Þjóðviljinn - 25.11.1988, Blaðsíða 6
Búsetabyltingin er hafin. Nýr valkostur í félagslega íbúðakerfinu þar sem
eingöngu er farið eftir númeraröð við úthlutun. Kerfi þar sem séreignastefnunni
er gefið langt nef. Húsnæðiskerfi sem gerir ráð fyrir því að allir einstaklingar séu
ekki steyptir í sama mótið, heldur kjósi sumir að eyða lífi sínu í annað en að
eignast eigin steinkastala, þótt þeir vilji fá að búa við öryggi í húsnæðismálum,
sem hlýtur að vera sjálfsögð mannréttindakrafa í velferðarþjóðfélaginu.
Búseti hefur mætt harðri andstöðu, einkum þeirra afla sem vilja slá skjaldborg
um séreignastefnuna. Ákveðnir einstaklingar hafa staðið þar í broddi fylkingar
og lagst gegn öllum úrbótum sem hefðu getað opnað fyrir búsetakerfið. Halldór
Blöndal, þingmaður íhaldsins, hefur verið þar fremstur í flokki og ætíð séð rautt
þegar minnst var á þetta húsnæðisform og hefur Sjálfstæðisflokkurinn jafnvel
verið tilbúinn að rifta stjórnarsamstarfi, einsog bæði Alexander Stefánsson og
Jóhanna Sigurðardóttir hafa orðið að reyna, þegar þau sem félagsmálaráðherrar
voru tilbúin að Ijá búsetakerfinu eyra.
Þrátt fyrir það virðist Búseti nú vera að vinna sinn fyrsta sigur eftir fimm ára
þrotlausa baráttu, sem oftast virtist vonlaus. Húsið er risið í Grafarvogi og f jörtíu
og sex búsetafjölskyldur flytja inn í desember. Og þegar eru hafnar framkvæmd-
ir við næstu búsetaíbúðirnar, sem rísa munu í Hafnarfirði. Akureyringar, Selfys-
singar og Borgnesingar hugsa sér einnig tii hreyfings og sveitarstjórnarmenn
víða á landsbyggðinni sjá búsetakerfið sem vænlegasta húsnæðiskost fyrir
landsbyggðina núna.
Það var kaupleigukerfi Jóhönnu Sigurðardóttur sem opnaði glufu fyrir Búseta.
Búseti stakk löppinni inn í rifuna og virðist nú vera kominn inn í hið íslenska
húnæðiskerfi, að öllum líkindum til þess að vera, því þeir þrír flokkar sem mynda
ríkisstjórn nú hafa allir lýst yfir stuðningi við þetta húsnæðisform.
-Sáf
Húsnæöissamvinnufélagiö
Búseti verður fimm ára á
morgun, laugardaginn 26.
nóvember. Sama dag veröur
haldinn hundraöasti stjórnar-
fundur félagsins. Og meira
stendur til því á morgun mun
verktakafyrirtækið Hagvirki
afhenda blokkina að Frosta-
foid 20 í Grafarvogi í Reykja-
vík, fullfrágengna og 46 bú-
setafjölskyldur fá afhent fram-
tíðarhúsnæöi sitt. Draumur-
inn sem fæddist á haustdög-
um 1983 hefur ræst þrátt fyrir
ýmislegt andstreymi undan-
farin ár og harða andstöðu
margra stjórnmálamanna.
Og framundan er áfram-
haldandi uþþbygging á veg-
um Búseta. Fyrsta skóflu-
stungan hefur þegar verið
tekin við fjölbýlishús í Suður-
hvammi í Hafnarfirði en í því
húsi verða 16 íbúðir og er
stefnt að því að það hús verði
fullbúið að ári liðnu, þó sá
fyrirvari sé hafður á fram-
kvæmdahraðanum, að hann
ráðist af fjármögnuninni. Þá
hefur Búseti tryggt sér 72
íbúða áfanga í Kolbeinsstað-
amýrinni á Seltjarnanesi og
verða báðir þessir áfangar
byggðir á aðalverktakasamn-
ingi við Hagvirki.
Þá hefur landsbyggðin
tekið við sér og hafa þeir
Guðni Jóhannesson, formað-
ur landssambands Búseta og
Reynir Ingibjartsson, starfs-
maður Búseta ferðast vítt og
breitt að undanförnu og kynnt
húsnæðissamvinnufélög.
Þegar eru Búsetafélög
starfandi á Akureyri, í Borgar-
firði og í Árnessýslu en víða
annarsstaðar eru undirbún-
ingshópar starfandi.
