Þjóðviljinn - 23.03.1989, Qupperneq 26
1 z 3 s~ (o h 8 3 S? /0 2 // (p r i
)Z )H 5~ H- S? II )£ )(o )/ 3 2o )) 71
)ö + £ 10 10 2J 22 JiT 23 Wr <7 0? h Vt
2(, 2sr 20 n p. s? ? 2* 22 R? £ )sr
)$ & S? & 23 SP 3 )i )•/- Tl )£ V
n & sa 2? 3Ö )2 1 II % 2o V 3/
v- zz 7- 25 S? w h )i )h \H H- i S? (o
& 7- 3 7- JiT S? h sr 22 s? 7- 22 7-
U sr W S? 2£~ 6 )( 23 1/ 3 13 <7 £
V £>“ ‘Á r + 23 30 23 SP 23 3i) )2 n G s? w
30 U 22 n~ )£T 20 S2 * 7S 23 25" 30 )
is- W~ h 2f 20 ll i<r 2jd 2<) h
10 SP + 23 ~h )/ 3 u .. sa 22 )( 3 2 | 1 1
MATU
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Nr.
Verðlaunakrossgáta 36
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá götuheiti á
Akranesi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans,
Síðumúla6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 36“. Skilafresturerþrjár
vikur. Verðlaunin verða send vinningshafa.
)0 J2 2S
3D3!
-i —
¥-
7/ jó' \2Þ
1
Lausnarorðið fyrir verðlaunakrossgátu nr. 33 var KRISTBJÖRN. soennuTaqan Sakfaíst^blóð^effir
Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Erlu Sigurðardóttur. pPD Jamj Má, 0Q mennfna aaf
Hun fær senda Ijóðabókina Vefurinn sífelldi eftir Helga Sæmundsson. ® ® ^
TAROT
GERARD
EMARQUIS
Ótryggðir magar
Les einhver matarpistla í blöð-
unum? Sjálfur efaðist ég um það
og vildi gera smá tilraun með því
að smygla eitraðri uppskrift inn á
milli línanna. Sennilega hefði ég
fengið viðbrögð. Hugmyndin var
að gera eins og vísindamenn þeg-
ar þeir telja hvalina...
Ég er hættur við þessar vísinda-
legu rannsóknir því viðbrögðin
komu af sjálfu sér. Ég fékk mörg
bréf. Flest koma frá lesendum
sem biðjast afsökunar á því að
hafa ekki haft tíma til að prófa
uppskriftir mínar. Aðrir kvarta,
eins og þessi sem sendi bréfið sem
birtist hér í heild og ætla ég að
reyna að svara eins vel og mér er
unnt.
„Ég prófaði þitt bújabess eða
hvað það heitir. Við veiktumst öll
og erum ennþá slöpp núna viku
seinna. Kötturinn er meira að
segja þungt haldinn. Verst aföllu:
Síminn svarar aldrei hjá vinum
okkar sem var boðið í veisluna.
Og mér er spurn er Nýja Helgar-
blaðið tryggt fyrir afleiðingum
mataruppskrifta sem birtast í
honum?
Ein slöpp og reið. “
Stutt afhugun leyfir mér að
svara afdráttarlaust. Svarið er
nei.
Mér finnst óhugsandi að borða
fisk um páskana. í Frakklandi
bernsku minnar var fiskur refsing
fyrir Föstudaginn langa, sem
þurfti alls ekki til að gera hann að
versta degi ársins.
Hvítlauks-
kjúklingur
1 kjúklingur
1 glas olífuolía
1 hvítlaukur (má notafleiri lauka)
kryddjurtir
salt
pipar
Hellið helmingi olíunnar í eld-
fast fat. Setjið helminginn af
hvítlauksrifunum í botn fatsins.
Fyllið kjúklinginn með jurtum,
saltið, piprið. Setjið restina af
hvítlauksrifunum ofaná kjúkling-
inn í fatinu og hellið hinum helm-
ingi olíunnar yfir.
Setjið í ofn og steikið í 1 klst á
210-250 °C.
Þið megið drekka hvaða vín
sem er með kjúklingnum en farið
í bað áður en þið farið í vinnuna
daginn eftir.
Hilmar Öm
Hilmarsson
Legg þú á djúpið
Loksins er komið að því að þið
leggið fyrstu alvöru Tarotlögnina
og auðvitað verð ég að byrja á því
að þvæla aðeins í kringum hlut-
ina, en að sjálfsögðu í þeirri von
að það komi ykkur til góða á
hinni grýttu braut spámennsk-
unnar.
