Þjóðviljinn - 16.01.1987, Qupperneq 22
ALÞÝÐUBANDALAGK)
ABK
Opinn kynningarfundur í Kópavogi
Geir Ólafur Ásdís
Opinn kynningarfundur veröur í Þinghóli, Hamraborg 11, mánudaginn 19.
janúar kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Kynntur listi Alþýðubandalagsins á Reykjanesi. Efstu menn
listans, Geir, Ólafur Ragnar, Asdís, Bjargey og Jóhanna flytja stutt ávörp og
sitja fyrirsvörum ásamt Elsu, Þórunni og Birni. 2) Undirbúningur kosning-
anna: Valþór Hlöðversson. 3) Ónnur mál. Fjölmennum. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra
Aukakjördæmisþing
Aukakjördæmisþing AB í Norðurlandi vestra verður haldið laugardaginn
17. janúar kl. 14.00 í Villa Nova á Sauðárkróki.
Dagskrá: 1) Framboðslisti fyrir næstu alþingiskosningar. 2)
Kosningaundirbúningur.3) Önnur mál.
Stjórn kjördæmisráðs.
Alþýðubandalagið Vestfjörðum
Kjördæmisráðsfundur
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum boðar til fundar í Verka-
lýðshúsinu í Bolungarvík, laugardaginn 17. janúar kl. 14.00
Fundarefni: 1) Ákvörðun um framboðslista fyrir alþingiskosningar. 2) Mál-
efni Vestfirðings. 3) Fjármál kjördæmisráðs. Stjórn kjördæmisráðs.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Bæjarmálaráðsfundur
Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn í Þinghól laugardaginn 17. janúar kl.
10.00 um fjárhagsáætlun. Heimir Pálsson mun skýra frá gangi mála.
Stjórn bæjarmálaráðs
Hrafn Þráinn Guðmundur
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Félagsfundur um G-listann
ABR boðar til félagsfundar laugardaginn 17. janúar klukkan 14.00 á Hótel
Sögu, Súlnasal.
Á fundinum verður gengið frá framboðslista flokksins fyrir þingkosningarn-
ar í vor. Hrafn Magnússon kynnir niðurstöður kjörnefndar. Guðmundur
Ólafsson leikari les Ijóð eftir Snorra Hjartarson. Stutt ávörp. Kaffiveitingar.
Fundarstjóri: Þráinn Bertelsson ritstjóri. Félagar fjölmennið!
Stjórn ABR
Fulltrúaráð ABR
Fundur að Hverfisgötu 105 laugardaginn 17. janúar klukkan 13.00.
Fundarefni: Afgreiðsla framboðslista til félagsfundar.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Félagsfundur um kosningar
og fjárhagsáætlun
Stjórnir ABH og bæjarmálaráðs bjóða til almenns félagsfundar laugardag-
inn 17. janúar, kl. 13:30, í Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá:
1. Kosningastarfið framundan. Gunnar Rafn Sigurbjörnsson reifar málin.
2. Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar 1987. Magnús Jón Árnason kynnir
áætlunina.
3. Önnur mál.
Stjórnirnar
Námskeið í útveggja-
klæðningum
ætlað húsasmiðum, meisturum og sveinum
verður haldið dagana 26. til 31. jan. á Iðntækni-
stofnun íslands.
Þátttökugjald er kr. 12.000.-.
Námsgögn og fæði eru innifalin.
Upplýsingar og innritun í símum 687440 og
687000.
FRÆÐSLUMiÐSTÖÐ IÐNAÐARINS
____________MINNING ___________
Lucy Winston Hannesson
Fœdd 22. júní1920 - Dáin 12. janúar 1987
í dag fer fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík útför Lucy Win-
ston Hannesson. Lucy Winston
Hill fæddist 23. júní 1920 í Rich-
mond í Virginíuríki í Bandaríkj-
unum þar sem faðir hennar var
lögfræðingur en móðirin sölu-
stjóri hjá bókaforlagi. Hún lagði
stund á ensku og heimspeki við
Kaliforníuháskóla, lauk þaðan
Associate of Arts-prófi árið 1940
en hélt áfram námi um sinn.
Haustið 1941 kom þangað ungur
íslenskur námsmaður, Jóhann S.
Hannesson. Með þeim Winston
tókust brátt kynni og í janúar
1942 gengu þau í hjónaband.
Árið 1947 fluttust þau til íslands,
þar sem Jóhann sinnti stopulli
vinnu við kennslu. Leiðin lá að
nýju til Bandaríkjanna árið 1950
og Jóhann réðst bókavörður við
Fiskesafnið í Cornell-háskóla í
íþöku íNew-York ríki. Árið 1959
fluttist fjölskyldan aftur til ís-
lands og Jóhann tók við starfi
skólameistara Menntaskólans að
Laugarvatni. Þar kenndi Win-
ston ensku á árunum 1961-67.
