Þjóðviljinn - 23.03.1989, Síða 17
Svario er ekki
Er hægt að sanna eða afsanna stjörnuspeki?
Allir hafa freistast til að kíkja á
stjörnuspár í blöðum. Stjörnu-
spár eða stjörnuspeki eins og
sumir iðkendur vilja kalla skrif
sín, eru mikill iðnaðurog
blómlegur. Ekki síst nú á
óvissutímum þegar mörgum
þykir sem þeir eigi hvergi í
heimi hæli tryggt.
Þegar menn eru svo að því
spurðir hvort þeir taki mark á
stjörnuspekinni, þá eru menn
sjaldan mjög afdráttarlausir í sín-
um svörum. Margir svamla í
þeirri þægilegu hálfvelgju sem
segir: æ það er nú sjálfsagt
eitthvað til í þessu. Það er svo
margt og svo margt. Eða þá að
menn barasta glotta að öllu sam-
an og segja: þetta er plat og
auðveldur leikur. Allt sem frá
stjörnuspámönnum kemur er svo
loðið og almennt orðað að hver
og einn getur heimfært það upp á
sig. Bull og markleysa allt saman.
En samt kíkja menn kannski á
næstu stjörnuspá. Svosem til
gamans?
Allt í einu rekst blaðamaður á
greinargerð um fróðlega tilraun
með stjörnuspár sem gerð var í
Kalíforníu í Bandaríkjunum fyrir
tveim árum (ætli það hafi ekki
verið um svipað leyti og uppvíst
varð að Nancy Reagan forsetafrú
skipulagði tíma manns síns eftir
ábendingum stjörnuspámanns).
Niðurstöður tilraunarinnar voru
birtar í tímaritinu Nature. Og þær
voru vægast sagt afar aumlegar
fyrir stjörnuspekina.
Spurt var: geta stjörnuspeking-
ar með því að hafa í höndum ná-
kvæman fæðingartíma manna
dregið einhverjar marktækar
ályktanir um persónuleika
þeirra? Eða svo enn nær sé sjálfri
athuguninni komið: geta þeir val-
ið úr þrem ítarlegum persónu-
leikalýsingum einmitt þá sem
passar við fæðingardag og stund
hvers og eins?
Svarið er blátt áfram þetta:
þetta geta stjörnuspekingar ekki.
Þeir hitta á það rétta í 30 % til-
fella. M.ö.o.:bandarískir stjörn-
uspekingar reyndust ekki hitta
oftar á réttan persónuleika en til-
viljunin sjálf. Sjálfir bjuggust
þeir við a.m.k fimmtíu prósent
árangri.
Niðurstaðan var sú, að könn-
unin varð „sérlega sterk sönnun"
gegn stjörnuspekinni, gegn þeim
hugmyndum eða staðhæfingum,
að til sé eitthvert samband milli
geimsins og mannlegra örlaga.
Niðurstaðan var þeim mun
hrapallegri fyrir stjörnuspeking-
ana sem þeir höfðu sjálfir tekið
fullan þátt í að undirbúa hana.
Þar kom við sögu „Þjóðarráð um
jarðnesk-kosmískar rannsóknir“
sem stjörnuspámenn taka mjög
mark á. 28 starfandi stjörnuspek-
ingar tóku þátt í prófinu. Það fór
þannig fram að 160 tilraunadýr
(flest stúdentar við Berkeley-
háskóla) gáfu upp nákvæman
fæðingartíma sinn. Átján ein-
kenni persónuleika þessa fólks
(t.d. ráðríki, sjálfsögun, ábyrgð-
artilfinning, kvenleiki, umburð-
arlyndi) voru fram dregin í sam-
ræmi við staðlað persónuleika-
próf (California Personality In-
ventory. CPI). Stjörnuspeking-
arnir sjálfir kusu CPI vegna þess,
að þar eru notuð hugtök hliðstæð
þeim sem þeir sjálfir nota.
Tilraunin fór fram undir
ströngu eftirliti - m.a. fengu
hvorki þolendur né spámenn að
hittast og þekktu engin nöfn hvað
þá meir. Þátttakendur úr hópi
stjörnuspekinga voru sérprófaðir
með það fyrir augum að útiloka
þá sem efuðust um réttmæti sinn-
ar iðju. Og sem fyrr segir: niður-
staðan var næsta dapurleg fyrir
stjörnuspekina.
