Þjóðviljinn - 16.01.1987, Page 21

Þjóðviljinn - 16.01.1987, Page 21
HEIMURINN Sjalfboöa- liðssveitir frá sjö írönskum borgum voru í gær sendar af stað í styrjöldina gegn írökum. Harðir bardagar geisa á tvennum vígstövðum, við írösku hafnarborgina Basra og hjá bænum Sumar, á landamær- unum norðaustur af Bagdad. í íran eru sagðar þær fréttir að her- sveitir hafi sótt fram um tíu kíló- metra á suðurvígstöðvunum og eigi eftir svipaða leið að Basra sem er næststærsta borg í írak, mikilvæg olíuútflutningshöfn og miðstöð birgðaflutninga frá Kuw- ait. Á nyrðri vígstöðvunum segj- ast íranar hafa lagt undir sig um 100 ferkílómetra landsvæði. Adolfo Calero einn af leiðtogum „contra"- skæruliða í Nicaragua sagði við fréttamenn í gær að 120 liðsfor- ingjar og hernaöarsérfræðingar væru komnir úr þjálfun í Banda- ríkjunum og mundu brátt taka til við að stjórna contramönnum í nýrri sókn gegn Managua-her. Hann sagði að um 100 í viðbót væru í þjálfunarbúðum Banda- ríkjahers, sennilega í Florida. Þessi þjálfun er talin hluti 100 miljón dollara aðstoðarinnar sem Bandaríkjaþing samþykkti í haust til contraliða. Á fjórða degi fimbulkuldans í Evrópu var áætl- að að yfir 170 manns hefðu farist beint og óbeint sökum kuldanna. Víðast voru menn lausir við fann- fergi í gær, en spáð erframhalds- kuldum með snjókomu í dag. í Norður-Noregi kom skyndileg hláka, fimm stiga hiti í Narvik og Tromso, og lokuðustflugvellir og vegir í vatnselgnum. Hershöfðingja- stjórnin í Chile gaf í gær út lög sem leyfa tilvist pólitískra flokka í landinu í fyrsta sinn síðan herinn rændi þarvöldum 1973. Marxískirflokk- ar eru ekki leyfðir, og flokkar verða að lúta ströngum lagaá- kvæðum um innri uppbyggingu. Öll tengsl við samtök stétta eru bönnuð. Til að fá viðurkenningu þarf flokkurinn að leggja fram fé- lagaskrá með að minnsta kosti hálfu prósenti kjósenda eða 35 þúsund manns. Sendiráðsmenn og innlendir stjórnmálamenn telja nýju lögin einkum til þess ætluð að bæta ásýnd Pinochet- stjórnarinnar útávið rétt fyrir fyrstu Chile-heimsókn páfa. Norska Stórþingið samþykkti í gær lög þar sem líkamleg refsing barna er bönnuð, og hafa börn rétt til aö kvarta við lögreglu undan refsi- glöðum foreldrum. Svipuð lög eru þegar í gildi í Svíþjóð og Finn- landi. Nýjustu tölur um verðbólgu í OECD-löndum gefa til kynna að hún hafi ekki verið lægri síðan árið 1964. í lok nóvember var meðalverðbólga talin 2,2%. í Bandaríkjunum var verðbólgan 1,3%, í Bretlandi 3,5%, í Kanada 4,5%, í Frakk- landi 2,1 %, mínus 0,3% í Japan og mínus 1,2% í Vestur- Þýskalandi. Shevardnadze utanríkisráðherra Sovétríkjanna er væntanlegur til Noregs í vor. Þetta var tilkynnt í gær í Osló, rétt eftir að Ryskof forsætisráðherra yfirgaf Finna. Sovéskir ráða- menn eru staðráðnir í að vera sem allra mest á ferð og flugi á næstunni, nýlega þáði Gorbat- sjof boð um Grikklandsferð á næstunni. ERLENDAR FRÉTTIR MÖRÐUR I ÁRNASON /REUIER Afganistan Vopnahléð ekki virt Kabúl-leiðtoginn segirþegar samið við Sovét um herinn burt. Yfirlýsingunni