Þjóðviljinn - 23.03.1989, Blaðsíða 10
Síðumúla 6 — 108 Reykjavík — Sími 681333
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Ritstjórar: Árni Bergmann, Mörður Árnason, Silja Aðalsteinsdóttir
Umsjónarmaður Nýs Helgarblaðs: Sigurður Á. Friðþjófsson
Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Augiýsingastjóri: Olga Clausen
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Verð: 110 krónur
Voðaverk
Regnskógarnir í Suður-Ameríku eru 60 - 70 miljón ára
gamalt vistkerfi sem á sér engan líka í veröldinni að
fjölbreytni. Tegundafjöldi plantna og dýra er þar meiri en
á nokkru öðru gróðurbelti jarðar. En þó að vistkerfið sé
svona gamalt og fjölbreytt er það furðuviðkvæmt, sem
meðal annars stafar af því að einstaklingar af hverri teg-
und eru fáir.
Regnskógarnir eru ákaflega mikilvægir fyrir andrúms-
loftið á jörðinni vegna þess að þeir þurrka upp koltvísýr-
inginn sem við ausum upp úr jörðinni í gróðurleifum frá
fyrri tímabilum jarðsögunnar, olíu og jarðgasi, og sendum
út í loftið í sífellt vaxandi magni.
Einkenni á regnskóginum á Amazonsvæðinu í Brasilíu
er að mjög erfitt er að endurnýja hann og tekur gífurlega
langan tíma. Jarðvegurinn er næringarlaus, hlutlaus í
sjálfum sér eins og vatn. Hringrásin í vistkerfinu er svo
hröð að allt brotnar niður um leið og nýtist. Þarna vinna
saman á miklum hraða uppbyggjandi, neytandi og sundr-
andi lífverur í dásamlegu jafnvægi. En ef kerfið er opnað
og jafnvægi þess raskað, þá deyr það.
í Nýju Helgarblaði er í dag fjallað um háskalega
eyðingu regnskóganna í Brasilíu sem ógnar öllu lífi á
jörðinni. Við þessa miskunnarlausu eyðingu glatast teg-
undir plantna og dýra af jörðinni sem koma aldrei aftur.
Og það hræðilegasta er kannski að jörðin sem undan
regnskóginum kemur er bara nýtileg í örskamman tíma,
fáein ár, eftir það verður hún að eyðimörk, harðri hellu
sem ekkert er hægt að gera við.
Þegar skógarnir eyðast aukast „gróðurhúsaáhrifin"
svonefndu. Hitastigið hækkar á jörðinni vegna þess að
magn gastegunda í loftinu eykst. Það er hvorki hollur né
þægilegur hiti, börn okkar og barnabörn munu komast að
því ef við gerum ekki neitt til að sporna við þessari mikil-
virku skemmdarstarfsemi.
Ástæðan fyrir eyðingu regnskógarins er eftirsókn eftir
auðæfunum sem hann gætir. Það þarf að ryðja skógana
til að komast að ýmsum mikilvægum náttúruauðlindum,
járn-, úran- og gullnámum, og Brasilía er eitt skuldugasta
ríki jarðarinnar. Þversögnin er hins vegar sú að rányrkjan
kemur þjóðinni að litlum notum fjárhagslega, því bróður-
partur svæðisins er í eigu fárra jarðeigenda og banda-
rískra, evrópskra og japanskra stórfyrirtækja. Það er
ömurlegt til þess að hugsa að framleiðsla á hamborgur-
um fyrir amerískar veitingahúsakeðjur skuli stofna and-
rúmslofti jarðarinnar í stóran háska.
Þetta er þeim mun átakanlegra sem jarðvegurinn tekur
verr við ræktun. Smábændur sem áttu að fá hluta af
þessu landi til afnota og voru fluttir þangað í stórum stíl á
síðasta áratug hafa flúið þaðan aftur vegna þess hve það
er erfitt að lifa á landinu sem kemur undan regnskóginum.
Stórfyrirtækin ryðja nýtt og nýtt land, nota það meðan það
gengur og yfirgefa það svo til að ryðja ný svæði. Eftir
stendur landið, dautt.