Þau Jóhann fluttust svo til
Reykjavíkur, og skömmu síðar,
árið 1971, réðst Winston sem
enskukennari að Menntaskólan-
um við Hamrahlíð, þar sem Jó-
hann var einnig kennari. Dóttir
þeirra, Wincie, kom einnig að
skólanum sem enskukennari og
starfar þar enn.
Mörgum hefur reynst erfitt að
flytjast með maka til framandi
lands, temja sér nýja tungu og
aðlagast nýjum háttum, en allt
frá því ég kynntist Winston
Hannesson hef ég nánast litið á
hana sem íslending, þótt henni
væri vissulega tamt að grípa til
móðurmáls síns í löngum orð-
ræðum.
Það duldist engum, sem
kynntist þeim Winston og Jó-
hanni, hve náið og innilegt sam-
band þeirra var. Fráfall hans 9.
nóvember 1983 var henni mikið
áfall.
Winston Hannesson var kenn-
ari við Menntaskólann við
Hamrahlíð til dauðadags. Hún
var afbragðskennari og að sama
skapi góður skipuleggjandi.
Skólinn mun lengi búa að starfi
hennar. Henni var s.l. haust veitt
eins árs orlof til framhaldsnáms,
en entist ekki heilsa til að nýta
orlofið. Baráttu við erfiðan sjúk-
dóm lauk að morgni mánudags-
ins 12. janúar.
Að leiðarlokum votta ég börn-
um Winston, Wincie og Sigurði,
barnabörnum og öðrum ástvin-
um innilega samúð mína, og ég
veit að ég má flytja þar kveðjur
frá nemendum, kennurum og
öðru starfsfólki Menntaskólans
við Hamrahlíð.
Örnólfur Thorlacius
Um athugasemdir
Sigurjóns Jónssonar
Útgefandi „Ljóra sálar minnar“ svarar gagnrýni
í Þjóðviljanum í dag birtust at-
hugasemdir Sigurjóns Jóns-
sonar um ritstjorn undirritaðs á
bókinni „Ljóri sálar minnar" eftir
Þórberg Þórðarson. Allar eru
þessar athugasemdir léttvægar
og heldur nöldurslegar. En ein-
hverjir gætu fengið þá hugmynd
af lestri þeirra að flausturslega
hafi verið staðið að útgáfu bókar-
innar og er því rétt að svara þeim
hér.
Þrjár athugasemdir Sigurjóns
eru réttmætar og því þakkarverð-
ar, ein er röng, ein verulega vafa-
söm og sex út í hött. Svo ég nefni
það bitastæðasta þá gætir í skýr-
ingum mínum ónákvæmni varð-
andi starfsheiti tveggja manna og
sömuleiðis skeikar lítilega í stað-
setningu eins sveitabæjar. Engin
þessara skekkja getur þó talist
skaðleg fyrir iesendur. Áð því er
starfsheitin snertir, þá er í öðru
tilvikinu um að ræða tvær stjórn-
unarstöður innan menntakerfis-
ins en í hinu tvær greinar innan
bókagerðar. Staðsetningu sveita-
bæjarins skeikar um nokkra kíló-
metra.
Um önnur atriði er vart ástæða
til að fjölyrða. Sigurjón mótmæl-
ir til að mynda að gamla Kennar-
askólahúsið standi við Baróns-
stíginn, vill hafa það við Laufás-
veg. Hið rétta er að það er á horni
þessara tveggja gatna. Jafnframt
bendir hann á ýmsa smámuni í
textum Þórbergs sem hann virðist
telja að leiðrétta hefði átt neðan-
máls. Slíkt hefði verið sjálfsagt í
mjög fræðilegri útgáfu en ekki
hér.
14. janúar 1987,
Helgi M. Sigurðsson
Á
EKKl
AD
BJÖDA
ELSKUNN!
%
ÖPERUIMA
Handmenntakennarar
Hannyröakennara vantar aö Barnaskóla Selfoss
til vors.
Um er aö ræða fullt starf, en hlutastarf kemur
einnig til greina.
Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 99-1500 og
99-1498.
Skólanefnd
Skólasafnvörður
Barnaskólinn á Selfossi vill ráöa skólasafnvörð í
fullt starf (aldur nemenda er 6-12 ára) Upplýs-
ingar gefur formaður skólanefndar í síma 99-.
1467 eða skólastjóri í síma 99-1500 eða 99-
1498.
Skólanefnd
Auglýsið í Þjóðviljanum