Þjóðviljinn - 02.12.1988, Blaðsíða 27
KYNLÍF
JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓnift
Breytingaskeið karla
og áhrif öldrunar
á kynsvörun
Um daginn fékk ég spurningu
frá karlmanni um hvort
breytingaskeið karla væri til. Því
má svara játandi þó svo að það sé
ekki algengt. Með hugtakinu
„breytingaskeið" er átt við líkam-
legar og lífeðlisfræðilegar
breytingar sem eiga sér stað hjá
konum og körlum milli fertugs og
sextugs. Breytingaskeið kvenna
hefst með tíðahvörfum og gerist
hjá öllum konum. Breytinga-
skeið karla er ekki eins skýrt af-
markað og aðeins um fimm pró-
sent karla yfir sextugt upplifa
það. Meirihluti karlmanna upp-
lifir semsagt ekki „breytinga-
skeið“ þar sem einkennin eru
svipuð og hjá konum. En hver
eru einkennin hjá þessum fimm
prósentum karlmanna sem upp-
lifa það? Einkennin geta verið
eitt eða fleiri: slappleiki, þreyta,
minni matarlyst, minni kynlöng-
un, stinningarerfiðleikar, pirr-
ingur og minni einbeitingarhæfi-
leikar. Talið er að breytingarnar
tengist lítilli framleiðslu testo-
sterón kynhormónsins og er hægt
að slá á einkennin með hormóna-
gjöf-
Stinning tekur
lengri tíma
Hitt er svo annað mál að kyn-
svörun (það sem gerist í líkaman-
um við kynferðislega örvun)
karla breytist eðlilega með aldr-
inum og þá aðallega hjá mönnum
sem nálgast sextugsaldurinn.
Eftir fertugsaldurinn hægir á
sæðisframleiðslu hjá körlum en
hún heldur áfram fram á gamals
aldur. Framleiðsla testosterón
kynhormóns fer minnkandi hjá
körlum uppúr fimmtíu og fimm
eða sextíu ára aldri. Vegna van-
þekkingar halda sumir karlmenn
að þessar eðlilegu breytingar séu
upphaf að endalokum samlífs hjá
sér en svo er yfirleitt ekki. Þessi
eðlilegu öldrunaráhrif sem gætir
á mismunandi tíma og á mismun-
andi hátt hjá hverjum karlmanni
lýsa sér m.a. í því að það tekur
lengri tíma fyrir tippið að verða
stinnt og örvun kynfæra þarf að
vera sterkari og beinni en áður.
Stinningin gerist síður „bara af
sjálfu sér“ og þarf þá maki, ef
hann er til staðar, að hjálpa meira
til við örvunina. Einnig er tippið
ekki eins stinnt og áður. En
líkamlega séð er ekkert sem kem-
ur í veg fyrir stinningu tippis hjá
eldri karlmanni þó svo að
eitthvað af áðurnefndum
breytingum eigi sér stað. Þetta
veldur sumum körlum áhyggjum
en er skiljanlegt því fantasíumód-
el karla í kynlífi segir að tippið
eigi að „vera hálfs metra langt,
hart eins og stál og vera að alla
nóttina“. Fantasíumódelið veld-
ur því að karlmenn eru að hafa
áhyggjuraf því sem þeirhafaekki
í staðinn fyrir að njóta þess sem
þeir hafa. Hjá sumum karl-
mönnum lengist einnig sá tími
sem það tekur að fá aðra stinn-
ingu eftir sáðlát. Aðrir fara að
taka eftir minni þörf fyrir að fá
sáðlát í hvert skipti og sáðlátið er
ekki eins kröftugt. Svo getur það
tekið lengri tíma að upplifa sáðlát
og finnst sumurn það í rauninni
bara ágæt breyting, sérstaklega ef
þeir voru vanir að fá of fljótt sáð-
lát á yngri árum. Að þessu leyti
geta öldrunarbreytingarnar
stuðlað að betra samlífi.
Þörf fyrir munúð
eykst
Þegar aldurinn færist yfir hefur
fólk samfarir sjaldnar en áður.
