Þjóðviljinn - 25.11.1988, Blaðsíða 26
I
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 II 12 13
w 8 15 16 9 V 11 18 10 /9 0? 2 20 17 17
1? 5 15 21 22 23 9 V 29 25 12 5 V 26
16 13 9 16 15 27 9 y 9 10 28 9 21 22
n 15 23 17 23 10 13 16 X) V 19 15 26 6 B2
29 1 P 9 /6 5 28 17 16 32 23i
'X' 9 27 23 15 P? m T1 w~ 23 15 9 /6 RP 13
/7 23 15 30 21 17 0 9 15 21 9 9 23
1 °i 10 /6 y 10 25 22 15 23 X) S/ 5 17 / 29
15 31 10 V 2 17 28 29 23 15 15 27 22 23
V 9 V 10 16 19 29 16 R? 5 16 5 5 sz 6
14 4 5 27 9 6 5 27 23 22 17 /6 15 V
22 22 1 s2 29 19 15 23 9 Í5T 21 V 1 29
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hérfyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6
Reykjavík merkt: „Krossgátanr. 19“. Skilafresturerþrjárvikur. Verð-
launin verða send til vinningshafa.
Verðlaunakrossgóta ®
2£ ít b 21 23
í lJ
Lausnarorðiö fyrir verölaunakrossgátu nr. 15 var LJÓSHEIMAR.
Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Önnu Ólafsdóttur,
Útgarði 7 á Egilsstöðum. Hún fær senda bókina Töfralampinn eftir
William Heinesen.
Verðlaunabókin fyrir krossgátu
nr. 19 er 68, hugarflug úr viðjum
vanans, eftir þau Gest Guð-
mundsson og Kristínu Ólafsdótt-
ur. Tákn gaf út.
MATU
Hafsteinn
Hafliðason
Heil smásfld
að hætti mömmu
Sumar máltíðir eru okkur
minnisstæðari öðrum fremur. Oft
eru þessar máltíðir langt að baki,
baðaðar í Ijúfri angurværð endur-
minninga sveitapiltsins um þá
tíma þegar atburðarásin var svo
einföld að ekki þurfti annað en
nýstárleika í skýjafari eða jurt á
óvæntum stað til að valda
hugljómun.
Frá þessari tíð marar enn hátt í
minningasjónum sú gleði og eftir-
vænting sem greip um sig þegar
smásíldin gekk inn Djúpið síð-
sumars forðum og fyrr.
Kvöldin og kyrrir morgnarnir
ómuðu af þeirri fuglamergð sem
vildi tileinka sér síldargerið þegar
það óð uppi. Lætin í fuglunum
voru hvati á ákveðna stráka sem
ýttu skektu úr vör og reru með
fuglasöfnuðinn að leiðarljósi til
að freista þess að pusa upp síld-
arkóði í nokkrar körfur.
Kannski var mín kátína síst
fólgin í þeirri vissu að nú yrði
beitt á nokkur bjóð og lagt í
Álinn. Miklu fremur var að
munnvatnið tæki að streyma
vegna þess að nú mátti vænta
þeirrar matseldar sem barns-
minnið geymir hvað best:
Þetta er einskonar „þúsund
fiska máltíð“ og hentar jafnvel
hversdags sem veisluföng í góð-
um hópi - að því tilskildu að stað-
setning sé rétt og að grundvallar-
atriði útgerðarinnar svo sem síld-
arpusa og bátur séu fyrir hendi.
Það má reikna með 10-15 síld-
arkóðum á mann - en það er svo
sem enginn vandi að torga tutt-
ugu eða vel það!
Fyrir 5-6 manns þarf:
60 stk. smásíld
2 bollar gróft rúgmjöl
2 tsk salt
1 tsk pipar
2 msk smjörlíki
Aðferðin:
* Síldin er hausuð og slógdreg-
in, skoluð ef þarf og þerruð á
klút.
* Rúgmjöli, salti og pipar
blandað saman á djúpan disk.
* Stór panna er sett á eldinn og
smjörlfkið brætt á henni.
* Síldinni er velt upp úr
rúgmjölsblöndunni og síðan
steikt í tvær til þrjár mínútur á
hvorri hlið, eða þangað til hún
er orðin fallega gullinbrún og
stökk. Passið samt að hún
brenni ekki. Notið meira
smjörlíki ef þarf.
Síldin er síðan sett beint á disk-
ana hjá hverjum og einum. Hún
er borðuð strax, gjarna vafin inn í
salatblað eins og hún kemur fyrir
og ekkert skilið eftir nema kann-
ski blá-sporðurinn. Með síldinni
er líka gott að hafa grófa kartöf-
lumús.
Ef eitthvað gengur af - þá má
benda á að köld smásíld er ekki
síður munngæti með vel smurðu
rúgbrauði og glasi af mjólk.
P.S.: Úrdálkaða og hreinsaða
stórsíld má matreiða á sama hátt.
Flökin eru þá lögð saman, ef til
vill með ögn af salti og pipar eða
dilli á milli. Stórsíld þarf nokkuð
lengri steikingartíma að sjálf-
sögðu.