Svo hafa vatnsvirkjanir valdið því að miklum landflæm-
um hefur verið sökkt. Til dæmis kostaði stíflan við Tucurui
að 246 þúsund hektörum af regnskógagróðri var drekkt.
Þar ofan í rotnar nú gróðurmassinn og sendir frá sér
eitraðar gastegundir í stórum stíl.
Eyðing hitabeltisskóganna er eitt mesta voðaverk sem
nú er unnið í umhverfismálum heimsins. Með henni hefur
maðurinn ófyrirsjáanleg áhrif á þróun iífs á jörðinni og
tekur sér vald langt umfram það sem hann hefur leyfi til.
SA
London
City
Ballet
íslendingar tóku vel við sér
þegar fréttist af komu London
City Ballet hingað til lands um
mánaðamótin. Uppselt er á
kvöldsýningarnar en örfáir miðar
eru enn til á síðdegissýninguna 1.
aprfl kl. 14.30.
Ballettflokkurinn sýnir dansa
úr þrem klassískum ballettum,
Hnotubrjótnum við tónlist Tcha-
ikovskís, Transfigured Night við
tónlist Arnold Schönberg og
Celebrations sem eru dansar við
tónlist Verdis.
Uppstilling úr Hnotubrjótnum.
Páska-EGG-leikhúsið
EGG-leikhúsið er eina at-
vinnuleikhúsið í höfuðborginni
sem sýnir um páskana. Sál mín er
hirðfífl í kvöld verður sýnt kl.
20.00 á 2. í páskum.
Eins og fram hefur komið hér í
blaðinu er sýningin í þrem
hlutum. Fyrst er fluttur í Hlað-
varpanum, Vesturgötu 3, ein-
þáttungurinn „Escuriel“ eftir
Belgann Chelderode um mið-
aldakonung og hirðfífl hans.
Spölkorn frá, í listasalnum Ný-
höfn við Hafnarstræti sjá áhorf-
endur næsta hluta sem er einþátt-
ungurinn „Afsakið hlé“ eftir
Árna Ibsen og hefur undirtitilinn
„grafalvarlegur gj aldþrotafarsi“.
Að þætti Arna loknum verður
„Escuriel" sýndur aftur í allt ann-
arri útgáfu og hafa leikendur þar
að auki skipt um hlutverk.
Sýningar verða ekki margar
sökum anna leikaranna.
ÚR MYNDASAFNINU
Póstmannafélag íslands 70 ára
Myndin úr myndasafninu er frá árinu 1975 þegar póstmenn fylktu liði á fund launafólks BSRB. Fremst í
fylkingu eru þau ReynirÁrmannsson, þáverandi formaður Póstmannafélags íslands og Lea Þórarinsdóttir
núverandi formaður félagsins.
Póstmannafélag (slands var stofnað 26. mars 1919 og á því 70 ára afmæli á páskadag. Það voru 11
póstmenn allsstaðar að af landinu sem stofnuðu félagið en félagafjöldinn núna er um 1000 manns.
Lea Þórarinsdóttir sagði að þar sem afmælið bæri upp á páskadag yrði ekkert sérstakt um að vera hjá
félaginu á sjálfan afmælisdaginn, hinsvegar verður mun meira um að vera hjá félaginu allt afmælisárið en
önnur ár. Þegar hefur verið haldin árshátíð félagsins og var hún með veglegra móti að sögn Leu. Þá er
ætlunin að gefa út veglegt afmælisrit.
Þegar Nýja Helgarblaðið ræddi við Leu var hún að fara á fund með fulltrúum ríkisins vegna þeirra
samningaviðræðna sem nú eru í gangi hjá launafólki. Hún sagði að póstmenn legðu höfuðáherslu á
verulegar launabætur þar sem póstmenn væru lægstir í launum innan BSRB. Um 80% félaga í Póst-
mannafélagi íslands eru með grunnlaun undir 55 þúsund krónum.
„Þar sem ríkisstjórnin segist hafa það á stefnuskrá sinni að hækka lægstu launin vonumst við eftir að við
það verði staðið. En það er Ijóst að við verðum virkilega að taka á honum stóra okkar, nú sem endranær."
10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ 'Flmmtudagur 23. mars 1989