Búseturéttur
Hvað er búseturéttur? Guðni
Jóhannesson, verkfræðingur var
inntur eftir því.
„í húsnæðissamvinnufélagi eru
byggðar íbúðir fyrir félagsmenn
og þær afhentar með þeim hætti
að félagsmaður greiðir við af-
hendingu íbúða svokallað búset-
uréttargjald, sem er ákveðinn
hluti af byggingarkostnaði. Þetta
gjald ákvarðast af mismun bygg-
ingarkostnaðar og langtíma
fjármögnunar, sem í boði er.
Þessvegna getur búseturéttargj-
aldið aldrei orðið minna en 15%
af byggingarkostnaði, sem er
mismunur láns Húsnæðisstofn-
unar og byggingarkostnaðarins.
Fasteignin er og verður um ó-
komna framtíð eign húsnæðiss-
Búsetablokkin í Grafarvogi vígð áfimm ára afmœlifélagsins
Guðni Jóhannesson: Mikill áhugi á landsbyggðinni
amvinnufélagsins sem byggir réttur við úthlutanir hjá öðrum
hana. Um hverja fasteign er húsnæðissamvinnufélögum þeg-
myndað búsetufélag, sem er armennflytjastámillistaða. Það
er
ábyrgt fyrir rekstri og viðhaldi
fasteignarinnar. f því félagi eru
eingöngu íbúar hússins. Þetta fé-
lag tekur ákveðið leigugjald, sem
við köllum búsetugjald, af þeim
sem búa í íbúðunum. Þetta gjald
Guðni Jóhannesson: Á lands-
fundi Búseta um síðustu helgi lét
ég þau orð falla að við hefðum
ekki bara byr, þetta væri fána-
blástur.
á að standa undir kostnaði við
fjármögnun og rekstur bygging-
arinnar.
Sá sem hefur fengið búseturétt1
öðlast ótfmabundinn afnotarétt
af íbúðinni meðan hann stendur
skil á búsetugjaldinu. Búseturétt-
urinn er ekki framseljanlegur
samkvæmt þeim reglum sem Bú-
seti hefur sett sér, heldur gengur
hann aftur til félagsins á verði
sem í grófum dráttum er upphaf-
legt búseturéttargjald upp-
reiknað með gildandi vísitölu.
Hinsvegar er hægt að erfa búset-
urétt.“
Númeraröðin
ræður
Eftir hverju er farið þegar
íbúðum er úthlutað?
„Við inngöngu í húsnæðissam-
vinnufélag fá menn félagsnúmer
og reglan er sú að húsnæðinu er
úthlutað eftir þessari númeraröð,
að vísu með hugsanlegum tak-
mörkunum sem lög gera ráð
fyrir, t.d. um tekjumörk ef um er
að ræða lán til félagslegs húsnæð-
is. Sá sem fær íbúð úthlutað held-
ur áfram sínu númeri þannig að
möguleikarnir á að skipta um
íbúð innan kerfisins við úthlutan-
ir á nýjum íbúðum eru ótakmark-
aðir.
Eins er það fyrirkomulag víða
fyrir hendi á Norðurlöndum að
mönnum er tryggður ákveðinn
markmið okkar að koma
slíku fyrirkomulagi eftir því sem
starfsemin eflist í kringum
landið."
Á síðasta þingi voru samþykkt
lög um kaupleiguíbúðir, en þið
byggið búseturéttaríbúðir og fáið
fyrirgreiðslu í kaupleigukerfinu.
Er búsetakerfið bara eitt form af
kaupleigunni?
„I raun og veru ef lögin um
kaupleigu, sem sett voru sl. vor
eru skoðuð, þá kemur glögglega í
ljós að kaupleiga einsog hún er
skilgreind f þessum lögum, nær
ekki einungis yfir það form þar
sem íbúðir eru leigðar út með
kauprétti, heldur er kaupleigan
samheiti yfir mismunandi form
milli eignar og leigu einsog t.d.
hlutareign og þar með talið bú-
setaréttarformið.
Þegar lögin voru sett þá voru
ákveðnar takmarkanir í þeim
sem útilokuðu hlutareignarform-
,ið úr hinum félagslega hluta lag-
anna. Nú er í undirbúningi frum-
varp sem opnar fyrir búseturétt-
aríbúðir, bæði innan almennrar
og félagslegrar kaupleigu.
