Þjóðviljinn - 25.11.1988, Blaðsíða 9
FOSTUDAGSFRETTIR
Einn af handhöfum forseta-
valds, Magnús Thoroddsen
forseti Hæstaréttar, hefur keypt
1440 flöskur af áfengi, aðallega
vodka en einnig nokkuð af viskí,
það sem af er Jþessu ári. Áfengið
var keypt hjá ATVR á svokölluðu
„diplómataverði“ og ekki greitt
nema 120 krónur fyrir hverja
flösku. Þetta var uppiýst í fréttum
Ríkisútvarpsins í gærkvöldi.
Ólafur Kagnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði að hann hefði
látið athuga þetta alvarlega mál
en vildi ekki ræða einstök atriði
þess að svo komnu máli. Hann
hefði fengið upplýsingar um mál-
ið hjá Guðrúnu Helgadóttur for-
seta sameinaðs þings og haft síð-
an samband við forstjóra áfengis-
verslunarinnar.
Upplýsingar um málið munu
hafa borist Guðrúnu Helgadóttur
frá Ríkisendurskoðun. Má gera
því skóna að ný boðleið hafi opn-
ast í kerfinu þegar ákveðið var að
Ríkisendurskoðun skyldi heyra
beint undir alþingi.
Ólafur Ragnar sagðist myndu
láta athuga áfengiskaup opin-
berra starfsmanna. Vín ætti ekki
að selja með þessum kjörum
nema til sendiráða og til ráðu-
neyta vegna opinberra veislu-
halda á þeirra végum og einnig til
alþingis sem stofnunar vegna
móttökuathafna. Handhafar
forsetavalds ættu ekki að geta
keypt vín á þessum kjörum nema
um væri að ræða opinberar
veislur sem þeir héldu þá sem
Það eru ekki allir sem þurfa að standa í biðröðum í þau skipti sem buddan leyfir að þeir kaupi sér vodkaflösku fyrir 1.400 krónur eða
meir. Sumir geta notað sér tækifaerið þegar forseti lýðveldisins er í útlöndum, fá þá marga kassa senda heim og greiða ekki nema 120
krónur fyrir flöskuna.
hópur, nokkurs konar forseta-
veislur að forsetanum fjarstödd-
um. Ólafur sagðist ekki vita til að
slíkar veislur hefðu verið haldn-
ar.
Ásamt forseta hæstaréttar eru
forsætisráðherra og forseti sam-
einaðs þings handhafar forseta-
valds. Einu embættisverk hand-
hafa forsetavalds hafa verið að
undirrita lög þegar forsetinn hef-
ur ekki verið á landinu og verður
að ætla að allir hafi verið
ódrukknir við þá athöfn.
Eftir Magnúsi Thoroddsen er
haft að hér sé um einkamál hans
að ræða og að hann hafi verið í
fullum rétti til að kaupa vín á
þessu verði. Hann mun hafa spar-
að sér hátt í 2 milj. króna með að
fá þessar 1440 flöskur á diplómat-
aprís.
Álitið er mjög óh'klegt að
nokkur maður hafi getað drukkið
allt þetta vín aleinn, þ.e. tæpar 5
flöskur hvern einasta dag. Flest-
um dugar miklu minna magn til
að vita hvorki í þennan heim né
annan og í því ástandi yrði flest-
um um megn að skera úr við-
kvæmum deilumálum sem varð-
að geta líf og heill margra manna.
ÓF
Diplómatavm
Fimm flöskur á dag
Flaskan ál20 kall. Forseti hæstaréttar fékk 1440flöskur afsterku. Magnús Thoroddsen í vínkaupum sem einn af
handhöfum forsetavalds. Keypt til einkanota meðanforseti lýðveldisins var erlendis. Afsláttur um 2 miljónir
Hvalveiðar
Atök við verslanir Aldi
Grœnfriðungar loka Aldi-verslunum í Þýskalandi. Nasco hf.: Hefur
tapað umtalsverðum sölusamningum aflagmeti ogfrystum
sjávarafurðum í Þýskalandi vegna hvalveiðistefnu íslenskra stjórnvalda
Grænfriðungar voru með
kröftug mótmæli gegn hval-
veiðum íslendinga í gær. Fjöldi
Grænfriðunga raðaði sér fyrir
framan dyr verslana Aldi-
verslana og meinaði fólki
inngöngu. Kom til átaka við
nokkrar verslanir. „Ég met
stöðuna þannig að þetta sé tapað
áróðursstríð og að við ættum að
snúa við blaðinu með stæl og
segja við Grænfriðunga: Strákar
verið ekki með þessi læti. Við
erum hættir hvalveiðum í vís-
indaskyni,“ sagði Egill G. Jóns-
son framkvæmdastjóri Nasco hf.
