Þjóðviljinn - 16.01.1987, Síða 14
Greiðslukort
ÚT VIL EK
Erfitt
að flippa
með kortin
„Það eru í raun tvö tímabil
sem mest er um skráningu
kortanotenda, annars vegar er
það fyrir jól og hins vegar í
byrjun sumars, í júní,“ sagði
Örn Petersen hjá Visa Isiand
þegar hann var spurður hvort
margir sem fengju sér kort hjá
þeim gerðu það þegar þeir fara
í ferðalög erlendis.
„En það eru fjölmargir sem
gera það fá sér þau sérstaklega
fyrir ferðalögin, og nota þau
jafnvel aðeins á ferðalögum,"
sagði Örn. „Þessi kort eru örugg-
ari greiðslumáti en nokkur annar
á ferðalögum. Þegar fólk týnir
peningum eru þeir týndir en ef þú
týnir Visa kortinu ertu ekki endi-
lega búinn að tapa peningum, ef
þú tilkynnir það nægilega fljótt.
Og það líða ekki nema 24 klukku-
stundir þar til þú ert búinn að fá
nýtt kort í hendurnar. Svo er ann-
að sem við tókum í gildi nýlega.
Með kortinu_ fylgir leyninúmer
sem gildir fyrir alla hraðbanka er-
lendis. Ef þú ert án reiðufjár og
bankar eru lokaðir getur þú
gengið í hraðbanka og notað
kortið í hann.“
-En eruð þið ekki komnir í
tryggingabransann með kortin?
„Jú,að vissu leyti. Það var
núna um áramótin sem við
< l iTUMm lelgarferðir
V\ Amsterdam T verðfrá 14,180 KT.
d ) ROm veröfrá 29.220 kf,
Doríe ) verðfrá20.160kr.
'N Hamborg ) verð frá 17.960 kh
cj ) verðfrá 12.410 kr.
'N London ^ verðfrá 13.175 kr.
k
Verð miðað við tvo saman í gistingu með morgunverði. VÖRUSYNINGAR „„ ' KAUPSTEFNUR 1 W&Bjgzr VIÐSKIPTAFERÐIR V® SKIPULEGGJUM FERÐIR DINERS CLUB HVERT SEM ER 1 VERÖLDINNI. INTERNATIONAL _ — — — - , (Mt«VTK( 1 FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHUSINU HALLVEIGARSTIG 1, SÍMAR 28388 - 28580
Greiðslukortin eru orðin fastur liður í
utanlandsferðum landans. Örn Pet-
ersen hjá Visa ísland á innfelldu
myndinni.
þeir sjá um að þú fáir rétta með-
höndlun, að þú sért settur á
sjúkrahús, það sé gert aðvart hér
heima o.s. frv. Þeir hafa t.d.
einkaflugvél til að flytja fólk
heim. Ef þú færð hjartaáfall í
Bandaríkjunum er ekkert vit í að
setja þig inn á spítala þar, þér er
flogið heim.“
-Fólk heyrir oft mikið af svona
„guttasögum", menn fá sér kre-
ditkort, fara utan og eyða upp-
hæðum sem þeir eiga svo ekki
inni fyrir þeim. Gerist þetta oft?
„Ja, ég held það sé varla það
fyrirtæki hér sem ekki lendir í
svona flippurum. En það er
auðveldara að flippa með ávísan-
ahefti en kortið. Það eru engin
vandræði með svona mál hér. En
ég get sagt þér nokkuð jákvæðari
sögu af kortanotkun. Hér kom
fyrir nokkru, á síðasta ári, móðir
ungs manns sem er korthafi og
hafði hún nokkrar áhyggjur af
syni sínum. Hann hafði farið í
langferð út í heim og hafði ekkert
spurst til hans í langan tíma. Það
var farið á stúfana að Ieita hans
og í gegnum notkun hans á kort-
inu hafðist upp á honum heilum
heilsu. í einhverri stórborg í
Asíu.“
IH
kynntum tryggingar með kortun-
um og aðstoð á ferðalögum fyrir
korthafa og fjölskyldur þeirra.
Þetta gengur þannig fyrir sig að
svo framarlega sem korthafinn
greiðir 50% eða meira af ferða-
kostnaði fyrir brottför er korthaf-
inn og öll hans fjölskylda tryggð
frá því þau yfirgefa heimili sitt og
þar til þau koma úr ferðalagi til
landsins. Þetta á við hvort sem
þeir eru staddir úti á götu eða í
almenningsfarartæki. Og þetta er
fjögurra milljóna króna líf- og ör-
orkutrygging og milljón króna
slysatrygging.
Við erum einnig í sambandi við
alþjóðlegt aðstoðarfyrirtæki sem
nefnist Europe Assistance. Ef þú
lendir í því að verða lasinn eða í
slysi er hringt í þetta fyrirtæki og
Boston
Nýr viðkomustaður
Flugleiöir hefja í mars flug til Boston en leggja þess í stað niðurferðir
Flugleiðir hefja í lok mars
næstkomandi áætlunarferðir
til Boston í Bandaríkjunum.
Flogið verður frá Boston til Is-
lands með viðkomu í Luxemb-
org. í staðinn verður hætt flugi til
Detroit. Flugleiðir er með fimm
viðkomustaði í Bandaríkjunum
nú. Auk Detroit eru það New
York, Baltimore, Orlando og
Chicago. Þetta má þykja nokkuð
til Detroit
gott þar sem mun stærra flugfélag
á borð við SAS hefur t.d. aðeins
þrjá viðkomustaði í Bandaríkj-
unum.
Það má þykja nokkur fengur
fyrir íslendinga að eiga nú kost á
beinu flugi til Boston í Massac-
husetts sem er með rótgrónari og
merkilegri borgum í Bandaríkj-
unum. Boston búar líta svo sann-
arlega þannig á málin og hafa
reynt að halda þeim virðulega
svip sem borgin hefur haft í gegn-
um tíðina. Borgin var byggð upp
af landnemum og er því með elstu
borgum Bandaríkjanna. Þar eru
fjölmargir af virtustu háskólum
Bandaríkjanna sem gefa borginni
virðuleikasvip en um leið hressi-
legan blæ. Þar er að finna mikið
úrval ólíkra skemmtistaða jafnt
sem matsölustaða. Margir þeirra
síðarnefndu eru frægir fyrir sjá-
varrétti sína.
CmKKLttNÍ)
Við heimsækjum vöggu vestrænnar menningar og skoðum
m.a. Aþenu, Akropolis, Parþenon, Véfréttina í Delfí og eyna
Krít.
Farið verður í samráði við Grikklandsvinafélagið Hellas.
Frábær fararstjórn
Sigurðar A. Magnússonar.
Örfá sæti laus.
Feröaskritstotan
aiandi
Vesturgötu 5, Reykjavík.
S. 17445.
Œ
<
25