Þjóðviljinn - 16.01.1987, Side 17

Þjóðviljinn - 16.01.1987, Side 17
UT VIL EK Vetrarferðir Stiklaö á stóru Hér á eftir verður reynt að kafa inn í ferðafrumskóginn og draga fram nokkuð af þeim tilboðum sem í boði eru. Ekki nein vísinda- leg úttekt, frekar nokkurs konar yfirlit yfir nokkur blóm af mörgum. Helgar-og vikuferðir Styttri ferðir til ýmissa borga ekki fjarri okkur er eitt ferðafyr- irkomulagið sem nýtur mikilla vinsælda þessa dagana. Nýjasta ferðaskrifstofan, Saga, býður tveggja til átta daga ferðir til borga á borð við Kaupmanna- höfn, Hamborg, Lundúnir, Róm og Glasgow. Með hóteli og morg- unverði er verðið á bilinu rúm- lega 14.000 til rúmlega 21.000 krónur. í öðrum fyrrnefndum borgum er verðið yfirleitt svipað. Samvinnuferðir-Landsýn bjóða upp á ferðir til svo til sömu borga. Helgarferðir eru frá rúm- lega 12.000 á mann í tvíbýli til um það bil 18.000 króna í Hamborg. En þá er líka um að ræða helgar- ferð upp á fimm daga. Vikuferð- irnar eru svo flestar um 20.000 krónur. Samvinnuferðir bjóða einnig upp á það sem þær nefna tvær flugur í einu höggi, Amster- dam og London á tæplega 17.000 krónur á mann í tvíbýli. Þá er um að ræða eina nótt í Amsterdam og þrjár í London. Ferðaskrifstofan Úrval býður upp á helgar og vikuferðir til Vín- ar í vetur með viðkomu í Kaup- mannahöfn eina nótt. í Vín er svo gist í þrjár til sex nætur. Helgar- ferðin er á bilinu 24 til 34.000. Vikuferðin kostar aftur um 27.000 til 34.000. Hjá Úrvali eru einnig í boði helgar- og vikuferðir til Glasgow og Edinborgar fram í endaðan mars. Um er að ræða 3, 5 og 7 nætur á verðinu 12.183 upp í 31.850. Ferðaskrifstofan Terra er með viku- og helgarferðir til allra þeirra borga sem að framan hafa verið nefndar en auk þeirra má nefna Stokkhólm, New York og París. Glasgow ferðin er ódýrust, frá 12.288 krónum. Af ódýru möguleikunum er Vín hins vegar dýrust, 25.360 krónur. Ekki má gleyma flugfélögunum sjálfum, Flugleiðum og Arnarflugi sem einnig bjóða auðvitað sjálf upp á Yfirlit yfir blómin í ferðafrumskóginum helgar- og vikuferðir til fjölmar- gra borga. Við látum staðar numið hér og lítum á... Skíðaferöir Hvað skíðaferðirnar varðar er aðallega um að ræða ferðir til Austurríkis. Samvinnuferðir- Landsýn bjóða ferðir til Saalbach-Hinterglem, St. Anton-Arlberg og Sölden á tæp- lega 33.000 krónur, lægsta verð. Er þá um að ræða tveggja manna herbergi með morgunverði. Um er að ræða tvær ferðir í næsta mánuði, þann 14. og 28. og munu þær vera að fyllast. Saga býður skíðaferðir til Lech, Sell Am Zee og Mayerhof- en í 15 daga. Verð frá tæpum 30.000 í tæp 46.000 og er það mið- að við tvíbýli. Terra býður einnig skíðaferðir til Austurríkis, Zell am See og Mayerhofen. Verðið er frá 18.914 og miðast það við viku- dvöl í tveggja manna herbergi. Langferðir Nefna má Útsýn og heimsreisur hennar. í ár er það Brasilía, Heimsreisa II. Um er að ræða þrjá valkosti. 17 daga dvöl í Recife, höfuðstað Pernambuco héraðs í norðaustur hluta Brasil- íu. Borgin er stundum nefnd Fen- eyjar Brasilíu þar sem hún stend- ur á bökkum Capibaribe árinnar en kvíslar hennar liðast um borg- ina. Annar valkostur er síðan 11 daga dvöl í Recife með ferðum til stórborganna Rio de Janeiro og Brasilíu. Sá þriðji er síðan ferðir um landið að eigin vild frá Recife á flugfarseðli sem Útsýn útvegar og kostar 10.750. Ferðin hefst 13. mars. Terra og Flugleiðir bjóða einn- ig upp á ferðir til Bangkok, Flug- leiðir í tengslum við SAS flugfé- lagið, 17 daga ferð. Það samstarf hefur einnig fætt af sér vikudvöl í Singapore. Þá má nefna að ferðaskrifstof- an Farandi er að skipuleggja þriggja vikna ferð til Filippseyja þann 6. febrúar auk fjölmargra annara áfangastaða víða um heim. Sólarferðir Hin klassíska utanlandsferð ís- lendinga? Hvað um það, upp- talning á öllum möguleikum í sól- arferðum fyrir landann myndi æra óstöðugan. Staðirnir sem helsta má telja að vetri til eru Costa Del Sol sem Útsýn hefur sérhæft sig í. Einnig Kanaríeyjar, Florida, Mallorca og Benidorm. í samvinnu við Delta flugfélagið í Bandaríkjunum býður Samvinnuferðir-Landsýn stórkostlegt tækifæri til að uppgötva Ameríku eða jafnvel heimsækja ættingja og vini. Frá New York geturðu valið þrjá áfangastaði á áætlunarleiðum Delta, sem ná til margra helstu borga Bandaríkjanna. Ferðatilhögun og dvalartíma á hverjum stað ræðurðu að eigin vild. Ef þú vilt sjá meira geturðu fengið 1 -4 borgum bætt í hringinn fyrir aðeins 2.400 krónur hverja. Þetta einstaka Ameríkutilboð er háð ákveðnum takmörkunum. Nánari upplýsingar á skrifstofum Samvinnuferða Landsýnar í Austurstræti. * Miðað við flug til New York. Samvinnuferdir - Landsýn Austurstræti 12 • Simar 91 -27077 & 28899 Hótel Sögu við Hagatorg • 91 -622277 Akureyri: Skipagötu 18 • 96-21400 i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.