-
löggu“. En það er sem sagt
staðreynd að í Zermatt hafa nú
tekið til starfa sérstakir eftirlits-
menn sem fylgjast með að skíðaá-
hugamenn geti notið útivistar í
friði og án þess að til átaka komi
milli þeirra. Peter Zahnd, um-
sjónarmaður Zermatt skíðasvæð-
isins, segir að það sé nauðsynlegt
að hafa slfka eftirlitsmenn á skíð-
asvæðinu. „Ég hef oft séð átök
milli manna í brekkunum. Ég hef
séð menn koma alblóðuga á höfði
eftir slagsmál þarna uppi. Ég
kann auðvitað ekki við þetta heiti
á eftirlitsmönnunum en það gefur
þeim ákveðið vald.“
Mennirnir verða ekki einkenn-
isklæddir á skíðunum en bera
merki sem gefur til kynna vald
þeirra. Þeir verða á ferðinni alla
daga innan um þá fjórtán þúsund
skíðamenn sem þjóta um brekk-
umar dag hvern í Zermatt. _m
10 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Föstudagur 16. janúar 1987