Þjóðviljinn - 16.01.1987, Side 24
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Föstudagur 16. janúar 1987 11. tðlublað 52. árgangur
< SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
i
MenntamálaráðherralSturlumálið
Þetta em skapheitir menn
Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra: Fer norður þegar ég heftíma til þess.
Svara þessum orðsendingum þegar ég kem í bœinn
„Ég ætla norður þegar ég hef
tíma til þess, ég held að það sé
betra að bíða þar til öldurnar
lægir og tek öllu rólega. Ég lít á
þessar orðsendingar þeirra þegar
ég kem í bæinn aftur eftir helgi,“
sagði Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra í samtali
við Þjóðviljann í gær þegar hann
var spurður að því hvenær hann
hygðist svara spurningum
fræðsluráðs- og skólamanna á
Norðurlandi eystra um ástæður
þeirrar ákvörðunar hans að vísa
Sturlu Kristjánssyni úr starfi
fræðslustjóra. Sverrir er nú á
ferðalagi um Austurland.
„Ég átti rétt eins von á þessum
harkalegu viðbrögðum, þetta eru
skapheitir menn,“ sagði Sverrir.
Aðspurður um hvort hann óttað-
ist fylgistap Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlands kjördæmi eystra
kvaðst hann ekki varða um það,
og hugsaði ekki um slíkt þegar
hann væri að vinna skyldu sína.
„Ég hef talað alveg nógu skýrt í
þessu máli, ég get ekki haft mann
í minni þjónustu sem virðir að
vettugi fyrirmæli mín, sem eyðir
tugmilljónum í heimildarleysi,
sem ekki er hægt að hafa stjórn á,
ég hef ekkert við slíkan mann að
gera og því verður ekkert
breytt," sagði Sverrir. -vd.
Útvarp
Nemar við
rás-
markið
Nú á næstu dögum, mun Félag
framhaldsskóla taka ákvörðun
um hvort það ræðst í stofnun út-
varpsstöðvar. Hafa viðbrögð við
hugmyndinni verið mjög jákvæð,
að sögn Hrannars B. Arnars-
sonar formanns félagsins.
Félag framhaldsskóla saman-
stendur af tólf skólum og taldi
Hrannar að ef tíu þeirra samein-
uðust um fyrirtækið, yrði kostn-
aður hvers skóla beinlínis hlægi-
legur. Flestir hafa skólarnir rekið
útvarpsstöð í nokkra daga á ári
hverju og sagði Hrannar að mikill
áhugi og metnaður innan skól-
anna ætti að tryggja hvorutveg-
gja, vandaða og fjölbreytta dag-
skrá H.Hjv.
Sjá síðu 7
Útsending úr skólastofunni - Ólafur
Kjartan Sigurðsson stjórnar
útsendingu úr Hamrahlíð í fyrra.
Verður hann aftur í loftinu innan
skamms?
Hnífsdalur
Einu matvörubúðinni lokað
Kaupfélagið hœttir rekstri verslunar sinnar í Hnífsdal vegna
tapreksturs. Vill selja einkaaðilum verslunina
Frœðslustjóramálið
Kennsla
felld
niður
Skólamenn bíða svara
ráðherra. Kennsla felld
niður ískólum í dag
Við bíðum eftir svörum frá ráð-
herra við spurningum okkar,
en hann hefur ekki haft neitt sam-
band við okkur ennþá og hefur
ekki verið mjög fús til að tala við
okkur yfirleitt, sagði Trausti Þor-
steinsson skólastjóri á Dalvík og
fræðsluráðsmaður á Norður-
landi eystra í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær þegar hann var spurður
um stöðuna í fræðslustjóramá-
linu.
Fundur skólastjóra, yfirkenn-
ara og stjórnar BKNE í fyrradag
ákvað að fella niður alla kennslu í
kjördæminu í dag til þess að sýna
samstöðu með Sturlu Krist-
jánssyni.
Fræðsluráð fer nú með yfir-
stjórn fræðsluskrifstofunnar en
að sögn Trausta fór nánast engin
starfsemi þar fram í gær en fólk
ræddi málin þess í stað. -vd.
