Þjóðviljinn - 09.06.1989, Page 12
BARNAKOMPAN
Umsjón:
KRISTÍN VALSDÓTTIR
ANDRÉS GUÐMUNDSSON
Þjóðtrúin
Glasagrikkur
Hvolfdu glasi yfir annað glas fullt af vatni eins og sýnt er
á myndinni. Segðu síðan áhorfendum að þú treystir þértil
að drekka vatnið úr neðra glasinu, en snerta þó hvorugt
glasið með höndunum. Síðan sannar þú mál þitt með því
að beita hökunni þannig að þú náir efra glasinu af og
síðan er eftirleikurinn auðveldari.
Dýrin voru til margra
hluta nytsamleg og menn
trúðu að hegðun þeirra
stæði í einhverju sambandi
við náttúruöflin. Sagt var
að ef köttur þvær sér á bak
við eyrað á vetrardag spái
það hláku. Ef köttur hvessir
klærnar teygir sig og
hleypir klónum fram boðar
það storm. Ef köttur rífurtré
með klónum boðar það
hrakviðri á sumrin en stór-
hríð á vetrum. Ef hrært er
saman hjarta úr alsvörtum
ketti og ístru úr alhvítum
hana og hræran borin í
augu sér má sjá jafnvel að
nóttu sem degi.
Mýs geta líka aðstoðað
fólk á ýmsan hátt ef ekki er
til plástur og menn þora
ekki til tannlæknis.
Músartönn var talin góð
við tannpínu ef hún var
brotin og stangað með
henni við tönnina. Ef
brenndu músarskinni var
blandað saman við smátt
skorinn vallhumal, mulinn
pipar og mold úr kirkjugarði
var komið gott sárameðal.
Afmælið hjá Siggu
Einu sinni varð Sigga
sex ára og um morguninn
fór hún að taka til í herberg-
inu sínu. Svo fór hún til
mömmu sinnar og sagði:
„Veistu það mamma, ég er
búin að taka til í herberginu
mínu.“ Þá sagði mamma
hennar að hún mætti opna
afmælispakkann sinn og
svo kom hún með pakk-
ann. Hún kallaði á pabba
sinn og hann kom til þess
að sjá hvað væri í pakkan-
um. Hún opnaði hann og
sá að það var stór, stór
dúkka í gulum kjól. Og svo
fórum við upp í sumarbú-
stað og svo hélt hún upp á
það viku seinna.
Erna Rán Arndísardóttir
10 ára
Draugasaga
Einu sinni var hús eitt
upp í sveit. í því bjuggu
kona og barn. Eina nóttina,
þegar konan var sofandi,
heyrðist brak í gólfinu. Hún
vaknaði, reis á fætur og tók
sér í hönd bambusprik og
faldi sig inni í skáp, en hafði
smárifu til að gá hver væri á
ferð. Hún heyröi að tekið
var í hurðarhúninn. Svo
opnuðust dyrnar og inn
kom lítil mannvera og sagði
smábarnalegri röddu:
„Mamma þetta er bara ég
að pissa.“
Magnús Geir Gíslason
10 ára
Að soga vatn í glas
í hita og eldi er fólginn kraftur. Þetta getið þið sannað
með eftirfarandi tilraun. Þú þarft pening, tyggjó, eldspýtu,
.------ ^ ». vatnsglasog undirskáltil aðframkvæmatilraunina. Fyrst
J l_______ kemur þú eldspýtunni lóðrétt fyrir með því að kiessa
Snati litli ætlar að skjótast yfir umferðargötuna af því að hann á erindi við tyggjóieðaleirápeninginn. Peningnum með eldspýtunni
brunahanann hinum megin. Þó það sé auðvitað bannað að hlaupa þannig yfir er komið fyrir á undirskál sem fyllt er með vatni. Síðan er
götu skaltu hjálpa honum að velja leiðina milli bílanna. kveikt á eldspýtunni og glasinu hvolft yfir.
12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. júní 1989