Þjóðviljinn - 14.04.1989, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 14.04.1989, Qupperneq 18
Kosningabarátta í Sovétríkjunum Samanburðurámálflutningitveggjaframbjóðenda Árni Bergmann tók saman Kosningar til þings í Sovét- ríkjunum, sem fram fóru í lok síðasta mánaðar, hafa að vonum vakið mikla athygli. Að vísu hefur mönnum gengið erfiðlega að fá upplýsingar um margt sem þær varðar. Til dæmis virðist það mjög hafa farið eftir lýðveldum og kjör- dæmum, hve vel eða illa það gekk mögulegum frambjóð- endum að komast á kjörseðil. Það er líka Ijóst af þeim úrslit- um sem um hefur verið skrif- að, að sovéskir eru blátt á- fram mjög misjafnlega sjóaðir í lýðræðislegum vinnubrögð- um. Flokksmaður og utan flokka Annað er forvitnilegt: hvemig fór kosningabaráttan fram, hvaða mál eru það sem þeir fram- bjóðendur hafa á oddinum sem gagnrýnastir voru á nkjandi ástand, á hvaða plani fer um- ræðan fram? Við þessu er heldur ekkert eitt svar að fá. En það get- ur verið forvitnilegt að skoða einskonar kjörfund milli tveggja frambjóðanda í einu kjördæmi, sem vikublaðið Nýi tíminn efndi til skömmu fyrir kosningar-til að færast þá ögn nær svari. Um er að ræða frambjóðendur til fuiltúraþingsins í Kírovkjör- dæmi í Moskvu. Annar er Alex- ander Kúzmín, deildarstjóri í vís- indastofnun, utanflokka. Hinn er Alexander Sarzhin, meðlimur í Kommúnistaflokknum og for- stjóri húsgagnaverksmiðju þar í hverfinu. Vald til ráðanna í formála sínum að umræðunni gerði Kúzmín grein fyrir sínum sjónarmiðum á þessa leið: Við erum í hálfgerðu kreppu- ástandi m.a. vegna þess að fólki finnst það ekki hafa tök á lífi sínu, það hefur líka verið vanið af því að hafa frumkvæði allt frá því að menn voru á dögum Stalíns aldir upp til að vera einskonar skrúfa í vél. Við þurfum að hjálpa fólki að endurheimta virðingu fyrir sjálfu sér og það er erfitt. Höfum þá í huga, að lausnir á efnahags- legum og félagslegum vandamál- um eru samtengdar. Ég held það verði að endurskipuleggja alla stjórnsýslu, gefa grænt ljós á láns- og leigukerfi, og færa raunveru- legt vald til kjörinna ráða (borgar og sveitastjórna). Pau hafa ekk- ert vald eins og nú er, heldur er það í höndum framkvæmdanefn- da flokksins og fulltrúar í ráðun- um hafa verið eins og hverjir aðr- ir bónbjargarmenn frammi fyrir þeim. Kúzmín tók fram, að fólk ætti ekki bara að fá að leigja land af ríkinu eins og gert er í sveitum og reka fyrir eigin reikning, heldur og heil fyrirtæki (sem eru þá rek- in á ábyrgð starfsfólksins). Hann telur mikilvægt að ráðin taki hús- næðismálin í sínar hendur, á hverjum stað sé húsnæðisþörfin könnuð ítarlega og ráðin beri síð- an ábyrgð á lausn þeirra. Kúzmín lagði áherslu á nauð- syn þess að veita eftirlaunafólki Spáný sovésk skopmynd sem við skulum vona að eigi ekki við um frambjóðendur okkar tvo. félagslega vernd gegn verðbólg- unni. Verkamenn eru að nokkru leyti varðir fyrir henni með kauphækkunum, en ellilífeyris- þegar fara illa út úr verðlagsþró- un og úr því verður að bæta. Hann lagði og áherslu á nauð- syn þess að Sovétrækin væru rétt- arriki og laga, að stjómvöld gætu ekki gefið út tilskipanir sem jafngiltu lögum. Vöruskortur í búðum Alexander Sarzhin kvaðst vilja tala bæði um það sem hann vildi gera í sínu kjördæmi og þær breytingar sem hann vildi koma á í Sovétríkjunum í heild. í kjördæminu lofaði hann að beita sér fyrir betri almennings- samgöngum og auknu vöruvali í búðum (vöruskortur er sá eldur sem heitast brennur á hverri venjulegri sovéskri fjölskyldu). Hann tók dæmi af sínu húsgagna- fyrirtæki, sem hefði bætt kjör síns fólks ekki endilega með kauphækkunum („pappírspen- ingum“ sagði hann) heldur með matvælapöntunarþjónustu, við- gerðarþjónustu fyrir starfsfólkið og líkamsræktarmöguleikum. Hann vildi halda áfram á þeim brautum í öðrum fýrirtækjum, sömuleiðis auka hlut fyrirtækj- anna í húsnæðiskostnaði starfs- fólksins. Sarzhin vill koma á fót þrem eða fjórum fulltrúaráðum al- mennings í kjördæminu, sem hefðu tekjur af aðstöðugjöldum sem lögð eru á fyrirtækin. Þau ættu meðal annars að taka að sér mál eins og mengunarmál. Hann var ekki eins hrifinn af láns- og leigukerfinu og andstæðingur hans. Um leið kvartaði hann yfir því, að seint gengi að gera fyrir- tækin sjálfstæð í sínum