Það eru til margar ástæður fyrir
þessu svo sem leiði, minni kyn-
löngun, sjúkdómar eða trú á goð-
sagnir um að samlíf sé bara fyrir
ungt og fallegt fólk. Viðhorf al-
mennings til kynlífs aldraðra er í
stuttu máli neikvætt og ein-
kennist af gálgahúmor og van-
þekkingu. Sú kynhegðun sem
gerir þrítugan karlmann að
kvennagulli gerir sjötugan mann
að „saurlífissegg". Sumir fyllast
jafnvel ógeði þegar þeir hugsa til
þess að foreldrar þeirra hafi sam-
farir. Aldraðir taka því miður
stundum mark á þessum viðhorf-
um og þora ekki að láta í ljós
eðlilegar kynþarfir sínar. Kyn-
hvötin hverfur ekki um leið og þú
færð ellilífeyri. Frá fæðingu til
dauða höfum við þörf fyrir að
upplifa munúð og innileika -
kannski ekki síst á efri árum þeg-
ar einmanaleiki og einangrun vill
oft verða hlutskipti aldraðra.
SKAK
Sovétmenn bestir
Sovétmenn sigruðu örugglega á
ólympíumótinu sem lauk nú í vik-
unni. Næstir komu Englendingar
og Hollendingar og síðan Ung-
verjar og Bandaríkjamenn. Is-
lenska sveitin náði ekki að sýna
sínar réttu hliðar og var aldrei í
baráttu um efstu sætin. Sovéska
sveitin með þá Kasparov, Karp-
ov, Beljavsky, Ivanchuck, Jusup-
ov og Ehlvest tefldi skínandi vel
allt mótið og sýndi fram á þá ótrú-
legu yfirburði sem Sovétríkin
hafa í skákinni. Allt frá
brauðbyltingunni 1917 hafa yfir-
völd þar í landi verið sannfærð
um að eiginleikar þeir sem skák-
menn þroska með sér séu þeir
sömu og góður og gegn bylting-
arsinni hefur. Eru þessir menn
því skínandi dæmi sem ber að efla
sem mest. Kannski breytist þetta
allt í glasnostinu.
Röð efstu sveita kemur ekki á
óvart, allt eru þetta stórþjóðir í
skákinni. Þetta mun þó vera besta
útkoma Hollendinga síðan í Haifa
1976, og það án Timmans.
Árangur íslensku sveitarinnar
veldur að vonum nokkrum von-
brigðum. Miklar vonir voru
bundnar við sveitina þar sem hún
var nú sterkari en nokkru sinni
fyrr auk þess sem hún hafði náð
frábærum árangri á síðasta móti.
Ég ætla ekki að fjölyrða um
ástæður en ljóst er að menn þurfa
að skoða dæmið vandlega. Ár-
angur einstakra manna varð
þessi: Jóhann Hjartarson 6/12,
Jón L. Áranson 7/12, Margeir
Pétursson 71/2/12, Helgi Ólafsson
7/12, Karl Þorsteins 2W5 og
Þröstur Þórhallsson 2/3. Þetta var
fyrsta ólympíumót Þrastar og
stóð hann fyllilega fyrir sínu. I
Islendingar fjarri sínu besta
kvennaflokki gerðist það í fyrsta
sinn sem Sovétmenn senda sveit
að gull vannst ekki. Þetta er
geysilegt áfall fyrir sveitina en
eins og menn sem lesa fréttir vita
gekk á ýmsu hjá henni. Ein þeirra
gekk í átt til meira frelsis og óska
ber henni velfarnaðar í hinu nýja
og spennandi lífi hennar.
Auðvitað voru það litlu Polg-
arsysturnar sem stálu gullinu. Sú
yngsta þeirra virðist á góðri leið
með að láta Kasparov éta oní sig
ummælin um að konur séu
eitthvað verri í höfðinu til listar-
innar. En hann er nú svo ósköp
nútímalegur. Hvað um það, syst-
ur þessar eiga svo gáfaða foreldra
að þær ganga ekki í skóla eins og
ég og þú heldur kenna foreldr-
arnir þeim allt sem boðlegast
þykir og væri nú fróðlegt að fá að
glugga inn í svo sem eins og eina
kennslustund.
Snúum okkur að skákum dags-
ins, en þær verða fjórar. Þrjár
skákir Kasparovs þar sem er ým-
ist allt í háalofti eða stilla og loks
kemur skák baunans Höi við
Gulko þar sem bregður fyrir
einni glæsilegustu fléttu sem ég
hef séð.