Bílastöð
Gmnur um
fjánlrátt
Reikningar Sérleyfis-
bifreiða Keflavíkur eru í
rannsókn
Grunur leikur á að fjármála-
misferli hafi um nokkurt
skeið átt sér stað í rekstri Sérl-
eyfisbifreiða Keflavíkur að sögn
bæjarstjórans, Vilhjálms Ketils-
sonar, og hefur einn maður hætt
störfum að eigin ósk, meðan mál-
ið er rannsakað.
Talið er að starfsmaður einn
hafi um nokkurt skeið dregið að
sér fjármuni úr sjóðum fyrirtæk-
isins og sé um að ræða nokkur
hundruð þúsundir króna.
Endurskoðendur vinna nú að
því að rannsaka reikninga fyrir-
tækisins allt aftur til ársins 1983
og að fengnum niðurstöðum
þeirra verður væntanlega ljóst
hvort um sakamál er að ræða eða
ekki. -sá
Stjórn Kaupfélags ísfirðinga
hefur ákveðið að hætta rekstri
verslunar sinnar í Hnífsdal, sem
er eina matvöruverslunin í þorp-
inu.
Að sögn Jens Ólafssonar
kaupfélagsstjóra er þessi ákvörð-
un tekin vegna mikils tapreksturs
á versluninni undanfarin ár sem
stafar af of litlum viðskiptum en
um 5 kílómetrar eru til ísafjarðar
frá Hnífsdal. „Ætlunin er að fá
einkaaðila til að taka við rekstrin-
um og þegar er hreyfing á sölu-
rnálurn," sagði Jens í samtali við
Þjóðviljann.
„Launakostnaðurinn og
launatengd gjöld eru stærsti
kostnaðurinn við reksturinn og
ég tel tvímælalaust að einstak-
lingur gæti rekið verslunina bet-
ur, þar sem hann þarf ekki að
greiða starfsfólki laun,“ sagði
hann. Tvö stöðugildi eru í versl-
uninni og hefur starfsmönnunum
verið sagt upp. Verslunin mun
loka í enda marsmánaðar.
Rætt hefur verið um að hætta
rekstri verslana Kaupfélagsins í
Súðavík og á Súgandafirði en að
sögn Jens verður ákvörðun um
það ekki tekin fyrr en uppgjör og
niðurstöður vörutalningar liggja
fyrir.
Jens Ólafsson mun fljótlega
láta af störfum sem kaupfélags-
stjóri ísfirðinga vegna annarra
starfa á Selfössi en lét þess getið
að sú ákvörðun tengdist ekki
þessu máli. -vd.
Útvegsbankaskýrslan
Vil ekkert segja
Stjórnarnefndin kom saman ígœrkvöldi tilþess aðfjalla umgagnrýni
Útvegsbankans. Jón Þorsteinsson: Segi ekkert að svo stöddu
Eg vil ekkert segja um þessa
skýrslu að svo stöddu, sagði
Jón Þorsteinsson formaður
stjórnskipaðrar nefndar um við-
skipti Hafskips og Útvegsbankans
þegar Þjóðviljinn hugðist leita
álits hans á óvæginni gagnrýni
bankastjórnar Útvegsbankans á
störf nefndarinnar.
Nefndin kom saman í gær-
kvöldi til þess að fjalla um skýrslu
Útvegsbankans. Jón sagðist ekk-
ert vilja segja um málið fyrr en
nefndin hefði rætt saman.
Bankastjórn Útvegsbankans
fer hörðum orðum um skýrslu
nefndarinnar í langri skýrslu sem
send var ríkisstjórninni í gær. Þar
segir m.a. að í skýrslu Jóns og
félaga séu margar mótsagnir, vill-
andi niðurstöður og jafnvel
beinar rangfærslur. Þá er sam-
setning nefndarinnar harðlega
gagnrýnd á þeirri forsendu að þar
sat enginn sem hefur sérþekkingu
á bankamálum.
-gg