ákvörðun- um eins og perestrojkan þó lofaði - hvers konar forstjóri er ég, sagði hann, ef að ríkið tekur til sín 90 prósent af öllum ágóða okkar og ríkispantanir gleypa alla framleiðsluna? (Þetta er algeng kvörtun hjá sovéskum for- stjórum: þeir segjast ekki geta hreyft sig í alvöru fyrr en þeir fái að ráðstafa sjálfir miklu meiri hluta ágóðans og ráða miklu meiru um það, hvort þeir selja vöru sína einstaklingum eða öðr- um fyrirtækjum í frjálsum við- skiptasamningum - í stað þess að afgreiða ríkispantanir, sem eru að sumu leyti skattlagning, vegna þess að ríkið ákveður kaupverðið sjálft). Sarzhin kvaðst fýlgjandi því málfrelsi sem glasnost hefur fætt af sér en „mér finnst að öfgar sem gætir í málflutningi ýmissa óf- ormlegra samtaka stefni að því að grafa undan undirstöðum sósíal- ismans“ (Með því orðalagi komst hann einna næst þeim tón sem lengst af ríkti í Sovétríkjunum þegar deilt var um málfrelsi: „bara það dragi nú ekki dilk vondan á eftir sér“). Blaðamenn spurðu þessu næst hvað frambjóðendur héldu um málfutning hvor annars. Deilt um verð- lag og fleira Kúzmín sagði: Það eru ýmsar þverstæður í stefnuskrá Sarzhins. Hann kveðst vilja efla rétt fyrir- tækja og bænda, en efast um leigusamningakerfið, sem ég tei ný grundvallarréttindi fólksins. Sarzhin: Ég fer ekki ofan af því að leigukerfið er ekki allra meina bót. Stefnuskrá Kúzmíns er víð- tæk, en ekki praktísk. Ég finn þar ekki ákveðnar tillögur um um- bætur - nema að því er varðar leigusamningana, og um þá erum við ósammála. Þessu næst var farið inn á um- Kjörkassar opnaðir: í fyrsta sinn var spennandi að telja atkvæði í Moskvu. mæli sem Sarzhin hafði látið falla um nauðsyn þess að auka afköst í fyrirtækjum til að leysa efnahags- vandann og bæta úr vöruskorti. Til hvers, spurði Nýi tíminn, að auka framleiðni t.d. í skóverk- smiðju sem enginn vill kaupa skó af? Sarzhin: Ég á við gæðafram- leiðni. Við eigum að breyta af- stöðu okkar til gæðamats. Við þurfum ný hráefni, nýja tækni og svo framvegis. Kúzmín: Spurningin um gæði er um annað. Við þurfum ný hrá- efni og tækni, vitanlega. En þau heimta aukin útgjöld og hærra verð. Vandinn er sá að Sarzhin vinnur við alltof þægilegar að- stæður, án samkeppni, og það hefur sett svip sinn á skoðanir hans. Það er hægur vandi að selja húsgögn af því það er mikill skortur á þeim. Raunveruleg gæðavara verður þá fyrst til að upp komi samkeppni milli fyrir- tækja. En núna meðan fram- leiðendur eru enn í einokunarað- stöðu, þá getur endumýjun á vél- abúnaði og tækni aðeins leitt til verðhækkana og aukins fram- færslukostnaðar. Niðurgreiöslur, sóun Sarzhin: Við neyðumst til að taka á okkur verðhækkanir. (Því má skjóta hér að að allt fram á tíma glasnost hefur verðbólga verið bannorð í umræðum um so- véskt efnahagslíf). Það er ekki hægt að komast hjá þeim, en það er hægt að takmarka þær. Kúzmín: Með hvaða ráðum? Sarzhin: Með niðurgreiðslum ríkisins. Kúzmín: Já en það er bara að taka úr einum vasanum og setja í hinn. Og vasarnir eru ekki botn- lausir. En ég held að hægt sé að koma á traustu verðlagi. Það er eitt af höfuðverkefnum perest- rojkunnar og mælikvarði á það hvort hún tekst. Það verður að koma á föstu verðlagi með alvöru sjálfsábyrgð fyrirtækja í rekstri og öflugri herferð til að skera nið- ur kostnað. Nógir era peningarnir ef að er gáð. Hvað haldið þið, að mikið fé fari í súginn við að þriðjungur komuppskerunnar kemst aldrei til neytenda? Við verjum miklu fé í að kaupa vélar og búnað er- lendis, en oft er þessi útbúnaður látinn standa ónotaður árum saman. Víða má föng finna. So- vétríkin framleiða meira af stáli en nokkurt annað ríki. En hvern- ig er það notað? Maður getur ekki keypt sér alminnileg rakvél- arblöð! Skilvirkni í framleiðslu jafnt sem dreifingu og geymslu er forsenda fyrir stöðugu verðlagi. Sarzhin: Ég er sammála and- stæðingi mínum um þetta. Og auk þess vitum við að „skuggak- erfið í efnahagslífinu“ ræður líka yfir miklu fjármagni. Þingmaður þarf að hafa hugann við það m.a. þegar hann leitar ráða og fjár til að bæta lífskjörin. Starf þingmanns Þessu næst var farið að ræða um það hvernig frambjóðendur 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föatudagur 14. apríl 1989

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.