North Atlantic Seafood.
Fyrirtækið hefur ekki farið
varhluta af baráttu þýskra Græn-
friðunga gegn hvalveiðistefnu ís-
lenskra stjórnvalda í Þýskalandi.
Umboðsmenn og fiskfram-
leiðendur þar hafa kippt að sér
höndum í viðskiptum sínum við
Nasco hf. að undanförnu vegna
hvalveiðistefnu íslenskra
stjórnvalda sem mælast afar illa
fyrir meðal almennings ytra.
Egill sagði að samkvæmt sínum
heimildum frá Þýskalandi væru
íslendingar og hvalveiðar þeirra
settir á sama bekk og ógnarstjórn
hvítra í Suður Afríku.
Sölustofnun lagmetis hafa bor-
ist óskir um að hætt verði að geta
þess á umbúðum íslensks lag-
metis, að það komi frá íslandi.
Verslunarkeðjan Aldi er einn að-
ilanna sem hefur óskað eftir
þessu. En fyrirtækið kaupir lag-
meti fyrir tugi miljóna á ári frá
íslandi. Theodór Halldórsson
framkvæmdastjóri Lagmetisins
segir þessar óskir fyrirtækjanna
sýna hve alvarlegt ástandið er í
Þýskalandi. En auðvitað verði
ekki hægt að láta undan þessum
óskum, ekki sé hægt að sigla
undir fölsku flaggi á erlendum
mörkuðum. En nafnið ísland
hefði tvímælalaust neikvæða
merkingu í huga margra Þjóð-
verja.
Áð sögn Egils G. Jónssonar
var Nasco með umtalsverðan
sölusamning af lagmeti í burðar-
liðnum við þýska kaupendur sem
ekkert varð af vegna áróðurs
Grænfriðunga gegn íslenskum
sjávarafurðum. Þá hefðu einnig
tapast sölusamningar á hátt á
annað hundrað tonnum af fryst-
um afurðum ss. ufsaflökum, grá-
lúðu og sólkola. Egill sagði erfitt
að meta tap fyrirtækisins í
beinhörðum peningum en sagði
að það væri umtalsvert.
„Áróður þýskra Grænfriðunga
gegn íslenskum afurðum er miklu
meiri en almenningur hér heima
gerir sér grein fyrir. Frá mínum
bæjardyrum séð eru þetta hermd-
arverkasamtök sem einskis svíf-
ast í aðgerðum sínum og eru
geysilega vel skipulögð,“ sagði
Egill G. Jónsson.
Grænfriðungar í Þýskalandi
segjast mjög ánægðir með árang-
urinn af aðgerðum sínum. Á
skrifstofu þeirra í Hamborg var
fullyrt að mótmælin sem höfð
voru uppi í 58 borgum fyrir viku
síðan, hefðu skilað miklum ár-
angri. Grænfriðungar væru ekki í
stríði við íslensku þjóðina heldur
hvalveiðistefnu stjórnvalda.
-grh/hmp
ASÍ
Bima vara-
maður í
miðstjóm
Öll samtök riðluðust við
kjör varamanna
Á þingi Alþýðusambandsins
var í gærmorgun tilkynnt um úr-
slit í kjöri 9 manna í miðstjórn.
Kosning fór fram í fyrrakvöld og
stungu þá þingfulltrúar upp á 12
mönnum til viðbótar þeim sem
kjörnefnd hafði gert tillögu um.
Birna Þórðardóttir, baráttujaxl
af vinstri vængnum, náði þá kjöri
sem 8. varamaður, en hún sat á
þinginu sem 14. varamaður
Verslunarmannafélags Ryíkur.
Varamenn sem voru kjörnir:
1. Karitas Pálsdóttir, 2. Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir, 3. Guð-
rún Gísladóttir, 4. Guðrún Ólafs-
dóttir, 5. Þorbjörg Samúelsdótt-
ir, 6. Friðrik Jónsson, 7. Sigrún
Clausen, 8. Birna Þórðardóttir,
9. Leifur Guðjónsson. Ap