Hvítt: Ghcorghiu
Svart: Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. d4-Rf6 6. Be3-e5
2. c4-g6 7. d5-c6
3. Rc3-Bg7 8. Dd2-cxd5
4. e4-d6 9. cxd5-Rbd7
5. 13-0-0 10. Rge2-a6
11. Rcl-Rh5
12. Bd3-f5
13. Rle2-Rdf6
14. cxf5-gxf5
15. Rg3
15. -e4
16. Rxh5-Rxh5
17. fxe4-f4
18. Bf2-Bg4
19. h3-Bd7
20. 0-0-0-Be5
21. Kbl-Df6
22. Be2-Rg3
23. Bxg3-fxg3
24. Bf3-Hac8
25. Re2-Dg6
26. Hcl-Hxcl
27. Dxcl-Hc8
28. De3-Df6
29. Dd2-Hc5
30. Rcl-Bf4
31. Db4-Bb5
32. Rb3-Bd3
33. Kal-Hc2
34. Hbl-Be5
35. Rcl-Bxb2!
36. Dxb2-Dxb2!
og hvítur gaf.
Hvítt: Torre
Svart: Kasparov
Drottningarpeðsby rj un
1. d4-Rf6
2. Rf3-g6
3. Bg5-Bg7
4. c3-d5
5. Rbd2-Rbd7
6. e3-0-0
7. b4-c6
8. Be2-He8
9. 0-0-e5
10. a4-h6
11. Bh4-a5
12. b5-c5
13. dxe5-Rxe5
14. Rxe5-Hxe5
15. Bxf6-Bxf6
16. Hcl-b6
17. Bg4-Bb7
18. Bf3-De7
19. c4-Hd8
20. Dc2-d4
21. Bxb7-Dxb7
22. cxd4-Hxd4
23. Hcel-Hxel
24. Hxel-Dd7
25. Rfl-h5
26. g3-h4
27. Re3-De6
28. De2-He4
29. gxh4-Bc3
30. Hdl-Hxh4
31. Df3-Bd4
32. Rg2-Hh3
33. Dd5-Df6
34. Re3-HD
35. Khl-Hxf2
36. Rg4-DD
37. DxD-HxO
38. Hcl-Ha3
39. He8-Kg7
40. Hb8-Hxa4
41. Hxb6-Hxc4
42. Ha6-Hb4
og hvítur gafst upp.
Hvítt: Kasparov
Svart: Campora
Drottningarbragð
SB it— »
f 14 A *
m umm
■ ba b
WÍk ílll ílfe
25. f4-gxh5
26. f5-h4
27. fxe6-fxe6
28. g5-He7
29. Rg4-Hg7
30. Rh6-Db6
31. g6-hxg6
32. Rf7-Kg8
33. Dh6-Hh7
34. Hxg6-Hg7
35. Dh8
mát.
Hvítt: Höi
Svart: Gulko
Drottningarpeðsbyrjun.
1. d4-e6
2. RD-c5
3. e3-Rf6
4. Bd3-b6
5. 0-0-Bb7
6. Rbd2-cxd4
7. exd4-Be7
8. Hel-0-0
9. c3-d6
10. De2-He8
11. Rfl-Rbd7
12. Rg3-Bf8
13. Bg5-h6
14. Bd2-Dc7
15. Bc2-Bd5
16. b3-Db7
17. Rh4-b5
18. Dd3-g5?!
19. RD-BxO
20. gxf3-Bg7
21. h4!-gxh4
22. Re4-Dc6
23. Khl-Rh5
24. Hgl-Kf8
SKAKi
LÁRUS
JÓHANNESSON
1. c4-Rf6
2. d4-e6
3. Rc3-d5
4. cxd5-exd5
5. Bg5-Bc7
6. C3-0-0
7. Bd3-Rbd7
8. Rge2-He8
9. Dc2-Rf8
19. Rg3-Rg6
20. Rg2-Rd7
21. Hhgl-Hee8
10. 0-0-0-Be6
11. Kbl-Rg4
12. Bxc7-Dxe7
13. Rf4-Rf6
14. f3-c5
15. g4-cxd4
16. exd4-Dd6
17. Dd2-a6
18. Rce2-He7
22. Hdfl-Rgf8
23. Re3-Kh8
24. Rh5-g6
25. Hxg7!-Kxg7 29 Rxd6!!-Dxd6
26. Bxh6!-Kxh6 30 Dd3-Rf8
27. Hgl-f5 31 Dh7!!
28. De3-f4
og Gulko gafst upp.
Föstudagur 2. desember 1988 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 27