Það sem sárlega vantar, þrátt
fyrir að fjármögnun verði tryggð
með lögum, eru lög um húsnæð-
issamvinnufélög og búseturétt
þannig að réttarstaða félaga í
húsnæðissamvinnufélögum, og
ekki síst þeirra sem hafa fengið
búseturéttaríbúð, verði tryggð.
Þetta er afar brýnt.“
Alverktakan
reynist vel
Hversu margir eru félagar í
Búseta núna?
„Skráðir félagar í Reykjavík
eru rúmlega 2.800, en Reykjavík-
urfélagið nær yfir allt höfuðborg-
arsvæðið, þar með talið Hafnar-
fjörð, Kópavog, Seltjarnarnes og
Mosfellsbæ. Það má eiginlega
segja að það hafi verið gerð
innrás á félagaskrána eftir að
byggingin í Grafarvogi fór að
rísa.“
Nú hafið þið haft samvinnu við
Hagvirki og hefur sú samvinna
verið í mjög nýstárlegu formi,
svokölluðu alverktakaformi.
Viltu skýra það nánar?
„Þessi samvinna við Hagvirki
hefur reynst mjög vel og því höld-
um við henni áfram bæði í Hafn-
arfirði og á Seltjarnarnesi.
Reynslan af því að ráða alverk-
taka er mjög góð af þessu fyrsta
verki. Þar sem verð á íbúðum var
ljóst frá upphafi þá var hægt að
kynna væntanlegum íbúum
hvaða fjárhagslegar skuldbind-
ingar væru því samfara að fara
þarna inn og ekki síst að með því
að gefa verktakanum færi á að
aðlaga hönnun hússins að þeim
byggingaraðferðum sem eru hag-
stæðastar fyrir hann, þá hefur
náðst veruleg lækkun á bygging-
arkostnaði einsog íbúðaverðið
ber með sér.“
Hentar á
landsbyggð-
inni
Þú ert nýkominn úr ferð um
landsbyggðina þar sem húsnæðis-
samvinnuhugmyndin hefur verið
kynnt.
„Já við Reynir Ingibjartsson
höfum ferðast víða að undan-
förnu til þess að ræða við heima-
menn sem hafa haft áhuga á að fá
okkur á sinn fund. Það hefur ver-
ið skemmtilegt fyrir okkur að
finna þann mikla áhuga sem er
fyrir þessu, þá ekki síst meðal
forráðamanna og sveitarstjórnar-
manna, sem margir líta á þennan
kost sem vænlegastan til þess að
leysa húsnæðisvanda byggðarl-
agsins.
Svo merkilegt sem það nú er,
þá háttar þannig víða til að at-
vinnutækifærin eru fyrir hendi á
stöðunum. Það er skortur á vinn-
uafli. Fólk sem vill flytjast á stað-
inn getur hinsvegar ekki hugsað
sér að verða þínglýstir eigendur
að fasteignum á staðnum áður en
það hefur nokkra hugmynd um
það hvort það mun festa þar ræt-
ur.
Nú eru undirbúningsnefndir,
sem eru að vinna að stofnun
húsnæðissamvinnufélaga, starf-
andi á Ólafsfirði, Húsavík, Akra-
nesi, Neskaupsstað, Seyðisfirði,
Egilsstöðum, Höfn og í Vest-
mannaeyjum.
Víða úti á landi hafa menn sótt
um til bygginga kaupleiguíbúða
og lánsloforð frá Húsnæðisstofn-
un eru þegar fyrir hendi. Það get-
ur því í raun og veru farið svo að
bygging búseturéttaríbúða hefjist
fyrr en varir í þeim byggðarlögum
þar sem enn hafa ekki verið
stofnuð félög ef forráðamenn
sveitarfélaganna láta lánsloforð-
in í hendur á húsnæðissamvinn-
ufélögum á staðnum.
Félögin í Borgarnesi, á Akur-
eyri og í Árnessýslu eiga inni
sjálfstæðar umsóknir hjá Hús-
næðisstofnun sem verða af-
greiddar á næstu mánuðum. Ef
fjármögnun hefst eru menn til-
búnir að hefjast þegar handa við
byggingar íbúða.“
Búseti er sem sagt kominn á
fullan skrið.
„Það er óhætt að segja að við
séum komnir á fulla ferð. Á
Landsþingi Búseta um síðustu
helgi Iét ég þau orð falla, að við
hefðum ekki bara byr, þetta væri
fánablástur.“
-Sáf
Hið glæsilega fjölbýlishús Búseta að Frostafold 20 í Grafarvogi í Reykjavík.
6 SÍÐA _ NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 25. nóvember 1988