Þjóðviljinn - 16.01.1987, Qupperneq 13
Einar við störf sína hjá RALA á Keldnaholti
arnir. Sem dæmi um það skal ég
segja þér sögu. Ég kom eitt sinn á
veitingastað og hafði aðeins
nokkra kanadíska dollara á mér.
Ég spurði afgreiðslukonuna
hvort ég mætti borga með þessum
kanadísku dollurum. Þegar nefnt
var orðið dollarar var eins og ekki
væri hlustað frekar á mig. Sjálf-
sagt mál að borga með dollurum.
Þegar ég ætlaði síðan að borga
með þeim kanadísku, kannaðist
afgreiðslukonan ekkert við svona
seðla og kannaðist ekki við að
svona gjaldmiðill væri gjald-
gengur þarna. Vildi miklu heldur
fá armbandsúrið mitt. Ég neitaði
því auðvitað, sagði að þar sem ég
væri með peninga vildi ég borga
með peningum. Nú, við rifumst
lengi um þetta og gekk hvorki né
rak. En loksins kom þarna maður
sem skar úr um það að þessi
gjaldmiðill væri gjaldgengur og
sagðist persónulega ábyrgjast
það.“
Þið lifið á fiski
„En helst vildi fólk greiðslu-
kort. Það lá við að ef túristi kom
inn í verslun og var ekki með
þessi kort heldur mexíkanska
peninga, væri hann ekki af-
greiddur. Ég held að almenning-
ur sé yfirleitt nokkuð vel upplýst-
ur í Mexíkó. Eitt dæmið um það.
Ég tók leigubfl úr miðborginni og
fór brátt að spjalla við bflstjór-
ann, komst ég þá að því að hann
vissi ýmislegt um ísland. Hann
fór að tala um þorskastríðið, „já,
þið lifið á fiski,“ „veiðið hval“.
Og vissi bara heilmikið um ísland
og eins um Skandinavíu. Ég
spurði hann hvers vegna hann
vissi svona mikið um ísland. „Við
göngum í skóla hér,“ var svarið."
Nú, þú fórst til Egyptalands í
fyrra. Hvernig kom sú ferð til?
„Það var nú nokkuð svipað og
með Mexíkóferðina. Ég fór í
endaðan nóvember þegar farið
var að hægjast hjá mér í vinn-
unni. Fór til Kaupmannahafnar
og keypti mér þar tveggja vikna
ferð með Tjæreborg ferðaskrif-
stofunni dönsku. Þetta var í gegn-
um Samvinnuferðir sem hafði
umboð fyrir Tjæreborg. f Eg-
yptalandi hélt ég mig ekki við
höfuðborgina Kaíró, eins og ég
hafði gert í Mexíkó. Það var farið
strax annan daginn með lest til
Asswan sem er sunnarlega í
landinu. Þar var geysilega fallegt.
Þar er einnig hin mikla Asswan
stífla. Menn muna kannski eftir
því að þegar hún var byggð var
hofið Abu Simbel syðst í Egypta-
landi fært til svo að það hyrfi ekki
í Nasservatn sem myndaðist
vegna stíflugerðarinnar og er
mörg hundruð kflómetra langt.
Að hofinu er tæplega klukkust-
undar flug frá Asswan. Það er dá-
lítið broslegt að sjá risastytturnar
af Ramses II utan við hofið með
ósköp lítilfjörlega styttu af konu
hans við fætur sér. Ramses II var
mjög duglegur við að láta reisa
sér styttur og rífa eldri hof til að fá
byggingarefni.“
Súlnasalur í Karnak
„En þegar komið var til baka til
Asswan var farið niður Nfl með
skipi, allt til Luxor, hinnar fornu
Þebu. Og þar, í Karnak, sá ég það
sem mér fannst einna tilkomu-
mest í þessari ferð. Hinar miklu
súlnaraðir eða súlnasal sem þar
er að finna tilheyrandi Karnak
hofinu. Rúmlega 140 súlur og
hver um sig einir fjörtíu metrar á
hæð og ca. 12 metrar að ummáli.
Og svo náttúrulega píramídarnir
frægu stutt frá Kaíró.“
Með þessa Egyptalandsför, var
um hið sama að ræða og Mexíkóf-
örina, áhugi á fornri menningu?
„Já mikil ósköp. Ég hef svo til
alveg jafn mikinn áhuga á eg-
ypskum fornleifum og þeirri
menningu sem þeim tengjast,
eins og indíánamenningunni í
Ameríku."
Og hvað segir þú þá um þau
tengsl sem sumir hafa haldið fram
um að mögulega séu milli þessara
menningarsvæða?
„Æ, ég hef nú litla trú að þeim
bollaleggingum. Það hafa aldrei
svo ég viti, verið færð nein
fullnægjandi rök fyrir þeim full-
yrðingum. Hef reyndar aldrei.
lagt mig mikið eftir þvflíkum um-
ræðum.“
Aftur til Mexíkó
En hefðir þú nú skyndilega
aukin fjárráð til að ferðast langt,
hvert yrði þá förinni heitið?
„Aftur til Mexíkó, til Yucatan
skagans þar sem miklar menjar
um Maya menninguna er að
finna,“ er Einar fljótur að svara.
„Þangað komst ég ekki þegar ég
var í Mexíkó en það er næst á
dagskrá," segir hann að lokum.
IH
Nú er kominn tími
til að bregða undir
sig betri fœtinum
og skreppa á skíði
til Mayrhofen
í Austurríki.
Á þessum skemmti-
lega skíðastað eru
brekkur við allra
hœfi, frábœrt
gönguskíðasvœði
og víðfrœgir skfða-
skólar í öllum
greinum skíða- ^
fþrótta. Veitingahús
eru um allar brekkur
þar sem notalegt
er að setjast niður
með ölkollu og slappa af fyrir
nœsta áfanga. Á ölstofum þorpsins
safnastfólksaman eftir góðan dag
á skíðum, bregður sér á diskótek
eða slappar af
á glœsilegum gististað.
Allt þetta og meira
til kostar
ekki svo mikið:
Tveggja vikna
ferð með
gistingu og
morgunmat á
Rauchenwalder-
hof, sem er
sérlega fallegur
gististaður í ekta
tírólskum stíl,
-- kostar
ekki nema
kr. 23.272*
á mann,
sé miðað við tvo í herbergi.
Allar nánari upplýsingar fást á
söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðs
mönnum og ferðaskrifstofum.
Upplýsingasími 25100
FLUGLEIDIR
* Gildirtil 31/1. Aðrar brottfarir kr. 24.511
\
ÓSA/SlA