Dulspekingar hafa á seinni
tímum reynt að fá lánuð hugtök
úr vísindum til þess að útskýra
hvernig hinar mjög svo óvísinda-
legu aðferðir þeirra geti virkað og
þegar á síðustu öld töluðu guð-
spekingar og sálarrannsóknar-
menn af mismikilli þekkingu um
„etherinn" eða ljósvakann og
tengsl hans við hin ýmsu yfirnátt-
úrulegu fyrirbæri. Ljósvakinn
átti að vera miðill sem innihéldi
eins konar upptökur af fortíð,
nútíð og framtíð og væri ekki að-
eins ljósleiðari heldur einnig
símalína yfir í andaheiminn. Þeg-
ar tilvist ljósvakans var afsönnuð
í frægri tilraun þeirra Michaelson
og Morley, árið 1895 að mig
minnir, misstu dulspekingar ansi
góðan spón úr aski sínum og það
er ekki fyrr en að hin margræða
heimsmynd skammtaeðlisfræð-
innar fór að verða poppuð upp í
pappírskiljum að gömlu frasarnir
fóru að fljúga aftur. En margir
brúuðu bilið milli gömlu eðlis-
fræðinnar og þeirrar nýju með
því að taka kenningu föður Djúp-
sálarfræðinnar, Carl Gustav
Jung, um „Samtímgun“ eða
„Synchronicity" og útskýra með
henni hvernig hinar ýmsu spá-
dómsaðferðir geti virkað. Kenn-
ing þessi sem Jung fullvann með
eðlisfræðingnum Pauli gengur í
stuttu máli útfrá því að sérhver
atburður sem gerist á ákveðnu
andartaki feli í sér eðli þessa til-
tekna andartaks. Þannig er það
að þegar einhver manneskja sem
heftir fyllt vitund sína með brenn-
andi spurningu og leggur út Tar-
otspil, kastar I Ching peningum
eða notar einhverja áþekka að-
ferð, þá tengist útkoman eðli og
innihaldi spurningarinnar. Ef
fólk notar þær fornu hefðir sem
eru tengdar gömlum spádómsað-
ferðum þá er oft um að ræða
helgisiði sem tekur marga klukk-
utíma að framkvæma, helgisiðir
Uppröðun spilanna.
hverra tilgangur er ef til vill fyrst
og fremst að láta spyrjandann
fylla vitund sína af einni sterkri
og magnaðri hugsun. Sumsé ef
þið viljið fá nákvæm svör þá verð-
ur ykkur að vera full alvara.
Auðvitað þurfið þið ekki að
taka daginn í eina lögn, en þeim
mun dýpri sem einbeitingin er
þeim mun markverðari verða
svörin.
Leggið spilin í þeirri röð sem
þið sjáið á myndinni. Eins og þið
sjáið verða þarna fimm hópar af
spilum og sérhver hópur stendur
fyrir ákveðið hugtak. Fyrsti hóp-
urinn, þ.e. spil 1, 2 og 3 vísa til
eðlis málsins og þau megináhrif
sem eru í gangi. Ennfremur má
Iíta á spil 1 sem tákn fyrir spyrj-
andann og spil 2 og 3 sem lýsingu
á persónu hans eða þeim áhrifum
sem hann verður fyrir frá sínu
nánasta umhverfi.
Spil 13,9 og 5, ásamt spilum 4,
8 og 12 vísa til tveggja möguleika
á framtíðarþróun. Spilin vinstra
megin standa yfirleitt fyrir hvað
spyrjandinn getur sjálfur gert í
sínum málum, en spilin hægra
megin sýna þá þróun sem verður
ef ekkert er aðhafst.
Spil 6, 10 og 14 eru eins konar
ráðgefendur og sýna sálfræðilega
undirstöðu málanna.
Spil 7, 11 og 15 vísa til forlag-
anna, þeirra þátta sem spyrjand-
inn hefur ekki á valdi sínu að
breyta. Þetta er oft kallað
„Karma“, sem er hugtak sem
vesturlandabúar hafa fengið lán-
að frá indverskum dul og trú-
spekingum og hafa náð að gera
óþekkjanlegt á ca. einni öld. í
okkar takmarkaða skilningi er
það yfirleitt notað yfir þá hluti
sem við megum þola f þessu lífi út
af einhverju sem við gerðum í
einhverju fyrra lífi.
Já að lokum má geta þess að
mannspil sem koma upp í lögn-
inni vfsa yfirleitt til fólks sem eru
áhrifavaldar.
En sumsé góða páskahelgi og
ég vona að þetta gefi ykkur smá
forskot á framtíðina.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Flmmtudagur 23. mars 1989
r t- t