Þjóðviljinn - 09.06.1989, Qupperneq 10
Atli Már Bjarnason, einn af hinum
efnilegu íslensku billjardspilurum,
sem staðið hefur sig með ágæt>-
um á heimsmeistaramótinu.
Mynd -Jim Smart.
Ótrúleg snilli hjá strákunum
Heimsmeistaramót unglinga í snóker í Hafnarfirði. Billjardíþróttin á íslandi í stórsókn. Guðbjartur Jónsson form.
Billjardsambandsins: Gott unglingastarf skilar árangri. Heimsmeistaramótið hefur vakið mikla athygli á íþróttinni
Snillingurinn Gary Hill frá Bretlandi gerði sér litið fyrirog tæmdi borðið í einu stuði sl. sunnudag.
Mynd- Jim Smart.
Heimsmeistaramót ungjinga í
snóker, 20 ára og yngri, hefur
staðið yfir í íþróttahúsinu í Hafn-
arfirði frá því í fyrri viku, en því
lýkur með úrslitaviðureigninni á
laugardag. Mót þetta sem er hið
fyrsta sinnar tegundar hérlendis,
hefur vakið töluverða athygli,
ekki síst vegna góðrar frammi-
stöðu fjölmargra íslenskra spil-
ara og frábærrar leikni margra
hinna erlendu spilara, sem sumir
hverjir standa hinum þekktu
atvinnumönnum í íþróttinni
hvergi á sporði, eins og þegar hef-
ur sýnt sig og sannað.
Hápunktur mótsins til þessa er
tvímælalaust heimsmet Bretans
Gary Hill, sem gerði sér lítið fyrir
sl. sunnudag og hreinsaði borðið,
fékk 147 stig, sem er það hæsta
sem hægt er að fá í snóker
Ótrúlega
góður árangur
- Árangur strákanna hefur
verið ótrúlega góður, en sjö sinn-
um hafa þeir náð stuðum yfir 100,
fram til þessa, en það er betri ár-
angur en oftast næst á stórmótum
sem þessu, segir Guðbjartur
Jónsson, formaður Billjardsam-
bandsins, en hann hefur borið
hitann og þungann af undirbún-
ingi þessa móts.
Það er samdóma álit þeirra
sem fylgst hafa með að sérlega vel
hafi til tekist og aðstæður allar á
keppnisstað séu hinar bestu.
„Borðin hafa staðist ströng-
ustu kröfur en til að fá metið á
sunnudag metið þurfti að mæla
borðið upp með sérstökum mæli-
tækjum frá alþjóðasambandinu
og það gekk allt upp. Fulltrúar
alþjóðasambandsins hafa einnig
lýst ánægju sinni með allan að-
búnað, segir Guðbjartur.
Keppni í úrslitariðlum hófst í
gær og verður framhaldið í dag en
aðalúrslitaleikurinn hefst annað
kvöld og verður fram haldið á
laugardag. í úrslitaleiknum er
spiluð 21 lota, sem er mun meira
en í venjulegum leik. Þrír íslensk-
ir spilarar, þeir Atli Már Bjama-
son, Eðvarð Matthíasson og Arn-
ar Richardsson hafa tryggt sér
sæti í 16 manna úrslitum, en Atli
hafði átt góða möguleika á sæti í 8
manna aðalúrslitum.
Þeir íslensku
hafa
staöiö sig vel
- íslensku strákamir hafa nær
allir staðið sig eins og menn
bjuggust við. Það hefur verið
lögð mikil áhersla á uppbyggingu
unglingastarfsins síðustu ár hjá
Billjardsambandinu og við eigum
orðið fjölmarga mjög góða spil-
ara. Því áttum við von á því að
þeir stæðu sig vel í þessari keppni
eins og margir hafa gert, en það
sem kannski hefur skort fyrst og
fremst er keppnisreynsla. Við
eigum fjóra mjög góða spilara
sem eiga að geta staðið í þeim
bestu erlendis frá, eins og þeir
hafa sýnt í sumum leikjum, en
þeir þurfa að komast í fleiri svona
stórmót. Þeir hafa klikkað á at-
riðum sem eiga að geta verið í
lagi. Þeir spila vörnina ekki nógu
vel og hafa verið að taka óþarfa
áhættu sem þeir bestu gera ekki.
Guðbjartur segist hafa orðið
var við mikinn áhuga á þessu
móti, bæði gegnum sjónvarpsút-
sendingar og einnig hefur verið
ágætis aðsókn að mótinu. - Það
eru hérna afburða góðir spilarar
og fjórir þeirra eru atvinnumenn.
Ég veit að einn þeirra hafði í tekj-
ur af mótum í maí 12 þús. pund
(rúm miljón). Þetta eru strákar
sem bíða á þröskuldinum eftir að
komast inn í aðalatvinnumanna-
hópinn og það er alveg víst að hér
verða hörkuúrslitaleikir í dag og
á morgun.
Breytt og betra
yfirbragö
Billjardspilurum hefur fjölgað
mikið á síðustu árum og jafnvel
síðustu mánuðum og virðist vera
mikill áhugi á þessari íþrótt um
allt land. Billjard heáir verið
stundaður hér um langt árabil en
á síðari árum hefur þessi íþrótt
haft á sér miður gott orð, þar sem
spilað var í reykmettuðum búll-
um og vín oft haft um hönd.
- Það er rétt, ástandið var oft
miður gott, en það hefur orðið
mikil breyting á í þessum efnum
eftir að Billjardsambandið var
stofnað árið 1984. Ef vínlykt
fyndist af manni í dag, þá yrði
hann umsvifalaust rekinn úr
keppni og það eru í smíðum regl-
ur sem banna allar reykingar í
keppni. Yfirbragðið er nú með
allt öðrum hætti en þekktist áður,
þetta eru prúðir og mjög agaðir
strákar, segir Guðbjartur Jóns-
son formaður
Billjardsambandsins.
-lg-
III REYKJKIÍKURBORG »fl j
MT Jlcuoian, Stödtvi
Vistheimilið Seljahlíð
Hjallaseli 55
Hjúkrunarfræöingar óskast í sumarafleysingar í
júlí og ágúst.
Upplýsingar gefur Aðalheiður Hjartardóttir í
síma 73633.
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f. h. Gjald-
heimtunnar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúr-
skurði, uppkveðnum 6. þ. m., verða lögtök látin
fara fram fyrir vangoldnum opinberum gjöldum
utan staðgreiðslu, sem féllu í gjalddaga 1. fe-
brúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní 1989.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum,
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða hafin
að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar, verði tilskildar greiðslur ekki inntar
af hendi innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
6. júní 1989
10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