mœtt með tortryggni en spennan eykst fyrir Genfarviðræður Kabúl/lslamabad - Skæruliðar felldu þrjá stjórnarhermenn og réðust að herjum Kabúl- stjórnar og Sovétmanna á fimm stöðum við vesturlanda- mærin í gær, á fyrsta degi vopnahlés sem Kabúlstjórnin lýsti einhliða yfir um áramótin. Najibullah Kabúl-leiðtogi hélt ræðu við upphaf vopnahlés- ins, sagði að stjórnir Afganist- an og Sovét hefðu samið áætl- un um brottför Rauða hersins án þess að tiltaka dagsetning- ar. í ræðu sinni hét Najibullah liðhlaupum úr stjórnarher og lög- reglu sakaruppgjöf og sagði að hluta fanga úr stjórnarandstöð- unni yrði sleppt úr haldi: konum, körlum undir 18 ára, og þeim sem fengið hafa vægari fangelsisdóm en fimm ár. Hann skoraði einnig á fimm milljónir flóttamanna, að- allega í Pakistan og íran, að snúa heim, og tilkynnti um áætlun til aðstoðar þeim sem sneru aftur. Áður hafa stjórnvöld í Kabúl boðið til samsteypustjórnar með stjórnarandstöðu, og sagst vera tilbúnir til að gera íslam að ríkis- trú. Viðbrögð stjórnvalda í Pakist- an, helstu stuðningsmanna skæruliða, einkennast af tor- tryggni og varúð. Þaðan heyrist að ræðu Najibullah sé fyrst og fremst ætlað að komast í blaða- fyrirsagnir, - Gorbatsjof hafi í sumar tilkynnt um brottfarará- ætlun Sovéthers, og meðan ekk- ert sé sagt um faratíma séu samn- ingshorfur einsog áður. Það reyni á þessi orð í viðræðum fulltrúa Pakistan- og Afganistastjórna í Genf í febrúar. Síðasta lota þeirra viðræðna sigldi í strand vegna ágreinings um farartíma, Pakistanar vildu fjóra mánuði, Kabúl-stjórn þrjú ár. í gær kom upp sá kvittur að viðræðunum ætti að fresta í tvær vikur eða þrjár til að gefa betri tíma til undirbúnings, en við slíkt könn- uðust milligöngumenn Samein- uðu þjóðanna í Genf ekki. Talsmenn bandalags sjö stær- Skriðdrekar Rauða hersins á fjallasléttum Afganistan. Þeim verður seinfær heimleiðin. stu skæruliðafylkinga í Afganist- an neituðu að lýsa viðbrögðum við ræðu Najibullah í gær og sögðu að henni yrði svarað á laugardag þegar lýst verður nið- urstöðum fundar skæruliðaleið- toganna sem nú er nýlokið í Pak- istan. Sá fundur er sagður hafa Kína farið fram í mikilli eindrægni, og bendir flest til þess að skæruliðal- eiðtogar muni hafna með öllu friðarboðum frá Kabúl. Hu heilsulaus Hreinsanir sagðar framundan Peking - Hu Yaobang formaður kínverska kommúnistaflokks- ins var sagður forfallaður þeg- ar hann átti að hitta sendi- nefnd fráfinnska kommúnista- flokknum í gær. Fréttaskýr- endur telja að heilsuleysi for- mannsins standi í nánum tengslum við stúdentaó- eirðirnar undanfarið og telja líkur allar á hreinsunum í for- ystu flokksins á næstunni. Fyrr í vikunni gat Hu ekki sótt fyrirhugaðan fund með japön- skum stjórnmálamanni, og hefur ekki sést opinberlega síðan fyrir áramót. Deng Xiaoping hinn óopinberi leiðtogi í Kína hitti Finnana í stað Hus, og tjáði þeim að stefnu sinni til opnara samfé- lags og nútímalegra yrði haldið áfram. Deng hefur hingsvegar gagnrýnt Hu fyrir að hafa leyft stúdentamótmælin, samkvæmt