1 næsta blaði kemur uppskrift
að stórkostlegum eftirrétti: -
Ostaköku með valhnetum og
rjóma. Ómótstæðilega og
stjörnuspekilega útreiknaðri
fyrir alla sem fæddir eru í merki
Fiskanna! En það verður þá.
Síldin tekur allt plássið í þetta
sinn.
Verði ykkur að góðu!
DRAUMSTAFIR
Draumar Hlínar
1. Draumur frá strídsárunum.
Mér fannst ég vera á gangi í
Túngötunni og gekk í vestur, í átt
að Landakotskirkju. Þá birtist
hátt á lofti yfir kirkjunni lítil
mannvera sem smá færðist nær.
Þegar nær kom sá ég að þetta var
Jesús Kristur með útbreiddan
faðminn. Þegar þessi mynd var
komin næstum að mér var hún
miklu stærri en kirkjan.
2. Draumur frá stríðsárunum.
Ég var stödd úti og horfði til
vesturs eða út yfir Faxaflóa. Það
var tunglsljós og máninn nokkuð
hátt á lofti. Þá fer hann allt í einu
að titra mikið og miklir hitahring-
ir að myndast í kringum hann.
Síðan hrapar hann í hafið með
miklum litbrigðum.
3. 15-20 ára draumur.
Ég stóð við stórt vatn eða fjörð
og í vatninu speglaðist fjall sem er
mér ógleymanlegt. Það ljómaði í
dýrðlegum litbrigðum.
4. 40 ára draumur.
Mig dreymdi að ég leit niður á
brjóstið á mér og sá þá að ég hafði
fjórar geirvörtur.
5. Fyrír 13 árum.
Mér fannst ég vera úti stödd og
líta til himins. Þá sé ég hvar
dauðinn kemur ríðandi á hvítum
Háu loftin.
hesti. Dauðinn var beinagrind
með svarta skikkju flaksandi aft-
ur af herðunum, haldandi ljánum
hátt á lofti. Það undarlega við
drauminn var að ungt folald
fylgdi hestinum sem dauðinn reið
á.
6. Dreymt 2. apríl 1984.
Mig dreymdi háaloftið sem mig
hefur dreymt öðru hverju. Þetta
er leyndur staður, oftast er ég ein
þarna en stundum með fjölskyld-
unni. í nótt var margt ókunnugt
fólk þarna.
7. Dreymt 7. febrúar 1988.
í nótt dreymdi mig háaloftið.
Upp á loftið er farið um þröngan
stiga. Neðan við stigann er læst
hurð, frekar lítil. Þar sýnist vera
heill veggur. Ég fór að leita að
lyklinum en hann var þá í
skránni. Upp á loftið fór ég með
nokkrum börnum til þess að
horfa á athöfn eða hátíðahöld
sem áttu að fara fram í nágrenni
hússins. Fólk var að fara í kirkju
þar í nágrenninu, þetta var við
torg og mér fannst þetta vera
Dómkirkjan í Reykjavík. í þetta
sinn fannst mér húsið vera í stór-
borg. Öðru megin á loftinu var
stór gluggi og varaði ég börnin
við því að koma við rúðuna því
hún gæti brotnað. Ég leit út um
annan lítinn glugga og sá þá tvær
konur niðri á götunni, aðra þeirra
þekkti ég, hún heitir Guðbjörg.
Hún bað mig að lofa sér að koma
upp á loftið til þess að taka mynd-
ir af því sem átti að fara fram á
torginu. Lauk þar draumnum.
Ráðning
Oft verða ólíkir draumar frá ól-
íkum tímum að svonefndum
keðjudraumum, þ.e. þeir tengj-
ast saman í huga dreymandans og
mynda ákveðna heild, eins og hér
í draumum Hlínar. Draumarnir
sem spanna „langan“ tíma,
minna hver á annan til að við-
halda sögu sinni og til að
geymast.Draumar þínir Hlín eru
sögulegir, þeir segja sögu ríkra
tilfinninga, frjós hugarflugs og
gerða sem hafa stundum hlaupið
með þig í gönur.
1. og 2. Þarna ertu ung og opin
fyrir lífinu, þér verður að ósk
þinni um hlýju hjörtun og litríka
lífið, en þetta gleðigos stendur
stutt, þú tapar hringnum sem er
þér svo hjartfólginn.
3. - 5. Þig langar að eignast
mörg börn en þau verða færri en
óskað var og þessum tíma fylgja
hættur. Þú flyst búferlum og
eignast nýtt líf.
6. - 7. „Háaloftið“ er hugur
þinn, á háaloftinu verður ósk-
hyggjan raunveruleg og raun-
veruleikinn óskhyggja. Það virð-
ist sem svo að þegar þú eigir í
einhverjum erfiðleikum hverfir
þú á háaloftið, bæði til að leita
þér huggunar og einnig til að
plata sjálfið þitt. Þar sem Guð-
björg er komin, máttu búast við
björtum dögum, mannfögnuðum
og ferðalögum og síðast en ekki
síst, þú finnur hringinn.
Þeir dreymendur sem vilja fá drauma sína ráðna sendi
þá ásamt fullu nafni, heimilisfangi og dulnafni til
blaðsins merkt: Draumstafir, Nýtt helgarblað, Þjóð-
viljinn, Síðumúla 6, 108 Reykjavík.
KRISTJÁN
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 25. nóvember 1988