Ekki sama
hvernig spurt er
Oft hafa menn, ekki síst sál-
fræðingar, reynt að prófa verð-
leika stjörnuspekinga með
skýrslugerð. Til dæmis fengu
frönsk hjón, Francoise og Michel
Gauquelin, trú á stjörnuspeki
eftir að þeim sýndist af talningu,
að óvenju margir framúrskarandi
íþróttamenn og herforingjar
væru fæddir undir Mars í tiltekn-
um húsum, eins og það heitir.
Nánari skoðun leiðir það þó í
ljós, að „marsáhrifin" eru næsta
lítið fyrir ofan það hlutfall sem
tilviljunréð. Annaðdæmi: bresk-
ur sálfræðingur, Hans Eysenck,
taldi að hann fyndi í viðtölum við
Stjörnuspekingur
frá fyrri tíð: þetta er
mjög lífseig
starfsgrein.
2300 manns furðumikla sam-
svörun persónuleika og stjörnu-
merkja. En hann hopaði vel á
hæli í sinni trú þegar hann komst
að því, að margir þeirra sem hann
hafði talað við höfðu svarað
spurningalistum ekki fyrst og
fremst eftir því sem þeir vissu
best um sjálfa sig, heldur höfðu
þeir notast við eitt og annað sem
þeir höfðu lesið um sitt stjörnu-
merki í blöðum. Og er mörg gild-
ran á vegi þeirra sem vilja finna
skothelda aðferð í slíku trúmáli
sem þessu hér.
Sæll er hver í
sinni trú
Ekki þar fyrir: við erum að rifja
upp könnun sem gerð var fyrir
þrem árum og það er eins víst að
allir hafi gleymt henni. Það er
eins með þá sem trúa eða treysta
á stjörnuspeki og aðra trúmenn:
þeir eiga afskaplega auðvelt með
að ýta öllu því frá sér sem truflar
þá. Menn vita og viðurkenna
ekki annað en það sem þeir kæra
sig um sjálfir: heimurinn er eins
og ég hugsa hann, og sá sem trúir
á stjörnu finnur stjörnu.
ÁB tók saman
Ef iíkaminn fær ekki
nægjanlegt kalk úrfæðunni,
gengurhann á forða
kalkbankans og aukin
beingisnun á sérstað.
virðast nýta kalkið betur og
hafaþví meiri beinmassa á
efri árum en þeir sem hreyfa
sig lítið.
m
fyrirþásem
kjósa fituskerta mjóik að
neyta einnig lýsis, sem erríkt
af fituleysanlegum
vítamínum.
B vítam I sem talsvert er af í
mjólk eru nauðsynleg tilþess að
viðhalda heilbrigði taugakerfisins.
hefst venjulega um
miðjanaldur. Beiningisnainnan
frá og styrkurþeirra minnkar. Þess
vegna eykst hætta á beinbrotum
og að hryggjarliðirfalli saman.
er mikilvægt að
muna, að lífsfjörið og heilsan eru háð réttri
næringu.
Rétt næring leggur grunn að góða skapinu og
ásamt hreyfingu hamlar hún gegn beingisnun
og hrörnun og blóðið rennur mun léttar
um æðarnar.
er mikilvægur hlekkur í fæðuhringn-
um. Hún er einn fjölhæfasti bætiefnagjafi sem
völ er á. Erfitt er að fullnægja kalkþörf líkamans
án mjólkur eða mjólkurvara.
Auðvelt er að velja mjólk og mjólkurvörur með
mismunandi fitumagni eftir þörfum hvers og
eins en ráðlagður dagsskammtur fyrir fólk yfir
50 ára aldri samsvarar 2 glösum af mjólk á dag"
‘Margir telja aö kalkþörf aldraöra sé meiri, eöa sem samsvarar 3 glösum á dag.
MJOLKURDAGSNEFND
B-2 vítamín er nauðsynlegt fyrir
augu, húð, negluroghár. Mjólkog
mjólkurvörur eru ein auðugasta
uppspretta B-2 vítamíns í fæðu
okkar fyrir utan innmat.
Eldur í
æöum?
Próteinið í mjólk
hágæðaprótein og nýtist því
vel í stöðuga endurnýjun og
uppbyggingu líkamans.
Ijóðeiga
erindi tíl aDra
ÍSLENSK KVÆÐI
Vigdís Finnbogadóttir valdi
„Ég hef lengi litið svo á að Ijóðalestur og Ijóða-
söngur sé hin ágætasta leið til að efla málvitund
manna, auka orðaforða og treysta samhengið í
sögu okkar, auk þess sem skemmtileg og falleg
Ijóð veita huganum gleði sem enginn getur frá
honumtekið."
Úr formálsorðum Vigdísar Finnbogadóttur.
Gullfalleg
feimingaigjöf
Mál IMI og menning
Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240.
.1