fréttum frá japanskri fréttastofu, og yfirmaður áróðursstarfs í flokknum, Zhu Houze, liggur einnig undir harðri gagnrýni fyrir að halda hlífiskildi yfir einum af þeim frjálslyndu prófessorum sem á hefur verið ráðist síðustu daga. Sagt er að æðstu menn í Kína séu á fundum þessa daga, og er því spáð að Hu og fleiri forystu- menn eigi ekki langa pólitíska líf- daga fyrir höndum. Afvopnun Sjöunda Genfaiiotan hófst í gær Háttsettari menn en áður íforystu sendinefndanna Genf - Bandarísku og sovésku sendinefndirnar hófu í gær nýja lotu í Genfarviðræðunum um kjarnorkuvopn og geimvopn. Nokkrar vonir eru bundnar við þessa lotu, ekki síst vegna þess að yfirmenn samninganefnda eru háttsett- ari menn en áður, sem þykir benda til að risaveldin ætli sér að ná einhverjum árangri. Max Kampelman aðalsamn- ingamaður Bandaríkjanna var í gærdag matargestur hins ný- skipaða viðræðumanns Sovét- ríkjanna, Júlí Vorontsof, og var ekki annað að sjá en sæmilega færi á með þeim félögum í kuld- anum. Júlí Vorontsof, sem kom í stað Viktors Karpofs, er fyrsti varautanríkisráðherra Sovétríkj- anna og því einn af æðstu' mönnum í stefnumótun eystra. í Kreml var sagt að tilgangur mannaskiptanna væri að koma nýju lífi í samræðurnar sem hafa verið án árangurs í sex lotum síð- an í mars 1985. Áður en Kampelman fór til Sviss var hann hækkaður í tign í Washington, en sú athöfn var sögð óháð hrókun Sovétmanna. Kampelman hefur sagt að hann komi ekki með neinar nýjar til- lögur til Genf, þar sem Banda- ríkjamenn telji að næsta skref sé Sovétmanna. Stórblaðið bandaríska New York Times gagnrýndi Washington-stjórnina í gær fyrir þessa afstöðu, og sagði að sendi- nefnd hennar yrði að færa eitthvað fram éf viðræðurnar ættu að enda með árangri. New York Times taldi einnig að f Genf þyrfti að skipta um, og leggur til að Paul Nitze, helsti ráðgjafi for- setans í vopnasamningum, verði látinn taka sæti Kampelmans. Verkföll Grikkland lamað Verkamenn mótmœla kreppuráðstöfunum Papandreous Aþena - Atvinnulíf og sam- göngur í Grikklandi voru í lamasessi í gær þegar tvær milljónir verkamanna fóru í sólarhrings verkfali til að andæfa efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Laun hafa ekki batnað í Grikklandi síðan stjórn sósíalistans Papandre- ou hóf kreppustefnu sína í efnahagsmalum í okt. 1985. Um 30 þúsund starfsmenn raf- veitna fóru í verkfall strax í fyrra- dag og í gær lömuðust nær allar samgöngur í landinu, og var Aþenuflugvöllur nær óvirkur. Tugþúsundir fóru í göngu í Aþenu og mótmælti efnahags- stefnunni við þinghúsið. Fyrir að- gerðunum fóru verkalýðsfélög tengd Kommúnistaflokknum, sem upphaflega studdi stjórn Papandreous en hefur nú snúist gegn henni og segir hana hafa snúið baki við sósíalisma. Stjórn- arliðar verja stefnu sína með því að benda á nokkurn árangur, meðal annars lækkandi verð- bólgutölur. Kreppuáætlun stjórnarinnar náði yfir tvö ár, og hafa verkalýðssambönd barist gegn henni frá upphafi. Föstudagur 16. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.