Þjóðviljinn - 25.11.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 25.11.1988, Blaðsíða 3
Herkostnaður siðferðisins Bíla- og vélanefnd ríkisins heitir nefnd sem heyrir undir fjármálaráðuneytiö og hefur það hlutverk að sjá um fram- kvæmd reglugerðar um bif- reiöamál ríkisins. Hefur nefndin m.a. með það að gera hvaða bíltegundir ríkið kaupir og þarf því að fylgjast nokkuð vel með á því sviði. Bifr- eiðaumboðin hafa hingað til verið nokkuð viljug til að að- stoða þá Gunnar Gunnars- son, lögfræðing og formann nefndarinnar, Kristin Ólafs- son tpllgæslustjóra og Bjarna Ólafsson yfirdeildar- stjóra við að kynna sér ágæti einstakra bíltegunda á er- lendri grund og hafa jafnvel borgað kostnað fyrir nefndar- menn af því tilefni. Nú hefur Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra hins vegar tekið fyrir þessar ferðir og neitaði nefndinni nú um dag- inn um að þiggja boðsferð á vegum Toyota-umboðsins til útlanda. Hefur ráðherrann væntanlega talið það vega þyngra að ekki váeri hægt að segja að embættismenn hans þægju „greiða" af aðilum með beina hagsmuni í húfi, en að horfa í þann aukna kostnaö sem af því hlýst að fjármála- ráðuneytiö borgi slíkar „kynn- isferðir" undir bílanefndar- menn... ■ Ríkissjónvarpið í fararbroddi Það vakti nokkra athygli, þeg- ar Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri tók á sig rögg um daginn og krafðist úrskurðar menntamálaráðuneytisins um hvort heimilt væri að hafa auglýsingaskilti í bakgrunni þegar sjónvarpað væri öðru efni en auglýsingum. Mennta- málaráðuneytið kvað upp sinn úrskurð sem reyndar kom fyrst og fremst við Stöð 2 í þessu tilfelli, en framtak Markúsar var talið sýna tvennt: annars vegar áhuga hans á að farið væri eftir sett- um reglum og svo hins vegar að þau eru mörg gráu svæðin þegar kemur að auglýsingum og aðskilnaði þeirra frá öðru sjónvarpsefni. Það hefur vak- ið athygli sjónvarpsáhorfenda að Sjónvarpið virðist óneitan- lega farið að róa á hin gráu mið eftir að ellefu-fréttum var hleypt af stokkunum. Sýning- artíma kvikmynda er nú nán- ast undantekningarlaust hag- að þannig að gera þarf hlé til að auglýstur fréttatími fái staðist. Það er athugunarefni út af fyrir sig, en til að bæta gráu ofan á svart þá er auglýsingatíma skeytt framan við fréttirnar inni í miðri bíó- mynd. í þriðju grein reglu- gerðar um auglýsingar í út- varpi segir: „Auglýsingatím- um skal jafnan hagað þannig að ekki leiði til afbökunar á dagskrárefni eða verulegrar röskunar á samfelldum flutn- ingi." Sennilega er það fras- inn „skal jafnan hagað...“ sem gefur gráa litinn, en. óhætt mun að fullyrða að þarna sigli sjónvarpsstjóri á „gráu svæði“ og spurning hvort Stöð 2 gjaldi honum ekki rauðan belg fyrir gráan, með því að leita úrskurðar mennta- málaráðuneytisins um lög- mæti þessarar tilhögunar...B í Betlehem Það verður eflaust til að gleðja þá sem fagna því þegar Jón Baldvin lætur sig hverfa af landinu, að mikið mun verða um brottfarir hjá Jóni á næstunni. Þannig fer Jón þann 27. nóvember til Genfar á EFTA-fund, fer þaðan til Malmö í Svíþjóð og eftir stutt- an stans hérna heima verður haldið á NATÓ-fund í Brussel 8. og 9. desember. Þaðan fer hann til Parísar og loks í opin- bera heimsókn til Póllands 12. til 14 desember. Heimildir Nýja Helgarblaðsins telja afar ólíklegt að Jón Baldvin muni dvelja á íslandi yfir jólahátíð- ina heldur eru allar líkur taldar benda til að hann muni dvelja í Betlehem...B Sr. Gunnar og munnsöfnuðurinn Því hefur heyrst fleygt að nokkrar þeirra bóka sem T ákn sf. fyrirhugar að gefa út nú fyrir jólin eigi lögbann yfir „höfði“ sér. Þannig munu að- standendur Óla Ket. íhuga lögbann á viðtalsbók Guð- mundar Daníelssonar „Á miðjum vegi í mannsaldur" og jafnvel Prentsmiðja Suður- lands líka. Ástæða þess er að Prentsmiðja Suðurlands gaf út á sínum tíma Spítalasögu Guðmundar Dan. og í Ólafs sögu Ketilssonar sem T ákn er nú að gefa út er að finna heilan kafla, sem er nánast orðrétt endurprentaður úr Spítalasögunni. Þá hefur sem jafn gaman er að gefa og þiggja N JL ^ úna er tími jólakortanna, tíminn til að senda ættingjum og vinum ljúfar jóla- og nýárskveðjur. Fallegt jólakort með skemmtilegri ljósmynd af „uppáhalds“ fólkinu þínu er sannarlega ein gleðilegasta jólagjöf sem völ er á. FUJI framköllunin við Eiðistorg býður stór og litrík íslensk jölakort,ætluð fyrir ljósmyndir, ásamt umslagi á aðeins 28.-kr. Við framköllum litljósmyndir og göngum frá kortum með mynd sé þess óskað. Tilbúið kort með mynd og umslag kostar 45 - kr. FUJI framköllunin, Eiðistorgi 15. Síminn er (91)-611215. EIÐISTORGI Tákni borist hótanir um lög- bann á bók þeirra llluga og Hrafns Jökulssona um Nas- ista á íslandi og munu það fyrst og fremst vera áhyggju- fullir aðstandendur fyrri fylgis- manna þeirrar stefnu hér- lendis sem að þeim standa. Loks munu nokkrir meðlimir í Fríkirkjusöfnuðinum íhuga að setja lögbann á bókina Séra Gunnar og Fríkirkjusöfnuður- inn, vegna þess meinta munnsöfnuðar sem sr. Gunn- ar kvað þar viðhafa um sum sóknarbarna sinna. Reyndar er þegar farið aö skíra þá bók upp á nýtt og kallast hún nú manna á meðal Sr. Gunnar og munnsöfnuðurinn...B J a, h ver þrefaldur! Þrefaldur fyrsti vinningur á laugardag! Láttu ekki þrefalt happ úr hendi sleppa! Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111 Kynningarþjónustan/SÍA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.